Skessuhorn - 24.05.2006, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 24. MAI 2006
7
Frjálslyndir og óháðir bjóða fram lista skipaðan fólki nýrrar kynslóðar í stjórnmálum
á Akranesi. Fólki sem býr yfir mjög mikilli þekkingu á bænum, íbúum hans og öllum
staðháttum. Ástæðan er einföld. Við erum flest fædd hér og uppalin, eða höfum
búið hér í fjölda ára. Hér eigum við ættingja, börn, foreldra og vini. Hér ætlum við
að búa áfram í framtíðinni.
Öll höfum við víðtæka reynslu úr atvinnulífinu hér á Akranesi. Sum hafa um tíma
sótt út fyrir bæjarmörkin jafnvel erlendis, til að leita sér menntunar eða vinnu. En
öll snúið aftur heim að því loknu, því að á Akranesi viljum við vera.
Yngra fólkið á listanum sem er í miklum meirihluta, - á börn á leikskólum, í grunn-
skólum eða Fjölbrautaskólanum og foreldra sem fylla hóp eldri borgara. Eldra fólkið
á hér bæði börn og barnabörn. Margar konur eru á listanum. í þrem efstu sætunum
eru tvær konur og önnur þeirra oddviti listans.
Hleypum nýrri kynslóð
Akurnesinga að stjórn bæjarins
Umhyggja - Hreinskilni - Réttlæti
Frjálslynd og óháð - Kirkjubraut 8 - Skoðið málefnáherslur okkar og framboð á www.heimaskagi.is