Skessuhorn - 23.08.2006, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2006
^ttúsvnvKt
Þómnn María tekur við stjómun
Varmalandsskóla
Þórann María Óðinsdóttir hefur
verið ráðin skólastjóri Varma-
landsskóla í Borgarbyggð. Tekur
hún við starfinu af Flemming Jes-
sen sem gegnt heíúr starfi skóla-
stjóra í fimmtán ár. Flemming
mun sinna ýmsum verkefnum við
skólann fram til 1. nóvember í vet-
ur en Þórann hefur þegar tekið við
skólastjórnun.
Þórann er með yngstu skóla-
stjórum hér á landi, eða 34 ára að
aldri. Hún er elst átta barna þeirra
hjóna Bjargar Karitasar Jónsdótmr
og Óðins Sigþórssonar í Einars-
nesi svo óhaett er að segja að strax
í uppvexti sínum hafi hún þurft að
hafa hönd í bagga við stjórnun sér
yngri barna; reynsla sem vafalaust
kemur nú að góðum notum. Eig-
inmaður hennar er Þórarinn Ingi
Ólafsson, en hann er þessi misser-
in að ljúka mastersprófi í lögfræði
við Viðskiptaháskólann á Bifröst
og starfar hjá Sparisjóði Mýra-
sýslu. Þau eiga tvo syni; Óðinn
Inga 5 ára og Hermann Þór 2 ára.
Aðspurð segir Þórann að starfið
leggist afar vel í sig og ekki síður
skólaárið sjálft sem nú er að hefj-
ast. „Varmalandsskóli er sá grunn-
skóli er ég lauk mínu grannskóla-
prófi ffá og hef ég því sterkar taug-
ar til hans. Þegar ég kom síðan til
starfa við Varmalandsskóla kenndi
ég fyrsta árið sem almennur kenn-
ari en næstu þrjú starfaði ég sem
aðstoðarskólastjóri við skólann.
Síðasta vetur lagði ég hinsvegar
stund á mastersnám í stjórnun við
Viðskiptaháskólann á Bifröst. Auk
náms og starfa við Varmalands-
skóla kenndi ég í nokkur ár við
Klébergsskóla á Kjalamesi og í eitt
ár á Akureyri,“ segir Þórann.
Þóninn María Óðinsdóttir skólastjórí
Varmalandsskóla.
Nemendur á Varmalandi eru um
150 talsins og kemur um 60%
þeirra frá Bifröst en um 40%
þeirra úr dreifbýlinu.
MM
220 ára kaupstaðar-
aftnæli Grundarfjarðar
Þarm 18. ágúst árið
1786, eða fyrir nær réttum
220 árum síðan, gaf Dana-
konungur út tilskipun um
að sex verslunarstöðum
yrði veitt kaupstaðarétt-
indi. Þetta vora plássin
Grundarfjörður, Reykja-
vík, Isafjörður, Akureyri,
Eskifjörður og Vest-
mannaeyjar. Kaupstaðirn-
ir sex áttu að verða miðstöðvar
versltmar, útgerðar og iðnaðar hver
í sínum landshluta. Auk þess áttu
þeir að vera aðsetur ýmissa opin-
berra embættismanna og stofnana.
Árið 1786 var verslunarstaðurinn
í Grundarfirði á Grundarkampi og
gerði séra Sæmundur Hólm prestur
á Helgafelh þá uppdrátt af lóð kaup-
staðarins og telst það vera fyrsti
skipulagsuppdrátturinn sem gerður
var hér á landi. Hugmyndimar hvað
varðar Grandarfjörð gengu ekki all-
ar eftir og svo fór að árið 1836 var
gefin út tilskipun um að Reykjavík
ein væri kaupstaður en hinir staðim-
ir fimm löggiltir versltmarstaðir.
Engu að síður markar þessi dagsetn-
ing upphaf mikilla breytinga á Is-
landi og er í raun sá dagur sem
Grundfirðingar geta nefnt sinn af-
mælisdag ekki síður en Reykvíking-
ar, Eskfirðingar, Isfirðingar, Akur-
eyringar eða Eyjamenn. MM
Akranesbær mótmælir
rökstuðningi SI
Eins og fram hefur komið í um-
fjöllun Skessuhoms sendu Samtök
iðnaðarins (SI) bæjaryfirvöldum á
Akranesi bréf þar sem þess var kraf-
ist að samþykkt bæjarráðs um að
ganga til samninga við Þrótt um
gatnagerð við Smiðjuvelli verði aft-
urkölluð. Tiltóku SI nokkur atriði
sem þau töldu að bæjarráð hefði
ekki staðið rétt að málum og með
því brotið á Skóflunni hf. Bæjarráð
fól Þorvaldi Vestmann, sviðsstjóra
tækni- og umhvefissviðs að svara
bréfinu og koma sjónarmiðum bæj-
arins á framfæri.
I svarbréfi Þorvaldar kemur ffam
að verkkaupi, Akraneskaupstaður,
telji að hann hafi staðið eðlilega að
málum. SI hafði gert athugasemdir
við að lista yfir tmdirverktaka vant-
aði í tilboð Þróttar og því hafi það
ekki verið gilt. Þessu er mótmælt í
bréfinu og vísað í grein í útboðs-
sldlmálum þar sem tekið er fram að
verkkaupi áskilji sér rétt til að hafna
tilboðum þar sem upplýsingar um
undirverktaka fylgi ekki með. Telja
bæjaryfirvöld að ekki væri ástæða
til að taka slíkt fram ef túlka bæri
þannig tilboð ógild líkt og SI gera.
Af þeim tilboðum sem bárast líta
bæjaryfirvöld á tilboð Þróttar hf.
sem lægsta tilboðið miðað við fýr-
irliggjandi tímaramma. Hvað varð-
ar ffávikstilboð Skóflunnar hf., sem
var lægst, kemur í bréfinu ffam að
tímarammi þess hafi verið óviðun-
andi, en í því var gert ráð fýrir
verklokum 15. desember í stað 15.
nóvembers. Að endingu segir að
verkkaupi hafi talið öll tílboðin of
há og því hafriað þeim og falið Þor-
valdi Vestmann að ganga til við-
ræðna við lægstbjóðenda, þ.e. Þrótt
hf. um verkið.
-KÓP
Leikskólaböm í nýja búsrueðinu. Ljósm. www.grundarfjordur.is
Nýtt hús við leikskól-
ann í Grundarfirði
Leikskólinn Sólvellir í Grundar-
firði tók aftur til starfa þann 14.
ágúst síðastliðinn efrir sumarffí.
Við það tækifæri var nýtt húsnæði
tekið í notkun en búið er að reisa
173 ffn viðbyggingu við skólann
sem hýsir eldhús og starfsmanna-
aðstöðu. Fleira var ffamkvæmt við
húsnæðið því anddyri skólans var
stækkað og endurnýjað auk þess
sem elsti hluti hússins var endur-
bættur. Það vora því kátir krakkar
sem komu tíl leikskólans í Grund-
arfirði í vikunni. -KÓP
Nýtt hús Borgamess kjötvara
vígt á sunnudag
Inngangur bússins við Vdllarás 1-9 sem snýr jrá jýóðveginum fyrir ofan Borgames.
Næstkomandi sunnudag, 27. á-
gúst munu ný húsakynni Borgar-
ness kjötvara ehf. að Vallarási 7-9 í
Borgamesi verða vígð við athöfin
sem hefst klukkan 13:30. Af þessu
tilefini býður fýrirtækið íbúum hér-
aðsins og öðrum velunnurum að
vera við vígsluna.
Það verður Jón Sigurðsson iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra og ný-
kjörinn formaður Framsóknar-
flokksins sem mun klippa á borða
til marks um það að húsið sé tekið í
notkun. Þá mun sönghópurinn
Silfurrefirnir flytja nokkur lög,
stjórnarformaður BK flytur ávarp
og almenn kynning verður á bygg-
ingunni. Opið hús verður milli kl.
13:30 og 16 og geta áhugasamir
skoðað húsið undir leiðsögn starfs-
manna Borgarness kjötvara og
Stjörnusalats. Veitingar verða í
formi ffamleiðsluvara félagsins auk
þess sem boðið verður upp á tertu
að hætti Geira bakara.
Nýja húsið stendur við Vallarás í
nýju matvælavinnsluhverfi ofan
Borgarness. Sólfell hf. var alverk-
taki við byggingu hússins sem alls
er rúmir 1900 fermetrar að flatar-
máli. Að sögn Bjöms Bjarka Þor-
steinssonar, markaðsstjóra BK
verður strax eftir næstu helgi hafist
handa við flutning starfseminnar
ffá Brákarey og í Vallarás. Hluti
ffamleiðslutækja verður nýttur á-
ffam. Stefiit er að því að flutningi
verði að fullu lokið í annarri viku
og að ffamleiðsla geti þá hafist af
fullum krafti. Að sögn Björns
Bjarka eru verkefni fýrirtækisins
ærin um þessar mundir og því verð-
ur lögð áhersla á að flutingur taki
eins skamman tíma og kostur er.
MM
Jón Eggert Guðmundsson hefur nú gengið 3446 kílómetra til styrktar Krabbameinsfélaginu.
Þótti Hvalfjörðurinn
fallegur í einmuna blíðu
Göngugarpurinn Jón Eggert
Guðmundsson sem verið hefur á
göngu hringinn í kringum landið til
styrktar Krabbameinsfélaginu var
staddur í Hvalfjarðarsveit sl. mið-
vikudag í blíðskapar veðri. Er
blaðamaður Skessuhorns hitti
kappann var hann á göngu við
Saurbæjarhlíð á Hvalfjarðarströnd.
Jón Eggert stefndi að því að ljúka
strandvegagöngunni sl. laugardag í
Reykjavík. Að strandvegagöngunni
lokinni á hann að baki 3446 kíló-
metra sem hann hefur gengið og til
gamans má geta þess þá samsvarar
sá fjöldi kílómetra um það bil 82
maraþonhlaupum. Síðastliðið sum-
ar hélt Jón af stað í gönguna og
gekk hann þá frá Reykjavík til Eg-
ilsstaða og 6. maí í vor hélt harrn
þaðan af stað aftur.
Jóni Eggert þótti afar fagurt um
að litast í Hvalfirði enda sjórinn
spegilsléttur, glampandi sólskin og
fjöllin allt í kring skörtuðu sínu feg-
ursta.
SO