Skessuhorn


Skessuhorn - 07.06.2006, Qupperneq 15

Skessuhorn - 07.06.2006, Qupperneq 15
^ieasijMoaH MIÐVIKUDAGUR 7. JXJNÍ 2006 15 Oska svara um stöðu NATO-stöðvar í Hvalfirði Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefur ritað varnarmálaskrifstofu utanríkismálaráðuneytisins bréf þar sem óskað er upplýsinga um framtíð NATO-stöðvarinnar í Hvalfirði. Vill efdrlitið fullvissu fyrir því að við skil á svæðinu verði það mengunarfrítt. Undanfarna áratugi hefur NATO rekið olíubirgðastöð í Hvalfirði. Hún samanstendur af fjórum stórum olíutönkum sem grafnir eru í jörðu. Einnig er þar bryggja, afgreiðslubúnaður og nokkrar byggingar. Fyrir nokkrum árum lagðist starfsemi stöðvarinnar af og hefur eina starfsemin þar verið gæsla á maimvirkum. Ekki hefur verið talið að starfsemi hefjist að nýju í óbreyttri mynd og við brotthvarf hersins af Miðnesheiði þykir endanlega ljóst að starfsemi þar mun ekki hefjast að nýju í óbreyttri mynd. Hafa því viðræður staðið um skil á landinu. Þrátt fyrir að Hvalfjörður sé á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Vesturlands hefur það ekki komið að málum stöðvarinnar í Hvalfirði því á sínum tíma samdi varnarmáladeild utanríkisráðuneytisins við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja um eftirlit í stöðinni. Það þýðir þó ekld að eftirlitið á Vesturlandi fýlgist ekki með málinu og hefur það verið talsvert rætt þar á bæ. Vilja menn fá vissu fyrir því að ekki verði tekið við landinu fyrr en svæðið hefur verið hreinsað og tryggt að ekki sé mengun þar í jarðvegi. I framhaldi af fundi stjórnar Heilbrigðiseftirlits Vesturlands í apríl var varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins skrifað bréf þar sem óskað var eftir skýringum á ffamtíð stöðvarinnar í Hvalfirði og einnig að heilbrigðiseftirlit Suðurnesja skoðaði svæðið með hugsanlega mengun í huga. Afrit af þessu bréfi var sent Umhverfisstofiiun. Að sögn Helga Helgasonar framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Vesturlands hefur ekkert svar borist frá ráðuneytinu. Starfsmenn varnarmálaskrifstofu voru ófáanlegir til þess að tjá sig um málið við blaðamann Skessuhorns og vísuðu á Ragnheiði Elínu Arnadóttur aðstoðarmann utanríkisráðherra. Hún hefur ekki svarað skilaboðum blaðsins. HJ f Akraneskaupstaður Útboð 1 Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í verkið „íþróttarhúsið við Vesturgötu og Grundaskóli, endurnýjun glugga, opnanlegra faga og hurðar " Helstu magntölur eru: Endurnýjun glugga, íþróttahús 43stk (62m2) Opnanleg fög, Ipróttahús 1 3 stk (4,5m2) Sjálfvirk útihurð tvöföld, íþróttahús 1stk Opnanleg fög, Grundaskóíi 22stk (13m2) Verklok eru 25 ágúst 2006. Útboðsgögn verða til sölu hjáTækni- og umhverfissviði Akraneskaupstaðar, Dalbraut 8 á Akranesi fyrir kr. 3.000, mánudaginn 12. júní 2006 Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 20. júní 2006, kl. 11:00. L ■ —d Akraneskaupstaður Útboð Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í verkið „Bílaplan við Bíóhöllina" Helstu magntölur eru: Jarðvegsskipti 1500m3 Malbik 2200m2 Steyptar stéttar 250m2 Verklok eru 29 september 2006. Útboðsgögn verða til sölu hjáTækni- og umhverfissviði Akraneskaupstaðar, Dalbraut 8 á Akranesi fyrir kr. 3.000, mánudaginn 12. júní 2006 Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 20. júní 2006, kl. 14:00. IsNord tónlistarhátíðin er komin til að vera Hjómburöur erjrábær í hellinum í Hallmundarhrauni. Ljósm: BHS IsNord tónlistarhátíðin fór fram nú í annað sinn tun helgina með tónleikahaldi í Reykoltskirkju, Surtshelli og Borgarneskirkju. I ár var lögð áhersla á tónlist sem tengist fyrri tíð, víkingum og sérstaklega Egilssögu með því markmið að vekja athygli á söguarfi Borgarfjarðar. Jónína Erna Arnardóttir, tónleikahaldari var afar ánægð með hátíðina og segir hún tónleikagesti hafa verið um 230 talsins. „Þetta gekk eins og best var á kosið og aðsókn var mjög fín. Við vorum rosalega heppin með veður á laugardeginum og um 100 manns mættu í Surtshelli til að hlýða á rímur kveðnar," sagði Jónína. Aðspurð mn hugmyndina að Surtshelli fyrir tónleikahald, sagði hún: „Páll á Húsafelli hélt sýningu þama fyrir nokkmm ámm þannig að hugmyndin blundaði í undirmeðvitundinni. \5ð fómm og skoðuðum aðstæður og komumst að þeirri niðurstöðu að Stefánshellir væri best til þess fallinn með aðgengi og hljómburð í huga. Flestum fannst þetta frábær hugmynd þar sem Surtshellir er ein af náttúmperlum Borgarfjarðar en þetta er án efa óvenjulegur staður fyrir tónleikahald,“ sagði Jónína. Það er óhætt að segja að hátíðin hefur fengið sitt brautargengi og er undirbúningur fyrir næsta ár nú þegar hafinn. Jóm'na er komin með fullt af hugmyndum fyrir næstu hátíð en vill ekki gefa þær upp að svo stöddu en segir þó að hugsanlega verður norrænt þema fyrir valinu. KÓÓ Einleikstónleikar í Reykholtsldrlqu Píanóleikarinn Ólafur Elíasson heldur tvenna einleikstónleika í Reykholtskirkju í sumar. Þeir fýrri verða þriðjudaginn 13. júní klukkan 21:00 en þeir síðari fimmtudaginn 20. júlí á sama tíma. Ólafur var nemandi Rögnvaldar Sigurjónssonar heitins en stundaði framhaldsnám fyrst í París hjá hinum heimsþekkta píanóleikara Vlado Perlemuter og síðar í Englandi, m.a. við konunglega tónlistarháskólann í London (Royal Academy of Music) þar sem hann lauk einleikaraprófi 1994. Hann hefur haldið tónleika víða, bæði hérlendis og erlendis, einkum í Bretlandi og Þýskalandi. Hann hefur leikið inn á nokkra geisladiska, meðal annars píanókonserta bæði efdr Bach og Mozart ásamt sinfóníuhljómsveitinni London Chamber Group og hafa þeir fengið ffábæra dóma. A efnisskránni á þriðjudaginn eru Sónatína Ravels, Sónata eftir Schubert í A dúr og 7 píanóetýður eftir Chopin, Liszt, Moszkowsld og Schriabin. Þessar etýður eru á meðal erfiðustu verka píanóbókmenntanna og eru sumar jafnframt þekktustu píanóverk sögunnar svo sem La Campanella eftir Liszt og Byltdngaretýðan efdr Chopin. (fréttatilkynning) FJÖLBRAUTASKÓLI VESTURLANDS Vogabraut 5, 300 Akranes IIMIMRITUIM fyrir haustönn 2006 stendur yfir Fjölbrautaskóli Vesturlands býður upp á nám á eftirtöldum námsbrautum: Bóknámsbrautir til stúdentsprófs: Félagsfræðabraut, hagfræðibraut, málabraut, náttúrufræðibraut. Duglegir námsmenn geta lokið stúdentsprófi á 3 árum. Starfstengdar brautir: Byggingagreinar: Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina, húsasmíði. Málmiðnadeild: Grunnnám málmiðngreina, vélvirkjun, grunnnám bíliðna. Rafiðnadeild: Grunnnám rafiðngreina (skv. nýrri námskrá), rafvirkjun. Félagsmála- og tómstundabraut, sjúkraliðabraut, tölvufræðibraut, viðskiptabraut. Aðrar námsbrautir: Almenn námsbraut, starfsbraut, listnámsbraut-tónlistarkjörsvið. Viðbótarnám til stúdentsprófs af starfstengdum námsbrautum og listnámsbraut. Sjúkraliðanám - rafvirkjun - húsasmíði Við vekjum sérstaka athygli á eftirfarandi: • Ef þú hefur lokíð grunndeild rafiðna eftír eldrí námskrá en ekkí haidíð áfram í rafvirkjun, þá er tækífæri til þess á haustönn 2006. I>að eru laus pláss á 3. önn. * Víð vekjum sérstaka athyglí á sjúkraliðanámi með vinnu sem hefst í haust. • Nám með vinnu í húsasmíði, 1. önn (TRÉ109 og VTS103) hefst í ágúst ef næg þátttaka fæst. Innritun lýkur 12. júni. Aðstoð við rafræna innritun verður veitt í skólanum 9. og 12. júní, kl. 9 - 16. Hægt er að panta tíma hjá námsráðgjöfum til 12. júní. Námsráðgjafi frá skólanum verður til viðtals í Grunnskólanum í Borgarnesi kl. 10-13 föstudaginn 9. júní. Nánani upplýsingar í síma 433 2500 og á heimasíðu skólans www.fva.is

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.