Skessuhorn


Skessuhorn - 07.06.2006, Side 4

Skessuhorn - 07.06.2006, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 7. JXJNÍ 2006 Innbrot í íbúðarhúsnæði AKRANES: Brotist var inn í íbúð á Akranesi í vikunni og þaðan stolið ýmsum munum. Húsráðandi hafði verið að heiman og er hann kom heim varð hann þess var að talsvert var búið að róta til í íbúðinni sem og að ýmsir munir voru horfnir úr henni. Meðal þess sem stolið var voru DVD mynd- ir, farsímar og lyf. Rannsóknar- deild lögreglunnar á Akranesí rannsakar nú málið. -so Vilja Lopapeysuball á Jaðarsbakka AKRANES: Vinir Hallarinn- ar ehf. á Akranesi hafa óskað eft- ir leyfi til að halda svokallað Lopapeysuball í nýja fjölnota íþróttahúsinu sem er í byggingu á Jaðarsbökkum. Ballið hefur undanfarin ár verið einn af há- punktum Irskra daga og gríðar- lega fjölmennt. I bréfi fýrirtæk- isins kemur frarn að starfsmenn þess hafi kynnt sér þær kröfur sem gerðar eru til verndunar gervigrass. Þegar hefur verið sótt um skemmtanaleyfi vegna ballsins. Bæjarráð Akraness tók málið fyrir og fól rekstrarstjóra íþróttamannvirkja að ræða mál- ið við starfsmenn fyrirtækisins. Irskir dagar fara að þessu sinni fram 7.-9. júlí. -hj Skemmdarverk AKRANES: Átta stórir vinnukastarar voru eyðilagðir á athafnasvæði verktaka við Ak- ursbraut á Akranesi í síðustu viku. Gler, perur og botnar kast- aranna voru brotin. Taldi eig- andinn að ekki væri hægt að lag- færa kastarana og er tjónið all- nokkuð. Málið er í rannsókn hjá lögreglunni á Akranesi. Þá var talsvert tjón unnið á tveimur bif- reiðum við Sóleyjargötu á dög- unum. Biffeiðamar vora rispað- ar með oddhvössu áhaldi og var bæði teiknað og skrifað í lakk bifreiðanna. Ekki er vitað ná- kvæmlega hvenær þetta gerðist en eigendur bifreiðanna voru ekki heima við þegar „lista- mennirnir" voru á ferð. -so Vilia lækka hraða AKRANES: Bæjarráð Akra- ness hefur falið sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs að gera tillögu að hraðalækkandi aðgerðum á Jaðarsbraut. Þetta var ákveðið eftir að undirskrift- arlisti barst ffá íbúum við göt- una. Þar er óskað eftir að gerðar verði ráðstafanir til þess að draga sem mest úr umferðar- hraða við götuna. Þá segir að í götunni búi fjöldi bama og sé umferðarhraðinn of mikill. „Börnin okkar eru mikilvægari en bílar og beinum við því þeim óskum til ykkar, ágætu bæjar- ráðsmenn að þið leitið allra leiða til þess að bæta þetta óffemdar- ástand sem hér oft á tíðum rík- ir,“ segir orðrétt í rmdirskriftar- listanum. -hj St. Frandskussystur heiðraðar í Hóhninum Franciskussystur jýlgjast með kappróðri á sjómannadegi í Stykkishólmi. Þann 10. júní nk. verður opnuð vegleg sýning í sal Tónlistarskólans í Stykkishólmi til heiðurs Franciskussystrum og þeirra góða starfa í þágu samfélagsins í Hólm- inum. Nú eru 70 ár liðin síðan syst- urnar hófu rekstur spítalans þar í bæ og í þakklætis- og virðingar- skyni ákvað safha- og menningar- málanefnd Stykkishólmsbæjar að efna til sýningarinnar. Eins og flest- ir vita hafa þær lagt mikið til at- vinnu- og menningarmála í Stykk- ishólmi og auk reksturs spítalans má einnig nefna rekstur leikskóla, prentsmiðju og sumarbúða. St. Franciskussysturnar hafa flestar verið 16 í Stykkishólmi og komið frá mörgum löndum t.d. Belgíu, Hollandi, Frakklandi, Aust- urríki og Póllandi. I dag eru þær aðeins sjö og flestar orðnar mjög fullorðnar. Steinþór Sigurðsson er hönnuð- ur sýningarinnar en þar verður að finna gamla mimi, minjar og mynd- ir frá sjúkrahúsinu en einnig verður saga systranna rakin í vandaðri sýn- ingarskrá. Sýningin verður opin ffá kl. 13 til 17 alla daga til 20. ágúst. Gangsetning stækkunar Norðuráls á áætlun Starfsmenn Norðuráls á Grund- artanga hafa á undanfömum vikum unnið hörðum höndum við gang- setningu nýrra kerja álversins og er sú vinna á áætlun að sögn Ragnars Guðmundssonar framkvæmda- stjóra fjármálasviðs Norðuráls. Reiknað er með að síðla árs verði ffamleiðslan komin í 220 þúsund tonn og verða starfsmenn fýrirtæk- isins á Grundartanga þá orðnir 355 talsins. Eins og ffam hefúr komið í frétt- um hefur ffekari stækkun álversins verið flýtt og er undirbúningur þeirrar stækkunar í fúllum gangi og munu framkvæmdir hefjast í kjölfar verkloka við þær framkvæmdir sem nú eru í gangi. Gert er ráð fyrir að heildarfjárfesting við þá stækkun verði um 120 milljónir dollara eða um 8,5 milljarðar króna. Að sögn Ragnars er vonast til þess að sú stækkun komist í gagnið síðla næsta árs og verður ffam- leiðslugeta verksmiðjunnar 260 þúsund tonn og starfsmenn um 400 talsins og segir Ragnar mannaráðn- ingar hafa gengið vel en helst hafi borið á nokkurri hreyfingu á iðn- menntuðu starfsfólki. HJ Framkvæmdaröð við Brekkubæjarskóla breytt Hinn nýi meirihluti í bæjarstjórn Akraness hefur ákveðið að breyta fyrirhugaðri framkvæmdaröð við endurbætur á Brekkubæjarskóla á Akranesi og ráðast nú þegar í end- urbætur á lóð skólans. Fyrir skömmu var auglýst útboð vegna byggingu á nýju anddyri við skól- ann og nýrri utanhússklæðningu hússins. Gunnar Sigurðsson verð- andi forseti bæjarstjórnar segir hinn nýja meirihluta hafa tekið ákvörðun að slá á ffest byggingu anddyris. Þess í stað verður þess freistað að fara í framkvæmdir á lóð skólans og einnig að klæða húsið að utan eins og þegar hefur verið ákveðið. Gunnar segir að hönntm lóðarinnar liggi þegar fyrir og því ætti vonandi að vera vandalaust að bjóða verkið út strax. Hann segist vonast til þess að hægt verði að ljúka endurnýjun skólalóðarinnar í sumar. HJ Grunnaljörður á verkefnalista samgönguáætlunar Lagning vegar yfir Grannafjörð ' er einn þeirra þriggja kosta, er stytt geta leiðina milli Akureyrar og Reykjavíkur, sem gætu komið inn á nýja samgönguáætlun 2007-2018. Þetta kom fram á Alþingi í síðustu viku í svari Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra við fyrirspurn Halldórs Blöndals um styttingu þjóðleiðarinnar milli Akureyrar og Reykjavíkur. I svari Smrlu kemur ffam að á áðurnefúdri leið hafi verið gerð lausleg yfirlitsáætlun yfir fjóra styttingarmöguleika. Þriggja þeirra er getið á verkefúalista sem gerður hefúr verið til undirbúnings vinnu við samgönguáætlun 2007-2018. Að mati ráðherra er einn þessara kosta sýnu vænsmr. Er það leið um Svínavam, sunnan Blönduóss, en þar mætti stytta leiðina um 13-15 km, eftir leiðavali. Þá ef leið sunn- an Varmahlíðar sem styttir leiðina um 3-4 km og leiðin yfir Granna- fjörð sem eins og ffam hefur komið í fféttum Skessuhorns styttir leið- ina norður í land um 1 km en leið- ina ffá Akranesi til Borgarness um 7 km. I niðurlagi svars ráðherra segir að óvíst sé á þessu stigi hvaða verk komi til ffamkvæmda á næstu sam- gönguáætlun og hvort eða hvenær verður ráðist í einhver þessara verkefúa. HJ Götugrill á Borgfirðingahátíð Borgfirðingahátíð er ólík öðrum héraðs- og bæjahátíðum því htin byggir nær eingöngu á þátttöku heimamanna. Borgfirðingahátíð er hátíð Borgfirðinga. Eins og alltaf þegar við höldum veislu þá bjóðum við gestum að njóta stundarinnar með okkur, og það á líka við um Borgfirðingahátíð; gestir eru meira en velkomnir. Þetta er helgin þegar við eigum öll að bjóða til okkar gestum til að njóta borgfirskrar mennmgar. Laugardaginn 10. júní verður fjölbreytt dagskrá í Borgarnesi. Við hefjum daginn á gönguferð á fjall eða fjöru, síðan verður sögustund í Landnámssetri og að því loknu skemmtidagskrá á tjaldstæðinu. Seinnipartinn getur fólk svo valið milli einsöngstónleika, diskósunds og landnámssögu fyrir fullorðna. Og þá verða allir orðnir svangir! Og hvað er betra þegar maður er svangur en grillveisla með ná- grönnunum. Borgfirðingahátíð er hið fullkomna tækifæri til að skreyta götur og halda götugrill - ekki bara í Borgamesi heldur út um allt hérað! Bara að skella sér í kuldagallann, brenna svolítið af kjöti og kynnast krökkunum í göt- unni. Og að því loknu á ball með Baggalúti. Verið velkomin! UMSB og Borgfirðingar Aðeins þrír sátu heima LEIRÁR OG MELAHR: Kjörsókn var afar góð í þeim fjórum hreppum sem nú sam- einast í nýtt sveitarfélag stmnan Skarðsheiðar og mun að öllum líkindum hljóta nafnið Hval- fjarðarsveit. I Hvalfjarðar- strandarhreppi var 88,79% kjör- sókn, í Skilmannahreppi kusu 89,31%, í Innri-Akraneshreppi kusu 89,41% og í Leirár- og Melahreppi var kjörsókn 96,30% og aðeins þrír íbúar á kjörskrá sátu heima í þeim hreppi. -hj Þrettán útstrikanir STYKKISHÓLMUR: Þrettán sinnum nýttu kjósendur í Stykkishólmi sér rétt sirm til þess að strika út einstaka fram- bjóðendur á þeim tveimur hst- um sem buðu ffam til bæjar- stjórnar á dögunum. Oftast var það nafn Ólafs Guðmundssonar á D-lista sem var strikað út eða fjórum sinnum. Félagi hans á D- lista, Grétar Pálsson, var strik- aður tvisvar út. Samtals voru ffambjóðendur D-lista sjö sinn- um strikaðir út. Frambjóðendur L-lista voru strikaðir út sex sinnum. Lárus Ástmar Hannes- son var strikaður út tvisvar sinn- um og sömu sögu var að segja af Davíð Sveinssyni. -hj Flestir breyttu D-lista BORGARBYGGÐ: Þrjátíu kjósendur D-lista Sjálfstæðis- flokks í nýju sveitarfélagi í Borg- arfirði breyttu listanum með út- strikimum. Lista Framsóknar- flokksins var breytt af 22 kjós- endum og L-lista félagshyggju- fólks var breytt 20 sinnum með útstrikunum. Þórvör Embla Guðmundsdóttir sem var í fjórða sæti D-lista var sá ffam- bjóðandi sem oftast var strikuð út af lista eða 25 sinnum. Finn- bogi Rögnvaldsson efsti maður á hsta félagshyggjufólks var strik- aður 12 sinnum út og Svein- bjöm Eyjólfsson efsti maður á hsta Framsóknarflokksins var 10 sinnum strikaður út. -hj Flestar yfirstrik- anir á E-lista HVALFJARÐARSVEIT: í kosningum til nýrrar sveitar- stjórnar í sameinuðuð sveitarfé- lagi sunnan Skarðsheiðar á laug- ardaginn komu ffam sextán at- kvæðaseðlar þar sem kjósendur nýttu sér rétt sinn til þess að strika út ákveðna ffambjóðend- ur þess lista er þeir kusu. Flestar yfirstrikanir komu ffam á E-hsta eða tólf, tvær yfirstrikanir komu ffam á hvom hinna listanna er í framboði voru. Af einstökum frambjóðendum strikuðu flestir út ffambjóðanda í fjórða sæti E- listans eða átta kjósendur. WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200 sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950. Verð í lausasölu er 400 kr. SKRIFSTOFUR 8LAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 alla virka daga Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Fréttaritari: Bryndís Gylfadóttir 866 5809 bryndis@skessuhorn.is Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is Umbrot: Qlgeir Helgi Ragnarsson. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.