Skessuhorn


Skessuhorn - 24.05.2006, Síða 4

Skessuhorn - 24.05.2006, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2006 SSESsijfliOIÍM Eldri hjón í umferðaróhappi HVALFJARÐARGÖNG: Um- ferðarslys varð í Hvalfjarðar- göngunum snemma á laugar- dagsmorgun þegar eldri hjón í fólksbíl slösuðust nokkuð. Talið er að ökumaðurinn, sem er á ní- ræðisaldri hafi misst stjóm á bíln- um þegar honum var ekið í norð- urátt með þeim afleiðingum að hann hafhaði á gangaveggnum og hringsnerist áður en hann stöðvaðist. Bíllinn valt þó ekki en var mjög illa farinn eftdr óhappið. Hvalfjarðargöngunum var lokað um klukkan tíu um morguninn vegna slyssins og voru lokuð fram að hádegi. ~mm Þjófinaður á eldsneyti BORGARFJÖRÐUR: Færst hefur í vöxt að eldsneyti hafi ver- ið stolið af bílum og tönkum við sveitabæi í umdæmi lögreglunnar í Borgamesi að undanfömu. Trú- lega er þetta afleiðing síhækkandi olíuverðs, en er það samt engin afsökun fyrir þjófhaði. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi er mikilvægt að hafa trausta lása á dælubúnaði á heimihstönkum og læsanleg lok á eldsneytistönkum bifreiða. -so Kviknaði í út firá grilli BORGARFJÖRÐUR: Eldur kviknaði í sumarbústað við Hreðavam í Norðurárdal síðast- liðið miðvikudagskvöld. Fólkið sem var í bústaðnum hafði verið að grilla með einnota kolagrilfi og ekki gengið nógu vel ffá því er það brá sér í bíltúr. Vegfarendur sáu eldinn og tilkynnm brunann til slökkviliðs og lögreglu. Lög- reglumenn og fólk sem í næsm bústöðum vom, hjálpuðust að við slökkvistarfið með hand- slökkvitækjum og vatnsfötum og náðu að bjarga því sem bjargað var og að bústaðurinn brynni all- ur áður en slökkviliðið kom og kláraði verkið. -so Spilar með U-16 landsliðinu BORGARFJÖRÐUR: Einar Ólafsson, 16 ára ffá Gilsbakka í Hvítársíðu, hefur að undanfömu æft og spilað með landsliði U-16 í körfuknattleik. Einar, sem æff hefur með Umf. Reykdæla, er jafiiffamt nemandi í Kleppjáms- reykjaskóla en þaðan hafa á und- anfömum árum verið að koma nokkrir ungir og mjög efnilegir körfuknattleiksmenn. Enginn hefur þó náð jafn langt og Einar nú, en hann er í dag á förum til Svíþjóðar og keppir þar í 12 manna úrvali landshðsmanna á sama aldri á Norðurlandamóti. Þjálfarar körfuboltapiltanna í Umf. Reykdæla em þeir Guðjón Guðmundsson ásamt bræðrun- um Ingimundi og Stefáni Jóns- sonum ffá Deildartungu. -mm Tímabært að huga að nýjum kirkjugarði á Akranesi Sóknamefnd Akraness telur tíma- bært að hafist verði handa við skipu- lagningu nýs kirkjugarðs á Akranesi þar sem nú styttist í að núverandi kirkjugarður verði fullnýttur. Þetta kemur ffam í bréfi sem nefndin sendi bæjarráði á dögunum. Þar er óskað viðræðna um ýmis mál er varða málefni Kirkjugarðs Akraness sem og skipulagningu og fram- kvæmdir á næstu árum. Þá kemur fram að gerð hefur ver- ið kostnaðar- og framkvæmdaáætlun vegna ffamkvæmda við núverandi kirkjugarð. Er gert ráð fyrir að kostnaður verði um 75 milljónir króna „en þar inni era verk sem lög- um samkvæmt til- heyra kaupstaðn- um að annast framkvæmdir á, ásamt kostnaði við girðingar- efni,“ segir orð- rétt í bréfinu. Þá er þess getið að nauðsynlegt sé að fylgja ffam- kvæmdaáætlun- inni effir þar sem núverandi greftmnarpláss verður fljótt uppurið. Telur sóknamefndin afar aðkallandi að hefja undirbúning við nýja aðkeyrslu að kirkjugarðin- um og ganga frá bílastæðum. Bæjarráð samþykkti að kalla full- trúa sóknamefndar til fundar við ráðið. HJ Samið við HjaUastefnuna um rekstur Hraunborgar Páll S Brynjarsson, bnejarstjóri og Margrét Pála Ólafsdóttir frá Hjallastefnunni ehf. undirrituóu samninginn. Samningur Borgarbyggðar og Hjallastefnunnar ehf um rekstur leikskólans Hraunborgar á Bifröst var undirritaður í Ráðhúsi Borgar- byggðar í gær. Páll Brynjarsson bæjarstjóri, fyrir hönd Borgar- byggðar og Margrét Pála Ólafs- dóttir, fyrir hönd Hjallastefriunnar ehf imdirrituðu samninginn. Hjallastefnan tekur við rekstri leikskólans ffá og með 1. ágúst í sumar og gildir samningurinn í 3 ár, en framlengist um 5 ár í senn verði honum ekki sagt upp. Leik- skólinn Hraunborg verður þar með fjórði leikskólinn sem rekinn er af Hjallastefnunni. Aðrir Hjalla- stefnuleikskólar em í Hafnarfirði, Garðabæ og á Akureyri. I samningnum felst að Hjalla- stefnan sér um og ber ábyrgð á framkvæmd faglegs leikskólastarfs samkvæmt námsskrám, lögum og reglugerðum. Hún sér sjálf t.d. um starfsmannamál, inntöku leikskóla- barna, innheimtu leikskólagjalda samkvæmt gjald- skrá Borgarbyggð- ar hverju sinni, en effirlit með starf- inu er á ábyrgð fræðslunefndar auk þess sem Borgarbyggð á og rekur áfram hús- næði leikskólans og lóð. Auk þess njóta bömin í leikskólanum áffam sérfræðiþjónustu ffá Borgarbyggð. „Markmiðið er að auðga og þróa leikskólastarf í Borgarbyggð, auka nýbreytni og sveigjanleika í skóla- starfi og ekki síst að koma til móts við þarfir og óskir notenda þjón- ustunnar, sem era í um 95% tilvika nemendur og starfsfólk Viðskipta- háskólans á Bifröst," segir í til- kynningu frá sveitarfélaginu. MM/ljósm. BG Stofitiun Stéttarfélags Vesturlands samþykkt Félagsmenn þriggja verkalýðsfé- laga hafa samþykkt sameiningu fé- laganna í nýtt verkalýðsfélag, Stéttarfélag Vesturlands, sem tek- ur til starfa á næstu vikum. Félög- in sem sameinast eru Verkalýðsfé- lagið Valur í Búðardal, Verkalýðs- félag Borgarness og Verkalýðsfé- lagið Hörður sem starfað hefur í sveitarfélögunum srmnan Skarðs- heiðar. A undanförnum árum hafa verkalýðsfélög víða um land sam- einast með það að markmiði að gera starf verkalýðshreyfingarinn- ar sterkari og gera þeim kleift að veita félagsmönnum sínum betri þjónustu en nú er gert. Stjórn Verkalýðsfélags Borgarness boðaði öll sjö verkalýðsfélög á Vesturlandi til kynningarfundar um samein- ingarmál. Öll félögin þáðu boðið utan Verkalýðsfélags Akraness sem taldi slíka kynningu eða umræðu ekki tímabæra. I framhaldi fór af stað vinna að sameiningu áður- nefndra þriggja félaga sem skilaði þeim árangri að nú vom greidd at- kvæði um sameiningarsamning. I honum var nafn félagsins ákveðið og önnur helstu skipulagsatriði svo sem fyrsta stjórn hins nýja félags. Félagsmenn Verkalýðsfélagsins Vals samþykktu sameininguna með 12 samhljóða atkvæðum. Hjá Verkalýðsfélagi Borgarness var sameiningin samþykkt með 24 samhljóða atkvæðum en í Verka- lýðsfélaginu Herði voru skiptar skoðanir en 16 samþykktu samein- ingu, 13 félagsmenn höfnuðu sam- einingu og einn skilaði auðum seðli. Samkvæmt sameiningar- samningnum verður Sveinn G. Hálfdánarson fyrsti formaður hins nýja félags en hann hefur verið for- maður Verkalýðsfélags Borgamess. I samtali við Skessuhorn segir Sveinn að stefnt sé að halda stofn- fund félagsins þann 30. maí nk. I kynningarriti sem félögin gáfu út fyrir sameiningarkosningarinnar ' Sveinn G Hálfdánarson, jýrsti formaöur Stéttarfélags Vesturlands. kom fram í ávarpi formanna félag- anna að þeir séu þeirrar skoðunar að æskilegast hefði verið að öll sjö verkalýðsfélögin á Vesturlandi hefðu staðið að stofnun hins nýja félags. Sveinn segir að tíminn verði að leiða það í ljós hvort fleiri félög bætist í hópinn. Hann sé þeirrar skoðunar að slíkt sé nauð- synlegt en því ráði að sjálfsögðu félagsmenn hvers félags fyrir sig. HJ Falið efirirlit með hönnun bóka- safins AKRANES: Bæjarráð Akraness hefur falið tækni- og umhverf- issviði bæjarins að hafa eftirlit með hönnun og byggingu hús- næðis þess er bærinn hefur fest kaup á fyrir bókasafn. Þetta var ákveðið í kjölfar óskar Halldóm Jónsdóttur bæjarbókarvarðar um að framkvæmdanefnd mannvirkja Akraneskaupstaðar „eða öðram sambærilegum fag- aðilum“ verði falið að hafa eft- irlit með hönnun og byggingu húsnæðisins. „Tel ég mikla hagsmuni vera í húfi fyrir kaup- anda að rétt sé að málum stað- ið,“ segir í bréfi bæjarbókavarð- ar. Gunnar Sigurðsson bæjar- ráðsmaður Sjálfstæðisflokksins lét bóka að hann teldi ekki þörf á að skipa sérstakan eftirlitsað- ila með byggingunni. -hj Tilkynnt um ölvunarakstur BORGARFJÖRÐUR: Lög- reglunni í Borgarnesi var til- kynnt um ölvaðan ökumann sem væri á ferðinni á Borgar- fjarðarbraut síðdegis síðastlið- inn laugardag. Við athugun lögreglu kom í ljós að ökumað- urinn var ölvaður og einnig án ökuréttinda. Má hann búast við að hans tími án ökuréttinda verði framlengdur og honum gert að greiða háa sekt í kjölfar- ið. -so Mælt með Brynhildi Björgu AKRANES: Skólanefnd Akra- ness hefur mælt með því að Brynhildur Björg Jónsdóttir verði ráðin í stöðu leikskóla- stjóra við leikskólann Vallarsel. Fjórir aðrir umsækjendur vora um stöðuna, Anney Agústsdótt- ir, Elísabet Jóhannesdóttir, Margrét Þóra Jónsdóttir og Ragnheiður Anna Þorsteins- dóttir. Skólanefndin taldi alla umsækjendurna hæfa til starfans en mælti að lokum með Brynhildi Björgu. -kj Nýr skólastjóri ráðinn REYKHÓLAR: Hilmar Þór Hafsteinsson hefur verið ráð- inn skólastjóri Reykhólaskóla. Kemur hann í stað Aslaugar Guttormsdóttur sem gegnt hef- ur starfinu undanfarin þrjú ár. Hún hefur ákveðið að snúa sér að almennri kennslu við skól- ann. Hilmar Þór lauk námi við Kennaraháskóla Islands á sín- um tíma en stundaði síðar nám við Tækniháskóla Islands í al- þjóðamarkaðsfræði og vöru- stjórnun. Að undanförnu hefur hann verið kennari í Arbæjar- skóla. -hj WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200 sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950. Verð í lausasölu er 400 kr. SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi; Skessuhom ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Fréttaritari: Bryndís Gylfadóttir 866 5809 bryndis@skessuhorn.is Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.