Skessuhorn - 23.08.2006, Qupperneq 21
ÍSESSUH0BRI
MIÐVIKUDAGUR 23 ÁGÚST 2006
21
Þjóðlýöm Hannesson er sóknaniefndarformathir á Akranesi. Hans bídur vafalítiö erfitt
verkefni þegar kemur að því að ákveða í hvaða framkvæmiir verður ráðist; byggingu
njrrar kirkju við Garða eða viðbyggingu við gömlu kirkjuna á neðri Skaga.
breytingum, en svo virðist sem bæj-
aryfirvöld hafi aldrei staðfest hann.
Árið 1955 kom fram tillaga að
nýju skipulagi nýrri hluta bæjarins
og samkvæmt því varð Kirkjubraut
aðalinnkeyrslugata bæjarins. Við
gamamót Stillholts og Kirkjubraut-
ar var ráðgert að reisa nýja kirkju,
norðvestan við torg innan Stillholts
og sunnan Kirkjubrautar. Var tillag-
an samþykkt en fljódega var ljóst að
staðsetningin var óheppileg. Að
endingu var ákveðið að velja nýrri
kirkju lóð á Görðum og var það
staðfest í aðalskipulagi bæjarins
1982 og stendur sú ákvörðun enn.
Má því segja að kirkjan muni halda
aftur heim að Görðum.
Viðbygging
til bráðbirgða?
Hafi kirkjan verið of lítíl árið
1896 er ljóst að hún er of lítil árið
2006. Ljóst er að bygging nýrrar
kirkju að Görðum verður bæði dýr
og tímafrek. Þess vegna hefur
kviknað sú hugmynd hvort ekki sé
hægt að reisa viðbyggingu við nú-
verandi kirkju til bráðbirgða.
Þjóðbjörn Hannesson, formaður
sóknamefiidar Akraneskirkju segir
að þessi hugmynd hafi verið reifúð
innan nefiidarinnar. Þegar safhaðar-
heimilið var reist hafi sóknin átt
nægt fé í sjóði og þurftí ekki að
stofna tíl skulda, en sú sé ekki raun-
in nú. I samráði við Þorstein Gunn-
arsson arkitekt hefur verið sent inn
erindi til Húsafriðtmarnefiidar ríkis-
ins með rissaðri teikningu af við-
byggingu. „Ef nefndin samþykkir
hugmyndina er hægt að setjast nið-
ur og taka ákvörðun um hvort farið
verði í það ferli að hanna rýmið, fá
samþykki o.s.frv. Ef nefndin hins
vegar segir þvert nei við viðbygg-
ingu þarf ekki að ræða það mál frek-
ar,“ segir Þjóðbjörn. Hann gat þess
að á að giska mættí gera ráð fyrir að
ný kirkja fyrir söfnuðunn gætí kost-
að 800-1000 milljónir króna en við-
bygging við gömlu kirkjuna um
fjórðung þeirrar upphæðar.
Hvort sem af verður viðbyggingu
eða ekki er ljóst að núverandi kirkja
er of lítil. Eins og sóknargjöldtun er
nú háttað mun sóknin trauðla getað
lagt fyrir mikið fé í ffamkvæmdasjóð
á næstu árum. Hvort fetað verður í
fótspor ffumherjanna sem tóku lán
fyrir kirkjubyggingunni fyrir 110
ámm skal ósagt látið.
-KÓP/ Ijósm. MM
r
; \
Tilkynning
Sjúkraþjálfun
í Borgarnesi
Peiminn kaupir Bókabúð Andrésar
Pexminn hefur fest kaup á Bóka-
búð Andrésar á Akranesi. Fyrirtækin
hafa verið í samstarfi um nokkra
hríð, sem m.a. felst í því að bóka-
búðin hefur nýtt sér vörur og mark-
aðsefni ffá Pennanum. Fyrrum eig-
andi verslunarinnar, Steinunn Olafs-
dóttir, flyst til Reykjavíkur og tekur
við verslunarstjórastarfi hjá Pennan-
um í haust. Um leið tekur Jóhanna
Elva Ragnarsdóttir við stjórnar-
taumxmum þar sem hún hefur starf-
að hjá verslununni um árabil.
Engar róttækar breytingar em
fyrirhugaðar, en verslunin á Skagan-
um mun njóta góðs
af aukirmi samvinnu
við verslanir Penn-
ans um land allt.
Sama vömúrval
verður á boðstólum
og í verslunum
Pennans á höfuð-
borgarsvæðinu og á
sama verði og er
ætlunin að auka
þjónustustigið.
Samningar milli Pennans og fyrri
eigenda era undirritaðir með fyrir-
vara um samþyklti Samkeppniseffir-
hts, sem hefur kaupin til skoðunar,
en skylda er að tilkynna öll kaup af
þessari stærðargráðu til eftirlitsins.
-KÓP
Reiðtúr Freyjukórsins
Laugardaginn 19. ágúst sl. fóm
um 30 konur í Freyjukórnum í
Borgarfirði í sinn árlega reiðtúr og
að þessu sinni í góðu veðri með
hlýjan vindinn í fangið. Riðið var ffá
Grímsstöðum í Reykholtsdal inn
með Rauðsgili og áð í Kristínar-
brekku þar sem hægt var að tína ber,
fara í sólbað, drekka, borða og
skemmta sér. Síðan var riðið affur
til baka og áð í Rauðsgilsrétt og
þaðan farið að Hægindi og lagið
tekið með Vigfúsi bónda. Þaðan var
farið yfir Reykjadalsá og heim að
Grímsstöðum aftur til að borða
kvöldverð sem beið effir ferðafólk-
inu. Þeir sem vildu gátu þar farið í
Að um stund, hér við Rauðsgil.
sund og fengið mat og drykk ffam-
reiddan á sundlaugarbarminum eða
setið í sólskininu og sleikt kvöldsól-
ina á sólpallinum.
með frábæm fólki.
Yndisleg ferð
ES
f \
Öflug fullorðinsfrœðsla
í heimabyggð
Námsvísirinn kemur út 5. september
fylgist með á www.simenntun.is
SIMENNTUNARMIÐSTOÐIN
Á V6STURLANDI
Helga Ágústsdóttir, sjúkraþjálfari, hóf störf þann
21. ágúst 2006 að Borgarbraut 65 í kjallara
j Dvalarheimilisins. Veitt er meðferð og ráðgjöf til
heilsueflingar í samráði við tilvísandi lækni.
' Tímapantanir eru í síma 437-1035 og 899-8035.
________________________________________________y
BÍLAMÁLUN OG RÉTTINGAR
Bílverk GJ
Akursbraut 11 - 300 Akranes - Sími: 430 0708
ATVINNA
Bifreiðasmiður/bílamálari óskast
til starfa sem fyrst.
Upplýsingar í síma
430-0708 og 698-3359
V____________________________________________________________________________J
Grundarfjarðarbœr
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi:
“Norðurgarður” í Grundarfírði
Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. er hér með
auglýst eftir athugasemdum við breytingartillögu að deiliskipulagi “Norðurgarðs” í
Grundarfirði.
Breytingin tekur til metralóðanna B, C og D. Samanlögð stærð lóðanna og ytri mörk
haldast óbreytt en mörkin milli þeirra breytast. Lóðimar eru nú skilgreindar sem
sjálfstæðar lóðir í stað metralóða. Byggingarreitur er skilgreindur fyrir hverja lóð en
samanlögð stærð byggingarreita minnkar í 5136,5 m2 en var áður 5575,9 m2. Mænisstefiia
breytist og snýr nú 90 gráður á nyrðri lóðarmörk í stað syðri lóðarmarka. Nýtingarhlutfall
lóðanna C og D helst óbreytt, en minnkar á lóð B. Aðrir skilmálar lóðanna haldast
óbreyttir og er vísað til greinargerðar gildandi skipulags.
Uppdráttur, ásamt greinargerð með ffekari upplýsingum, liggur frammi á bæjarskrifstofu
Grundarfjarðar, Grundargötu 30, á skrifstoftitíma, frá og með 30. ágúst n.k. til og með
27. september 2006.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við
tillöguna.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu vera skriflegar og berast á bæjarskrifstofu
Grundarfjarðar, Grundargötu 30, eigi síðar en 11. október 2006. Þeir sem ekki gera
athugasemd við tillöguna innan tilskilins frests, teljast vera samþykkir henni.
Grundarfirði, ágúst 2006
Jökull Helgason
Skipulags- og byggingarfulltrúi Grundarfjarðar