Skessuhorn


Skessuhorn - 24.05.2006, Page 23

Skessuhorn - 24.05.2006, Page 23
aSESSIiííöEKI MIÐYIKUDAGUR 24. MAI2006 23 Umhvetfismálin í öndvegi Umræðan um umhverfis- mál tengist oftast virkjun- um og stóriðju en síður mál- um sem við stöndum ffammi fyrir dag hvern. A hverjum degi erum við með eitt- hvað sem við teljum rusl og hend- um því vonandi í föttma. Margir kæra sig svo kollótta um hvað verð- ur um úrganginn, bara að hann sé fjarlægður og vandamálið sé þar með úr sögunni. Gott ef rétt væri, en þannig er það nú ekki. Að tryggja lífsgæði eftirkomendanna Velmegun fylgir aukin neysla og meiri úrgangur. Ef við viljum vernda umhverfið og náttúruna kostar það peninga. Ríki, sveitarfé- lög og fyrirtæki gera sér grein fyrir að „auðvelda" förgunarleiðin fer ekki saman við sjálfbæra þróun og hugmyndir um varðveislu umhverf- is og lífsgæði þeirra sem á eftir okk- ur koma. I þessum anda hefur Akraneskaupstaður samið við fyrir- tækið Avallt ehf. um umsjón verk- efhis til að uppfylla núverandi og væntanleg laga- og reglugerðará- kvæði og um leið að mæta ákvæð- um sameiginlegrar svæðisáætlunar í sorpmálum. Metnaðaðarfullt verkefni Verkefnið felst í uppsetningu og innleiðingu heildstæðs kerfis sem þjóna á jafnt stofnunum bæjarfé- lagsins, lögaðilum og einstakling- um. I því er gert ráð fyrir flokkun úrgangs, greiningu söfhunarkostn- aðar, gerðum íláta, staðsetningu grenndargáma, tíðni tæminga, end- urnýtingarmöguleikum og gerð fræðslu- og kynningarefhis o.m.fl. Þetta er metnaðarfullt verkefni í úrgangsmálum og er horft til hins nýja Urvinnslusjóðs en hlutverk hans er ekki síst að auka endur- vinnslu og endurnýtingu úrgangs. Holræsamálin til OR Samningur milli Akraneskaup- staður og OR markar einnig tíma- mót í umhverfismálum. Holræsa- kerfið er fært yfir til OR og mun fyritækið gera fullnægjandi endur- bætur á því innan þriggja ár með þeim hætti er lög og reglugerðir kveða á um. Það er því staðföst ætl- un bæjaryfirvalda á Akranesi að bærinn verði í fararbroddi íslenskra sveitarfélaga í umhverfismálum. Akranes er það á öðrum sviðum og nú er þessi málaflokkur einnig tek- irm föstum tökum. Svemn Kristinsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akranesi Fjárhagsstaða Dalabyggðar Á síðasta sveitarstjórn- arfundi Dala- byggðar þann 1. maí sl. voru ársreikningar sveitarfélags- ins samþykktir með sex atkvæðum gegn einu. Skv. birtum niðurstöð- um ársreikninganna var tekjuaf- gangur hjá A- og B-hluta samtals kr. 1.425.342. Skuldir í árslok hjá A-hluta voru kr. 214.605.716, eða kr. 336.373 á hvem íbúa. Hjá A- og B-hluta vora skuldimar samtals kr. 299.512.650, eða kr. 469.456. Þessar tölur gefa þó ekki raun- hæfa mynda af fjárhagsstöðu sveit- arfélagsins sem ýmist á meirihluta eign eða 100% eign í fjórum hluta- félögum. Sveitarfélagið stundar fjölbreytt- an rekstur og m.a. um 70% eignar- hluta í Sláturhúsinu ehf, 100% eign í Dalalambi ehf, 100% í Vestur- braut ehf og 55,7% eignarhluta f Dalagistingu ehf. Ef litið er á rekstrarafkomu og skuldir þessara félaga á síðasta ári kemur í ljós að Dalalamb skilar um 8,6 millj. kr hagnaði en skuldir fé- lagsins nema um 14.792.726 kr og ójafnað eigið fé -11.368.464 kr. Sláturhúsið ehf var rekið með tapi sem nam 3.677.122 kr. en nið- urfelldar skuldir námu um 15.563.838 kr. Heildarskuldir fé- lagsins voru 55.193.486,00 í árslok. Tap var einnig á rekstri Dalagist- ingu og nam 912.152 kr. og ójafn- að eigið fé var neikvætt upp á 16.835.779,00 kr. Heildarskuldir voru um 37.096.612 kr. Rekstur Vesturbrautar ehf skilaði í fyrsta skipti hagnaði 1.715.356 kr. upp á en heildarskuldir félagsins námu um 5.250.729 kr. Af ofangreindur má sjá að heild- arskuldir þessara hlutafélaga námu um 112.333.553 kr í árslok 2005 auk neikvæðs ójafnaðs eigið fé sem safnast hefur upp á milli ára. Þess ber þó að geta að sveitarsjóður hef- ur lánað flestum hlutafélögunum tugi milljóna króna í reksturinn á síðasta ári. Skv. sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998, 60. gr. um flokkun í reikningsskilum sveitarfélaga ber að taka inn í ársreikninginn stofh- anir sveitarfélaga, fyrirtæki og aðr- ar rekstrareiningar sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfé- laga og eru reknar sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar. Meirihluti sveitarstjórnar tók þá ákvörðun að rekstur þessara hlutafélaga færu ekki inn í samstæðureikning sveit- arfélagsins en ljóst er að heildar- skuldir sveitarfélagsins eru mun hærri en gefið er til kynna. Framundan era sveitarstjórna- kosningar og þó ótrúlegt megi virðast hefur enginn þeirra þriggja framboðslista sem bjóða frarn í Dölum lagt fram áherslur sínar í fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og fjölbreyttum atvinnurekstri þess. Enn síður um uppbyggingu nýsam- einaðs sveitarfélags. Áherslumál listanna eru bragðdauf og óljóst hvert þeir stefha enda kosningabar- áttan hljóðlát. Það skyldi þó ekki vera tilviljun ein að enginn áherslu- mtmur er á daufri framtíðarsýn og stefnu listanna. Guði'ún J. Gunnarsdóttir Sveitarstjórnarmaður í Dalabyggð Brot úr sögu vershmar við Breiðafjörð Frá Ólafsvík um 1843. Á uppstigningardag, fimmtudag- inn 25. maí 2006, kl. 15.30 hefur Norska húsið í Stykkishólmi sumar- starf sitt með því að Margrét Hall- grímsdóttir þjóðminjavörður opnar sýninguna „Brot úr sögu verslunar við Breiðafjörð 1400-1900.“ Sýn- ingin er hluti af verkefninu „Northern Coastal Experience“ (NORCE) sem er styrkt af NPP sjóði Evrópusambandsins. Sýningin er opin daglega kl. 11.00-17.00 og stendur til 3. september 2006. Verslun við Breiðafjörð byggir á aldagamalli hefð sem grundvallast á nálægð við mjög gjöful fiskimið og segja má að mannlíf á Breiðafirði hafi á ýmsan hátt mótast og ein- kennst af þeim náttúrugæðrun sem svæðið býr yfir, en Breiðafjörðurinn hefur lengi verið sannkölluð matar- kista, jafnt á söguöld sem síðari tím- um. Árið 1184 var klaustur flutt úr Flatey til Helgafells. Ekki er vitað um ástæður flutningsins en við stofnun þess styrktist mjög miðstöð á Þórsnesi og næsta nágrenni. Klaustrið eignaðist Þrándarstaði undir Jökli á fyrstu starfsárum sínum og talið er að útgerð klaustursins hafi þá þeg- ar hafist, og fyrir miðja 14. öld átti það 15 jarðir undir JöHi. Framleiðsla á jörðum klaustursins var meiri en þurfti til að sinna brýnustu nauð- synjum og því þurfti að koma vörunum í verð. Stuðlaði þetta að auk- inni utanlandsverslun og þörfin fyrir góðar hafnir varð til þess að þegar á 14. öld, spruttu upp nýir kaupstaðir á Snæfellsnesi. Með mikilli aukningu fiskveiða hófst út- flutningur frá höfiium eins og Búð- um, Rifi, Grundarfirði og Grunna- sundsnesi. Norska húsið er í eigu Byggðaj safns Snæfellinga og Hnappdæla. Á miðhæð Norska hússins hefur verið sett upp heimili Árna og Onnu Thorlacius „Heldra heimili í Stykk- ishólmi á 19. öld“. Á jarðhæð eru sýningarsalir og Krambúð þar sem hægt er að fá vandað handverk, Hst- muni, minjagripi, póstkort, bækur og gamaldags nammi, gamalt leirtau og fleiri forvitnilegar vörur. Og í ris- inu er opin safngeymsla þar sem safhgestir geta glöggvað sig á hinum miklu viðum sem húsið er byggt úr og upplifað stemmingu liðins tíma á annan hátt en á neðri hæðunum. Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla er rekið af Héraðsnefhd Snæfellinga. Formaður hennar er Sigríður Finsen, formaður safha- nefndar Héraðsnefndar er Gunnar Kristjánsson og Aldís Sigurðardóttir er forstöðumaður Byggðasafhsins. (fréttatilkynning) Málefni aldraðra til sveitarfélaga - samþætt ogfiölbreytt þjónusta Þess mis- skilnings hefur ítrekað gætt í umræðum að fj ölmargir bæjarbúar telja Akraneskaup- stað reka Dvalarheimil- ið Höfða og finnst að betur megi gera. Eg held að allir séu sammála um að betur eigi að gera í málefnum aldraðra. En hafa verður það sem sannara rcynist og segja upphátt að ríkis- valdinu ber að greiða kostnað vegna Dvalarheimilisins. Sveitarfé- lögin taka þátt í byggingarkostnaði en rekstur dvalar- og hjúkrunar- heimila er alfarið háður daggjalda- greiðslum ríkisins. Sá vandi sem blasir við í málefnum eldri borgara er ekki síst tilkominn vegna lágra daggjalda, mikils mismunar á milli almennra daggjalda og hjúkrunar- daggjalda, en hvort tveggja er ákveðið af ríkisvaldinu. Það er því ómaklegt af sjálfstæðismönnum að kenna meirihluta bæjarstjórnar eða fimm manna stjórn Dvalarheimil- isins (sem er raunar að meirihluta skipuð sjálfstæðismönnum) um hvernig rekstri heimilisins er hátt- að. Þar fer saman ábyrgð stjórnar Höfða, sveitarfélaganna sem að Höfða standa en síðast en ekki síst ber ríkisstjórnin mikla ábyrgð. Samfylkingin leggur áherslu á að málefni aldraðra verði flutt til sveitarfélaganna eins og gert var með grunnskólann á sínum tíma. Enginn þarf að efast um vilja Sam- fylkingarinnar til að taka duglega til hendinni og meðal annars tryggja samþætta sólarhrings heimaþjónustu og heimahjúkrun. Mikilvægt er að tryggja fjölþætta þjónustu í tengslum við Dvalar- heimilið Höfða, en ekki síður með íbúðar- og þjónustuúrræðum niður í bæ. Tillaga er um að byggja íbúð- ir og efla þjónustu við aldraða í hjarta bæjarins, nærri Sjúkrahús- inu, verslunum og annarri þjónustu á svokölluðum bókasafnsreit. Eg skora á bæjarbúa að fylkja sér um þann flokk sem hefur lýst vilja sínum til að losa málefni aldraðra úr áralangri kyrrstöðu ríkisstjóm- arflokkanna og taka yfir þennan málaflokk og tryggja þannig eldri borgurum áhyggjulaust ævikvöld. Sköpum saman sterkara samfélag þar sem allir geta verið með óháð efnahag. Kjósum Samfylkinguna 27. maí. Hrönn Ríkharðsdóttir. Höf. skipar annað sœtið á lista Samfylkingarinnar á Akranesi. Sumaropnun: Miðvikudaga, fimmtudaga og töstudaga opnar kl. 17:00 Þó daga er tilboð: 2 fyrir 1 ó smjörsteiktri gæða Kiausturs Bleikju. Einnig er hægt að velja af matseðli. Laugardoga og sunnudaga er opið fró kl. 14:00. Fró kl. 14:00 er boðið upp á kaffi, kakó og meðlæti. Fró kl. 17:00 -19:00 er hlaðborð ó fróbæru verði. Einnig er hægt að veljn af motseðli. Upplýsingar og pnntanir: j 861 3976 og 433 8956 - skessubrunnur@simnet.is Verið velkomin , Plast-X I Dalbraut 2b, Akranesi 1 Sími 431-5506-Gsm 869-6696 o v:______________ Vatnabátar og viðgerðir Heitustu pottamiriH 1200- 1500 - 1900 lítra

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.