Skessuhorn - 06.09.2006, Page 13
^»issaUHOBSI
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 2006
13
A kosningaferSalagi í Olafsvík vorid 1987. Sigurður Þorsteinsson (Diddi í Efstabæ),
Skúli og Gunnlaugur Haraldsson sem skipaði annað sæti framboðslistans.
umræða skapaði gjá milli flokka og
nú er sú umræða horfin. Aðalástæð-
an fyrir flokkakerfinu á vinstri
vængnum núna er foringjaafbrýðis-
semi. Það er hlutur sem lagast von-
andi með árunum.“
Það er nú áherslumunur í um-
hverfismálum á milli Samfylkingar-
innar og Vinstri-grænna ekki satt?
„Eg veit það nú ekki. Helsta
vandamál Samfylkingarinnar er af-
staða Neskaupstaðarvaldsins sem
lamaði Samfylkinguna í þeim mála-
flokki. Þar gerðist það sama og í
kvótamálunum. Halldór Asgríms-
son og Neskaupstaðarvaldið í Sam-
fylkingimni plataði Kárahnjúka-
virkjtm inn á þjóðina. Eg var ekki á
móti álveri í Reyðarfirði. Virkjrmin
var hins vegar illa rmdirbúin því
menn voru komnir í svo erfiða stöðu
gagnvart íbúum Austfjarða. Eg er
sannfærður um að slík virkjun verð-
ur aldrei byggð aftur. Hvort sem
þaðan kemur rafmagn eða ekki. Við
þurfum að opna okkar náttúruperlur
þannig að almenningur geti notið
þeirra. Það verður ekki gert með
virkjunum eins og við Kárahnjúka."
Ingibjörg og
Moggalygin
Að Samfylkingunni. Nú gengur
forystu hennar erfiðlega að höfða til
þjóðarinnar ef marka má skoðana-
kannanir?
„Það er Moggalygi. Flokkurinn er
30% flokkur og sá stjómmálaflokk-
ur sem á mesta vaxtarmöguleika
hérlendis vegna þess mikla fjölda af
ungu fólki sem gengið hefur til liðs
við flokkinn. Flokksmenn þurfa
auðvitað að bæta sig og að stærstum
hluta er það baráttuandinn í kring-
um kosningar sem má bæta. Fólk
þarf að taka baráttuandann sem var í
kringum Alþýðubandalagið sér til
fyrirmyndar. Við verðum líka að
læra að stjóma umræðunni sjálf en
láta ekki andstæðinginn stjórna
henni. Ingibjörg Sólrún er lang-
sterkasti leiðtogi Samfylkingarinnar
og því ekld að undra að Sjálfstæðis-
flokkurinn og Morgunblaðið skuli
berjast gegn henni af öllu afli.“
Snæfellingar og
Dalamenn sameinist
Nú hefur landsbyggðin siglt
nokkum ólgusjó. Hvemig lýst þér á
stöðu byggðar á Snæfellsnesi í ffam-
tíðinni?
„Snæfellsnesið býr yfir góðum
möguleikum í framtíðinni enda býr
hér gott fólk, Við eram hinsvegar
óþarflega veik því okkur hefur ekki
lukkast að sameina krafta okkar. Við
Rifárið 1985.
höfum unnið hvert í sínu homi.
Forystumenn okkar bára ekki gæfu
til þess að leiða okkur irm í samein-
ingu sveitarfélaga í fyrra. Það gerðu
Borgfirðingar enda verða þeir sterk-
ari með hverjum deginum. Maður
finnur hvarvetna fyrir þeim. Borgar-
fjörðurinn er eins og ávöxtur sem
stækkar og stækkar. Sjáðu há-
skólaumhverfið og fleira sem þar er
að gerast. Vð sitjum áffam í gömlu
litlu holunum. Það er það hættuleg-
asta í okkar byggðamálum. Vð
verðum að læra af Borgfirðingum.
Að mínu mati eiga Snæfellingar og
Dalamenn að sameinast. Við þurf-
um veg inn Skógarströnd og veg yfir
Alftarfjörð. Stærra sveitarfélag gemr
orðið mjög sterkt. Þá er ég ekki að
segja að allt eigi að vera á einum
stað. Þvert á móti. Með stærra sveit-
arfélagi verða til stærri stofhanir sem
hægt er að staðsetja vítt trm sveitar-
félagið án þess að það komi niður á
starfsemi þeirra. Stjómkerfið þarf
ekki allt að vera á sömu þúfunni. Það
er mikill misskilningur.11
Drógu forystumenn ykkar þá
lappimar í sameiningarumræðunni?
„Nei það gerðu þeir ekki. Þeir
komust ekki til þess því þeir sátu
bara á sínum rassi og gerðu ekki
neitt. Enginn mælti þó gegn sam-
einingu en óbeint gerðu þeir það
með þögninni. Þeir drógu sig í hlé
og það þýddi bara eitt. Þeir vora á
móti þessu en þorðu ekki að gera
það opinbert.“
Nú em sameiningarkosningar ný-
afstaðnar. Þýðir nokkuð að fara í
slíkar kosningar á næstu ámm?
,Jú við verðum að gera það sem
allra fyrst. Það er lífsnauðsynlegt
fyrir byggðirnar hér að þessi um-
ræða fari ffam sem allra fyrst.“
Skúli Alexandersson er ekki af
baki dottinn. Hefur ennþá skýrar
skoðanir og er ekki feiminn við að
viðra þær. Stundum er sagt að með
aldrinum verði menn íhaldssamari.
Ef svo er þá er Skúli ennþá ungling-
ur. Hann segist hraustur til heils-
unnar enda hafi hann hugsað vel um
skrokkinn. Því megi menn ekki
gleyma þó þeir virmi langan vinnu-
dag.
Skúli og hans ágæta kona til rúm-
lega fimmtíu ára, Hrefha Magnús-
dóttdr, verða ekki heima á afmælis-
daginn. Þau hafa nú þegar fagnað
tímamótunum með afkomendum
sínum. Skúli ætlaði reyndar að klífa
fjallið Glissu á Ströndum en fylgdar-
menn helmst úr lestinni. Fjallið bíð-
ur. Ekkert fararsrúð á því frekar en
Skúla.
HJ
Af andlegri áraun smalamanna
Á síðasta fundi byggðaráðs Borg-
arbyggðar var lagt fram bréf ffá
Jóni Gíslasyni bónda á Lundi í
Lundarreykjadal varðandi afréttar-
girðingu á Lundartungu. Jón vekur
þar athygli á því að girðing neðst á
Lundartungu, ffá Oddsstaðagirð-
ingu að svonefndum Drangi við
Flóku, sem girt hafi verið til varnar
ágangi fjár ffá afrétti í heimalönd
Ltmdar og Gullberastaða, sé farin
að láta á sjá. Girðinguna kostaði
Borgarfjarðarsveit að fjórum
fimmtu og ábúendur á Gullbera-
stöðum að einum fimmta, en eng-
inn samningur var gerður um við-
hald hennar og var hún aldrei full-
frágengin. Vonast bréfritari til þess
að yfirvöld sveitarfélagsins komi
girðingunni sem fyrst í boðlegt á-
stand, svo hún geti gegnt hlutverki
sínu sem best. Skessuhorn gemr
ekki á sér setið að birta hluta bréfs-
ins, enda leitun að skemmtilegri
framsetningu slíks erindis.
„Eg tel mig ekki vera grassáran
mann og get alveg umborið talsvert
af ókunnu fé í mínum högum þess
vegna. Mér þykir hinsvegar lakara
að fé því sem af afréttinum kemur
virðist afskapalega óljúft að renna í
þá átt sem við ætlum því við smala-
mennskur, sem veldur smölum
bæði andlegri og líkamlegri áraun.
Því verður að vísu ekki á móti mælt
að þessi afstaða fjárins er skiljanleg
í ljósi þess að það á flest sveitfesti í
Bæjarsveit. (Með þessu er ég alls
ekki að gera lítið úr þeim sem í
Bæjarsveit búa, eðlilega finnst fénu
stefnt í vitlausa átt þegar við reyn-
um að þvæla því suður yfir Lundar-
háls og síðan í ausmrátt.)
Eg eldist með hverju árinu sem
líður og verð að sama skapi stirðari
jafnt til hlaupa sem skapsmuna.
Erfiðar smalanir á fé sem ég er á
engan hátt vandabundinn fara því æ
ver með mig líkamlega, og jafnvel
spilla mínu jafnaðargeði.“
Skemmtilegt verk bíður Páls
Brynjarssonar, sveitarstjóra Borgar-
byggðar, en honum var af bæjarráði
falið að svara bréfritara. -KOP
STARFSFÓLK
ÓSKAST!
Óskum eftir að ráða
starfsfólk
í framtíðarstörf
og hlutastörf
við Kjötafurðastööina
í Búðardal.
Þarf aó geta
hafið störf strax.
Upplýsingar gefur forstöðumaður
Kjötafurðastöðvar KS,
Ágúst Andrésson í síma 455 4580
gusti@ks.is
Gengur þú til góðs?
RKÍ Borgarfjarðardeild óskar eftir sjálfboðaliðum
í Landssöfnun Rauða krossins, „Göngum til góðs",
laugardaginn 9. september. Gangan hefst kl. 11:00.
Skráning sjálfboðaliða fer fram í síma 663 3919,
Krístín eða 898 7508, Hafdís. Einnig er hægt að
senda tölvupóst á netfangið krístine@grunnborg.is.
I Nánarí upplýsingar um söfnunina er að finna á
! heimasíðu Rauða kross íslands, www.redcross.is .
I Við hveljum þig til að leggja góðu máli lið og ganga
með okkur til góðs á komandi laugardegi.
Stjórn RKÍ Borgarfjarðardeild.
Nú getur þú deiit uppskriftum
þínum með fjölskyidu og vinum!
Vertu velkomin/n á www.Matseld.is,
ókeypis uppskriftabanka fyrir þig og þína!