Skessuhorn


Skessuhorn - 06.09.2006, Side 4

Skessuhorn - 06.09.2006, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 2006 SgESSlilBWMaiM Skráning ömefna á vemdarsvæði BREIÐAFJÖRÐUR: Breiða- fjarðarnefnd stendur nú fyrir skráningu örnefna á verndar- svæðum Breiðafjarðar. Hjördís Linda Jónsdóttir hefur umsjón með verkinu. A Omefhastofrum er að finna mikið af örnefnum á Breiðafirði, en mikið vantar upp á staðsetningu þeirra. Ætlunin er að skrá niður ömefhi og stað- setja þau og að auki verðu reynt að finna skýringar á nöfhunum. Fyrsta árið hafa ömefni tengd sjó og siglingum verið í fyrri- rúmi en næstu tvö ár verður unnið að örnefnum tengdum Breiðafjarðareyjum. -kóp Of hratt með óskráð vopn BORGARFJÖRÐUR: Veiði- maður sem lögreglan í Borgar- nesi stöðvaði fyrir of hraðan akstur um helgina í umdæmi sínu var með óskráð skotvopn í bifreiðinni. Er það vopnalaga- brot og má maðurinn búast við sekt fyrir það brot sem og fyr- ir hraðaksturinn. Alls stöðvaði lögreglan 33 aðra ökumenn fyr- ir of hraðan akstur í síðustu viku. Sá sem hraðast ók mældist á 143 km/klst. hraða þar sem 90 km/klst. hraði er leyfður við bestu akstursskilyrði. Þá vom nokkuð margir teknir á um 120 km/klst. hraða og þar yfir að sögn lögreglunnar. -so Undirbúningur Rökkurdaga að hefjast GRUNDARFJÖRÐUR: Undirbúningur Rökkurdaga, menningarhátíðar Grundfirð- inga að hausti, er nú hafin. Rósa Guðmundsdóttir í Grondarfirði hefur tekið að sér umsjón þeirra í ár. Ðagskráin er í mótun að sögn Rósu og mun undirbúningur standa næstu vikur. Rökkurdagar verða haldnir 26. október til 5. nóv- ember. -so Asbestlögn gaf sig BORGARNES: Heitavatnsæð fór í sundur við Seleyri sunnan við Borgarfjarðarbrú sl. mánu- dagskvöld og lagði gufumökk yfir þjóðveginn. Var viðgerðar- flokkur þegar sendur á staðinn enda Borgnesingar heitavams- lausir. Um var að ræða asbest- lögn sem enn er þama á um 100 metra kafla. Að sögn Guðmund- ar Brynjúlfssonar hjá OR í Borgarnesi gekk viðgerðin fljótt fyrir sig og var heita vatnið komið á um 22:30. I fyrra var lögnin endurnýjuð niður Seleyr- ina á um 1.200 metra kafla en þessir 100 metrar verða endur- nýjaðir samhliða öðmm fram- kvæmdum þar næsta vor. -so Framkvæmdir við Safiiahúsið í Búðardal Um þessar mundir standa yfir miklar ffamkvæmdir á lóð væntan- legs Safhahúss í Búðardal, en það er gamla Kaupfélagshúsið sem stend- ur við höfhina. Búið er að byggja við húsið og byrjað á ffamkvæmd- um innanhúss en áætlað er að þeim verði lokið 1. desember nk. Nú í á- gúst vom framkvæmdir hafnar við lóð hússins og bílaplan og vænta menn þess að umhverfi hússins verði mjög glæsilegt þegar verki lýlcur. Lokið var við malbikun á 3-4 þúsund fermetra bílaplani í liðinni viku. MB UnniS viS jnalbikun bílasuSis viS SafnahúsiS. Einn deildarstjóri æskulýðsmála í Amardal og Hvíta húsinu Einn deildarstjóri er nú við störf að æskulýðsmálum í Amardal og Hvíta húsinu á Akranesi en áður vom deildarstjóramir tveir í einu og hálfu stöðugildi. Bæjarráð Akraness samþykkti þessa breytingu tíma- btrndið í kjölfar þess að Elínborg Halldórsdóttir starfsmaður Hvíta hússins sagði upp störfum nýverið. Heiðrún Janusardóttir sem áður var deildarstóri Arnardals er nú yfir báðum stöðunum og sér um dagskrá beggja húsanna. „Með þessu sparast nokkrir fjármunir og það dregur úr stjómunarkostnaði. Þeir fjárrnumr sem sparast nýtast til æskulýðs- og ffæðslustarfa og ég trúi því að starf- semin muni styrkjast við sameingu þessara tveggja starfa," sagði Helga Gunnarsdóttir sviðsstjóri ffæðslu-, tómstunda- og íþróttasviðs Akranes- kaupstaðar í samtali við Skessuhorn. Amardalur verður áffam rekinn sem félagsmiðstöð fyrir unglinga en í Hvíta húsinu er nú söngskóli, dans- hópur er þar með æfingaaðstöðu, hugsanlegt er að einhverjir klúbbar Nemendafélags FVA komi til með að nýta húsið undir sitt starf og seg- ir Helga húsið opið fyrir alla sem vilja koma þangað inn með nám- skeið eða aðra tengda starfsemi. „Eg vona að sem mest h'f verði í hús- unum í vetur og að allir hafi gaman af,“ sagði Helga að lokum. SO Stefiit á virkara markaðsstarf vegna skemmtiferðaskipa Eitt starsta skip sumarsins liggur hér viS ankeri úti á GrundarfirSi. Ljósm. GK Grundfirðingar stefna á virkara markaðsstarf til þess að laða fleiri skemmtiferðaskip til bæjarins en í sumar komu tíu skip þangað. Þetta kemur ffam í umfjöllun um komur skemmtiferðaskipa til landsins á vef samgönguráðuneytisins. Sigríður Finsen forseti bæjarstjórnar, segir í samtali við vefinn að eftir stækkun á hafnaraðstöðu hafi stærri skip við- dvöl með fleiri farþega. Hún segir þau ýmist dvelja í 4-5 tíma eða daglangt og farþegar komi margir hverjir í land og fari í ferðir um Snæfellsnes. Aðrir gangi um bæinn og nágrennið og segir hún það mjög misjafnt eftir aldri farþega og frá hvaða löndum þeir eru hversu miklum fjármunum þeir kjósa að verja í landi. Tekjur hafiiarinnar vegna þjónustu við skemmtiferðaskipin er um tvær milljónir króna og unnt sé að taka við fleiri skipvun og hafi hafnaryfir- völd einu sinni sótt ferðakaupstefnu á Flórída þar sem saman koma allir þeir sem eitthvað kveður að í þess- um hluta ferðamennskunnar. Segir Sigríður ædunina að taka virkari þátt í markaðsstarfi tíl að laða að fleiri skip. HJ Borgarbyggð fær áheymarfiintrúa í stjóm OR Stjóm Orkuveitu Reykjavíkur ásamt forstjóra fyrirtækisins. Bjöm Bjarki er lengst til Ljósm: Sigfús Már Pe'tursson. hœgri. Nýskipuð stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á sínum fyrsta fundi ósk sveitarstjórnar Borgarbyggðar mn að Borgarbyggð fengi að tilnefha fulltrúa til setu á stjórnarfundum fyrirtækisins með málfrelsi og tillögurétti. Tillagan var upphaflega lögð ffarn á aðalfundi fyrirtækisins fyrir skömmu og var vísað til stjómar til afgreiðslu. Bjöm Bjarki Þorsteinsson forseti sveitar- stjómar Borgarbyggðar verður fyrsti áheyrnarfulltrúi Borgarbyggðar og Finnbogi Rögnvaldsson verður varamaður hans. Borgarbyggð er sem kunnugt hlutahafi í Orkuveitu Reykjavíkur á- samt Reykjavíkurborg og Akranes- kaupstað. Akraneskaupstaður hefur tilnefnt einn stjórnarmann af sex. Bjöm Bjarki segir ákvörðun stjóm- arinnar mikið fagnaðarefrd og und- irstriki það góða og gjölfula samstarf sem sveitarfélögin þrjú hafa átt við rekstur fyrirtækisins. Þess má geta til gamans að ný- kjörinn stjórnarformaður Orkuveit- unnar er Borgnesingurinn Guðlaug- ur Þór Þórðarson, alþingismaður. HJ Umsóknarfirest- ur framlengdur AKRANES: Umsóknarfrestur um stöðu byggingafulltrúa hjá Akraneskaupstað rann út 31. ágúst sl. en hefur nú verið lengdur til 15. september. Að sögn Þorvaldar Vestmann, sviðsstjóra tækni- og umhverf- issviðs hjá Akraneskaupstað virðast auglýsingar um stöðuna hafa algjörlega farið ffarn hjá fólki og því hafi engin umsókn borist. Því hafi verið gripið til þess ráðs að ffamlengja frestinn til 15. september. Nú þegar hefur það borið árangur því nokkrar umsóknir era að sögn Þorvaldar komnar í hús. -so Fjórir undir áhrifum BORGARNES: Lögreglan í Borgarnesi hefur stöðvað þrjá ökumenn grunaða um ölvun við akstur á síðustu dögum. Einn var stöðvaður aðfararnótt laugardags, annar aðfararnótt sunnudags og sá þriðji var stöðvaður aðfararnótt þriðju- dags. Þá var einn ökumaður stöðvaður vegna gruns um akst- ur undir áhrifum lyfja á sunnu- dagskvöldið. Lögreglumenn í Borgarnesi segja akstur undir áhrifum áfengis og lyfja alls ekki bundinn við helgar og ó- trúlegt að fólk skuli taka þá miklu áhættu sem slíkum akstri fylgir. -so VLFA styrkir SÁÁ AKRANES: Stjórn Verkalýðs- félags Akraness hefur ákveðið á styrkja unglingastarf SAA um 100 þúsund krónur. I samþykkt stjórnarinnar kemur ffam að fé- lagið telji sér það skylt að styðja unglingastarfið enda hafi tugir einstaklinga á félagssvæðinu átt um sárt að binda sökum of- neyslu áfengis eða fi'kniefna og notið aðstoðar og hjálpar SAA. -hj Albert í Félags- og skólaþjónustuna SNÆFELLSNES: Albert Ey- mundsson, fyrrverandi bæjar- stjóri og skólastjóri á Horna- firði hefur verið ráðinn for- stöðumaður Félags- og skóla- þjónustu Snæfellinga. Sigþrúð- ur Guðmundsdóttir sem gegnt hefur starfinu ffá stofnun þjón- ustunnar lætur jafnframt af störfum. Sveitarfélögin á Snæ- fellsnesi standa í sameiningu að rekstri Félags- og skólaþjón- ustu Snæfellinga. Hún sinnir félagsþjónusm, barnavernd og þjónusm við leik- og grann- skóla á svæðinu. Albert hefur lengi verið virkur í félagsmálum á ýmsum sviðum meðal annars sveitarstjórnarstiginu og í ung- mennafélags- og íþróttahreyf- ingunni. -mm WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200 sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950. Verð í lausasölu er 400 kr. SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kolbeinn Ó Proppé 659 0860kolbeinn@skessuhorn.is Sigurbjörg Ottesen 868 0179 sibba@skessuhorn.is Augl. og dreifing: Katrín Óskarsd. 616 6642 katrin@skessuhorn.is Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.