Skessuhorn - 22.03.2006, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006
23
Boðsskemmtun í Lyngbrekku
Hraunhreppingar buðu íbúum
Kolbeinsstaðahrepps og Alftanes-
hrepps til boðsskemmtunar sl.
laugardag. Boðið var upp á góðan
mat, söng og heimatilbúin
skemmtiatriði þar sem m.a. var
rappað og komið við á læknis- og
snyrtistofu Hraunhreppinga. Að
sjálfsögðu mætti hin heimsfræga
Sylvía Nótt á svæðið. Guðbrandur
á Staðarhrauni færði Olöfu Guð-
mundsdóttur á Hundastapa blóm í
tilefni 50 ára leikafmæli hennar.
En það er til siðs hjá Hraunhrepp-
ingum að börnin taki þátt í
skemmtiatriðum. Loks var dansað
fram á nótt við undirleik Vignis
Sigurþórssonar og Gunnars Ring-
sted.
ÞSK
Guðbrandur fœrir Ólöfu hér blóm í tilefni leikafmœlisins.
Gleðin við völd. Einnfyrsta kosningaáróður vorsins má greina á þessari mynd efhún
prentast vel. Sjáið myndina af fuglinum., sem Kristján Magnússon, bóndi og frambjóð-
andi heldur á, öllum líkindum beimatilbúin mynd af Sjálfstœðisfálkanum enda maður-
inn kominn í baráttusæti á lista Sjálfstœðismanna.
Vetrarleikar UMSB í Skák verða
haldnir í Grunnskóla Borgarness
sunnudaginn 26. mars klukkan
14:00. Mótsstjóri verður Helgi
Ólafsson, stórmeistari. Keppt
verður um farandbikar í opnum
flokki en auk þess verða veitt
verðlaun fyrir bestan árangur í
yngri og eldri flokkum. Allir eru
velkomnir. MM
KARFAN:
Skalla-
grímur í
undan-
úrslit
Skallagrímur vann verðskuldaðan
sigur á bikarmeisturum UMFG í
úrslitakeppni lceland Express
deildarinnar á föstudag. Leiknum
lauk með 77 stigum Skallagríms
gegn 73 stigum heimamanna. Lið
Skallagríms er þar með komið í
undanúrslit keppninnar undir
styrkri stjórn Vals Ingimundarson-
ar en þetta langt hefur liðið ekki
náð síðan 1993. Stigahæstir
Borgnesinga í leiknum voru þeir
Hafþór Ingi Gunnarsson, Jovan
Zdravevski og George Byrd, en
hver þeirra skoraði 17 stig.
KRog
Snæfell
spila
oddaleik
Á laugardaginn síðasta sótti lið KR
Snæfellinga heim í Hólminn. Lauk
þessum öðrum leik liðanna með
62-61 sigri gestanna. Liðin spiluðu
því oddaleik að kvöldi þriðjudagsins
21. mars, en úrslit þeirrar viðureign-
ar var ekki ráðin þegar þetta blað
fór í prentun. Það er nokkuð Ijóst að
þar var stórleikur á ferðinni enda
um síðasta sætið í fjögurra liða úr-
slitunum að ræða. ■
BG
Vetrarleikar í
skák
NORA
’íörtís* AöMíwnwtMíde
VERKEFNASTYRKIR 2006
NORA auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki til
samstarfsverkefna á milli íslands og hinna NORA landanna
þ.e. Grænlands, Færeyja og Noregs
Nora veitir árlega styrki til verkefna sem stuðla að
auknu samstarfi og yfirfærslu þekkingar í atvinnulífi
á milli landanna á eftirtöldum sviðum:
Auðlindir sjávar.
Verkefni sem stuðla á sjálfbæran hátt að nýtingu auðlinda
sjávar, eldi sjávardýra og sjávarvöruframleiðslu til
manneldis og tengdra greina.
Ferðamál.
Verkefni sem stuðla að sjálfbærri þróun náttúru- og
menningartengdrar ferðaþjónustu í löndunum.
Upplýsingatækni
Verkefni sem stuðla að hagnýtingu upplýsingatækni
á svæðinu
Fjárstyrkir verða helst veittir fyrirtækjum, einum eða í
samstarfi við rannsóknar og þróunarstofnanir. Styrkir eru
veittir til að koma á tengslanetum, til rannsóknatengdra
forverkefna og aðalverkefna t.d. innan
Norðurslóðaáætlunarinnar (NPP). Umsóknir sem fela í sér
samstarf við fyrirtæki og stofnanir í norður Skotlandi og á
austurströnd Kanada eru eftirsóknarverðar.
Styrki er lengst unnt að veita til 3 ára og aðeins sem hluti af
heildarfjármögnun verkefnis, gegn mótframlagi viðkomandi
aðila. Umsóknir skula fela í sér samstarf á milli tveggja Nora
landa eða fleiri.
Sækja má umsóknareyðublöð á dönsku, norsku og sænsku
á heimasíðu NORA, www.nora.fo og skila til:
NORA, NORDISK ATLANTSAMARBEJDE
Bryggjubakki 12 • Box 259 • FO-110 Tórshavn •
Sími: +298 353110 • Fax: +298 353101 • nora@nora.fo
Annað samstarf
Verkefni sem efla fámenn byggðarlög í löndunum.
(P Byggðastof nun
Frekari upplýsingar veitir Þórarinn Sólmundarson,
Byggðastofnun, Ártorgi 1,550 Svf. Skagafjörður.
Sími 455 5400 netfang thorarinn@bvaadastofnun.is.
Jafnframt er að finna upplýsingar á heimasíðu
Byggðastofnunar www.bvaar1astofnun.is
UMSÓKNIR SKULU HAFA B0RIST í SÍÐASTA LAGI 3. APRÍL 2006.
Góður sigur ÍA á
erkifjendunum
Skagamenn sigruðu lið KR á
laugardaginn með tveimur mörk-
um gegn einu þegar liðin mætt-
ust í deildarbikarkeppninni í
knattspyrnu í Egilshöll. Eins og
ávallt þegar þessi lið mætast var
hart tekist á. Lið ÍA var þó
sterkara frá upphafi leiks og
þegar um fimmtán mínútur voru
liðnar af leiktímanum skoraði
Þórður Guðjónsson fyrra mark
Skagamanna með góðu skoti
innan vftateigs eftir góðan undir-
búning Guðjóns H. Sveinssonar.
Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks var
dæmd vítaspyrna á lið Skaga-
manna eftir að brotið hafði verið
á Gunnlaugi Jónssyni. Úr spyrn-
unni skoraði Bjarnólfur Lárus-
son.
Þegar tæpur stundarfjórðung-
ur var liðinn af seinni hálfleik
skoraði Ellert Jón Björnsson síð-
ara mark Skagamanna eftir
glæsilega sendingu frá Igor Pes-
ic. KR-ingar léku mestan hluta
seinni hálfleiksins einum leik-
manni færri eftir að Sigmundi
Kristjánssyni var vikið af leikvelli
eftir gróft brot. Árni Thor Guð-
mundsson nýr leikmaður ÍA kom
inná sem varamaður í leiknum.
HJ
•■■....—
Stöðulsholt 1-3-5-7og9 einbýlishús 170m2
Stöðulsholt 2 - 4 og 4 - 6 parhúsaíbúðir 144ms
NR 5 AFHENDING
JÚLÍ
NR 7 AFHENDING
JÚLÍ
NR 4 AFHENDING
APRÍL
NR 9 AFHENDING
JÚLÍ
NR 8 AFHENDiNG
APRÍL
Allar nánari upplýsingar:
Lögfrædistofa Inga Tryggvasonar s: 437-1700
H
*
Reykholt
atvinna í boði
Reykholtsstaður ehf auglýsir
í eftirtalin störf í Reykholti:
Til sumarstarfa:
2-3 einstaklinga með ökuréttindi.
Ungling 14-16 ára.
Heilsársstarf:
Starfsmann til að sinna ræstingum og ýmsum
verkefnum í samstarfi við staðarráðsmann.
Um er að ræða 100% starf.
Umsóknarfrestur er til 31. mars 2006.
Nánari upplýsingar gefur
staðarráðsmaður í síma 895-7258.