Skessuhorn


Skessuhorn - 06.09.2006, Síða 6

Skessuhorn - 06.09.2006, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 2006 SgKSSiiÍHMMSgl Réttir haustið 2006 Nú haustar og sól lækkar á lofti. Margir bændur og aðrir smalar halda þessa dagana á fjöll og til heiða á tveimur jafnfljótum eða á reiðskjótum sínum til smala- mennsku. Hafa reyndar nú þegar fyrstu leitir hafist á nokkrum afrétt- um. Mikið annríki er í vændum hjá sauðfjárbændum á næstu vikum við smalamennsku, fjárrag og við slát- urtíð. Skessuhorn óskar öllum þeim er í smölun halda góðrar ferðar og réttagestum góðrar skemmtunar. Hér er listi yfir réttir á Vestur- landi í haust en Olafur Dýrmunds- son ráðunautur hjá Bændasamtök- um Islands tók listann saman. Fyrir þá sem gaman hafa að bregða sér í stóðréttir birtum við einnig lista yfir stóðréttir sem fram fara á Norðurlandi í haust. SO Meðfýlgjandi mynd erjrájyrstu rétt haustið 2005. Hér er Svanborg á Gillastöðum í Dölum með vœnan dilk í Ljárskógarétt. Ljósm. Sig.Jök. Fjárréttir: Réttir Brekkurétt í Norðurárdal, Mýras. Fellsendarétt í Miðdölum, Dalas. Flekkudalsrétt á Fellsströnd, Dala. Fljótstungurétt í Hvítársíðu, Mýras. Gillastaðarétt í Laxárdal, Dalas. Grímsstaðarétt á Mýrum, Mýras. Hítardalsrétt í Httardal, Mýras. Hólmarétt í Hörðudal, Dalas. Kjósarrétt í Hækingsdal, Kjósars. Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dalas. Ljárskógarétt í Laxárdal, Dalas. Múlarétt í Saurbæ, Dalas. Núparétt í Melasveit, Borgarfj.s. Oddsstaðarétt í Lundarr.dal, B.jj.s. miðvikudag 13. sept. Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borgarf.s. sunnudag 17. sept. Reynisrétt undir Akrafj., Borgarfj.s laugardag 16. sept. Skarðsrétt á Skarðsströnd, Dalas. laugardag 16. sept. Svignaskarðsrétt, Svignask., Mýras. mánudag 18. sept. Skerðingsstaðarétt í Hvamms., Dalas. sunnudag 17. sept. Svarthamarsrétt á Hvaljj.str., B.jj.s sunnudag 10. sept. Dagsetning sunnudag 17. sept. sunnudag 17. sept. augardag 16. sept. laugardag 9. sept. sunnudag 17. sept. þriðjudag 19. sept. mánudag 18. sept. sunnudag 1. okt. sunnudag 17. sept. laugardag 16. sept. laugardag 2. sept. sunnudag 17. sept. sunnudag 10. sept. Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýras. mánudag 18. sept. Stóðréttir: Réttir Dagsetning Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. laugard. 16. sept. kl. 12-13:00 Staðarrétt í Skagafirði. laugard. 16. sept. um kl. 16:00 Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag. sunnud. 17. sept. wm kl. 16:00 Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A.-Hún. sunnud. 24. sept. kl. 13:00 Skrapatungurétt íA.-Hún.sunnud. 17. sept. kl. 8-10:00 Unadalsrétt, Skag. laugard. 7. okt. kl. 13:00 Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. laugard. 30. sept. kl. 13:00 Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugard. 30. sept. um kl. 13:00 Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugard. 7. okt. kl. 10:00 Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit laugard. 7. okt. kl. 11:00 Magmís Þór Hafsteinsson er hér á bryggjunni í Klakksvík við hlið Barsskors. Ljósm. Hilmar Snorrason. Höfrungsmenn nauðlentu í Björgvin Mennirnir, sem á föstudaginn fóru áleiðis til Færeyja til þess að sækja strandferðaskipið Barsskor, áður Höffung AK, voru meðal far- þega í þotu sem nauðlenti á flugvell- inum í Björgvin í Noregi á laugar- dagskvöldið. Lendingin gekk slysa- laust fyrir sig og mennimir komust til Færeyja um nóttina. Eins og sagt var frá í Skessuhorni á dögunum héldu fulltrúar Akranes- kaupstaðar og Faxaflóahafha áleiðis til Færeyja til þess að kanna ástand strandferðaskipsins Barsskor sem Lögþingið í Færeyjum hefur sam- þykkt að selja Akurnesingum fyrir eina krónu. Skipið var smíðað á Akranesi og hét áður Höffungur. Ferðin til Færeyja var ekki tíðinda- laus. Haldið var til Kaupmanna- hafnar þaðan sem taka átti vél til Færeyja. Vegna seinkunar á fluginu til Kaupmannahafnar misstu menn- imir af flugi sínu til Færeyja á fösm- dag. A laugardag var síðan haldið áleiðis til Færeyja með þotu ffá fær- eysku flugfélagi. Magnús Þór Hafsteinsson, al- þingismaður og formaður menning- armála- og safhanefhdar Akraness segir að þegar vélin hafi átt skammt efdr til Færeyja hafi verið tilkynnt að vegna bilunar í vængbörðum vél- arinnar yrði að hætta við lendingu þar sem fhigbrautin væri of stutt því þegar vængbörð virka ekki sem skyldi þarf eingöngu að treysta á bremsur hjólanna og því þarf lengri braut. Haldið var þá áleiðis til Stavanger. Ekki þótti ráðlegt að lenda þar og var að lokum haldið til Björgvin þar sem flugbrautir þar em lengri en í Stavangri. Að sögn Magnúsar Þórs var mikill viðbúnað- ur við lendingu vélarinnar sem tókst giftusamlega. Hann segir farþega í raun ekki hafa gert sér grein fyrir al- varleika málsins fyrr en eftir lend- ingu þegar viðbúnaður slökkvihðs og annars björgunarliðs kom í ljós. Það hafi óneitanlega verið óvenjuleg lífsreynsla að sjá flugstjóra vélarinn- ar koma affur í farþegarýmið á flugi til þess að athuga ástand vængbarð- anna. Onnur þota var send efrir far- þegunum og lenti hún heilu og höldnu í Færeyjum aðfararnótt sunnudags. Af Barsskor er það að frétta að skipið er komið í slipp í Klakksvík og skoðuðu Skagamennimir ástand þess sl. sunnudag. llj Línur að skýrast í framboðsmálum Samfylldngarinnar Anna Kristín Gunnarsdóttir al- þingismaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1.-2. sæti fram- boðslista flokksins við næsm Al- þingiskosningar. I tilkynningu ffá henni kemur fram að ýmislegt bendi til þess að víðast verði próf- kjör af einhverri gerð notað til að ákvarða skipan á ffamboðslistum Samfylkingarinnar. Hún segist von- ast til þess að reynsla sú og þekking sem hún hefur aflað sér á mönnum og málefhum síns víðfema kjör- dæmis geti komið að góðum notum „í stjórnartíð Samfylkingarinnar á næsta kjörtímabili“ eins og segir orðrétt í tilkynningu hennar. Þá segir að Samfylkingin sé flokkur jöfnuðar, samábyrgðar og frelsis til athafha sem eigi erindi við kjósendur í Norðvesturkjördæmi „sem lengi hefur búið við vanrækslu og skeytingarleysi stjórnvalda.“ Anna Kristín tók annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðvest- urkjördæmi við síðustu kosningar og náði kosningu ásamt Jóhanni Arsælssyni sem leiddi listann. I samtali við Skessuhom sagði Anna Kristín að ekki mætti líta á framboð sitt sem vantraust á störf Jóhanns, enda lægi ekki fyrir hvort hann gæfi kost á sér til áframhaldandi forystu á framboðslistanum. Gerði hann það, myndi hún styðja hann til þess. Nokkur hreyfing virðist vera komin á framboðsmál Samfylking- arinnar í Norðvesturkjördæmi. Búist er við að kjördæmisþing flokksins verði haldið um miðjan september og þar verður væntan- lega tekin ákvörðun um tilhögun uppstillingar. Nokkrir hugsanlegir frambjóðendur á Vesturlandi hafa verið nefndir til sögunnar. Guð- bjartur Hannesson skólastjóri á Akranesi sagðist í samtali við Skessuhorn fyrir skömmu ekki úti- loka möguleika á framboði. Einnig hefur Hólmfríðar Sveinsdóttur verkefnisstjóra við Viðskiptahá- skólann á Bifröst verið nefnd. Þá er ógetið Jóhanns Arsælssonar alþingismanns sem verið hefur þingmaður Norðvesturkjördæmis og áður Vesturlandskjördæmis á ár- unum 1991-1995 og frá 1999. í samtali við Skessuhorn sagðist Jóhann að hann muni tilkynna flokkssystkinum sínum sínar fyrir- ætlanir á kjördæmisþingi Samfylk- ingarinnar sem haldið verður á Isa- firði 16. september nk. HJ PISTILL GISLA Smalaþurrð Nú er runninn upp sá tími ársins sem flestum hugsandi mönnum, og jafnvel kon- um, er kærastur. Tíminn þegar sauðfé er smalað af fjalli, það skotið, flegið og étið. Þetta er yndislegur tími svo ekki sé meira sagt. Samkvæmt mínum upp- lýsingum hófust réttahöld í einstökum sveitum um síðustu helgi og framundan er stanslaus gleði þar sem dilkar eru dregnir í dilka. Síðan er drukkið, svo sung- ið, þá drukkið meira og féð síðan sett upp á litla kerru sem hengd er aftan í stóran traktor og ekið heim. Undanfari rétta er víðast hvar göngur eða leitir. Allt eftir því hvar á landinu við- komandi fé og smalar eru niðurkomnir. Verknaðurinn er engu að síður yfirleitt sá sami. I þessum pistli hefur verið ákveðið að notast við heitið göngur án þess að á bak við það liggi neinar ákveðnar röksemdir. Fátt veit ég unaðslegra en að hlaupa út um holt og móa og hóa hátt og snjallt og hvellt. Baða út öllum öngum í öngum sínum og beita öllum löglegum brögðum til að beina fénu í réttan farveg. Setjast síðan niður á næstu þúfu með mal sinn, éta ket og sötra viðeig- andi drykk, allt eftir smekk hvers og eins. Lífið verður ekki öllu dásamlegra. Það vita þeir sem reynt hafa og þeir sem ekki hafa reynt, þeir hafa ekki lifað. I stuttu máli þá er fátt ákjósanlegra til að fá útrás fyrir sína hreyfiþörf. Það er að segja fyrir þá sem hafa slíka þörf á annað borð. Eg fæ þess vegna trauðla skilið að í seinni tíð skuli það vera orðið vandamál að fá fólk til að sinna smalamennskum. Bændur eru vissulega orðn- ir fámennir og margir fót- fúnir auk þess sem húskarlar og griðkonur eru í seinni tíð sjaldgæfur munaður til sveita. A hinn bóginn hefði ég haldið að þetta væri kær- komið tækifæri fyrir alla þá sem ekki á annað borð eru þokkalega gangfærir og geta komið upp hljóði. Eg er í raun undrandi á því að ekki séu langir biðlistar eftir því að komast í göngur. Fólk æðir upp á fjöll allt sumarið án þess að það þjóni nokkrum tilgangi. Sömu fjöll og þarf síðan að smala skömmu síðar. Sjö þúsund manns hlupu í svokölluðu Reykjavíkurmaraþoni án þess að það þjónaði neinum sérstökum tilgangi. Kannski þarf að auglýsa sauðamara- þon Sparisjóðsins til þess að hægt sé að manna göngur. Gísli Einarsson, smali.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.