Skessuhorn


Skessuhorn - 08.11.2006, Qupperneq 6

Skessuhorn - 08.11.2006, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 8. NOVEMBER 2006 Tugmilljóna tjón í Búðardal Óveðrið sem gekk yfir landið að- faramótt sunnudags og á sunnu- daginn sjálfan olli víða tjóni, meðal annars í Búðardal, þar sem tug- milljóna tjón varð. Gamli sjóvarn- argarðurinn skemmdist mikið, einkum vegna þess að fi'na efnið undir grjótinu skolaðist allt í burtu. Viðgerðir stóðu yfir við garðinn en ekki nákvæmlega á þeim stað sem fór í veðrinu. Einnig sópaðist upp nýlega lagt malbik við sjóvarnar- garðinn og við sláturhúsið. Ekkert skemmdist innandyra í sláturhúsinu en hluti af rétt sem stendur við hús- ið skemmdist. Ekki er vitað til þess að nein hús hafi skemmst innar í bænum. Að sögn Gunnólfs Láms- sonar sveitarstjóra er von a trygg- ingamönnum íyrr í vikunni til að meta tjónið. Ekki liggur fyrir hvort Viðlagasjóður bætir tjón af þessum toga. BGK/ljósm. BAE gögn og annað. Vinnupallar á ní- undu hæð nýbyggingar á Miðbæj- arreit aflöguðust á festingum sínum og gömul geymsla neðst við Vest- urgötu blakti á tímabili á stoðum sínum sem tjald á útihátíð, en fauk þó ekki. Björgunarsveitarmenn og lögregla höfðu í nægu að snúast frá laugardagskvöldi og ffameffir degi á sunnudegi við að aðstoða íbúa við að fergja ýmsa hluti. MM --7------------------- Overulegt tjón Lítið tjón varð á mannvirkjum á Akranesi í veðurhamnum sl. sunnu- dag og í raun minna en gera hefði mátt ráð fyrir miðað við veðurham- inn. Ymislegt smálegt dót fór þó á ferð, svo sem trambólín, garðhús- í óveðrinu á Akranesi Björgunarsveitarmenn í Grundarfirði að vinna við þak geymsluskúrsins við Nesveg. Hluti af þaki grunnskólans í Grundarfirði fauk í óveðrinu Talsvert tjón varð á mannvirkjum í Grundarfirði í óveðrinu sem gekk yfir á sunnudaginn. Veðrið byrjaði að versna þar uppúr klukkan 8 um morguninn og var að sögn Olafs B Ólafssonar, björgunarsveitarmanns verst á tíunda tímanum. Þá fauk meðal annars hluti af þaki grunn- skólans og lenti það að mestu á nýj- um gervigrasvelli við skólann og skemmdi hann. Þá fauk þak af geymsluskúr Essó við Nesveg og smáskemmdir urðu víðar í plássinu. Engin óhöpp voru á fólki í veður- hamnum. Margir björgunarsveitar- menn unnu við björgunarstörf í Grundarfirði og fjöldi sjálfboðaliða einnig. Að sögn Olafs var þetta eitt versta veður sem hann man eftir, eða allt frá tímum kröppu lægð- anna sem gengu yfir snemma á síð- asta áramg. „Suðvestan er einna versta vindáttin hér í Grundarfirði. Þá koma gríðarlega öflugar og langar vindhviður og síðan slær niður á milli,“ sagði Olafur B Olafsson í samtali við Skessuhorn. MM/ljósm. SveiTÍr Hluti þaks grunnskólans endaöi og var reirt niöur á sparkvettinum, sem einnig er tölu- vert skemmtur. PISTILL GISLA Mál vikunnar Maður vikunnar er tvímæla- laust Magnús Þór Hafsteins- son, þingmaður með meiru. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr því fáir hafa náð að vekja jafa mikil viðbrögð með einni eða tveimur setningum eins og hann gerði þegar hann ræddi um málefni erlendra borgara á Islandi. Hitt er svo annað mál hvort menn eru sammála því sem hann hafði fram að færa. Eg ætla ekki að túlka skoðan- ir þingmannsins en leyfi mér þó að efast um þá túlkun að hann hafi gert sig sekan um kyn- þáttafordóma af versm sort eins og sumir vilja vera láta. Það sem mér þykir hinsvegar alvar- legt er að í kjölfar orða þing- mannsins hefur komið berlega í ljós hversu grunnt er á kyn- þáttafordómum í þessu þjóðfé- lagi. Síðustu tvo daga hafa þrír bláókunnugir menn fundið hjá sér brýna þörf til að ræða við mig nauðsyn þess að koma þessum útlendingum hið bráð- asta úr landi. An þess þó að ég viti hvernig ég tengist málinu þar sem ég tel mig ekki hafa völd til að ákveða búsetu ann- arra og hef ekki sóst eftir því. Eg er bara nokkuð sáttur á meðan ég fæ að ráða því hvar ég bý sjálfur. Fyrir fjórum árum var tekið saman hversu margir údend- ingar byggju á Islandi og um leið hversu margir íslendingar byggju í útlandi. Þá voru hinir síðarnefhdu tvöfalt fleiri og þó þessi hlutföll kunni að hafa breyst eitthvað þá ber okkur að hafa í huga að við ætlumst til þess að okkur og okkar löndum sé tekið með kostum og kynjum hvar sem er í heiminum. Síðustu daga höfum við hneykslast á umíjöllun danskra fjölmiðla um íslendinga og kallað hana kynþáttafordóma. Við höfum fordæmt að Auka- blaðið, danska, (Ekstra bladet) kallaði íslendinga í heild sinni skattsvikara og ýmsum öðrum illum nöfhum og vísaði þar til meintra og ósannaðra brota fárra einstaklinga. A sama tíma dæmum við heilu þjóðflokkana á grundvelli verka örfárra úr þeirra hópi. Því var haldið fram í útvarpi í gær að útlendingar væru upp til hópa nauðgarar og var sá málflutningur byggður á einu máli þar sem útlendingar koma vissulega við sögu. Utffá því má slá því ffam að Reykvík- ingar séu ofdrykkjumenn og dæma það útfrá einum eða tveimur rónum niður á Hlemmi. Það er ekki víst að all- ir sættu sig við þau rök. Ég er heldur ekki viss um að mínir sveitungar væru sáttir við að því yrði slegið fram sem staðreynd að allir Borgnesingar væru hárlausir bara vegna þess að ég er það. Eg veit um hreinræktaða ís- lendinga sem hafa orðið fyrir kynþáttafordómum á Lauga- veginum vegna þess að þeir eru dökkir yfirlitum og starfa í byggingariðnaði. Þetta segir mér það að það er ansi stutt í öfgarnar hjá mörgum þegar þessi mál eru til umræðu og því þarf að stíga varlega til jarðar þótt auðvitað þurfi að ræða alla hluti. Gísli Einarsson, mannfræðingur.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.