Skessuhorn


Skessuhorn - 22.03.2006, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 22.03.2006, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006 ^tt£9SUhuÍJ Vilja endurskoða rekstur Kaldármela Helduryrði hlýlegra í reiðhöll. Myndin erfrá verðlaunaafhendingu á veti-armóti Snie- fellings á Hellissandi árið 2001. Á aðalfundi hestamannafélagsins Snæfellings, sem haldinn var í Fákaseli félagsheimili hestamanna í Grundarfirði sl. fimmtudagskvöld, bar hæst umræðu um væntanlega fjárúthlutun Landbúnaðarráðu- neytis til bygginga reiðskemma og reiðhalla á landsbyggðinni. Nokk- uð skiptar skoðanir voru meðal fé- lagsmanna um staðsetningu og stærð húsanna en þar sem enn ligg- ur ekkert fyrir eftír hvaða reglum verður úthlutað var stjórn Snæfell- ings falið að fylgjast náið með mál- um og kalla til fundar þegar línur skýrast. Á fundinum kom fram vilji til þess að hugað verði að framtíð Kaldármela sem keppnissvæðis fé- lagsins en fram kom í ársreikning- um að svæðið er fjárhagslegur baggi á Snæfellingi og notkun þess óveruleg. Þar eru að jafnaði haldin mót einu sinni á ári. Var stjórn Snæfellings falið að taka málefni Kaldármela til vandlegrar skoðunar fyrir næsta aðalfund. Á fundinu kynntu þeir Gísli Guðmundsson og Bjarni Marinósson hvað hrossa- ræktendum á svæði Snæfellings stæði til boða í graðhestum á kom- andi vori. Stjórn Snæfellings var endur- kjörin en hana skipa Sigrún Olafs- dóttir Hallkelsstaðahlíð formaður, Sigrún Bjarnadóttir Stakkhamri rit- ari, Jökull Helgason Grundarfirði gjaldkeri en meðstjórnendur Krist- ján M Oddsson Grundarfirði og Guðmundur Olafsson Olafsvík. Varamenn eru Hallur Pálsson og Hreinn Þorkelsson. GK Þessir nemendur voru hœstir í öllmn árgöngunum. Ljósm: AH Urslit í stærðfræðikeppni grunn- skólanemenda á Vesturlandi Stærðfræðikeppni fyrir nemend- ur í áttundu, níundu og tíundu bekkjum grunnskóla var haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands þann 22. febrúar sl. Samtals voru 175 nemendur sem tóku þátt í keppn- inni í ár hér á Vesturlandi. 74 komu úr 8. bekk; 44 úr 9. bekk og 57 nemendur úr 10. bekk. Mikil forföll voru að þessu sirmi vegna veðurs og komust því keppendur ekki frá Grundarfirði og Stykkishólmi. Flestir þátttakenda komu úr Brekkubæjarskóla (34), Varma- landsskóla (28), Grunnskólanum í Borgamesi (24), Gmndaskóla (20), Gnmnskólanum í Búðardal (20), Grunnskólanum í Hólmavík (13) og Laugargerðisskóla (11). Ur öðr- um skólum voru færri en 10. Síðastliðinn laugardag var 10 efstu nemendum í hverjum árgangi boðið til athafiiar á sal FVA þar sem veittar vora viðurkenningar fyrir góðan árangur í keppninni. Að þessu sinni vildi svo til að tveir eða fleiri vora jafiiir að stigum í hverj- um bekk svo 11 nemendur úr hverj- um árgangi vora í 10 efstu sætum. Eins og undanfarin ár var þremur efstu í hverjum árgangi veitt pen- ingaverðlaun: 15.000 kr. fyrir fyrsta sæti; 10.000 kr. fyrir annað sæti og 5.000 kr. fyrir það þriðja. Peningar til að greiða verðlaun og annan kostnað við keppnina eru geftiir af fyrirtækjum á Vesturlandi. Að þessu sinni bauð Landsbanki Islands á Akranesi keppendum pizzu og gos að keppni lokinni. Aðrir styrktarað- ilar voru: Norðurál hf. Grundar- tangi, Loftorka Borgarnesi ehf., Is- lenska járnblendifélagið hf. Grand- artanga, Akraneskaupstaður, Kaup- félag Borgfirðinga, GT Tækni ehf. Grundartanga og Mjólkursamlagið Búðardal. Hér á eftir eru taldir upp þeir sem voru í 10 efstu sætum í hverjum árgangi: MM 8. bekkur 1. Sigurður Trausti Karvelsson, Grundaskóla 2. Guðrún Ingadóttir, Grunnskólamim í Borgamesi 3. Jóhanna Stefánsdóttir, Grunnskólanum í Borgarnesi 4. -11. Aðalbjörg Þorkelsdóttir, Brekkubæjarskóla 4.-11. Hanna Laufey Jónasdóttir, Laugargerðisskóla 4.-11. Hrefna Jónsdóttir, Reykhólaskóla 4.-11. Hrefna Karlsdóttir, Reykhólaskóla 4.-11. Jóhann Oli Eiðsson, Varmalandsskóla 4.-11. Lára Lárusdóttir, Kleppjámsreykjaskóla 4.-11. Silja Ingólfsdóttir, Grunnskólanum á Hólmavtk 4.-11. Þórdi's Sif Amarsdóttir, Grunnskólanum íBmgamesi 9. bekkur 1. Kristinn Hlíðar Grétarsson, Grundaskóla 2. Eydís Rán Bergsteinsdóttir, Laugargerðisskóla 3. Aron Ofjörð Jóhannesson, Brekkubœjarskóla 4. -11. Brynjar Sævarsson, Brekkubœjarskóla 4.-11. Jón Axel Svavarsson, Brekkubæjarskóla 4.-11. Jónas Bjartur Valdimarsson, Gnmdaskóla 4.-11. KlaraAmý Harðardóttir, Brekkubæjarskóla 4.-11. Sigurður Páll Guttormsson, Laugargerðisskóla 4.-11. Þorleifur Gaukur Davíðsson, Brekkubæjarskóla 4.-11. Þorleifur Halldórsson, Laugargerðisskóla 4.-11. Tinna Kristín Finnbogadóttir, Gnmnskólanum í Borgamesi 10. bekkur 1. Indriði Einar Reynisson, Grunnskólanum á Hólmavík 2. Asdís Braga Guðjónsdóttir, Lýsuhólsskóla 3. Ragnar Þór Gunnarsson, Grundaskóla 4. -11. Asbjóm Egilsson, Reykhólaskóla 4.-11. Helga Þórarinsdóttir, Brekkubæjarskóla 4.-11. Hörður Kári Harðarson, Brekkubæjarskóla 4.-11. Kristjana Erla Bjömsdóttir, Grunnskólanum í Borgamesi 4.-11. Ólafur Helgi Halldórsson, Grundaskóla 4.-11. Ragnar Harðarson, Brekkubæjarskóla 4.-11. Sara Lísa Ævarsdóttir, Brekkubæjarskóla 4.-11. Sunna Dís Jensdóttir, Gnmdaskóla Ný sjúkrabifreið Heilsugæslustóðvarinnar í Borgamesi Nýr sjúkrabíll í Borgames Síðastliðinn fimmtudag var nýr sjúkrabíll tekinn í notkun við Heilsugæslustöðina í Borgarnesi. Bíllinn er af gerðinni Volkswagen Transporter, búinn öllum helsta búnaði sem í björgunartækjum sem þessum þarf að vera. Bíllinn er í eigu og rekinn af Rauða krossi Is- lands. Auk nýja bflsins verður eldri sjúkrabíll stöðvarinnar af Ford Econoline gerð áfram til taks sem varabifreið. Framkvæmdir standa yfir við nýjan bflskúr við Heilsugæslustöð- ina og ganga þær vel, sperrur voru reistar nú í vikunni. Bílskúrinn verður tilbúinn til notkunar í júní- byrjun. MM/ Ljósm. BG Bærinn semur við Björgunarfélagið I gær var skrifað undir samstaifssamning tnilli Akraneskaupstaðar og Björgunafélags Akraness eins og ítarlega varfjallað ximfyr- ir skömmu hér í blaðinu. A myndmni cru Asgeir Kristinsson fomtaður Björgunarfé- lagsins og Guðmundur Páll Jónsson, bæjar- stóri. ii L~A i .. - . i ' sT.*, fiÆfrst : f IL ^ S® 1 \ M 4 ? - * Skoða skóginn í Skorradal Daganna 10. og 11. mars sl. var íjórða námskeiðið hjá Vesturlands- skógum í námskeiðaröðinni Grænni skógar. Alls mættu 28 manns á námskeiðið, en 33 eru skráðir á námskeiðaröðina héðan af Vesturlandi. I þetta skipti var fjall- að um skógarhönnun og landnýt- ingu. Leiðbeinendur voru skóg- fræðingarnir Sigvaldi Ásgeirsson og Friðrik Aspelund auk Kolbrúnar Þóru Oddsdóttur landlagsarkitekts. Farið var í vettvangsferð í Skorra- dal þar sem skoðað var hvernig til hefur tekist með hönnun skóga. GS Frá einu af hinu nýuppgerða herbergi hótelsins. Gagngerum endurbótum á Hótel Glymi lokið Hótel Glymur í Hvalfirði verður formlega opnað á ný næstkomandi laugardag eftír gagngerar breyting- ar og endurnýjun á innviðum hót- elsins. Framkvæmdirnar hófust í janúar og má segja að öllu innan- stokks hafi verið mokað út. Skipt hefur verið um gólfefni á öllu hót- elinu og snyrtingar endurnýjaðar á jarðhæð, auk þess sem bætt hefur verið við snyrtingu fyrir fatlaða. Borð og stólar í veitinga- og ráð- stefnusölum hafa verið sérhönnuð og komin er upp fullkomin ráð- stefnuaðstaða, með flatskjá í ráð- stefnusal. Ollum herbergjum á efri hæð hótelsins hefur verið breytt í minis- vítur á tveimur hæðum. Á neðri hæð hverrar svítu er setustofa með flatskjársjónvarpi, nettengingu, minibar og kaffivél, sérhönnuðu sófasetti og borðum auk þess sem smíðaðir hafa verið nýir fataskápar. Á baðherbergi er nýtt gólfefni, haganlega hannaðar sturtur og ný hreinlætistæki. Stiginn upp á svefn- hæðina er sérhannaður úr málmi og viði. Á efri hæð eru ný rúm sem uppfylla ströngustu gæðakröfur og hver svíta hefur sína liti, sinn svip. Allur textíll kemur frá Italíu og er sérhannaður fyrir hótelið. MM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.