Skessuhorn - 23.08.2006, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006
^suriu.2
Dagmæðrum íjölgar í
Borgarbyggð
í byrjun þessa mánaðar sam-
þykkti byggðaráð Borgarbyggðar
nýjar reglur um niðurgreiðslur til
dagmæðra. Nokkuð hafði borið á
skorti á dagmæðrum á svæðinu og
var það ekki síst hvatinn að nýju
samþykktinni. Samkvæmt nýju
reglunum eru daggjöld hjá dag-
mæðrum greidd niður um 11
mánuði á ári fyrir börn á aldrinum
sex mánaða til sex ára þar til leik-
skólapláss býðst. Upphæðir eru
mismunandi eftir flokkum, hæsta
greiðsla er fyrir einstætt foreldri
eða foreldri sem bæði eru í námi
og nemur hún 39.600 krónum á
mánuði fyrir níu stunda dvöl.
Greiðsla til hjóna eða sambúðar-
fólks sem ekki er í námi nemur
30.600 á mánuði fyrir níu stunda
dvöl.
Ásthildur Magnúsdóttir, for-
stöðumaður fræðslu- og menning-
arsviðs Borgarbyggðar, sagði að
nýju reglurnar væru mjög til bóta.
Þær gerðu dagmæðrum kleift að
hækka gjaldskrá sína án þess að
það bitnaði á foreldrum. „Áður en
við samþykktum reglurnar var að-
eins ein dagmóðir starfandi hér,“
segir Ásthildur. „Þann 1. septem-
ber tekur önnur til starfa í Borgar-
nesi og tvær dagmæður eru búnar
að sækja um leyfi á Hvanneyri og
gætu einnig tekið til starfa 1. sept-
ember. Það er því ljóst að þessi
málefni eru að lagast og eðlilegast
er að tengja það samþykkt nýju
reglanna." Ekki er útlit fyrir að
dagmóðir verði starfandi á Bifröst
í vetur, en leikskólinn ætlar að
sinna þörfinni þar. -KÓP
Ingunn AK150 við bryggju á Akranesi í liðinni viku.
Kolmunninn
gefiir sig ekki
Forsvarsmenn HB Granda hafa
ákveðið að gera hlé á kolmunna-
veiðum um sinn. Kolmunninn hef-
ur ekki gefið sig fyrir Vesturlandi
þó veiðar þar hafi byrjað ágætlega.
Fyrirtækið á enn nokkuð af kvóta
fyrir síld og sagði Ingimundur
Ingimundarson deildarstjóri upp-
sjávarfisks að þau þrjú skip sem
stundað hafa kolmunnaveiðarnar
að undaförnu, Faxi, Ingunn og
Sunnuberg, færu öll á síldveiðar.
„Ætli við tökum ekki svona tvo
síldartúra og tökum svo stöðuna.
Kolmunninn gefur sig ekki núna
þannig að við gerum hlé á þeim
veiðum núna og getum þá tekið
þær upp aftur síðar ef ástandið
breytist.“
-KÓP
Reykjavíkurborg greiðir engan lög-
gæslukostnað vegna Menningamætur
Reykjavíkurborg þarf ekkert að
greiða í löggæslukostnað þrátt fyrir
að aukakosmaður lögreglunnar
vegna Menningarnæmr hafi verið
talsvert á aðra milljón króna. Á sama
tíma em ýmsar samkomur á lands-
byggðinni að sligast undan greiðslu
löggæslukosmaðar. Yfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík segir hugsanlega
tímabært að endurskoða reglur um
innheimtu löggæslukosmaðar.
Eins og kunnugt er fór árleg
Menningamótt ffam í Reykjavík á
laugardaginn. Dagskrá hátíðarinnar
dró að vanda til sín tugþúsundir
landsmanna. Slík fjöldasamkoma
þarfnast mikillar skipulagningar,
ekki síst hjá lögreglu. Fram kom í
fjölmiðlum að Lögreglan í Reykja-
vík var með mikinn viðbúnað og má
víst telja að þar hafi verið tjaldað öllu
sem hægt var til þess að tryggja ör-
yggi borgaranna allt frá því að
Reykjavíkurmaraþon hófst snemma
að morgni laugardags og þar til yfir
lauk aðfaramótt sunnudags.
Rætt um
sérstakan hátíðasjóð
Mikill viðbúnaður lögreglu leiðir
hugann að því hvort Reykjavíkur-
borg greiði fyrir þann löggæslu-
kostnað er hlýst af þessum miklu há-
tíðarhöldum líkt og hátíðarhaldarar
á landsbyggðinni þurfa margir
hverjir að gera. Geir Jón Þórisson
yfirlögregluþjónn í Reykjavík sagði í
samtali við Skessuhorn síðdegis á
fösmdag að áætlaður aukakosmaður
embættisins vegna Menningarnætur
væri um 1,5 milljónir króna. Reykja-
víkurborg greiðir að hans sögn ekki
krónu af þeim aukakostnaði. Segir
hann að þar ráði að enginn aðgangs-
eyrir sé innheimtur af gestum
menningarnætur.
Nokkrar deilur hafa risið í gegn-
um árin vegna innheimtu löggæslu-
kosmaðar og hæst bar deilur Ung-
mennafélags Islands og lögreglu-
stjórans á ísafirði vegna innheimtu
löggæslukostnaðar við unglinga-
landsmóts sem haldið var á Isafirði.
Þykir mörgum sem ekki standi allir
við sama borð þegar kemur að
greiðslu löggæslukosmaðar. Geir
Jón segir tímabært að endurskoða
reglur um endurgreiðslu löggæslu-
kostnaðar og nefnir í því sambandi
hugmyndir um að sérstakur sjóður
fái fjárveitingar á fjárlögum. Úr
þessum sjóði verði greitt til lög-
regluembættanna vegna löggæslu-
kostnaðar sem til fellur vegna ýmissa
hátíða. Hann telur slíkt nauðsynlegt
þar sem á undanfömum árum hafi
ýmsar bæjarhátíðir fest sig í sessi á
landsbyggðinni sem kallað hafi á
aukna löggæslu.
Gæta skal nicðalhófs
Ef marka má umburðarbréf sem
dóms- og kirkjumálaráðherra gaf út
til lögreglustjóra fyrir liðna versltm-
armannahelgi er lögreglustjórum
nokkuð í sjálfsvald sett hvort og þá
með hvaða hætti þeir irmheimta lög-
gæslukostnað. I bréfinu segir m.a.:
„Samkvæmt reglunum skal sá sem
fyrir skemmtun stendur endurgreiða
lögreglustjóra þann kostnað er leið-
ir af aukinni löggæslu vegna
skemmtunar umfrarn það sem eðli-
legt má telja. Við mat á því hvað
megi teljast eðlilegt ber lögreglu-
stjóra að taka mið af reynslu fyrri ára
vegna sambærilegra skemmtana,
þeim fjölda sem búist er við að sæki
skemmtun, viðbúnaði leyfishafa
vegna skemmtunar, hvort áfengi er
leyft á skemmtun og staðsetningu
skemmtunar, það er hvort hún er
haldin í þéttbýli eða í dreifbýli". Síð-
ar í bréfinu segir einnig: „Við
ákvörðun um löggæslukostnað ber
að gæta meðalhófs þannig að aðilum
sé ekki íþyngt með kostnaði umfram
það sem eðlilegt getur tahst. Gæta
skal samræmis við ákvörðun lög-
gæslukostnaðar innan lögregluum-
dæmis þannig að sambærileg mál
hljóti sambærilega meðferð. Þá skal
einnig gæta samræmis milli lög-
regluumdæma með þeim hætti að í
lögregluumdæmum af sambærilegri
stærð gildi sömu reglur“.
HJ
Fimmta leiðin valin
Betur fór en á horfðist þegar
ökumaður fólksbíls missti stjórn á
fólksbifreið sinni í hringtorgi
Vesturlandsvegar við Borgarnes
um miðjan dag á sunnudag. End-
aði biffeiðin úti í skurði og sat þar
föst uns hjálpsamur ökumaður vel
útbúins jeppa kom farþegum til
aðstoðar. Fólksbiffeiðin var dreg-
in snarlega úr skurðinum, sam-
hliða því sem farþegar settust á
skottið og þyngdu afturhlutann.
Effir smáræðis lagfæringar héldu
ferðalangar för sinni áffam á nýj-
an leik, eflaust fegnir því að ekki
fór verr og að enn eru til hjálp-
samir ökumenn.
BT
PISTILL GISLA
Ofmemi og annað
Ég vaknaði í fyrradag
heldur illa á mig kominn
líkamlega líkt og gerist
stundum um þetta leiti árs.
Eg fékk nefnilega í vöggu-
gjöf forláta frjóofnæmi sem
hefur í för með sér óþæg-
indi af ýmsum toga. Ég er
alls ekki að kvarta því ég
fékk þó allavega eitthvað.
Sumir fá ekki neitt.
Sumum er útdeilt hæfi-
leikum til að læra utanað
alls kyns vísindi. Aðrir fá
birgðir af tónlistarhæfíleik-
um eða haug af hagmælsku.
Enn öðrum eru skenkt
ósköpin öll af sköpunar-
gleði og hugmyndaauðgi
og sumir fá lánaðar lista-
mannshendur á meðan þeir
dvelja hérna megin.
Ég fékk þó allavega
frjóofnæmið og hef því
varla efni á að kvarta.
Enda var það svosem
ástæðulaust á sínum tíma.
Að vísu er það ekkert eftir-
sóknarvert að vera blind-
fullur af kvefi á þeim árs-
tíma sem engum ætti að
vera vorkun að bera sig
mannalega. Jafn óskemmti-
legt er það að vera rauð-
eygður og þrútinn eins og
atvinnudrykkjumaður án
þess að hafa unnið fyrir því.
Kosturinn var aftur á
móti sá að þegar ég var
ungur ofnæmisgemlingur
þá hafði ég nokkra sér-
stöðu. A þeim tíma voru of-
næmi nefnilega ekki til á
hverju heimili. Frjóofnæmi
var meira að segja allt að
því fágætt og því ekki laust
við að ég vekti nokkra at-
hygli þar sem ég hnerraði
eins og ég fengi borgað fyr-
ir það um hábjargræðistím-
ann.
I dag er þetta ekkert gam-
an lengur. I dag eru nefni-
lega allir með ofnæmi og
þykir ekki merkilegt. Svona
er reyndar allt í dag. Ef
menn ætla að vera frumleg-
ir þá eru allir komnir í
sömu fótsporin daginn eft-
ir. Það fær ekkert að vera í
friði!
Þetta var að vísu ekki það
sem mér var efst í huga
heldur sú staðreynd að þar
sem ég lá í fleti mínu fyrr-
nefndan morgun, stíflaður
af kvefi, varð mér einmitt
hugsað til stíflunnar á
Kárahnjúkum. Enda ekki
nokkur steypuklumpur sem
mönnum hefur orðið jafn
tíðrætt um.
Ég neita því ekki að þetta
er mannvirki sem ég vildi
síst vilja hafa í garðinum
hjá mér. Það er alls ekki fal-
legt. Það er hinsvegar kom-
ið á sinn stað og gæti reynst
torvelt að flytja það úr stað
þannig að ég sé ekki full-
komlega tilganginn með
þessu tuði.
Gísli Einarsson, stíflaður.