Skessuhorn


Skessuhorn - 06.09.2006, Side 14

Skessuhorn - 06.09.2006, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 2006 Ekið á Nettó AKRANES: A sunnudag missti ökumaður bifreiðar stjóm á henni með þeim afleiðingum að hún hafnaði á trévegg við inn- gang verslunarinnar Nettó á Akranesi. Þrátt fyrir að biffeiðin væri ekki á mikilli ferð, gaf vegg- urinn sig. Fyrir innan sátu þrjár imgar stúlkur og seldu tombólu- vörur. Fengu þær á sig högg og kenndu eymsla. Skoðun á sjúkra- húsi leiddi þó í ljós að þær sluppu án teljandi meiðsla. Okumann- inn sakaði heldur ekki. -so Reiðhjólaþjófar um helgar AKRANES: Töluvert hefur ver- ið vun að reiðhjólum hafi verið stohð á Akranesi tmdanfarið. A síðustu tveimur vikum hafa lög- reglunni á Akranesi borist til- kynningar um sex reiðhjóla- þjófoaði. Lögreglan hvetur reið- hjólaeigendur tdl að læsa hjólum sínum þegar þau em skilin efdr. Flestum reiðhjólum er stolið um helgar en þó em dæmi um að þeim hafi verið stohð um há- bjartan dag í miðri viku. I tilfell- um slíkra þjófaaða um helgar leiðir lögreglan að því líkum að í einhverjum tilfella sé um að ræða vegfarendur sem era að fara á milli staða efitír næturslark og grípi þá til handargagns ólæst hjól til að flýta för sinni. -so Þrjú fíkni- efhamál sama kvöldið AKRANES: Síðastliðna helgi var talsverður eriU hjá lögregl- unni á Akranesi. Þrjú fikniefaa- mál komu upp síðastUðið föstu- dagskvöld í tengslum við dans- leik sem haldinn var í bænum. I öUum málimunum var um am- fetamín að ræða og að sögn þeirra sem handteknir vora var efiúð ætlað til eigin neyslu. OU- um var sleppt að loknum yfir- heyrslum. Það er áhyggjuefiú að tveir þeirra sem handteknir vora era yngri en átján ára en báðir þó sakhæfir, það er eldri en 15 ára. Mál þessara tveggja einstaklinga verða send barnavemdaryfir- völdum til meðferðar auk þess sem þeir mega búast við viður- lögum vegna brota á fíkniefaa- löggjöfiruú. -so Leikskólinn Garðasel fimmtán ára Síðastliðinn föstudag, 1. sept- ember voru fimmtán ár síðan Heilsuleikskólinn Garðasel tók til starfa. Eins og við hæfi er á slíkum tímamótum klæddu krakkarnir sig upp, settu upp kórónur og marser- uðu í skrúðgöngu undir íslenska fánanum syngjandi og trallandi. Ferðinni var haldið niður á íþróttasvæði þar sem ætlunin var að skemmta sér í tilefni dagsins. Að því loknu halda krakkarnir heim og vegna góða veðursins munu þau fá sér hressingu úti við. KÓP Nýr svæðisfulltrúi RKI áVesturlandi Jóhanna Ólafsdóttir hefar tekið við af Sveini Kristinssyni sem svæðisfalltrúi Rauða kross Islands á Vesturlandi. Jóhanna er mennt- aður hjúkranarfræðingur og starf- aði áður á sjúkrahúsinu á Akranesi. Hún sagði í samtali við Skessu- horn að sér litist vel á nýja starfið. „Annars er ég bara rétt að koma mér inn í þetta, ég tók bara við nú í ágúst,“ segir hún. Jóhanna segir að starfið sé spennandi og hún hafi í raun kastað sér beint út í djúpu laugina, en ffamundan er verkefn- ið Göngum til góðs. „Annars hef- ur Sveinn verið mjög duglegur við að aðstoða mig sem og allir hér. Það er frábært starfsfólk hérna og ég veit að þetta á eftir að ganga vel. Það tekur alltaf smátíma að átta sig á hlutunum en þetta er fjölbreytt og spermandi starf,“ seg- ir Jóhanna að lokum. KÓP Bílastæðamál við leikskól- ann Garðasel skýrast Um aUlangt skeið hefur verið vandamál með bílastæði við leik- skólann Garðasel á Akranesi. Að jafaaði era um 23-25 starfsmenn við leikskólann og ríflega 100 böm koma og fara daglega. For- svarsmenn skólans gera ráð fyrir að bflar aki inn og út af stæðinu um 470 sinnum yfir daginn. A bflastæðinu er pláss fyrir 16 bfla. A fundi skipulags- og umhverfis- nefadar þann 28. aprfl árið 2003 voru hugmyndir tækni- og um- hverfissviðs um úrbætur á bfla- stæðamálum við leikskólann samþykktar. Fólust þær í því að stækka bflastæðið út á grasflöt norðvestan við núverandi stæði. Þorvaldur Vestmann, sviðs- stjóri tækni- og umhverfissviðs bæjarins segir að verldð hafi ver- ið á verkefaalista fyrir fjárhagsá- ætlunargerð en lent undir hnífa- um. I vor var ákveðið að fara í framkvæmdir við bílastæðið í tengslum við stækkun og fjölgun vistunarrýma í GarðaseH. Þor- valdur segir að verið sé að leita að verktaka í verkefhið og vonast til þess að það skýrist nú í vikunni. Það hyllir því undir að löngum ferh þessa máls innan bæjarkerf- isins sé að ljúka. KÓP Allir komu þeir aítur og engiim þeirra... Það er eitthvað við það að klæða sig í gaHa og björgunarvesti og setja upp hjálm sem vekur upp krakkann í manni. Kannski er það upprifjun einhverrar æskuminningar við höfa- ina, kannski er það bara sú vissa að ævintýri er fyrir höndum, eitthvað sem brýtur upp hversdaginn. Þessu fékk blaðamaður Skessuhoms að kynnast þegar honum var boðið í ferð með Björgunarfélagi Akraness út í Þormóðssker sem er um 16 kfló- metra norðvestur af Akranesi. Til- gangur fararinnar var að koma gestabók fyrir í vitanum sem og að kynna starfsemi félagsins fyrir ráða- mönnum í Hvalfjarðarsveit. Það vora fjórir björgunarsveitar- menn og fjórir gestir sem lögðu úr höfa á Akranesi á sjötta tímanum síðastliðinn fimmtudag. Gestimir vora Einar Öm Thorlacius, sveitar- stjóri Hvalfjarðarsveitar, Hlynur Sigurbjömsson, varaodd- viti sömu sveitar, Svan- borg Frostadóttir, úti- bússtjóri KB-banka á Akranesi og undirritaður. Safaast var saman í húsi Björgunarfélagsins þar sem allir fóra í þurrgaHa, að vísu aHir nema blaða- maður, en vegna reynslu sinnar af sjómennsku taldi hann kraftgalla nægja. Það átti efitír að reynast röng ákvörðun svo ekki sé meira sagt. Það var efirirvænting yfir mannskapnum þegar safaast var saman niður Hópurinn saddur og sæll í sólinni við vitann. við bryggju og farkostur- inn barinn augum; Margrét Guð- brandsdóttir bátur með konxmglegu innsigli enda smíðaður af Royal National Lifeboat Institution í Bret- landi. Brottförin vakti nokkra at- hygH viðstaddra, enda viðbúnaður- inn slíkur að ekki var útlit fyrir ann- að en að um stórútkall væri að ræða. Skátastarf 2006 Nú er skátastarfið að hefjast og eru allir velkomnir. Fundir eru einu sinni í viku og eru þeir haldnir í Skátahúsinu við Háholt. Félagsgjaldið í vetur er 7000 kr og er hægt að nota tómstundaávísun Akraneskaupstaðar upp í greiðslu Fundirnir verða fyrír börn fædd 1997 á fimmtudögum kl 17:00 1996 á þríðjudögum kl 17:00 1995 á mánudögum kl 17:45 -19:15 1994 og 1993 á miðvikudögum kl 16:00 Skátastarf er þroskandi og skemmtilegt. Ilmur sveitanna Veður var faUegt þennan dag, sól- in skein og sjórinn var stillur - í það minnsta á meðan sjóvamargarða við höfiúna naut við. Það breyttist fljót- lega þegar komið var út á Faxaflóa og gaf þá hressilega yfir bátinn, enda töluverður mótvindur. Ferðin út í Þormóðssker var tíðindalítil. Reyndar barst torkennilegur ilmur, flestir myndu kalla það fýlu, fyrir vit ferðalanganna þegar komið var um þrjár og hálfa sjómflu út fyrir höfa- ina og var þá hægt að staðsetja bát- inn úti fyrir svínabúinu að Melum í Melasveit. Það var nokkuð sérkenni- legt að verða svo áþreifanlega var við landbúnaðinn úti á miðjum flóa. Ferðin út í sker tók lengri tíma en áætlað var. Skýrðist það bæði af mótvindi sem og því að ákveðið var að keyra ekki alveg á fallu með gest- ina. Varðskipið Ægir lónaði út við sjóndeildarhringinn í einhverjum óþekktum erindagjörðum. Vitinn í Þormóðsskeri blasti hinsvegar við framtmdan og varð stærri og stærri efirir því sem við nálguðumst. Hann var byggður 1941-1942 úr stein- steypu og tekinn í notkun árið 1947. Þegar á áfangastað kom var farinn hringur um skerið til að finna hent- ugan lendingarstað. Það tókst með ágætum og gestir gengu á land eins og eftir manngerðum stiga. Skjöldur á röngum stað I vitanum í Þormóðsskeri hangir skjöldur til minningar um Dr. Charcot og skip hans Pouquoi Pas? og er sagt að það hafi farist við sker- ið. Frásögnum ber þó saman um að skipið hafi steytt á skerinu Hnokka sem er tveimur sjómflum austar en Þormóðssker. Hvernig á þessu stendur er óvitað, en sams konar skjöldur er víst við Háskóla Islands og væri ráð að gera bragarbót á þessu. Á veggjum vitans mátti sjá á- stæðu farar okkar, undirskrifrir gesta sem í fjarvera gestabókar höfðu not- að sér veggina til að skilja öragglega eftir merki um komu sína þangað. För okkar var heitið upp í topp á vit- anum þar sem dregnar vora upp samlokur og kaffi sem gestir gæddu sér á. Útsýnið úr vitanum er stór- kostlegt svo ekki sé meira sagt og jók það á ánægju máltíðarinnar. I Þor- móðsskeri er mikið faglah'f og er varpið ítak Álftaness innan Straum- fjarðar. Svanur Steinarsson í Borgar- nesi nytjar varpið, aðallega rituegg, og þarf leyfi hans fyrir eggjatöku. Það gefur á bátimi... Þegar búið var að vígja gestabók- ina og koma henni fyrir var haldið aftur heim á leið, að þessu sinni und- an vindi þannig að hægt var að keyra bátinn hraðar. Reyndi þá fyrst á kraftgalla blaðamanns sem sat í stefiú og fékk yfir sig hverja gusuna á fætur annarri þegar brunað var í land. Skemmst er frá því að segja að sjórinn hafði betur í einvíginu við gallann og eklri var þurr þráður á undirrituðum þegar í land var stdgið. Sjóferðin fór misjafhlega í menn, eins og gengur og ekki hægt að fifll- yrða að allir hafi verið lausir við sjó- veiki. AUir komu þeir hins vegar aft- ur og enginn þeirra dó. Það var kannski ekki skellihlegið af ánægju þegar stigið var í land, menn vora of uppteknir við að stíga ölduna á bryggjunni, en alHr voru kampakátir með ferðina. -KÓP

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.