Skessuhorn


Skessuhorn - 24.05.2006, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 24.05.2006, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2006 He'r má sjá spjöldin sem bekkurinn vann. Gróður og fuglalíf Eng- lendingavíkur Á umhverfisdögum í liðiimi viku í Grunnskóla Borgarness í tengsl- um við Grænfánaverkefnið vann 6. bekkur skólans tvö veggspjöld sem til stendur að koma upp í Endlend- ingavíL Inga Margrét Skúladóttir er umsjónarkennari hópsins. Segir hún að annað veggspjaldið sé um gróður en hitt um fúglalíf í Eng- lendingavík. Bekkurinn fékk upp- lýsingar fyrir verkefinið hjá Finni Torfa Hjörleifssyni fyrrverandi héraðsdómara sem þekkir mjög vel til Englendingavíkur og umhverfis- ins þar. SO Hópurinn í afgreiSslu Sparijóðsins að söng loknum meí Steinunni Astujýrir miiju. Sungu sig til Danmerkur Segja má að tíundi bekkur Varma- landsskóla í Borgarfirði hafi komið, séð og sigrað í Sparisjóði Mýrasýslu fyrir skömmu. Hópurinn mætti í af- greiðslu sjóðsins og söng sig inn í hjörtu starfsfólks og viðskiptavina til að vinna sér inn styrk fyrir útskrift- arferð sinni til Danmerkur. Forsaga málsins er sú að til margra ára hefúr verið hefð fýrir því í Varmalandsskóla að verðandi tí- undubekkingar safni sér fyrir út- skriftarferð. Undanfarin ár hefur markmiðið verið sett hátt, þ.e. á er- lenda grund. Sá tíundi bekkur sem útskrifast í vor er engin undantekn- ing frá því. Strax í áttunda bekk var farið að safna. Kirkjugarðar héraðs- ins voru slegnir af miklum móð, grjót voru tínt úr flögum, seldur var klósettpappir og kökur. Skólinn hefur líka stutt rældlega við bakið á þessum bekkjum. Ágóði af kaffisölu á árshátfðxun og skólaslitum hefur mnnið í söfnunarsjóðinn og skólinn hefur oftar en ekki greitt fyrir rúm, að og frá flugvelli. Hjá þessum bekk var einnig haldin mikil menrúngar- hátíð s.l. haust þar sem frumsamið og aðfengið efni var flutt með til- þrifum og gestdr skemmtu sér hið besta. Samstarf er komið á milli skóla í Galten í Danmörku og Varmalands- skóla. Danski skólinn kom hingað tdl lands í haust og því var tdlvaldið að endurgjalda heimsóknina núna í vor. Söfhunin hafði gengið ágæt- lega en herslumunin vantaði og var því leitað á náðir Sparisjóðs Mýra- sýslu sem, eins og allir vita, hefúr oft styrkt góð málefni. Til þess að vinna fyrir styrknum þtirftu krakk- amir að koma og syngja „Danska lagið“ í afgreiðslu Sparisjóðsins og hvað var meira við hæfi en einmitt það. Söngurinn tókst svo ljómandi vel að Steimmn Ásta Guðmunds- dóttir skrifstofustjóri Sparisjóðsins afhenti Margrétd Bjamadóttur form. Nemendafélags Varmalandsskóla, sem einnig er í tíunda bekk, væna upphæð sem gerði þeim kleift að heimsækja frændur vora í Dan- mörku. BGK Einkunnir verða fólkvangnr í Borgamesi Við sömu athöfn og umhverfis- ráðherra afhenti Grunnskólanum í Borgarnesi Grænfánann síðastlið- inn föstudag, var undirrituð auglýs- ing um friðlýsingu Einkunna í Borgarnesi sem fólkvangs. Árið 2004 var skipaður virmuhópur um framtíð svæðisins og hópurinn lagði til að Eikunnir yrðu gerðar að fólkvangi og var tillaga hópsins samþykkt í bæjarstjórn Borgar- byggðar síðastliðið haust. I mark- miðsgrein ffiðlýsingarinnar segir: „Alarkmið með friðlýsingu svæðis- ins Einkunna sem fólkvangs er að vernda jarðmyndanir og votlendi í þágu útivistar almennings, náttúru- skoðtmar og fræðslu". Á meðfylgjandi mynd má sjá Davíð Egilsson forstjóra Umhverf- isstofnunar, Sigríði Onnu Þórðar- dóttir umhverfisráðherra og Pál S. Brynjarsson bæjarstjóra Borgar- byggðar undimta auglýsinguna. SO Frambjóðendur ípanel,f.v. Torfi Jóhannesson og Bjarki Þorsteinsson frá Sjálfstœðisflokki, Valdimar Sigurjónsson og Sveinbjöm Eyjólfs- sonfrá Framsóknarflokki og Þór Þorsteinsson og Finnbogi Rögnvaldsson frá Borgarlistanum. Framboðsfundir í Borgarfirði Frambjóðendur í sameinuðu sveitarfélagi í Borgarfirði og Kol- beinsstaðahreppi héldu í liðinni viku sameiginlega ffamboðsfúndi víðs- vegar um hið nýja og landstóra sveitarfélag. Fundað var í Lindar- tungu, Hvanneyri, Brúarási og end- að á fjölmennasta fundinum á Hótel Borgamesi sl. sunnudag. Það vom ffamboð Borgarlistans, Framsókn- arflokks og Sjálfstæðisflokks sem stóðu sameiginlega að þessum fúnd- um. Blaðamaður Skessuhorns fór á einn þessara fúnda sem fram fór á Bifröst. Fór hann að vonum vel ffam, stóð í rétta 2 klukktutíma og var hætt tímanlega fyrir Evróvisjon útsendingu sem var þá um kvöldið. Mestar umræður á fundinum spunnust um málefni leikskólans Hraunborgar þar sem hugmyndir voru uppi meðal forsvarsmanna Borgarbyggðar að ganga til sam- starfs við Hjallastefnuna um rekstur skólans. Nú tæpri viku síðar hefur að vísu verið gengið ffá samkomulagi þar að lútandi. Þá var á fúndinum rætt um slökkviliðs- og sjúkraflum- ingamál á Bifföst, grunnskólann á Varmalandi, markaðsmál nýs sveit- arfélags og ýmislegt fleira. Fundar- stjóri var Stefán Kalmansson. MM Mesta hækkun launagreiðslna í Skilmannahreppi Heildarlaunagreiðslur allra sveit- arfélaga á Vesturlandi hafa hækkað um 11,3% ffá árinu 2004 til 2005. Þetta kemur ffam í nýjum upplýs- ingum sem Hag- og upplýsingasvið Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur tekið saman tun þróun launa- greiðslna eftir sveitarfélögum á ár- inu 2005 í saman- burði við árið 2004. Launagreiðslur allra sveitarfélaga á Vesturlandi, að undanskildum Hvítársíðuhreppi og Saurbæjar- hreppi, hafa hækk- að að einhverju leyti en mest hafa launagreiðslur Skilmannahrepps hækkað eða um 47% milli ára. Er það mesta hækkun launagreiðslna í sveitarfélagi á landinu. Launa- greiðslur Hvítársíðuhrepps og Saurbæjarhrepps hafa hins vegar lækkað lítillega ffá 2004. Heildarlaunagreiðslur sveitarfé- laga eru öll þau laun sem greidd eru innan hvers sveitarfélags fyrir sig af einkaaðilum sem og opinberum að- ilum og eru upplýsingarnar gefnar á verðlagi hvers árs. í samantekt- inni er ekki gerð grein fyrir á hverju þessi launaþróun byggir en þar get- ur verið um að ræða hækkun launa- taxta, aukið vinnuffamlag einstak- Hnga eða fleira fólk á vinnumark- aði. KÓÓ Sveitarfélag Laxmagr. 2004 Launagr. 2005 Aukning í % Akraneskaupstaður 11.424.702.001 10.131.887.355 12,8% Hvalfj arðarstrandarhreppur 244.744.712 243.530.885 0,5% Skilmannahreppur 374.633.143 254.809.053 47,0% Innri - Akraneshreppur 226.981.416 198.933.249 14,1% Leirár- og Melahreppur 175.898.700 165.207.234 6,5% Skorradalshreppur 113.269.430 94.579.338 19,8% Borgarfjarðarsveit 1.011.234.164 876.019.032 15,4% Hvítársíðuhreppur 80.259.382 81.998.963 -2,1% Borgarbyggð 4.537.984.242 3.956.814.093 14,7% Kolbeinsstaðahreppur 105.836.031 100.412.000 5,4% Grundarfjarðarbær 1.682.773.687 1.502.398.180 12,0% Helgafellssveit 58.596.995 58.397.790 0,3% Stykkishólmsbær 2.108.277.013 1.963.106.435 7,4% Eyja- og Miklaholtshreppur 230.759.110 186.935.310 23,4% Snæfellsbær 3.083.303.613 3.035.465.153 1,6% Saurbæjarhreppur 84.377.534 84.521.062 -0,2% Dalabyggð 971.176.996 892.317.243 8,8% Vesturland samtals 26.514.808.169 23.827.332.375 11,3%

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.