Skessuhorn


Skessuhorn - 23.08.2006, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 23.08.2006, Blaðsíða 23
 ^sunu^. MIÐVIKUDAGUR 23 AGUST 2006 23 VQja sinna nemendum og skólum Á dögunum opnaði Tölvuþjón- ustan á Akranesi - verslun, nýja heimasíðu og netverslun undir slóðinni www.tolvuverslun.is. Hug- mynd TV er sú að viðskiptavinir geti nálgast allt það helsta sem við kemur tölvum á einum stað og er því með mjög breitt vöruúrval frá öllum helstu tölvumerkjum heims, svo sem IBM / Lenovo, HP, DELL og Acer. Verslunin leggur einnig á- herslu á að bjóða sama verð og boðið er í verslunum á höfuðborg- arsvæðinu. Eggert Herbertsson framkvæmdastóri TV segir í sam- tali við Skessuhorn að ekkert annað fyrirtæki á landinu bjóði á sama staðnum sama úrval af fartölvum og því er þetta góður staður til að bera saman hin ólíku merki. I verslun TV er að finna alla aukahluti fyrir tölvur ásamt rekstr- arvörum fyrir prentara. Einnig eru skólavörurnar ffá Odda nú fáanleg- ar í versluninni eða allt það helsta sem námsfólk þarf til skólans, svo sem skólatöskur, stílabækur, pennar og fleira. „Við höfum undanfama mánuði selt tölvur, skjái og netþjóna í skól- ana hér á Akranesi og í háskólann á Bifföst. Það er okkur mikils virði að sinna þessum skólum vel og því reynum við að að standa okkur í þjónustu og verðum. Vonandi bæt- ast fleiri skólar í hópinn á næsm mánuðum,“ sagði Eggert. MM Berjaspretta misjöfn Margir fara og huga að berja- sprettu á þessum tíma árs. Eitthvað virðist afrakstur tínslunnar vera misjafn eftir því hvar borið er nið- ur. Skessuhorn hefur fyrir því heimildir að í Borgarfirði séu krækiber mörg og víða en bláberja- spretta hafi víða misfarist. Hér með er auglýst effir nánari upplýsingum um berjasprettu á Snæfellsnesi, Dölum og víðar og þætti blaðinu vænt um að geta í næstu viku birt nákvæmari upplýsingar um sprett- una lesendum til ffóðleiks. Með- fylgjandi mynd er úr Reykholtsdal sl. sunnudag. MM Afli í júlí svipaður ámilli ára Strætisvagn Akraness í júlí var landað samtals 2.924 tonnum af sjávarfangi í höfhum á Vesturlandi. A sama tíma í fyrra var landað 2.967 tonnum. Af ein- stökum tegundum má nefna að sama magni var landað af þorski bæði árin eða 782 tonnum. Aukn- ing er hins vegar í ýsu, ufsa en samdráttur í úthafskarfa og grá- lúðu. Fyrstu sjö mánuði ársins var landað 68.632 tonnum af sjávar- fangi á Vesturlandi en á sama tíma var landað 76.848 og er samdrátt- urinn því um tæplega 11 % á milli ára. Af einstökum tegundum má nefna að þorskafli dregst saman úr 23.292 tonnum í 21.436 tonn, ýsu- afli jókst á sama tíma úr 8.019 tonnum í 8.665 tonn og ufsaafli jókst úr 2.206 tonnum í 3.193 tonn. Mestar breytingar í magni talið verða hins vegar í afla upp- sjávartegunda. Loðnuafli dregst saman úr 31.220 tonnum í 9.929 tonn og kolmunnaafli á þessum tíma var 14.527 tonn en engum kolmunna var landað á þessum tírna á síðasta ári. HJ Quizno's leitar samstarfeaðila Veitingakeðjan Quizno's, sem rekur tvo staði í Reykjavík og er að opna einn í Kópavogi, hefur hug á að opna staði á Akranesi og í Borg- amesi. Keðjan hóf göngu sína í Bandaríkjunum árið 1981 og hefur síðan breiðst út um allan heim og árið 2005 voru staðirnir orðnir 4500 talsins. Hjónin Hjörtur Aðal- steinsson og Auður Jacobsen eru einkaleyfishafar hér á landi. Hjört- ur segir í samtali við Skessuhorn að Quizno's leiti eftir samstarfi við heimamenn. „Það gengur ekki að fjarstýra svona keðju. Við erum til- búin til að setja upp stað fyrir fast verð og fá svo heimamenn til að eiga 50% á mótd ökkur og þeir eiga svo kauprétt á okkar hlut.“ Hjörtur segir að viðræður um staðsetningu séu komnar á skrið, sérstaklega á Akranesi. „Við höfum góða möguleika á að fá inni í versl- unarhúsi Bónuss við Þjóðbraut. Þar myndum við bæði hafa veitingastað og eins lúgu fyrir bílaumferðina. Þær viðræður eru komnar vel á veg. í Borgarnesi er möguleiki á að fá inni í bensínstöð Olís, en ekkert er fast í hendi með það.“ Hjörtur segir að þeir sem taki að sér að reka staðina muni fá alla nauðsynlega þjálfun hjá Quizno's og þurfi því ekki að búa yfir reynslu á þessu sviði. Náist samningar við samstarfsaðila á Akranesi gæti stað- urinn þar opnað um hvítasunnu árið 2007. Mun þá fjölga nokkuð í skyndibitaflóru bæjarins því heyrst hefur að Subway muni einnig opna stað á Akranesi innan tíðar. KÓP LATTU OKKUR FA ÞAÐ ÓÞVEGIÐ illloiiol ffjrmt ouc Efnalaugin Múlakot ehf. Borgarbraut 55 310 Borgarnesi Sími 4371930 TIMATAFLA Mánudaga - föstudaga Frá Grundaskóla: 7:05 7:35 8:05 8:35 9:05 9:35 10:05 10:35 11:05 11:35 12:05 12:35 13:05 13:35 14:05 14:35 15:05 15:35 16:05 16:35 17:05 17:35 18:05 Áætlaður tími Mínútur yfir - heilan og hálfan tíma Hafnarbraut - Leynisbraut Leynisbraut ■ Hafnarbraut Leynisbraut Höfði íþróttamiðstöð Garðabraut Þjóðbraut Esjubraut Vesturgata Háholt Pósthús Landsbanki Suðurgata Hafnarbraut Tímajöfnun 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 Hafnarbraut Bárugata Vesturgata Merkigerði Kirkjubraut/ísl.b. Stillholt Garðabraut Tímajöfnun Grundaskóli Grundaval Garðagrund Jörundarholt Jörundarholt Leynisbraut 25 25 26 27 28 29 30 5 6 7 8 9 10 Shellstöðin Borgamesi Relcstur Shellstöðvarinnar í Borgarnesi er laus til umsóknar. Miðab er við að nýr aðili taki við um miðjan september. Um er að ræða frábæra staðsetningu en Shellstöðin stendur við stofnbraut þegar komið er inn í bæinn. Breytingar verða gerðar á staðnum á næsta ári og taka nýir rekstraraðilar þátt í þeirri uppbyggingu. Leitað er að öflugum einstaklingi eða fyrirtæki til að koma inn i reksturinn á staönum. Bensínsala Verslun Vetingasala Lottó Þvottastæði (háþrýsti) Umsóknir berist Skeljungi hf., Hólmaslóð 8, 101 Reykiavík, fyrir 27. ágúst n.k. eða á ingvi@skeliunáur.is. Nánari upplýsingar veita Ingvi J. Ingvason eða Rebekka Ingvarsaóttir í síma 444 3000 © Q © © ©

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.