Skessuhorn


Skessuhorn - 06.09.2006, Page 8

Skessuhorn - 06.09.2006, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 2006 ■.KVIIIIi... 3 Heitdr hér eftir Háskólinn á Biíröst HÁSKÓLINN Á BIFRÖST BIFRÖST UNIVERSITY Viðskiptaháskólinn á Bifröst var settur síðastliðinn sunnudag. Mikl- ar breytingar voru kynntar á starfi og skipulagi skólans, sú stærsta að skólinn skiptir um nafn, heitir nú Háskólinn á Bifröst. Með þessu er skólinn ekki lengur hefðbundinn sérskóli á háskólastigi með áherslu á viðskiptagreinar heldur háskóli sem býður upp á fjölbreytt nám. Skóhnn mun hér eftir heita Bifröst University á ensku. Rúmlega 700 nemendur stunda nú nám við skól- ann í þremur háskóladeildum; við- skipta,- félagsvísinda- og lögffæði- deild og að auki við frumgreina- deild, sem er undirbúningur undir háskólanám. Þetta er í 89. sinn sem skólinn er settur, en hann var stofn- aður árið 1918 sem Samvinnuskól- inn í Reykjavík, varð Samvinnu- skólinn á Bifröst árið 1955, Sam- vinnuháskólinn á Bifröst árið 1988, Viðskiptaháskólinn á Bifröst árið 2000 og nú Háskólinn á Bifröst. Nokkrar breytingar hafi orðið undanfarið á skipulagi skólans, sem að hluta hafa áður verið kynntar í Skessuhomi. Tvær stöður; ffarn- kvæmdastjóri Viðskiptaháskólans og framkvæmdastjóri nemenda- garða, vora lagðar niður. Þeirra í stað voru stofnaðar fjórar nýjar stöður sviðsstjóra; sviðsstjóri kennslu, sem Steinunn Eva Björns- dóttir gegnir, sviðsstjóri þjónustu sem Geirlaug Jóhannsdóttir gegnir, sviðsstjóri hús- næðis sem Guð- rún Arnadóttir gegnir og Einar Sigurjón Valde- marsson er nýr sviðsstjóri fjár- mála. Miklar hrær- ingar hafa orðið í mannahaldi á Bifröst tmdanfamar vikur. Þann 24. ágúst lét Bernard Þór Bernhardsson af starfi deildar- stjóra viðskiptadeildar, en þeirri stöðu hafði hann gegnt í rúmt ár. Við tók Magnús Ami Magnússon aðstoðarrektor. Seta hans í deildar- forsetastóli var hins vegar skömm. Síðastliðinn miðvikudag sagði hann starfi sínu á Bifröst lausu þar sem hann hefur að sögn fengið spenn- andi atvinnutilboð. I stað Magnús- ar Árna hefur Bryndís Hlöðvers- dóttdr nú verið ráðin aðstoðarrekt- or skólans. Bryndís hefur gegnt stöðu forseta lagadeildar á Bifföst ffá því í ágúst á síðasta ári en þá lét hún af þingmennsku fyrir Samfylk- inguna. Þá hefúr Bárður Om Gunnars- son, markaðsstjóri einnig látið af störfúm, auk þess sem fyrrgreindar framkvæmdastjórastöður voru lagðar niður og þeir Stefán Kalm- ansson og Þórir Páll Guðjónsson sem þeim gegndu hafa snúið til annarra starfa innan skólans. Á fundi stjórnar skólans sh fimmudag vora samþykktar breyt- ingar á reglugerð sem ná yfir sam- þykktir skólans um ráðningarferli og ráðningartíma rektors. Var þar samþykkt að veita stjórninni beina heimild til að ráða rektor og semja við hann og reglur um ráðningar- ferli vora felldar niður. Stjórnin nýtti sér það strax og framlengdi samning við Runólf Ágústsson rektor um eitt ár, eða til 1. ágúst 2008. Guðjón Auðunsson, formaður stjórnar skólans, sagði aðspurður í samtali við Skessuhorn að þegar fyrir lá að aðstoðarrektor myndi láta af störfum hafi ekki annað komið til greina en að framlengja samning Runólfs. Ótækt væri að missa tvo æðstu sjórnendurna á sama árinu. Guðjón segir að Há- skólinn á Bifföst sé ekki opinber menntastofnun heldur þekkingar- fyrirtæki og verði að lúta sömu lög- málum og fyrirtæki á markaði. -KÓP Opið hús hjá MS í Búðardal Síðasthðinn laugardag var opið hús hjá mjólkurstöðinni í Búðardal. Mjólkurframleiðendum, íbúum svæðisins, starfsmönnum MS um allt land og fjölskyldum þeirra gafst þar kostur á að kynna sér starfsemi fyrirtækisins frá klukkan 12-16. Skoðunar- og kynnisferðir vora farnar undir leiðsögn og fram- leiðsluvörar kynntar. Að því loknu vora bornar ffam veitdngar þar sem Gunnar Björnsson kokkur ásamt starfsldði grillaði ofan í mannskapinn af sinni alkunnu snilld. Lambakjöt úr héraði var á boðstólum ásamt sós- um úr sýrðum rjóma og Feta osti á salatið, en Fetaostur er sem kunnugt er meðal ffamleiðsluvaranna í Búð- ardal. I eftirrétt var síðan boðið upp á ljúffenga skyrtertu. Utandyra gám Ungir sem aldnir létu þetta tœkifieri ekkifram hjá sérfara og mœttu á opna húsið. yngri gestir skemmt sér í tveimur hoppikastölum en innandyra var and- litsmálning í boði á- samt svaladrykkj- um. Þar með gátu foreldrar notið þess í rólegheitum að rölta um hina fjöl- mörgu sali fyrirtæk- isins. Höfðu margir gesta á orði að stærð, umfang og fjölbreytni fram- leiðslunnar kæmu sér veralega á óvart. Við brottför vora gestir leystdr út með myndarlegum gjöfum. Fuhorðna fólldð fékk bak- poka með alls kyns góðgæti og bömin fengu boli með auð- kennisstöfum MS. Sigurður Rúnar Friðjónsson, mjólk- urbússtjóri var að vonum ánægður með aðsóknina enda komu á fjórða hund- rað manns, sem er að sögn Siguðar Rúnars mjög gott miðað við stuttan fyrirvara. I samtali Ostar, jógúrtdrykkir og margtfleira góðmeti var í boðijýrir gesti. við fféttaritara Skessuhoms sagði hann meðal annars: „Það er gaman að gefa starfsmönnum hinna mjólk- urstöðvanna möguleika á að koma og kynna sér starfssemina hér. Við leggjum metnað okkar í að vera með stöðuga vöraþróxm og kappkostum að bjóða neytendum ávalt uppá fjöl- breytta gæðavöra. Á sama hátt var gaman að fá heimamenn í heimsókn hingað til okkar, en MS er stærsti at- vinnurekandinn í sveitarfélaginu með um 50 ársverk og því gríðarlega mikilvægt fyrirtæki fyrir Dalabyggð alla.“ Gróa Dal Ljósm. Bjtim A Einarsson. Tvö tilboð bárust í sorphirðu á SnæfeUsnesi Tvö tilboð bárast í sorphirðu og rekstur gámasvæðis á Snæfellsnesi en tilboð vora opnuð hjá Ríkis- kaupum í síðustu viku. Annars veg- ar barst tilboð frá Islenska gámafé- laginu ehf. og hins vegar frá Gáma- þjónustu Vesturlands ehf. Sam- kvæmt upplýsingum frá Ríkiskaup- um þarf að umreikna tilboðin og því liggur ekki ljóst fyrir tun hvort tilboðið er hagstæðara fyrr en eftir nokkra daga. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni bauð Ríkiskaup verkið út fyrir hönd Grundarfjarðarbæjar, Stykkishólmsbæjar, Snæfellsbæjar, Eyja- og Miklaholtshrepps og er þetta í fyrsta skipti sem sveitarfé- lögin bjóða sorphirðuna út sameig- inlega. Fram að þessu hafa sveitar- félögin hvert í sínu lagi sinnt sorp- hirðunni og til dæmis hefur Stykk- ishólmsbær verið með samning við Islenska gámafélagið ehf. um sorp- hirðu sem rennur hann út 1. maí 2007. Oll áðurnefnd sveitarfélög, ásamt öðram sveitafélögum á Vesturlandi, era eigendur að Sorpurðun Vestur- lands hf. sem sér um móttöku, urð- tm og förgun sorps. Félagið á jörð- ina Fíflholt á Mýram þar sem rek- inn er urðunarstaður. Þangað er flutt allt sorp frá sveitarfélögunum sem heimilt er að urða. HJ Mildl fækkun smábáta / X £* 1 • X* ' • a nyJionu nskveiðian Frá Stykkishólmshöfn. Símon M. Sturluson, for- maður Snæfells; félags smá- bátaeigenda á Snæfellsnesi, segir að miklar breytingar hafi orðið í útgerð á nýaf- stöðnu fiskveiðiári, hand- færabátar séu að leggjast af og megnið af kvótanum sé komið á stóra línubáta. Þeir séu ekki eins bundnir heimahöfn og minni bát- arnir og geti farið hvert á land sem er, enda komnir markaðir víðast hvar. Á Snæfellsnesi hefur smábátum fækkað úr 140 árið 2004 í 117 í ár. Það er því mikil samþjöppun á veiðiheimildum. „Þetta er ekki nógu góð þróun. Þetta var svo mikið basl síðustu tvö árin að margir gáfúst upp, þar á meðal ég,“ segir Símon, en hann er hættur í útgerð og far- inn að vinna sem verktaki. Af því tilefúi mun hann láta af starfi sem formaður Snæfells á næsta aðal- fundi sem verður haldinn í lok september eða byrjtm október. Símon segir hins vegar að árið í ár hafi verið mjög gott. „Verðið var allt annað og betra en í fyrra, allt að því 40% hærra núna. Gengismálin hafa þar áhrif en svo er að verða æ meiri effirspurn effir fiski veiddum á vistvænan hátt. Kaupendur gera kröfu um að fá besta fiskinn og hann kemur klárlega frá smábátun- um. Menn era því bjartsýnir núna og loksins famir að sjá ljósið.“ Símon segir að allur kvóti hafi veiðst og vel það og bendir á þá staðreynd að krókabátar hafi veitt mun meira af ýsu nú en í fyrra. Krókabátarnir veiddu sem svarar til 23% af heildaraflanum í ýsu eða 22.146 tonn, en veiddu í fyrra 15.944 tonn af ýsu. Úthlutaðar fiskveiðiheimildir á árinu samsvör- uðu 15% af heildarafla og því er ljóst að mikill tilflutningur hefur átt sér stað á aflaheimildum úr afla- markskerfinu. -KÓP Undirbúningur byggingar vatnsverk- smiðju í Rifi gengur vel Undirbúningur byggingar vatns- verksmiðju sem fyrirtækið Icelandia hyggst reisa í Rifi á Snæ- fellsnesi gengur vel að því er kem- ur fram á vef Snæfellsbæjar. Fram kemur að verið er að leggja loka- hönd á samninga um kaup á tækj- um í verksmiðjuna og fyrstu teikn- ingar era tilbúnar að verksmiðju- húsi og skrifstofubyggingu. Þá er komið tilboð er komið gerð vatns- veitu sem sjá á verksmiðjunni fyrir nægilegu vatni. Icelandia hefúr borist tilboð frá sjö aðilum sem áhuga hafa á að smíða og reisa verksmiðjuhúsið í Rifi og í lok september verður val- ið úr þeim hópi. Áætlanir gera ráð fyrir að bygging verksmiðjuhússins hefjist fyrir áramót og uppsetning véla verksmiðjunnar hefjist sumar- ið 2007. Um þessar mundir starfa sautján manns hjá Icelandia við undirbún- ing vatnsátöppunarverksmiðjunnar og af þeim era fjórir á Islandi, tveir í Englandi og níu í Bandaríkjunum og Kanada. Af þessum fjölda era fjórir sem starfa að hönnunar- og kynningarmálum. Að auki era svo nokkrir sjálfstæðir verktakar í sér- verkefúum. Fjármögnun verkefnisins hefur gengið vel að því er kemur fram á vefúum og er fjármögnun á undir- búningsverkefúinu á lokastigi. Fjármögntm á byggingu verksmiðj- unnar og markaðssetningu afurða hennar gengur einnig vel og er nú í gangi vinna með fjárfestingabanka við áreiðanleikakönnun fyrir fjár- festa sem gefið hafa vilyrði fyrir því fjármagni sem til þarf. Forsvars- menn Icelandia gera ráð fyrir að vinnu við fjármögnun ljúki á næstu 1-2 mánuðum. HJ Magnús göngugarpur Síðasta ganga UMSB á þessu sumri í verkefúinu „Fjölskyldan á fjallið" var farin á Lida Skarðsljall í hðinni viku. Þar var Magnús Guð- bjamarson útnefúdur göngugarpur UMSB. Hann hefur gengið hvert fjallið á fætur öðra í sumar og farið í allar ferðir UMSB. I þessu verkefúi á aðeins effir að fara og sækja gesta- bókina sem komið var fyrir á Hraunsnefsöxl fyrr í sumar og verð- ur sú ferð kynnt sérstaklega. ES

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.