Skessuhorn - 24.05.2006, Qupperneq 10
10
MIÐVIKUDAGUR 24. MAI 2006
S££SSIHiO>lSKI
Magnús Þór
skólastjóri
SNÆFELLSBÆR: Bæjarstjórn
Snæfellsbæjar hefur að tillögu
skólanefndar Snæfellsbæjar ráðið
Magnús Þór Jónsson í stöðu skóla-
stjóra Grunnskóla Snæfellsbæjar.
Ráðningin er tímabundin í náms-
leyfi núverandi skólastjóra. Auk
Magnúsar Þórs sótti Hilmar Haf-
steinsson um stöðuna. -hj
Ný stjóm í NFFA
AKRANES: Þór Birgisson var ný-
verið kosinn formaður Nemenda-
félags Fjölbrautaskóla Vesturlands
á Akranesi fyrir skólaárið 2006-
2007. Asamt honum voru kosin í
stjórn félagsins þau Rúnar Olason,
Ragnheiður Friðriksdóttir og
Steinunn Eik Egilsdóttir. -hj
Vilja malbikun
Hólmaflatar
AKRANES: Húsbyggjendur og
íbúar við Hólmaflöt hafa sent
bæjaráði Akraness bréf þar sem far-
ið er þess á leit að nú þegar verði
boðið út lagning varanlegs shdags
og gangstétta við Hólmaflöt „með
það að markmiði að ffamkvæmd-
um ljúki á næstu vikum,“ eins og
segir í bréfinu. Rætt var um málið
á fundi bæjarráðs og var bókað að
umrædd ffamkvæmd væri á fram-
kvæmdaáædun ársins og var bréf-
inu vísað til umfjöllunar tækni- og
umhverfissviðs bæjarins. -hj
Gjaldskrá dagfor-
eldra hækkar
AKRANES: Samtök dagforeldra á
Akranesi hafa ákveðið að hækka
gjaldskrá sína ffá og með 1. ágúst
nk. Gjaldskrá vegna daggæslu
hækkar um 27,8% og matargjald
hækkar um 9,1%. Gjaldskráin er
einungis æduð til nota fyrir dagfor-
eldra sem hafa leyfi félagsmálaráðs
Akraness til að taka böm í dag-
gæslu. Oðrum er óheimilt að taka
böm í gæslu gegn gjaldi. Dagfor-
eldrum ber skylda til að sýna for-
eldrum gjaldskrána og gera þeim
grein fyrir einstökum liðum henn-
ar þegar bam byrjar í daggæslu.
-af: akranes.is
Hraðakstur
AKRANES: Af þeim tæplega 80
málum sem upp komu hjá lögregl-
unni á Akranesi í síðustu viku vora
ein 30 mál sem snem að umferð-
inni. Meðal annars var ökumaður
kærður efrir að ökuhraði biffeiðar
er hann ók mældist á 124 km/klst.
þar sem hámarkshraði er 90
km/klst. Annar ökumaður var
kærður eftír að hafa mælst á 93
km/klst. hraða þar sem hámarks-
hraði er 50 km/ klst. -so
Akranesbær
styrkir
Spánarferð
AKRANES: Bæjarráð Akraness
hefur samþykkt að veita Skóla-
hljómsveit Akraness styrk að upp-
hæð 200 þúsund krónur vegna
Spánarferðar hljómveitarinnar í
júní. Þar mun sveitin taka þátt í
menningarhátíð. I sveitinni era
rúmlega 50 ungmenni og auk
þeirra verða fimm fararstjórar með
í för enda í mörg hom að líta þeg-
ar svo myndarlegur hópur er á
ferð. Hljómsveitin hefur í 20 ár
verið ómissandi hluti af hátíðar-
höldum á Akranesi og víðar. -hj
Lífeyrissjóður Vesturlands sameinast
Lífeyrissjóði Suðurlands
Á ársfundi Lífeyrissjóðs Vestur-
lands, sem haldinn var 16. maí sl. var
samþykktur samrunasamningur um
sameiningu Lífeyrissjóðs Vestur-
lands og Lífeyrissjóðs Suðurlands.
Tillaga sama efiús liggur einnig fyr-
ir ársfundi Lífeyrissjóðs Suðurlands
sem haldinn verður 31. maí n.k.
Gert er ráð fyrir að stofhfundur hins
sameinaða sjóðs verði haldinn á
Akranesi 19. júní n.k.
Eins og ffam hefur komið í ffétt-
um Skessuhoms hefur verið unnið
að sameiningu sjóðanna tun nokkurt
skeið. Aðalskrifstofa sameinaðs sjóðs
mun verða í Reykjanesbæ, en skrif-
stofan á Akranesi mun starfa áffam
að þjónustu við sjóðfélaga og launa-
greiðendur á Vesmrlandi. Heildar-
eignir sjóðsins verða rúmlega 40
milljarðar króna og greiðandi sjóð-
félagar tæplega níu þúsund.
Megintilgangur sameiningar sjóð-
anna er að ná ffekari hagræðingu í
rekstri og auka áhættudreifingu og
þar með getu til að standa við lífeyr-
isskuldbindingar. Gylfi Jónasson,
sem gegnt hefur stöðu fram-
kvæmdastjóra Lífeyrissjóðs Vestur-
lands undanfarin sex ár, mtm verða
framkvæmdastjóri sameinaðs sjóðs.
HJ
Sameiningamefiid vill endurráða
alla starfsmenn sveitarfélaga
Sameiningarnefnd Borgarbyggð-
ar, Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíð-
urhrepps og Kolbeinsstaðahrepps
hefur lagt fram tillögur um stjórn-
skipan í nýju sameinuðu sveitarfé-
lagi sem kosið verður til um næstu
helgi. Tillögurnar eru unnar í sam-
starfi við Rannsóknamiðstöð Við-
skiptaháskólans á Bifröst. Nefiidin
leggur til að allir starfsmenn sveit-
arfélaganna fjögurra verði starfs-
menn hins nýja sveitarfélags og það
eigi einnig við um starfsmenn
byggðasamlaga er sveitarfélagið á
aðild að. Þó segir í tillögum nefnd-
arinnar að vegna skipulagsbreyt-
inga sem óhjákvæmilega fylgi sam-
einingu sveitarfélaganna geti orðið
breyting á starfssviði og verkefnum
einstakra starfsmanna. Þá gerir
nefndin ráð fyrir að forstöðumenn
stofnana beri aukna faglega og fjár-
hagslega ábyrgð á sínum stofnun-
um.
Samkvæmt upplýsingum frá
nefiidinni em alls 19,3 stöðugildi í
stjórnsýslu sveitarfélaganna fjög-
urra í dag. Era störf oddvita minni
sveitarfélaganna þriggja ekki með-
talin. Samkvæmt tillögum nefhdar-
innar er gert ráð fyrir að stöðugildi
í stjórnsýslu hins nýja sveitarfélags
Framkvæmdir hafiiar
við verslunarhús
Bónuss á Akranesi
Jóhannes Jónsson kaupmaður í
Bónus tók í dag fyrstu skóflustung-
una að nýju verslunarhúsi á Akra-
nesi sem meðal annars mun hýsa
verslun Bónuss. Það em SS-verk-
takar sem reisa bygginguna og er
ætlunin að húsið verði ttilbúið til
notkunar um hvítasunnuna á næsta
ári. Að sögn Guðmundar Mart-
einssonar ffamkvæmdastjóra Bón-
uss verður verslun fyrirtækisins um
1.100 fermetrar að stærð. Gert er
ráð fyrir að fleiri verslanir verði í
húsinu. HJ
Æ.
Hér er „Ráðhústeymið“ í Stykkishólmi aðfagna góöum árangri.
Hólmarar slógu ýmis
met í hjólreiðaátaki
Föstudaginn 19. maí sl. fór fram
verðlaunaafhending í fyrirtækja-
keppninni Hjólað í vinmma. Starfs-
fólk Stykkishólmsbæjar sýndi ein-
dæma kraff í þessu átaki ISI og
hreinlega sópaði til sín verðlaun-
um. Ráðhúsið í Stykkishólmi sigr-
aði í fjölda daga í flokki fyrirtækja
með 10-29 starfsmenn og Leik-
skólinn í Stykkishólmi varð í 5. sæti
í sama flokki. Áhaldahús Stykkis-
hólmsbæjar var í 1. sæti ásamt
þremur öðram stofnunum í flokki
fyrirtækja með 3-9 starfsmenn og
sveitarfélagið Stykkishólmsbær var
í 8. sæti á landsvísu í fjölda hjólaðra
daga en samtals vora hjólaðir 1522
kílómetrar á 671 dögum í Stykkis-
hólmsbæ í keppninni sem stóð ffá
3.-16. maí. MM
verði 22-23 talsins. Lagt er til að
stjórsýslan skiptist í þrjú svið, fjár-
mála- og stjórnsýslusvið, fjöl-
skyldusvið og framkvæmdasvið.
Samkvæmt tillögum nefndarinn-
ar er markmiðið að stjórnkerfið
verði gegnsætt og aðgengilegt fyrir
íbúa. Sviðin þrjú verði að hafa með
sér náið samstarf og samræmi þurfi
að vera í stjórnsýslu og nefndakerfi.
Gert er ráð fyrir að sex fagnefhdir
verði starfandi í sveitarfélaginu auk
byggðaráðs. Nefndirnar eru at-
vinnu-og markaðsnefnd, félags-
málanefnd, fræðslunefnd, landbún-
aðar- og umhverfisnefnd, skipu-
lags- og byggingarnefnd og tóm-
stunda- og menningarnefhd. Lagt
er til að hver nefnd verði skipuð
fimm fulltrúum, nema fræðslu-
nefnd sem skipuð verði sjö fulltrú-
um.
í bókun nefndarinnar kemur
fram að bæjarstjórinn í Borgar-
byggð og sveitarstjórinn í Borgar-
fjarðarsveit séu með ráðningar-
samninga ffam að sveitarstjórnar-
kosningum og ljúki eðli málsins
samkvæmt störfum þá. Ný sveitar-
stjórn muni ráða sveitarstjóra hins
nýja sveitarfélags.
HJ
Uthlutað úr pokasjóði
verslunarinnar
Síðastliðinn föstudag var úthlut-
að styrkjum úr Pokasjóði verslun-
arinnar. Að þessu sinni var 90
milljónum úthlutað en sjóðurinn
fær tekjur af sölu plastburðarpoka í
um 100 verslunum víðsvegar um
landið. Hlutverk sjóðsins er að
leggja lið málum sem horfa til al-
mannaheilla á sviði umhverfismála,
mannúðar- og heilbrigðismála,
menningar og lista auk íþrótta og
útivistar.
Alls vom um 100 aðilar styrktír.
Stærsta styrkinn, sem sérstaklega
má rekja til Vesturlands, fékk
Landgræðslufélagið við Skarðs-
heiði sem undanfarin ár hefur hlot-
ið myndarlega styrki úr Pokasjóði,
að þessu sinni fékk félagið 3 millj-
ónir króna til landbótaverkefiiisins
undir Hafnarfjalli. Þá fékk Ferða-
málafélag Dala og Reykhóla 500
þúsund króna styrk til merkinga
göngustíga og uppsetningu skilta í
Dalasýslu og Reykhólahreppi.
Loks fengu Skógarmenn KFUM
500 þúsund króna styrk til að bæta
aðgengi fatlaðra í Vatnaskógi. MM
Kíkt eftir laxi í Laxá í Leirársveit um höna helgi.
Laxiim snemma
á ferðinni
Veiðimaður sem var að veiða við
fyrir neðan Mótel Venus fyrir fáum
dögum, sagðist hafa séð laxa
stökkva þar, en sjálfur var hann að
reyna við silung. Mörgum þykir
það frekar snemmt, en laxinn er
greinilega á ferðinni með fyrra fall-
inu núna.
Þegar hafa laxar sést í Laxá í
Leirársveit og í Haffjarðará og að
öllum líkindum er hann kominn í
Norðurá og í Þverá miðað við lax-
ana sem sáust í Borgarfirðinum,
eins og áður segir. Nú styttist vera-
lega í að Norðurá opni fyrir veiði-
mönnum, en það verður eins og
fyrr að morgni 1. júní sem veiðin
hefst þar. GB