Skessuhorn


Skessuhorn - 24.05.2006, Qupperneq 22

Skessuhorn - 24.05.2006, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 24. MAI2006 SgKSSglHfiEm T^e/t/ú/t/t—^i. Hvað á sveitarfélagið að heita? I síðasta tölu- blaði Skessu- homs vom tvær greinar um naíngiftir á hin nýju, stóru sveitarfélög í forðum Mýra- og Borgarfjarðarsýsl- um. Víkjum fyrst að sveitunum sem áður vom jafnan kallaðar; „sunnan Skarðsheiðar." Eg er sammála Jó- hönnu Harðardóttur um óffumleika þeirra nafna sem nafnanefnd hefur mælt með. Eg sendi á sínum tíma mína tillögu, sem var: „Akrafjalls- og Skarðsheiðarhreppur eða sveit.“ Kannski hefur rökstuðningurinn ekki þótt nógu góður, en ég minnti á hið ffæga ljóð Sigurðar Þórarins- sonar jarðfræðings - Vorkvöld í Reykjavík, þar sem segir; „Akrafjall og Skarðsheiði, eins of fjólubláir draumar," o.s.frv. Kannski finnst þeim sem er borgað fýrir að spara nafngiftir og stafi í hagræðingar- skyni, þetta of langt nafn. Eg pmfaði að segja; Ilvalfjarðarstrandarhrepp- ur og það tók ekkert styttri tíma og í raun miklu óþjálla nafh. Svo minni ég á Eyja- og Miklaholtshrepp vest- ur á Snæfellsnesi (ennþá) og fer vel í munni. Þau em nú miklu lengri mörg nöfnin í stjómsýslunni og óskiljan- leg að auki. Þetta nýja sveitarfélag umlyggur að mestu leyti þessi tvö einkennisfjöll svæðisins og nafhið þarfnast engra skýringa. Svo er óþarft að útrýma hreppsnafninu fyr- ir hið ofnotaða orð - byggð. I annarri grein var mælt með nafninu „Borgarfjörður“ um Borg- arfjarðarhérað. Það ætti raunar að vera sjálfsagt nafn og engin ástæða til að hnýta „Sveitarfélagið“ fyrir ffaman og lengja nafhið um helm- ing. En nú minni ég á mitt gamla sveitarfélag; Kolbeinsstaðahrepp og örlög þess í þessu sameiningarferli öllu. Allar götur ffá stofinun Þórs- nesþings í byrjun tíundu aldar hefur land Kolbeinsstaðahrepps talist til Snæfellsness. Mjög naumur meiri- hluti hreppsbúa hefur nú fært hreppinn í Borgarfjörðinn án við- komu á Mýrunum og það trndir- strika allir ferðabæklingar og kynn- ingarblöð. I nýjum ferðabæklingi um Snæfellsnes, hefur Kolbein- staðahreppurinn verið þurrkaður út af kortinu og aðeins Heydalsvegur- inn efirir. Og í myndarlegu kynning- arblaði um Borgarfjörð sem dreiff var með Mogganum nýlega, er varla að finna staf um Kolbeinsstaðahrepp eða mannlíf og fýrirtæki í hreppnum (ef undan er skihð viðtal við Sigrúnu í Hallkelsstaðahlíð). Það mætti kannski bjarga málinu með nafngiff- inni; Borgarfjarðar- og Kolbeins- staðahreppur! Næst verður landa- ffæðinni breytt og sagt; Eldborg í Borgarfirði!, en áður verður væntan- lega búið að leggja niðtu- hinn verð- launaða skóla; Laugargerðisskóla. Reynir Ingibjartsson, síðasti Kolhreppingurinn. T^c/i/ú/i/t^: Borgatjyörður - ekki spuming byggð, Brákar- byggð, Mýra- byggð og Sveitarfélagið Borgarfjörður. Þetta eru þau nöfh sem íbúar í sameinuðu sveitar- félagi Borgarbyggðar, Borgarfjarð- arsveitar, Hvítársíðuhrepps og Kol- beinsstaðahrepps geta valið á milli í skoðanakönntm um nafn á nýju sveitarfélagi samhliða sveitarstjóm- arkosningunum á laugardaginn. I mínum huga er þetta ekki val. Sveitarfélagið Borgarfjörður er eina nafnið sem kemttr til greina að mínu mati. Nafnið Borgarfjörður er vel þekkt „vöramerki" sem hefur á sér jákvæða og góða ímynd. Það má vissulega til sannsvegar færa að hvorki Mýramar né Kolbeinsstaða- hreppur liggi við Borgarfjörðinn. En það er ekkert eitt nafh sem nær landffæðilega yfir allt sveitarfélagið. Nema ef vera skyldi Kolborgar- mýrasíðubyggð. Ef Brákarbyggð eða Mýrabyggð verða fýrir valinu þá tæki það mörg ár að festa sig í sessi, auk þess sem bæði Brák og Mýramar ná yfir enn afmarkaðara svæði en Borgarfjörð- urinn. Eg bý í Borgarbyggð. Eg er og verð Borgnesingur. Eg er líka og verð áffam Borgfirðingur. Eg hef hins vegar aldrei getað sætt mig við að vera Borgbyggðungur. Mér finnst „byggð“ leiðinleg ending á heiti sveitarfélags. Þó svo að vissu- lega megi færa rök fýrir því að nafn- ið Borgarbyggð sé orðið þekkt á landsvísu þá finnst mér ekki sann- gjamt að heiti á einu af fjórum sveitarfélögum verði yfirfært á allt svæðið. Ibúar annarra sveitarfélaga gætu þannig fengið það á tilfinning- una að það væri ekki verið að búa til nýtt sveitarfélag heldur væri verið að innfima þrjú sveitarfélög í Borgar- byggð. Kolhreppingar verða áffam Kol- hreppingar og Hvítsíðingar áfram Hvítsíðingar o.s.frv. Eitthvað verður sveitarfélagið að heita og að mínu mati falla öll rök með Borgarfirði. Afram Borgarfjörður! Hólmfríður Sveinsdóttir, Borgfirðingur. 7^e/tHi/i/u~~rí Með augunfull afrykiu Héraðsveg- irnir, „sveita- vegirnir,“ inn til dala og út til stranda eru samgönguæðar heils atvinnu- vegar. En einnig býr fjölmargt fólk í dreifbýli sem sækir vinnu um langan veg til næsta þéttbýhs og börnum er ekið í skóla. Ferðaþjónustan er ört vaxandi atvinnugrein og miklar von- ir bundnar við hana til að treysta at- vinnu til sveita. Islendingar vilja gjarnan laða til sín ferðamenn og auglýsa náttúmfegurð landsins á er- lendri grund og við viljum ekki síð- ur njóta sjálf íslenskrar náttúm. Þá má og nefha vegi að stómm sumar- bústaðalöndum sem þurfa að anna mikilli umferð á vissum árstímum. Góðir sveitavegir em því ekki sér- hagsmunamál bænda heldur hluti af því að byggja Ísland upp sem ferða- mannaland og á þeim byggist ný- sköpun í atvinnulífi til sveita. Rykbinding og viðhald Nú þegar sumarið fer í hönd verðum við áþreifanlega vör við hve margir sveitavegir hafa dregist aftur úr í viðhaldi. Veikur burður, þunnt slitlag, holur og ryk takmarka flutn- inga og alla umferð og gera fólki gramt í geði. Mikilvægt er því að rykbinda þessa vegi sem fýrst til að draga úr slysahættu. A þessum veg- um em gjarnan þröngar, einbreiðar brýr eða ræsi sem skerða enn frekar umferðaröryggið. Ferðamenn aka í síauknum mæli sjálfir um landið og þeir fýllast ótta og örvinglan þegar þeir ramba inn á malarkafla sem þeim finnst alltof mjóir og lausir í sér. Aðrir ferðast um á reiðhjólum og hjóla meira og minna í rykskýi um landið. Gæði veganna og um- ferðaröryggi ráða því miklu um samkeppnishæfni einstakra svæða til búsem og ferðaþjónustu. Gera þarf átak varðandi þessa vegi og þá einnig með lagningu varanlegs og bundins slitlags þar sem því verður við komið. Uppbygging og slitlag á sveitavegum Ástand og viðhald sveitaveganna er mjög misjafiit. Þannig njóta ýms- ir mikilvægir sveitavegir mjög tak- markaðrar þjónustu þótt þeir séu eina vegtenging íbúa á stórum svæð- um við stofnvegi. Þegar byggð leggst af á einum bæ getur vegurinn fallið úr tölu þjóðvega. Ber þá eng- inn ábyrgð á viðhaldi hans úr því nema helst sveitarfélagið. Engu að síður getur vegurinn verið jafh mik- ilvægur við nýtingu auðlinda lands- ins svo sem til búskapar og ferða- þjónustu. Mjög hallar á sveitavegina, hvað varðar lagningu btmdins slitlags. Sú þróun er varhugaverð og getur leitt til þess að ákveðin svæði einangrist, missi af viðskiptum og öðmm tæki- fæmm sem tengjast umferð ferða- manna. Bundið slitlag eykur og möguleika íbúanna til að komast ör- ugglega til og ffá heimih sínu. Vel má setja sérreglur um hámarkshraða á þessum vegum til að fullnægja ör- yggiskröfum. Ákall um betri vegi er kosningamál til sveita Astand sveitaveganna brennur mjög á íbúum til sveita. Hagkvæmni við sameiningu sveitarfélaga strand- ar ekki hvað síst á lélegum samgöng- um. Vegir innanhéraðs em því eitt aðalmál kosninganna til sveita. Þessi hópur fólks er mjög dreifður um landið og getur því illa beitt hópþrýstingi á stjórnvöld til að fýlgja málum sínum efrir. Þingmenn Vinstri grænna hafa látið málefhi sveitaveganna sérstaklega til sín taka. Höfum við í því skyni lagt til á Alþingi að gert verði sérstakt stórá- tak í uppbyggingu safh- og tengi- vega, svokallaðra héraðs- eða sveita- vega. Góðir vegir era forsenda sam- keppnishæfrar byggðar og stækka Island sem ferðamannaland. Nú er svo sannarlega komin röðin að sveitavegunum. Jón Bjamason, fingmaður Vinstri- hreyfmgarinnar græns framboðs í Norðvesturlfördæmi Löng bið eftir tónlistamámi er með öllu ólíðandi Nú fýrir kosningar hafa málefni Tón- listarskólans á A k r a n e s i (TOSKA) ver- ið mikið til umræðu. En af hverju skyldi þetta vera? Undanfarin ár höfum við þurft að sætta okkur við langa biðlista eftír skólavist og er það engan veginn boðlegt. Undirrituð sat í starfshópi um málefni TOSKA. Hópurinn gerði ákveðnar tillögur til að efla skólann og fjölga nemendum. A meðal þeirra var: • Tekin yrði upp forskólakennsla í grunnskólum bæjarins. • Gerð yrði tílraun með hópa- kennslu. • Samningum við hreppana yrði sagt upp í núverandi mynd. Akranes- kaupstaður legði aukið fjármagn til skólans. Um er að ræða 7 millj. kr. framlag miðað við fjárhagsáætlun 2006. Bæjarstjórn Akraness samþykkti hluta tillagna starfshópsins. Samn- ingarnir við hreppana vom síðan samþykktir af meirihluta bæjarsjórn- ar, eins og kunnugt er. Sem bæjarfulltrúi á Akranesi er ég afar ósátt við þessa niðurstöðu. Sjö milljónir em ekki stór upphæð þegar kemur að bættri þjónustu við yngstu þegna okkar. Skyldur okkar em em fýrst og fremst gagnvart íbúum Akraness. Það em þeir sem kjósa okkur. Þeir eiga að hafa forgang! Er það ábyrgðarlaust að fara ffam á aulrið fjármagn til skólans? Nei, þetta er aðeins spurning um for- gangstöðun. Til ffóðleiks má geta þess að kostnaður við svokallað Skorkort Akraneskausptaðar er nú kominn í 6 milljónir kr. Asókn í TOSKA er staðfesting þess frábæra starfs sem þar er unnið. Því verðum við að standa vörð um skólann. Nýtt húsnæði, aukið fjár- magn og aukið námsffamboð em þau atriði sem eiga að vera leiðarljós að enn betri skóla. Byggjum upp betri bæ - tónlistarbæinn Akranes! Setjum X við D á kjördag! Guðrún Elsa Gunnarsdóttir Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins á Akranesi og skipar 9. sæti framboðslista flokksins fýrir komandi sveitarstjórnarkosningar. 7^ð/i/ú/i/i~^rí Um nafngift sveitarfélags Þegar valið verður nafh á nýtt sveitarfé- lag skal vel til vanda. Nafnið Borgarbyggð sem menn kusu sem heiti á sameinuðu sveitarfélagi Borgarness, Hraunhrepps, Álfta- neshrepps, Borgarhrepps, Norður- árdals Stafholtstungna og Þverár- hlíðar hefur hlotið verðugan sess og mundi sóma vel á því nýja sveit- arfélagi sem mun verða til eftir komandi sveitarstjórnarkosrúngar. Nafnið er þjált, hljómmikið og með góðri stuðlasetningu. Þar að auki vísar það til byggðar í Borgar- firði og á Mýmm og ekki síst til Borgar á Mýram sem hefur þann sess í héraði að vera landnámsjörð og höfuðból. I síðasta tölublaði Skessuhorns birtist grein þar sem nafnið Sveit- arfélagið Borgarfjörður er talinn góður kosmr. Þessi tillaga er harla ffáleit, þar sem austur á landi er sveitarféiag sem ber það sama nafh. Stefán M. Olafsson, Litlu Brekku. 7^e/i/ú/i/i~^~- Hvað á að kjósaí Margir þeir sem velta fýrir sér augljósu fylgishruni Framsóknar- f 1 o k k s i n s , undrast jafn- ffamt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki einnig tapa umtalsverðu fýlgi. Hvemig þessum málum er háttað er ekkert undrunarefni ef grannt er skoðað. Fylgi Framsóknar hefur gegnum tíðina verið að stómm hluta fýlgi fólks sem hefur álitið Fram- sóknarflokkinn flokk jafhréttisstefhu og að hann, að minnsta kosti að ein- hverju leyti, - bæri hag þeirra fýrir brjósti sem minna mega sín eins og það er oft kallað. Þetta er og hefur verið misskilningur alla tíð. Fram- sóknarflokkurinn hefur alltaf verið flokkur sérhagsmunafólks og það hefur stórversnað í seinni tíð. Sem betur fer er fólk loksins farið að sjá hvers konar úlfar það era sem skrið- ið hafa tmdir sauðargæm Framsókn- arflokksins. Það er ástæða þess að fólk er farið að yfirgefa hann nú í stórum hópum. Um Sjálfstæðisflokkinn gildir allt annað lögmál. Smðningsfólk Sjálf- stæðisflokksins horfir til verðbréfa og kauphallarviðskipta, ekki til al- mennra starfa sem gefa lítið í aðra hönd. Sjálfstæðisflokkurinn verður ekki fýrir neinu fýlgishruni. Þeir sem matað hafa krókinn, eða vonast til að geta gert það þurfa að verða fýrir umtalsverðu fjárhagslegu tjóni til þess að þeir hætti að styðja Sjálf- stæðisflokkinn. Frjálshyggjupostular og hinir útvöldu gæðingar íhalds og ffamsóknar kæra sig gjörsamlega kollótta um öryrkja, fátækt fólk, sjúkt og aldrað. Nú berast tíðindi um vaxandi ójöfhuð, fátækt og að ekki er hægt að manna stöður í heilbrigðisþjón- usm nema að litlu leyti. Hverju er um að kenna? Ætlar fólk að trúa því að einhverjar raunhæfar úrbætur verði gerðar ef við verðum svo ólánssöm að fá yfir okkur áffarn- haldandi óstjórn þeirra flokka sem mesm hafa ráðið hér ffam að þessu? Fals og hræsni rennur í lækjum af forkólfum Framsóknar og Ihalds þessa dagana. Eg skora á fólk að láta ekki blekkjast eina ferðina enn. Kjósum ekki þennan ófögnuð yfir okkur í þetta sinn og fýlgjum því eft- ir í alþingiskosningunum að vori. Styðjum til valda þann eina flokk sem ekki á við fortíðarvanda svik- inna loforða að stríða. Kjósum Frjálslynda Flokkinn, bæði nú og að vori. Pétur Gissurarson, skipstjóri. Höf. skipar 15. maður á lista Ftjálslynda flokksins á Akranesi.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.