Skessuhorn - 23.08.2006, Side 4
4
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006
■K|..linn. ■■
Þeir slettu
skynnu...
B ORGARFJ ÖRÐUR: Aðfar-
arnótt síðastliðins mánudags
valt aftanívagn flugningabíls á
suðurleið á veginum við Skor-
holt í Leirársveit. Dróst vagn-
inn nokkurn spöl á eftir flum-
ingabiffeiðinni áður en tækið
stöðvaðist. Vagninn lokaði
annarri akreininni um tíma á
meðan að björgunarsveitar-
menn tæmdu vagninn sem var
fullur af vörum, þar á meðal
skyri. -so
Hafha seinkun
skólasetningar
BORGARBYGGÐ: Fræðslu-
nefhd Borgarbyggðar hafhaði á
dögunum beiðni frá Viðskipta-
háskólanum á Bifröst um að
skólasetningu Varmalandsskóla
yrði frestað frá 23. ágúst til 27.
ágúst. Grunnskólabörn á Bif-
röst eru meðal þeirra bama er
sækja Varmalandsskóla. Við-
skiptaháskólinn á Bifröst verð-
ur settur 3. september. -hj
Upplýsingaskilti
sett upp
GRUNDARFJÖRÐUR: Sett
hafa verið upp tvö upplýsinga-
skilti rétt austan við þéttbýlið í
Grundarfirði. Annað hefur að
geyma upplýsingar um Kirkju-
fellið en hitt upplýsingar um
fuglalíf á svæðinu. Það er
Framkvæmdaráð Snæfellsness
sem stóð fýrir skiltagerðinni en
Náttúrastofa Vesturlands ann-
aðist gerð þeirra með styrk frá
Ferðamálastofu. -kóp
Styrkja
sundæfingaferð
AKRANES: Bæjarráð Akraness
hefur samþykkt að styrkja Sund-
félag Akraness um 150 þústmd
krónur vegna góðs árangurs fé-
lagsins. Styrkurinn rennur til A-
hóps félagsins sem stundar nú
æfingar á Spáni. -hj
Formannsskipti
í félagsmálaráði
AKRANES: Bæjarráð Akraness
samþykkti í síðustu viku tillögu
oddvita Frjálslyndra og óháðra
um að Magnús Þór Hafsteinsson
alþingismaður og varabæjarfull-
trúi taki við formennsku í félags-
málaráði af Sæmundi T Hall-
dórssyni sem hverfur úr nefhd-
inm. Magnús Þór var áður vara-
maður í nefhdinni og sæti hans
tekur Karen Jónsdóttir bæjarfull-
trúi. Þá var einnig samþykkt til-
laga um að Magnús Þór verði að-
almaður í stjóm Byggðasafnsins
að Görðum og Ásgeir Hlinason
varamaður í sömu stjórn hafi
stólaskipti. Bæjarráð samþykkti
einnig tdllögu oddvita Sjálfstæð-
isflokksins um að Þorgeir Jósefs-
son tald sæti Jóns Gurmlaugsson-
ar sem varamaður í menningar-
mála- og safnanefiid.
-hj
HSH ræður nýjan
framkvæmdastjóra
Unnur María Raftisdóttir er ný-
tekin til starfa sem framkvæmda-
stjóri Héraðssambands Snæfells-
nes- og Hnappadalssýslu (HSH).
Unnur María er menntuð í fiskiðn
og hefur unnið sem verkstjóri í fisk-
vinnslu síðustu 14 ár. Hún hefur
þegar tekið til starfa sem ffarn-
kvæmdastjóri, en Alda Pálsdóttir,
sem gegnt hefur því starfi undan-
farin ár, hefur horfið til annarra
starfa.
Unnur María sagði í samtali við
Skessuhom að nýja starfið legðist
vel í hana. Hún væri að reyna að
komast inn í starfið og það væri
----------y-------------------
alltaf gaman að læra eitthvað nýtt.
Hún segir að þar sem fyrrverandi
framkvæmdastjóri sé horfinn frá
störfum væri þetta sumpart eins og
að henda sér út í djúpu laugina, það
sé margt að læra. Unnur María fór
á unlingalandsmót UMFI að Laug-
um í Þingeyjarsýslu um verslunar-
mannahelgina. „Ég fór ekki síst til
að kynnast börntmum og foreldr-
unum og koma mér þannig betur
inn í starfið," segir hún. „Annars
leggst þetta ágætlega í mig og ég
hlakka til að takast á við þetta verk-
Unnur María Rafnsdóttir.
Oskar og Þuríður Ama með
í áheitaferð Heldu
Við opnun nýs sýningarsalar fyrir
Skoda í húsnæði Heklu hf. í Reykja-
vík um helgina var Styrktarfélagi
krabbameinssjúkra barna afhentur
styrkur að upphæð 500 þúsund
krónur frá fyrirtækinu. Að auki var
greint frá því að samtökin gætu
tryggt sér afnotarétt af Skodabifreið
frá Heklu í eitt ár - EF fulltrúa sam-
takanna og FIB tekst að aka hring-
veginn á einum olíutanki á Skoda ffá
Heklu.
Lagt var af stað í sparaksturinn
fyrir hádegi sl. mánudag frá aðal-
stöðvum Frumherja á Artúnshöfða
og stefht að því að koma til baka um
hádegi á miðvikudag [í dag]. Biffeið-
in sem ekið er á er af gerðinni Skoda
Octavia, með TDI dísilhreyfli sem
er afar sparneytinn á eldsneyti við
öll akstursskilyrði. Uppgefin eyðsla
er 4,9 lítrar á htmdraðið í blönduð-
um akstri en 4,2 h'trar í utanbæj-
arakstri. Tankur bílsins tekur 5 5 lítra
af eldsneyti. Þannig er nokkuð mik-
ið lagt undir; Samtök krabbameins-
sjúkra barna eignast bílinn ef öku-
marmi þeirra tekst að ljúka hring-
veginum um landið á einum tanki af
eldsneyti.
Knútur G. Hauksson hjá Heklu afhendir hér Þuríði Omu leikjatölvu til að slytta henni
stundir meðan á akstrinum stendur.
Okumaður í ferðinni er Stefán
Ásgrímsson ritstjóri hjá FIB og hon-
um til aðstoðar þau Oskar Orn
Guðbrandsson, nýr framkvæmda-
stjóri Styrktarfélags krabbameins-
sjúkra barna og Þuríður Ama, fjög-
urra ára dóttir Oskars en hún
greindist með góðkynja æxli við
heila fyrir tveimur árum. Eins og
lesendum Skessuhorn muna þá
fylgdist blaðið sl. vetur með ferð
Þuríðar Omu og foreldra hennar
þegar hún fór utan í erfiða skurðað-
gerð. Oskar Om, sem er frá Akra-
Ljósm. GK
nesi, er vel þekktur keppnismaður
en hann var m.a. í sundlandsliði Is-
lands um árabil: „Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna er mjög
þakklátt fyrir stuðning Heklu og er
staðráðið í að sigrast á þeirri
skemmtilegu þraut sem nú hafi ver-
ið lögð fyrir okkur. Stefán Ásgríms-
son er þrautreyndur sparakstursöku-
maðrn- og segist muni gera sitt besta
til að tryggja Styrktarfélagi krabba-
meinssjúkra barna afnotarétt af bíln-
um næsta árið,“ segir Oskar Om.
MM
Rætt um frestun
framkvæmda vegna þenslu
Þessa dagana em til umræðu í
stjómkerfi Akraneskaupstaðar hug-
myndir um hugsanlega frestun
ffamkvæmda fyrir á annað hundrað
milljónir króna vegna þenslu. Þess-
ar hugm^mdir era ræddar í kjölfar
tilmæla ríkisstjómarinnar til sveit-
arfélaga um ffestun ffamkvæmda til
þess að slá á þenslu í hagkerfinu. Á
fundi bæjarráðs á miðvikudag lagði
Þorvaldur Vestmann sviðsstjóri
tækni- og ffamkvæmdasviðs bæjar-
ins ffam lista yfir framkvæmdir á
árinu sem unnt væri að ffesta. Er
þar um að ræða tíu verk og kostn-
aðurinn við þau er áætlaður tæpar
117 milljónir króna.
Þessar ffamkvæmdir era endur-
nýjun slitlags á Sandabraut, slitlags-
framkvæmdir í nýjum hverfum,
göngustígagerð á Sólmundarhöfða,
endurnýjim gangstétta meðal ann-
ars við Höfðabraut og Heiðarbraut,
gerð leikvallar við Eyrarflöt/Dals-
flöt, framkvæmdir við anddyri og
utanhússklæðningu Brekkubæjar-
skóla, hönnun stúku við knatt-
spyrnuvöllinn á Jaðarsbökkum,
hönnun breytinga á bókasafni,
framkvæmdir við Akratorg og
hönnun við tjaldsvæði.
Gísli S. Einarsson bæjarstjóri
sagði í samtali við Skessuhorn að
þessi mál væra til skoðunar þessa
dagana að beiðni ríkisstjómarinnar
og samtaka sveitarfélaga. Eins og
ffam hefur komið í fréttum Skessu-
horns hafa engin tilboð borist í
nokkur verk sem bæjarfélagið
hugðist ráðast í að undanförnu.
Gísli segir að skort á verktökum
geri það að verkum að sum þessara
verka muni sjálfkrafa ffestast en
ástæða hafi þótt að skoða öll þau
verk sem til greina gæti komið að
ffesta. Þessi mál þurfi að kanna bet-
ur og ræða til dæmis við íbúa
Sandabrautar sem búist hafi við
ffamkvæmdum í götunni í sumar.
Þar hafi ekki fengist verktaki og því
ekki viturlegt að byrja viðamiklar
ffamkvæmdir rétt fyrir veturinn.
Sem kunnugt er ákvað nýr meiri-
hluti bæjarstjórnar effir kosningar
að flýta ffamkvæmdum við endur-
nýjun slitlags Grenigrundar og var
lofað að ráðist yrði í þær í sumar.
Þar hafa ffamkvæmdir ekki hafist
ennþá vegna skorts á verktökum að
sögn Gísla. Hann segir ennþá reynt
að hrinda úr vör ffamkvæmdum við
götuna en á þessari stundu sé óvíst
að það takist. HJ
Mótar stefiiu í
malamámi
HVALFJARÐARSVEIT:
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
hefur falið oddvita og sveitar-
stjóra að skoða málefni malar-
náms í sveitarfélaginu í heild
sinni og móta stefnu í mála-
flokknum í sveitarfélaginu.
Þetta var ákveðið í ffamhaldi af
umsókn frá Snóki verktökum
ehf. og Islandsgámum um leyfi
til malartöku í malarnámu á
Stóra-Fellsöxl. -hj
Endurbætur
knattspymu-
vallar
HVALFJARÐARSVEIT:
Sveitarstjóm Hvalfjarðarsveitar
hefur samþykkt að ráðast í end-
urbætur á knattspymuvellinum í
Melahverfi. Tilboði ffá Brynjólfi
Ottesen í túnþökur og undirlag á
völlinn, sem er um 1.000 fer-
metrar, var samþykkt. Tilboðið
er að upphæð 230 þúsund krón-
ur og er flutningur efhis á stað-
inn innifalinn í því tilboði. Jafh-
ffamt hefur Hlynur Sigurbjöms-
son varaoddviti tekið að sér að fá
foreldra í Melahverfi sér til að-
stoðar við að leggja þökumar á
völlinn. -hj
S
Ohöpp og
ofsaakstur
BORGARFJÖRÐUR: Fjöratíu
og fimm ökumenn vora teknir
lýrir of hraðan akstur í umdæmi
lögreglunnar í Borgarnesi í hð-
inni viku. Þar af vora tveir á ofsa-
akstri langt yfir leyfðu hámarks-
hraða. Þá var ökumaður BMW
sportbíls tekinn á 170 km/klst.
hraða undir Hafiiarfjalh um síð-
ustu helgi.
Fimm umferðaróhöpp urðu í
umdæmi lögreglunnar í Borgar-
nesi í síðusm viku. Bíll fór útaf á
Uxarhryggjum og valt. Ökumað-
urinn var fluttur á sjúkrahús til
skoðunar en hann kvartaði yfir
eymslum í hálsi og baki. -so
Skipulags-
breytingar
BIFRÖST: Breytingar hafa ver-
ið gerðar á skipuriti Viðskiptahá-
skólans á Bifföst. Á vef skólans
segir að markmið þeirra sé að
einfalda stjórnkerfi skólans,
draga úr kosmaði, auka skilvirkni
og bæta þjónusm með því m.a. að
stytta boðleiðir og skýra betur
ábyrgðarsvið starfsfólks. I dag
era þrjár háskóladeildir starf-
ræktar við skólann: viðskipta-
deild, lagadeild og félagsvísinda-
og hagffæðideild. I nýju skiptiriti
hafa verið sett upp fjögur stoð-
svið sem vinna þvert á þessar
deildir; kennslusvið, þjónusm-
svið, húsnæðissvið og fjármála-
svið. Nýir sviðsstjórar við skól-
ann era þau Steinunn Eva
Bjömsdóttir, Geirlaug Jóhanns-
dóttir, Guðrún Árnadóttir og
Einar S Valdemarsson. Þá hefur
Hrafrihildur Valdimarsdóttir
verið ráðin aðstoðarmaður rekt-
ors. -ntm
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er tíl
12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasöiu.
Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200
sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950.
Verð í lausasölu er 400 kr.
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 alla virka daga
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kolbeinn Ó Proppé 659 0860kolbeinn@skessuhorn.is
Sigurbjörg Ottesen 868 0179 sibba@skessuhorn.is
Augl. og dreifing: Katrín Óskarsd. 616 6642 katrin@skessuhorn.is
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is