Skessuhorn


Skessuhorn - 08.11.2006, Side 24

Skessuhorn - 08.11.2006, Side 24
f Láttu ekki vandræðin verða tii vandræða íbúðalánasjóður mwmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm m www.ils.is WKmmmmmtMmSBmHm FJÁRHAGSLEG GLITNIR, VELGENGNI ÞÍN ER 0KKAR VERKEFNI Daglegar ferðir Opnunartímarvirka daga 8-12 og 13-17. Engjaás 2 • 310 Borgarnes • Sími: 458 8880 landflutningar@landflutningar.is • www.landfl Landflutningar ar.is /SÁMSKIP < fcC' V Landmælingar hætta útgáfii og sölu prentaðra korta umhverfisráðuneytinu , en niðurstaða liggi ekki fyrir. Tveir aðilar eru langstærstir í prentun og sölu landakorta á Islandi, en það eru LMI og Edda útgáfa hf. Aðspurður hvort einhverjar skorður verði settar við sölu útgáfu- grunna LMI til þess að tryggja samkeppni í prentun og sölu segir Magnús svo ekki vera. Útgáfugrunnarnir verði seldir hæstbjóðanda en salan fari þó þannig fram að hægt verði að bjóða í einstakar út- gáfur. Um mögulegt söluverð vildi Magnús ekki tjá sig. Samkeppni ekki Magnús Guðmundsson, forstjóri LMI hér með eitt kortanna sem selt verður. Hvalsey slitnaði upp Ifárviðrinu sem gekk yfir landið sl. sunnudag slitnaði grásleppubáturinn Hvalsey frá Hvalseyjum upp afbólfieri sínu við Traðir í Hraunhreppi á Mýrum. Bátnum var bjarg- að óskemmdum á land. Ljósm. UJ Vill styrkja iðnmenntun á landsbyggðiimi Landmælingar íslands á Akranesi (LMI) munu á næstu vikum selja lager prentaðra korta og geisladiska stofhunarinnar sem og nokkra út- gáfugrunna vinsælla ferðakorta. Þetta er gert í samræmi við ný lög um stofnunina sem samþykkt voru í vor og taka gildi um næstu áramót. Hin nýju lög voru sett á sínum tíma meðal annars vegna árekstra milli einkafyrirtækja og stofnunarinnar sem leiddu til kvartana til sam- keppnisyfirvalda. Magnús Guðmundsson, forstjóri LMI segir að stofnunin hafi undan- farin misseri undirbúið þær breyt- ingar sem verða á rekstrinum um næstu áramót. Þær hafa meðal ann- ars leitt til þess að starfsmönnum hefúr fækkað og eru þeir nú 28 talsins, en ekki er gert ráð fyrir að um ffekari fækkun verði að ræða. Starfssvið nokkurra núverandi starfsmanna breytist þegar sala og dreifing korta hættir. Talsverður tekjumissir Sala prentaðra korta og geisla- diska hefur fært LMI um 25-30 milljónir króna í tekjur á ári. Að- spurður hvernig stofnuninni verður bættur tekjumissirinn segir Magnús að það sé aðeins að hluta til gert í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2007, en einnig sé málið til skoðunar í tryggð Aðspurður hvort einhverjar kvaðir verði lagðar þeim á hendur sem kaupa lager prentaðra korta LMI um framboð og aðgengi vör- unnar í ffamtíðinni segir Magnús svo ekki vera. Hann segir að í raun hafi aðeins vinsælustu kortin staðið undir kostnaði en önnur kort hafi verið niðurgreidd af almannafé. Því sé það hverjum kaupanda í sjálfs- vald sett hvað hann gerir við þann lager sem hann festir kaup á. Við brotthvarf LMI af þessum markaði verður stofhunin ekki eins sýnileg og áður. Magnús segir að stofnunin muni eftir sem áður tryggja að „ávallt séu til staðffæði- legar og landfræðilegar grunnupp- lýsingar um Island,“ eins og segir í lögum um stofhunina. I nýju lög- unum er nýmæli þar sem segir að stofnunin skuli eiga faglegt sam- starf við háskóla, stofnanir, fyrir- tæki og alþjóðlega samtök í sam- ræmi við verkefrú hennar. Magnús segir að í þessu geti falist mörg spennandi verkefni og meðal ann- ars hafi viðræður átt sér stað að undanförnu við fleiri en einn há- skóla hér á landi um möguleg sam- starfsverkefni. HJ Kristinn H. Gunnarsson, alþing- ismaður segir að notkun reiknilíkans menntamálaráðuneytisins eigi ekki að skaða iðnnám á landsbygginni og sé veruleikinn sá að fjárlagafrum- varpið sem nú liggur fyrir Alþingi stefni iðnámi á landsbyggðinni í hættu bera að sníða þá vankanta af ffumvarpinu við afgreiðslu Alþingis. Verknámskennarar framhaldsskól- arma í Norðvesturkjördæmi sendu alþingismönnum kjördæmisins á dögunum opið bréf þar sem þeir vekja athygfi á stöðu iðnmenntunar í kjördæminu. Segja þeir að sam- kvæmt fjárlagafrumvarpi því er nú liggur fyrir Alþingi sé gert ráð fyrir að dregið sé úr fjárffamlögum til verknáms í framhaldsskólum. Segja þeir það gert í gegnum svokallað reiknilíkan menntamálaráðuneytis- ins. Kristinn segir ljóst í sínum huga að notkun á reiknilíkani mennta- málaráðuneytisins eigi ekki að hafa þau áhrif að iðnnámi sé teflt í hættu á landsbyggðinni. Reiknihkanið eigi að nýta til þess að styrkja iðnám á þessum stöðum. „Séu forsendur fjárlaga með þeim hætti að það skaði iðnámið með þeim hætti sem verk- námskennararnir lýsa þá verða þingmenn að taka á því máli við af- greiðslu ffumvarpsins á Alþingi. Það er ekki stefna ríkisstjómarflokkanna að veikja iðnmenntun, þvert á móti ber að styrkja hana í sessi,“ segir Kristinn. HJ - heldur kúnum hreinum - kýrnar eru fljótar að læra á burstann - fæst með eða án skynjara (on/off) - festur á vegg eða stólpa - sterkt tæki sem reynist vel Verð á bursta með skynjara kr. 172.500.- án vsk. Verð á bursta án skynjara kr. 160.300.- án vsk. STRANGKO - einfalt, sterkt og öruggt! Sími 540 1100 • www.lifland.is • lifland@lifland.is LlFLAND -betri búnaður

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.