Skessuhorn - 09.11.2005, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 9. NOVEMBER 2005
Kallað eftir glæstri framtíðarsýn:
Ibúaþing í nýju sameinuðu
sveitarfélagi
Hólmfríthir Sveinsdóttir.
Akveðið hefur verið að kalla
til fundar íbúa í nýju sveitarfé-
lagi sem til verður úr Borgar-
byggð, Borgarfjarðarsveit, Hvít-
ársíðuhreppi og Kolbeinsstaða-
hreppi. Ibúaþing þetta verður
haldið á Hvanneyri laugardag-
inn 19. nóvember. Hefst það
klukkan 10:30 og stendur til
15:30. Umsjón með íbúaþinginu
hefur Rannsóknarmiðstöð Við-
skiptaháskólans á Bifröst og er
Hólmfríður Sveinsdóttir verk-
efhisstjóri.
„A þessu íbúaþingi gefst íbú-
um kostur á að móta stefhu og
framtíðarsýn fyrir nýtt sveitarfé-
lag, en sameining tekur gildi ffá
og með sveitarstjórnarkosning-
um vorið 2006,“ sagði Hólm-
ffíður í samtali við Skessuhorn.
„Við munum líta til ffamtíðar og
ræða það í hvernig samfélagi
viljum við búa í effir 5,10 eða 20
ár. Jafnframt munum við skoða
hvaða kostir og gallar eru á samfé-
laginu okkar í dag og hvað við þurf-
um að gera til að gera gott samfélag
enn betra.“ Hólmffíður segir að
oftast sé það eingöngu á hendi
sveitarstjórnarmanna að móta
ffamtíðarstefnu en íbúaþingið er
einmitt vettvangur til að brúa bilið
milli stjómmálamanna og íbúa. „Ef
vel tekst til er íbúaþing eitthvað
sem allir græða á. Ibúamir koma
sínum sjónarmiðum á ffamfæri og
sveitarstjórnarmenn sjá og heyra í
hvernig samfélagi íbúarnir vilja
búa.“
Fyrirkomulag íbúaþingsins er
þannig að í upphafi verður flutt er-
indi frá fúlltrúa Fljótsdalshéraðs en
þar hefur nýlega farið ffam samein-
ing af svipuðum toga þar sem dreif-
býlis- og þéttbýliskjarnar samein-
uðust í öfluga heild. Greint verður
frá reynslu þeirra af sameiningu,
hvernig best er að málum staðið og
hvers ber að varast. Eftir þá ffam-
sögu ædar Gísli Einarsson, ffétta-
maður að varpa ljósi á það hvernig
nýtt sveitarfélag á að vera að hans
mati, sem verður án vafa áhugavert
á að hlýða. „Eftir ffamsöguerindi
þessara aðila munu fundargestir
velja sér umræðuhópa sem fjalla um
afmörkuð viðfangsefni hins nýja
sveitarfélags og kallað verður eftir
hugmyndum tun hvernig fólk vill
sjá sveitarfélagið sitt þróast næsm
árin. Við munu leggja áherslu á létt
og skemmtilegt andrúmsloft þar
sem viðhorf allra fá að njóta sín.
Ekki má heldur gleyma að fúnd-
argestum verður boðið uppá
léttan hádegisverð og kaffiveit-
ingar.“
Hólmfríður segir tilgang
þingsins vera þann að fá íbúa
þéttbýlis og dreifbýlis til að
koma saman, ræða málin og setja
ffam tillögur þannig að samstaða
um áherslur hins nýja sveitarfé-
lags verði breið. „Það er mikil-
vægt að þær breytingar sem
verða við sameiningu, séu
grundvallaðar á hugmyndum og
sjónarmiðum íbúa. Miklir hags-
munir eru í húfi og fólk þarf að
vera eins sátt og kostur er með
svona sameiningu ffá upphafi.
Því ætti enginn að skorast tmdan
að mæta. Allir sem bera hag sinn
og samfélagsins sem við búum í
fyrir brjósti ættu að láta ljós sitt
skína á íbúaþingi sem þessu og
ég verð engan vegin sátt ef færri
en 100 íbúar mæta til þátttöku,“
segir Hólmfríður.
Segja má að á fúndinum hefjist
leitin að nafiii á nýtt sveitarfélag en
íbúum mun gefast tækifæri til að
ræða hugmyndir að nýju nafhi, en
auk þess verður síðar auglýst eftir
tillögum sem nefnd sem skipuð
verður mun velja úr 3-5 hugmynd-
ir sem kosið verður um samhliða
kosningunum í vor.
„Eg hvet alla íbúa á svæðinu til að
nýta tækifærið og leggja sitt lóð á
vogarskálarnar. Saman getum við
bemr hámarkað þann árangur sem
nýtt sveitarfélag hefur möguleika á
að ná. Samtakamátturinn er seint
ofmetinn," segir Hólmffíður.
MM
Munið aðventublaðið
23. nóvember
Frjálslyndir vilja niður-
fellingu virðisaukaskatts
ígongm
Þingmenn Frjálslynda flokksins,
með Magnús Þór Hafsteinsson í
fararbroddi, hafa lagt ffam á AI-
þingi frumvarp um breytingu á lög-
um um virðisaukaskatt. Verði
frumvarpið að lögum fellur niður
innheimta virðisaukaskatts af
veggjaldi í Hvalfjarðargöngin. Eins
og fram hefur komið í Skessuhorni
hefur af og til komið upp umræða
um hugsanlega niðufellingu
veggjaldsins eða í það minnsta
virðisaukaskattsins af veggjaldinu.
I greinargerð með ffumvarpinu
segir að ósanngjarnt sé að ríkið
innheimti virðisaukaskatt fyrir
gjöld sem reidd eru af hendi fýrir
notkun samgöngumannvirkis því
hið opinbera innheimti veruleg
gjöld með álagningu á farartæki og
eldsneyti. Þá kemur fram að frá
opnun ganganna hafi verið inn-
heimtar samtals tæpar 700 milljón-
ir króna í virðisaukaskatt af vegfar-
endum um göngin. Þá segir í grein-
argerðinni: „Hvalfjarðargöngin
hafa fyrir löngu sannað gildi sitt
sem samgöngubót sem komið hef-
ur landsmönnum öllum til góða.
Þau hafa stytt vegalengdir, aukið
umferðaröryggi og styrkt byggðar-
lög. Enginn vafi leikur á því að hið
opinbera hefur sparað verulegar
fjárhæðir sem annars hefðu einkum
runnið til viðhalds og reksmrs veg-
ar fýrir Hvalfjörð. Miklir fjármunir
hafa einnig sparast vegna þess að
slysatíðni á veginum fýrir Hval-
fjörð er nú nánast engin. Fyrir tíma
Magmís Þór Hafsteinsson, alþingismaður.
Hvalfjarðarganga voru alvarleg
umferðarslys sem leiddu til ör-
kumla og dauða árlegur viðburður
á þeim vegi. Hvalfjarðargöngin
hafa einnig orðið mikilvæg for-
senda fýrir því að styrkja Vesmr-
land sem atvinnusvæði. Síðast má
geta þess að þau hafa auðveldað
íbúum höfuðborgarsvæðisins að
nýta sér dýrmæta möguleika til úti-
vistar og ferðalaga um Vesmrland,
Vestfirði og Norðurland. Allir
þessir jákvæðu þættir gera það að
verkum að innheimta virðisauka-
skatts af veggjöldum er ósanngjörn
og ætti því að leggja hana af. Þetta
gæti orðið verulegt skref í þá átt að
lækka gjöld í Hvalfjarðargöngin.“
tij
PISTILL GISLA
Afóánægju
Fyrir fáum dögum sat ég
bölvandi í bíl mínum á milli Borg-
arness og Akraness í hríðarbil. Eg
skalf og nötraði vegna kulda þar
sem ég hafði þurft að skjótast út á
skyrmnni og berja snjóinn af
rúðuþurrkunum sem reyndar eru
komnar á eftirlaun. Að sjálfsögðu
var ég að bölva bévítans kuldanum
og þeirri heimsku minni að búa í
þessu guðsvolaða landi þar sem
hitastigið fer aldrei upp fýrir fros-
mark.
I dag gekk ég bölvandi um gömr
Dubai, í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum, í 35 stiga hita.
Það bogaði af mér svitinn og lak af
mér lýsið á meðan ég gekk á skyrt-
unni nokkur hundmð metra eftir
einni af býsna mörgum verslunar-
gömm sveitarfélagsins. Að sjálf-
sögðu var ég að bölva bétvítans
hitanum og þeirri heimsku minni
að halda mig ekki heima hjá mér í
svalanum þar í stað þess að berjast
við að halda meðvimnd í hita-
svækjunni.
Eg var svosem heldur ekki kámr
í gær eftir að ég hafði étið úlvald-
ann sem boðið var uppá á þaklaus-
um veitingastað hér einhversstað-
ar í miðjum Dubaihreppi. Hann
var að vísu ágætlega ætur, þannig
lagað, en ekki líkt því eins ljúf-
fengur og litla sæta íslenska lamb-
ið sem ég hefði væntanlega étið á
þessum tíma hefði ég haldið mig
heima.
Þá var það varla til að bæta
geðslagið að leigubílstjórinn, ætt-
aður frá Pakistan, Jósep að nafni,
ef einhver skildi kannast við hann,
sá hinn sami og tók að sér að ferja
mig á milli nágrannasveitarfélag-
anna Abu Dhabi og Dubai fýrr í
dag, hafði mig að fífli, sem mér
skilst að sé viðurkennd íþrótta-
grein í þessari starfsstétt. Eftir á að
hyggja er ég nefnilega alveg með
það á hreinu að hann ók með mig
í nokkra hringi í trausti þess að ég
væri heimskur túristi sem síðar
kom á daginn.
Eg hef sumsé úr ýmsu að velja
til að eyðileggja daginn ef út í það
er farið. Eg þekki allavega afar
marga sem geta látið sér nægja
mun minna þegar þeir á annað
borð kjósa að hafa daginn ónýtan.
A hinn bóginn fór ég ekki alla
þessa leið til þess að leggja stund á
leiðindi. Hér er nefnilega ekki
slæmt að vera sé það litið réttum
augum. Eitt og annað að sjá sem
ekki er til á hverjum bæ í Lundar-
reykjadal einu sinni og heima-
menn dagfarsprúðir upp til hópa.
Án þess að ég hafi tölfræði um
það fýrir framan mig þá held ég að
ég geti fullyrt að geðvonska hafi
aldrei orðið mönnum til fram-
dráttar sérstaklega. Auðvitað er á-
gætt að geta brugðið henni fýrir
sig þegar þar á við en heilt yfir er
hún frekar til þess fallin að draga
úr mönnum mátt, allavega ef far-
ið er ósparlega með hana. Það gera
meðal annars stjórnmálamenn sem
af einhverjum ástæðum telja það
vera sitt hlutverk að mála skratt-
ann á veggin. Sömu sögu má segja
af fjölmiðlum sem ávallt eru mætt-
ir til að taka myndir af því þegar
skrattinn hefur verið málaður á
vegginn.
Vænn skammtur af glaðlyndi, á-
samt slettu af kæruleysi og eilítilli
þolinmæði eru hinsvegar uppskrift
að ágætum degi hvar sem maður er
staddur í heiminum.
Gísli Einarsson,
sæmilega sáttur.