Skessuhorn


Skessuhorn - 23.08.2006, Qupperneq 2

Skessuhorn - 23.08.2006, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006 ^sunu^ Til minnis Skessuhorn minnir alla öku- menn á að vera sérstaklega varkárir í umferðinni nú þegar skólabörn landsins fara mörg hver gangandi til og frá skóla. Vechvrhorfur Gert er ráð fyrir suðlægri átt og mildu veðri næstu daga. Rigning eða súld með köfl- um, einkum sunnan- og vestanlands. Snýst í aust- lægari átt eftir helgi. Spitrnin^ viKijnnar í síðustu viku var spurt á Skessuhorn.is; „Nær ÍA að halda sér í efstu deild karla í fótbolta?" Meiri- hluti svarenda eða tæplega 56% svöruðu því að ÍA myndi ekki halda sér í efstu deildinni, 35% svöruðu því að liðið myndi halda sér í efstu deildinni og rúmlega 9% svarenda svöruðu því að þeir vissu það ekki. í næstu viku spyrjum við: „Ætlar þú í réttir í haust?" Svaraðu án undanbragða á www.skessuhorn.is Vestlendiníjtvr viKi^nnar Skessuhorn útnefnir að þessu sinni Vestlendinga vikunnar börnin sem eru að hefja sína skólagöngu í fyrsta bekk í grunnskólum Vesturlands. Fréttavefur Vesturlands www.skessuhorn.is Benedikt Erlingsson Sýnt í í Laugard. 19. ágúst kl. 20 uppselt Sunnud. 20. águst kl. 15 Örfá sæti laus I Sunnud. 20. ágúst kl. 20 ðrfá sæti laus ] Föstud. 25. ágúst kl. 20 ðrfá sæti laus Laugard. 26. ágúst Id. 15 uppselt Laugard. 26. ágúst kl. 20 uppselt Laugard. 2. september kl. 20 Sunnud. 3. september kl. 15 Sunnud. 3. saptember ki. 20 Staðfesta þarf miða með greiðslu vlku fyrir sýnírtgardag LEIKHÚSTILBOÐ LLinriwJ » ILDvU Tvirettadur kvolóveróur og íeikhusmiói kr. 4300 - 4800.- MiÐAPANTANIR 1 SÍMA Í37 1603 iAN'ttN VMVsl'ttiS Ekkert í hendi með hvalveiðar Undanfarið hafa menn velt því fýrir sér hvort svo gæti farið að Is- lendingar ætli að hefja hvalveiðar að nýju. Stjórnvöld stefna að því að hefja veiðarnar og fulltrúar þeirra hafa talað fyrir því á alþjóðavett- vangi. Það sem hefur gefið umræð- unni byr undir báða vængi nú mn stundir er sú staðreynd að Hvalur 9, eitt hvalveiðiskipa Hvals hf., er á leið í slipp. Einnig hefúr sést til fúlltrúa fyrirtækisins í hvalstöðinni í Hvalfirðinum og því ekki nema von að menn spyrji sig að því hvort hvalveiðar séu að hefjast. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., sagði í samtali við Skessuhorn að hann hefði ekkert í hendi með veiðarnar, aðgerðir fyrirtækisins séu til þess gerðar að passa upp á að hlutirnir séu í lagi. „Maður verður að vita í hvaða ástandi hlutirnir eru áður en maður fer að rífa kjaft,“ sagði Kristján. „Það hefur ekki ver- ið hreyft við neinu í Hvalfirðinum í sextán ár og maður hreyfir sig ekki mikið ef hlutirnir eru ekki í lagi.“ Kristján segir að ef svo fari að hvalveiðar verði hafúar á ný muni fyrirtækið hafa starfsemi sína í Hvalfirðinum. „Ef við förum í gang þá verðum við þar. Þar er öll okkar aðstaða." -KÓP Langur biðlisti í tónlistamám á Akranesi Um þessar mundir eru 76 manns á biðlista efrir námi í Tónlistarskól- anum á Akranesi. Þetta kemur firam í svari Gísla S. Einarssonar bæjar- stjóra við fyrirspurn frá Sveini Kristinssyni bæjarfulltrúa Samfylk- ingarinnar. I svari Gísla kemur fram að flestir bíða efrir námi í gít- arleik eða 21 að tölu. Eftir námi í slagverksleik bíða 17 manns og 13 bíða efrir námi í rafgítar- eða raf- bassaleik og 12 bíða efrir námi í pí- anóleik. Nemar í Tónlistarskólan- um eru að jafnaði í kringum 300 talsins og biðlistinn því um fjórð- ungur nemendafjöldans. I samtali við Skessuhorn segir Gísli biðlista þennan með öllu óviðunandi í samfélagi sem vilji vera í fararbroddi í menntamálum enda hafi núverandi meirihluti bæj- arstjórnar einsett sér að bæta þarna úr þannig að biðlistinn hverfi á næstu misserum. Eins og fram hef- ur komið í fréttum eru uppi hug- myndir um að tónlistarskólinn flytji í húsnæði það sem Akranesbær keypti í nýbyggingu á Miðbæjarreit og var áður ætlað undir starfsemi bókasafnsins. Gísli segir leitt til þess að vita hversu víða biðlistar hafi myndast efrir þjónustu sveitar- félagsins í tíð fyrrverandi meiri- hluta og bæjaryfirvöld muni á næst- unni beita öllum sínum kröftum til þess að þessir biðlistar hverfi. HJ Ráðið í nýjar stöður í Borgarbyggð Byggðaráð Borgarbyggðar hefúr staðfest ráðningu fjögurra nýrra starfsmanna af fimm sem auglýstar voru fyrr í sumar. Að sögn Páls S Brynjarssonar, sveitarstjóra á aðeins eftir að taka ákvörðtm um hver verður valinn í nýtt starf markaðs- og menningarfúlltrúa en ákvörðun um ráðninguna verður tekin í dag, miðvikudag, á fundi byggðaráðs. I stöðu skólastjóra Varmalands- skóla hefur Þórurm María Oðins- dóttir, 34 ára verið ráðin. Þórunn María hefúr starfað við skólann og er honum auk þess vel kunnug þar sem hún var sjálf þar á grunnskóla- árum sínum, en hún er ffá Einars- nesi í Borgarbuggð. Flemmingjes- sen skólastjóri mmi starfa að ýms- um verkefnum við skólann til 1. nóvember nk. en Þórunn María hefur þegar tekið við starfi skóla- stjóra. Rætt er stuttlega við Þór- unni Maríu á bls. 8 í blaðinu í dag. Jökull Helgason, sem undanfarið hefur starfað sem bæjartækniffæð- ingur í Grundarfirði hefur verið ráðinn í nýtt starf umsjónarmanns eigna og verklegra ffamkvæmda hjá Borgarbyggð. Þá var Björg Gunnarsdóttir á Hvanneyri ráðin í nýtt starf um- hverfisfulltrúa hjá sveitarfélaginu. Starfsstöð hennar verður í Reyk- holti. Loks var Guðrún Hulda Pálma- dóttir ráðin í starf afgreiðslufulltrúa á skrifstofu sveitarfélagsins í Borg- amesi. MM Fundað með Jámblendinu vegna mengunar Oddviti Hvalfjarðarsveitar og formaður umhverfis- og náttúru- verndarnefndar sveitarfélagsins funduðu nýverið með fram- kvæmdastjóra Islenska járnblendi- félagsins ehf. vegna mengunar er stafað hefur af starfsemi verk- smiðju félagsins á Grundartanga að undanförnu. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni hafa verið erfiðleikar í rekstri reykhreinsi- búnaðar verksmiðjunnar með þeim afleiðingum að mengun hef- ur verið mjög sýnileg frá verk- smiðjunni. Hefur stjórn Faxaflóa- hafna meðal annars óskað eftir fundi með stjórnendum fyrirtækis- ins vegna þessa. Einar Orn Thorlacius, sveitar- stjóri Hvalfjarðarsveitar segir fundinn með framkvæmdastjóra IJ hafa verið gagnlegan. Fram hafi komið að unnið sé nú að ákveðn- um endurbótum á reykhreinsibún- aði verksmiðjunnar og vonast sé til þess að þeirri vinnu ljúki innan tíðar. Hann segir ákveðið að sveit- arstjórn Hvalfjarðarsveitar heim- sæki verksmiðjuna þann 13. nóv- ember og kynni sér starfsemina, meðal annars þá vinnu sem unnið hefur verið að í mengunarvörnum. HJ Höfinin í Olafsvík Mikið átak hefur verið gert í umhverfismálum í höfninni í Olafsvík, líkt og í Rifi og á Arnar- stapa. Fyrir miðri mynd má sjá grjótgarða sitthvoru megin við Gilið, þar sem áin rennur út í höfnina, og voru þeir hlaðnir 2001 og 2004. Fyrir miðri mynd er tré- bryggja sem reist var á árunum 1967-1969 og hefur verið endur- byggð. Hún er 108 metrar og óvenjulöng af trébryggju að vera sem stendur út í miðja höfn. Því verki mun ljúka í haust. Við Norð- urtanga hefur verið steypt bílaplan og í vor var þar sett upp lág- stemmd lýsing og komið fyrir tveimur bekkjum. Það er ekki óalgeng sjón að sjá ferðamenn sitja þar, borða nestið sitt og dást að út- sýninu. Meðfylgjandi mynd tók Mats Wibe Lund, ljósmyndari og góðkunningi Skessuhorns. -KÓP Lýst eftir sæt- um strákum VESTURLAND: í október í haust fer hið árlega val um Herra Vesturland fram. Keppn- in verður haldin á Akranesi en þátttökurétt hafa þeir Vestlend- ingar sem ná 18 ára aldri á ár- inu og komast í gegnum nálar- auga keppnisstjóra. Hámarks- aldur keppenda er hinsvegar 27 ár. Að sögn Silju Allansdóttur, umsjónarmanns keppninnar þurfa þátttakendur helst að vera að lágmarki 1,78 metrar á hæð, vera í líkamlega góðu formi en keppnin er fremur hugsuð sem módelkeppni en hefðbundin fegurðarsamkeppni. Gagnstætt fegurðarsamkeppnum kvenna mega keppendur vera orðnir feður og vera í hjónabandi eða sambúð og er ekki gert skilyrði um neina sérstaka kynhneigð. Keppnin er liður í undirbúningi fegurðarsamkeppni Islands; Herra Island. Þeim sem vilja láta reyna á þátttökurétt sinn er bent á að ræða við Silju Allans- dóttur í síma 869-1016 eða senda póst með mynd á net- fangið: siljaallans@visir.is -mm Lést í umferðarslysi BORGARNES: Maðurinn sem lést í bílslysi á Vesturlands- vegi aðfaranótt sl. sunnudags hét Eugeniusz Leszek Lojko til heimilis að Egilsgötu 11 í Borgarnesi. Hann var 47 ára gamall starfsmaður hjá Loftorku Borgarnesi ehf. Hann lætur eftír sig konu og tvö börn sem búsett eru í Póllandi. -mm Daglega ekið á kindur SNÆFELLSNES: Lögreglan á Snæfellsnesi segir það nárrast daglegan viðburð að ekið sé á kindur á vegum í umdæmi lög- reglunnar. Kind drapst þegar ekið var á hana sl. föstudag en engin meiðsl urðu á fólki. Að sögn lögreglunnar er erfitt við þetta að eiga þar sem rollurnar ganga lausar meðfram vegun- um eins og víða er í umdæminu. Biður lögregla ökumenn að hafa varann á sér þar sem skepnur þessar ktmna engin skil á umferðarreglum, eins og gef- ur að skilja og geta því fyrir- varalaust hlaupið upp á vegi og í veg fyrir bíla. -mm í bankaviðskipti í KB-banka HVALFJARÐARSVEIT: Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur ákveðið að taka tilboði KB-banka um bankaviðskipti sveitarfélagsins. Sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit varð til í vor við sameiningu fjögurra sveit- arfélaga sunnan Skarðsheiðar. Einar Orn Thorlacius sveitar- stjóri segir í samtali við Skessu- horn að sveitarfélögin fjögur hafi verið víða með sín banka- viðskipti og því hafi þótt rétt að leita eftir tilboðum í viðskipti hins nýja sveitarfélags. Tilboð bárust frá nokkrum bönkum og eftir að sveitarstjórn hafði ráð- fært sig við endurskoðanda sveitarfélagsins var ákveðið að taka tilboði KB banka. -bj

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.