Skessuhorn - 09.11.2005, Page 17
c.oisaUíiÖia'J
MIÐVIKUDAGUR 9. NOVEMBER 2005
17
Vesturlandsmeistarar í skák
Tvö ungmenni í Borgarbyggð
hafa æft skák undanfarin ár og náð
góðum árangri, eru meðal annars
bæði Vesturlandsmeistarar í skóla-
skák. Þau heita Tinna Kristín Finn-
bogadóttir, 14 ára frá Hítardal og
Jóhann Oli Eiðsson, 12 ára frá
Glitstöðum. I stuttu spjalli við
blaðamann sögðust þau hafa byrjað
æfingar fyrir rúmlega tveimur árum
síðan. Æfingar fóru fram á vegum
skáknefndar UMSB í Grunnskól-
anum í Borgarnesi en þar æfa 9-18
manns skák í hverri viku. „Við höf-
um bæði tekið þátt í þesum æfing-
um og síðan höfum við bæði æft og
keppt í Reykjavík þegar við höfum
getað,“ sagði Tinna Kristín. Þau
hafa bæði æft skák hjá Taflfélagi
Reykjavíkur og í taflfélaginu Hell-
inum auk þess að keppa á mótum
sem Skáksambandið stendur fyrir.
Aðspurð segjast þau lítið hafa
teflt heima áður en þau hófu reglu-
bundnar æfingar. „Eg tefldi aðeins
við litlu systur mína og mömmu en
núna eftir að við lærðum meira höf-
um við teflt í gegnum netið og
skráum við okkur þá inn á Internet
Chess Club (ICC) en þar er hægt
að skora á fólk í svipuðum styrk-
leikaflokki í skák óháð því í hvaða
Jóhann Óli Eiðsson og Tinna Ki'istín Finnbogadóttir.
heimsálfum það er statt. Á netinu
eru stundum skákmót í gangi sem
líka er hægt að skrá sig í. Þannig
hjálpar netið okkur heilmikið bæði
við æfingar og keppni,“ sagði Jó-
hann Oli.
En hvernig er það, er almennur
áhugi eitthvað að aukast fyrir skák-
inni? „Það hefur orðið ákveðin
vakning síðustu árin og áhuginn er
eitthvað að aukast. Taflfélagið
Hrókurinn gefur t.d. nemendum í
Búnaðargjald fellt niður
Tilbúið er í Landbúnaðarráðu-
neytinu frumvarp til laga um af-
nám búnaðargjalds og var það
kynnt ríkisstjóm fyrir skömmu.
Gjaldið er tvö prósent af fram-
leiðslu allra bænda á mjólk og
kjöti. Upphæðin er eitt hundrað
og fjömtíu milljónir á ári og hefur
dugað til að greiða niður vexti hjá
Lánasjóði landbúnaðarins um 1,25
afhundraði. Landsbankinn keypti
Lánasjóð landbúnaðarins á dög-
unum. Jafhffamt leggur landbún-
aðarráðherra til að lögum um
ffamleiðslu, verðlagningu og sölu
á búvöram verði breytt þannig að
gjald á ffamleiðslu sauðfjárbænda
sem notað hefur verið til að standa
straum af kostnaði við markaðsmál
verði lækkað úr fimm krónum á
hvert kíló innvegins kjöts í tvær
krónur.
-MM
Tökum höndum saman
/ /
Askorun frá Mannréttindaskrifstofu Islands
Eins og ffam hefur komið í fjöl-
miðlum rfkir nú neyðarástand í
Pakistan í kjölfar mikilla jarð-
skjálfta. Samkvæmt nýjustu upp-
lýsingum pakistanskra stjórnvalda
er ástandið skelfilegt. I Kasmírhér-
aði einu er áætlað að ennþá séu um
200.000 manns sem enn hafa ekki
fengið neina aðstoð. Mikill skortur
er á hjálpargögnum og vetur í nánd
með tilheyrandi kulda.
í Pakistan ríkir víða mikil fátækt
og því verða fórnarlömb jarðskjálft-
þess að hjálp berist fljótt við slíkar
aðstæður. Við höfum verið þeirrar
gæfu aðnjótandi að fá stuðning er-
lendis frá eftir náttúruhamfarir,
enda þótt við hefðum ekki líkt því
sömu þörf fyrir utanaðkomandi að-
stoð og Pakistanar hafa nú. Islend-
ingar hafa nú tækifæri til að sýna að
þeir séu ekki bara þiggjendur í
samfélagi þjóðanna heldur einnig
gefendur.
Jólaundirbúningur er nú að hefj-
ast hjá okkur og líklega mun eyðsla
anna að trcysta á utanaðkomandi-landsmanna 3lá öll met í ár. Fyrir
aðstoð. Því miður hefur alþjóða-
samfélagið ekki tekið við sér sem
skyldi. Samkvæmt nýjustu upplýs-
ingum frá Sameinuðu þjóðunum
hefur einungis fjórðungur þeirra
fjárframlaga, sem ríki heimsins lof-
uðu að láta af hendi, skilað sér. Is-
lensk stjórnvöld hafa látið fé af
hendi rakna tál hjálparstarfsins sem
og íslenskar hjálparstofnanir, en
betur má ef duga skal. Islendingar
era ein ríkasta þjóð heims og er því
sjálfsagt að gera þá siðferðilegu
kröfu til okkar að við komum til
hjálpar fórnarlömbum jarðskjálff-
ans. Við ættum manna best að
þekkja þann skaða sem náttúra-
hamfarir geta valdið og mikilvægi
þau sem leita að hentugum jóla-
gjöfum í landi ofgnóttarinnar er til-
valið að gefa ættingjum og vinum
kvittun fyrir greiddu framlagi í
hjálparstarfið.
Mannréttindaskrifstofa Islands
skorar á almenning og stjórnvöld
að bregðast nú þegar við og leggja
meira af mörkum til að koma í vega
fyrir frekari hörmungar í Pakistan.
Tökum nú höndum saman því
margt smátt gerir eitt stórt.
F.h. Mannréttindaskrifstofu Islands
Brynhildur G. Flóvenz,
stjómarformaður
3. bekk skákbækur og það era fleiri
duglegir aðilar sem era að kynna
skákíþróttina,“ segir Tinna Kristín.
Þau segja bæði að margir líti á skák
sem einhvers konar „Nördahobby“
en segja að langt sé ffá að eitthvað
sé til í því. „Þetta er skemmtileg í-
þrótt sem reynir á útsjónarsemi og
eflir hugann," segir Jóhann Oli.
Saman í kór segja þau: „Auðvitað
- það kemur ekki annað til greina,“
þegar þau era spurð hvort þau ætli
að halda áffam að æfa og keppa í
skák og era sammála um að mikið
þurfi að breytast til að þau hætti að
tefla.
MM
Nemendur í I. bekk LS fluttu Ijóð.
Morgunstund í
Brekkubæjarskóla
Það er liður í stefinu Brekkubæj-
arskóla, Góður og fróður, að halda
morgunstundir nokkrum sinnum
yfir veturinn. Era haldnar litlar
morgunstundir þar sem ákveðnir
árgangar koma saman og síðan era
haldnar þrjár stórar morgunstund-
ir, en þá koma allir nemendur og
starfsfólk skólans saman í sal í-
þróttahússins. Foreldrar era vel-
komnir á morgunstundirnar og er
ánægjulegt að sjá hversu margir
gefa sér tíma til þess að mæta.
Fyrsta stóra morgunstund vetr-
arins fór fram í gær þriðjudaginn 8.
nóvember. Að venju buðu nemend-
ur upp á ýmis konar atriði. Krakk-
ar í ÍLS fór með ljóð, stúlkur í
7HE sýndu línudans og hljómsveit
skipuð drengjum í 9. bekk kom
fram í fyrsta skipti. Inn á milli at-
riða var sungið og hópur nemenda
stýrði öllum í dansi ársins, en það
er dans sem Jóhanna Amadóttir
danskennari skólans samdi. Síðast
en ekki síst var nemendum sem
sýnt höfðu fyrirmyndar hegðun
veitt viðurkenning. Vora nemend-
ur verðlatmaðir fyrir að sýna t.d.
hjálpsemi, gjafmildi, tilhtssemi og
virðingu en virðing er einmitt dygð
armarinnar.
HFJ
Upplýsingatækni í dreifbýli
Ráðstefna í Reykholti, fimmtudaginn 10.nóvember 2005
Lumlurstjóri: Ein'kur Blöndal, framkvæmdastjóri
Eundarsetning: Guðní Ágústsson, landbúnaðarráðherra 10:00 - 10:20
Kynning á ráðstefnu og UD-vcrkefninu 10:20 -10:40
Hrund Pétursdóttir
I jarskiptaáætlun 2005 - 2010 10:45 - 11:10
Ari Jóhannsson, verkefnastjóri hjá Póst og fjarskiptastofnun
Nokkur verkefni á sviði upplýsingatækni 11:10 - 11:35
Þórarinn Sólmundarson sérfræðingur þróunarsviði Byggðastofnunar
Menntun og niiðlun 11:35 -12:00
Agúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskóla Islands.
Einkavæðing, arösenti og dreifbýli íslands 12:00-12:25
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórmálafræði við
Viðskiptaháskólann á Bifróst
Matarhlé 12:25-13:10
Síminn - upplýsingatækni í dreifbýli 13:10 - 13:35
Eva Magnúsdóttir, upplýsingafullttúi Stmans
Kekstur og samkeppni í dreifbýli 13:35 - 14:00
Stefán Jóhannesson framkvæmdastjóri Emax ehf.
Fjarskipti í dreilbýli 14:00 - 14:25
Þór Þorsteinsson framkvæmdastjöri Nepal
l pplýsingasamfélagiö fyrir alla! - Netförrit bændasamtakanna 14:25 -14:50
Jón Baldur Lorange, forstöðumaður tðlvudeildar Bændasamtaka Islands
Kafliveilingar
Umræöur og f\ rirspurnir
Fundarslit áætluö kl. 16:00
m
KB BANKI |^|
RARIK
<S>-^~ Jl
Síminn'
Byggðaitofnun