Skessuhorn - 22.03.2006, Side 13
..r.lMint,. |
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006
13
höfum ekki skuldað nógu mikið,
við höfum verið með íbúafjölda
rétt yfir einhverjum viðmiðunar-
mörkum, o.s.ffv. en samt verið í
bullandi baráttu við vaxtarverki og
að láta tekjur duga fyrir nauðsyn-
legri uppbyggingu."
-Ertu þá að segja að aumingja-
gæska sé orðin of mikil hjá hinu
opinbera. Aðeins sé horft til staða
þar sem þróunin hefur verið á
verri veginn? „Eg geri ekki lítið úr
vandamálum annarra, fólksfækkun
og tekjusamdrætti. Slíku þarf að
mæta með viðeigandi hætti. Við
verðum að gera okkur ljóst að það
er ekki hægt að gera allt á öllum
stöðum. En við verðum að skoða
mál í heild og í mörgum tilvikum
finnst mér ósanngjamt að sveitar-
félag eða fyrirtæki gjaldi þess að
þau hafa staðið sig vel.“
Baráttan um
framhaldsskólann
-Þú minntist á baráttuna fyrir
framhaldsskólanum. Hvenær hófst
sú barátta? „Sú vinna fór í gang
vorið 2000. Áður hafði verið
stofnað fjarnámsver hér í Gmnd-
arfirði og fljótlega eftir það hófst
umræða meðal Snæfellinga um
möguleika á ffamhaldsskóla. Við
vildum byggja upp skóla sem með-
al annars byggði á þeirri hugmynd
að hægt væri að nýta kennslu í
öðram skólum með hjálp upplýs-
ingatækni, m.a. í gegnum fjar-
nám.“
-Nú hefur barátta fyrir ffam-
haldsskóla á sumum stöðum tekið
áratugi. Ykkar barátta stóð stutt
með ríkulegum árangri. Hvað réð
þessum skjóta árangri ykkar?
„Stærsti einstaki þátturinn í því
máli var samstaðan um málið
heima í héraði og undirbúningur
heimamanna. Þegar viðræður
hófust við menntamálaráðherra
vomm við búin að móta okkar
hugmyndir um skipulag skólans og
höfðum þegar útkljáð hvar skólinn
skyldi staðsettur. Þingmenn okkar
stóðu líka einstaklega vel að baki
verkefninu, en þess má geta að þrír
menntamálaráðherrar sátu á þess-
um meðgöngutíma skólans.“
-Nú var nokkuð ljóst að skólinn
yrði frekar lítill í upphafi. Höfðuð
þið ekki áhyggjur af því að með
litlum skóla værað þið hugsanlega
að takmarka möguleika barna ykk-
ar hvað nám varðaði? ,Jú, við velt-
um þeim möguleika að sjálfsögðu
fyrir okkur. Þess vegna vorum við
mjög ákveðin í að koma ffam með
lausnir til þess að jafna að-
stöðumun hans sem lítils skóla og
stærri skólanna. Það gerðum við
fyrst og ffemst með því að gera
hann leiðandi í upplýsingatækni.
Nýta kosti fjarnáms til að auka
námsframboð og valmöguleika
nemenda auk þess að leggja
áherslu á einstaklingsbundið nám.
Þetta hefur gengið mjög vel eftir.
Þessi skóli byggir á annars konar
hugmyndaffæði en aðrir skólar, en
skólaumhverfið á samt ekki að vera
of framandi nemendum og for-
eldrum þeirra. Skólinn hefur stað-
ist þær væntingar sem til hans voru
gerðar og ríflega það. Aðsóknin að
honum sýnir líka að hann nýtur
trausts. Ef ég ætti börn á ffam-
haldsskólaaldri myndi ég ekki hika
við að senda þau þangað í nám.
Með breyttu þjóðfélagi er það ekki
jafn sjálfsagt að senda börn sín til
náms í öðrum byggðarlögum.
Skólinn hefur gjörbreytt stöðu
mála á Snæfellsnesi. Það breytist
svo margt í byggðarlögunum þeg-
ar unglingarnir þurfa ekki lengur
að fara burt til náms. Byggðirnar
styrkjast. Fólk stendur ekki lengur
frammi fyrir þeirri spurningu að
þurfa að fylgja barni sínu til náms.
í þessu máli báru sveitarstjómar-
menn gæfu til að standa saman og
þegar stór framfaramál eru til um-
ræðu er það lykilatriði. Við höfum
á síðari árum einnig borið gæfu til
þess að standa betur saman í sam-
göngumálum en áður tíðkaðist og
það hefur horft til heilla, auðveldar
örugglega samgönguráðherra og
þingmönnum þeirra vinnu.“
Sveitarfélög þurfa að
sameinast frekar
-Sýnir þetta vinnulag ekki að
sveitarfélög þurfa að vinna meira
saman í framtíðinni. Sameining
þeirra hefur verið mikið í umræð-
unni. Er nóg að gert í þeim mál-
um? „Eg er eindregið þeirrar
skoðunar að sveitafélög eigi að
sameinast frekar og tel að þau
muni gera það. Hins vegar verður
að fara varlega og það getur varla
gefist vel að þvinga fólk í þeim efh-
um. Eg held að umræða og ákveð-
inn þrýstingur hafi skilað okkur
lengra, en við verðum þó fyrir rest
að leyfa heimamönnum að velja
stað og stund, ef þannig má að orði
komast. Sveitarfélög og íbúar
þeirra eru mjög misjafnlega komin
í umræðu um sameiningu. Hverju
hefði það til dæmis breytt, í síðasta
sameiningarátaki, þó sveitarfélög-
um á Snæfellsnesi hefðu verið gef-
in eitt til tvö ár til ffekari undir-
búnings? Getur verið að það að ýta
íbúum út í ótímabæra kosningu um
sameiningu seinki frekar en flýti
fyrir sameiningu?"
-Nú er sífellt talað um hagræð-
ingu með sameiningu sveitarfé-
laga. Þegar að hagræðingarmálum
kemur stoppar umræðan jafnan
þegar kemur að breytingu á þjón-
ustu. Vill noklcur byggð missa sína
skrifstofu, sinn skóla eða sína höfn.
Næst nokkurn tímann raunveru-
lega hagræðing? „Eg tel misskiln-
ing að æda að spara mikið með
sameiningu. Hinsvegar er þjónusta
jöfnuð og ákveðinni sérhæfingu
komið á og verkefhum sinnt á ann-
an hátt, sem ekki eru tækifæri til í
minni sveitarfélögum. Þannig fæst
vonandi aðeins meira fyrir sömu
fjármuni. Ymislegt getur breyst,
líka í ósameinuðum sveitarfélög-
um. Við búum það vel hér hvað
skólamál varðar að ég get ekki séð
að það verði nokkurn tímann þörf
á að loka skólum í þéttbýliskjörn-
um á Snæfellsnesi. Við getum hins
vegar náð fram hagræðingu með
samnýtingu starfsmanna svo ég
nefni eitthvað dæmi, dæmi eru um
slíkt í tónlistarskólunum. Hvað
aðra þætti varðar er augljóst að til
dæmis í skipulags-, byggingar- og
tæknimálum getum við náð fram
umtalsverðri vinnuhagræðingu,
með sérhæfingu starfsmanna. Svo
er um fleiri þætti í rekstri. Eg ít-
reka það hins vegar að sameining
sveitarfélaga verður að fá þann
tíma sem heimamenn telja að
þurfi.“
Breyting á pólitísku
landslagi
-Nú hefur þú tekið þá ákvörðvm
að hætta störfum sem bæjarstjóri í
Grundarfirði í vor efrir ellefu ára
starf. Við höfum rætt það að
Grundfirðingum hefur gengið flest
í haginn á þeim tíma sem þú hefur
verið bæjarstjóri. Þú ert orðin
reynslumikil og er ekld einu sinni
ennþá komin á svokallaðan besta
aldur. Af hverju tekurðu því þá á-
kvörðun að hætta nú. Hefði ekki
verið eðlilegra að þú gæfir áffam
kost á þér til þeirra starfa sem geng-
ið hafa jafh vel og raun ber vitni?
„Það er fjam mér að ætla að gerast
dómari á eigin störf. Eg hef verið
þátttakandi í skemmtilegri upp-
byggingu, en ég hef sagt að það að
vera bæjarstjóri er ekld ævistarf.
Rúmur áratugur er ágætur tími.
Einhvers staðar stendur að hætta
beri leik þá hæst hann stendur. Það
er ekki verri skýring en hver önn-
ur.“
- Þú fyrirgefur mér þegar ég
segi að ég kaupi ekki þessa skýr-
ingu. Eitthvað fleira hlýtur að
koma til? „Undanfarnar vikur
hefur pólitíska landslagið hér ver-
ið að breytast. Meirihlutasamstarf
síðustu þriggja kjörtímabila er á
enda og breytingar þar með fyrir-
séðar, á þann veg að líklega verða
hér aðeins tvö framboð í kosning-
um í vor. Annar hvor aðilanna
mun fá hreinan meirihluta og þeg-
ar svo er verður staða ópólitísks
bæjarstjóra erfiðari.“
-Þú ert því að draga þig í hlé
vegna þessara breytinga í pólitík-
inni? „Nei ekki vegna þeirra en
þær hafa auðvitað breytt umhverf-
inu hér á þann veg að línur skerp-
ast. Þvf fannst mér rétt á þessum
tímapunkti að draga mig í hlé og
því er í raun hægt að skerpa þessar
pólitísku línur enn frekar.“
-Um leið og þú tekur þá ákvörð-
un að standa upp úr bæjarstjóra-
stólnum eftir ellefu ára setu, ertu
þá ekki líka að taka ákvörðun að
fara burt úr bænum? „Eg er ekki
tilbúin að segja það enn, ég myndi
sjá mjög eftir því, en vissulega get-
ur það verið hluti af ákvörðuninni.
Frá því að ég byrjaði í starfinu vissi
ég hinsvegar að sá dagur kæmi að
ég myndi hætta. Hvað verður í
framtíðinni er erfitt að segja til
um.“
-Þér hefur líkað vel í þessu starfi
og það virðist eiga vel við þig.
Gætir þú hugsað þér að taka að
þér starf bæjarstjóra á öðrum stað?
„Með því að taka þessa ákvörðun
loka ég dyrum. Eg trúi því að þá
opnist líka aðrar. Hverjar þær era
veit ég ekki.“
Framboð til Alþingis?
-Á næsta ári opnast dyr þegar
kosið verður til Alþingis. Er áhugi
á slíku hjá þér? „Mér hefur ekki
dottið í hug að banka á þær dyr.“
-Er það ekki eðlilegt ffamhald á
þínum ferli að þú gefir þig upp í
stjórnmálum og berjist fyrir hags-
munum þíns landshluta á Alþingi?
„Það er í tísku nú að þegar maður
sleppir starfi hafi maður náð sér í
annað starf. I mínu tilfelli er ekki
svo, ég hef ekki legið í því að finna
mér nýtt starf. Eg er svolítil hug-
sjónamanneskja í mér og hef haft
mikinn áhuga á málefhum byggð-
anna og bættu mannlífi almennt.
Hvert sá áhugi leiðir mig verður
tíminn að leiða í ljós. En það er
bara spennandi að geta hugsað
hlutina upp á nýtt, ég væri allt eins
til í að starfa við eitthvað allt ann-
að en hingað til, fá annars konar
reynslu. Hagsmunir fjölskyldunnar
munu líka skipta máli þegar
ákvörðun verður tekin um ffam-
haldið."
-Hvað stendur að þínu mati
uppúr á þínum ferli sem bæjar-
stjóri í Grandarfirði á þessum ell-
efu áram? „Það sem mér sjálfri
hefur þótt skemmtilegast er stofn-
un ffamhaldsskólans. Það var mik-
il barátta en jafnframt gríðarlega
skemmtileg vinna og lærdómsrík.
Menntamálin almennt og svo hafa
mér líka þótt hafnamálin mjög
skemmtileg. Hafnamálin eru mjög
,,hressilegur“ málaflokkur ef ég má
orða það svo. Starf bæjarstjóra er
svo fjölbreytt að það er beinlínis
ósanngjarnt að biðja bæjarstjóra að
gera upp á milli einstakra mála.“
Hraðinn í samfélaginu hefur
aukist. Nú er ellefu ára ferill í sama
stjórnunarstarfinu orðinn sjald-
gæfari en hann var fyrir rúmum
áratug síðan. Tíminn er fljótur að
líða. Ellefu ára ferill Bjargar í starfi
bæjarstjóra í Grundarfirði er senn
á enda runninn. Til gamans má
geta þess að ffá 1970 er hún sjötti
bæjar- og sveitarstjórinn í Grand-
arfirði. Sá fyrsti sat í níu ár en aðr-
ir skemur. Hvað Björg tekur sér
fyrir hendur verður spennandi að
sjá en það mun tíminn leiða í ljós.
HJ
Bœjarstjórinn í mióju sagnabrunnsins, vigtarskúmum. Hér er hún á tali viö Smára Björgvinsson, starfsmann Fiskmarkaðarins og
hajharstjómarmann ogjónas Sigmarsson, skipstjóra á Grundfirðingi SH.
OROBill
WU.KO
fylgir hverri
OROBLU vöru
Kynníng
á nýju vorvörunum
frá OROBLU
í Litlu Búðínni
fimmtudaginn
23. marskl. 14-18.