Skessuhorn


Skessuhorn - 13.12.2006, Qupperneq 2

Skessuhorn - 13.12.2006, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER2006 SÍ£ESSIÍH©12K1 Til minnis Við minnum á leik Snæfells og Skallagríms í körfunni klukkan 19:15 í íþróttamiðstöðinni í Borg- arnesi. Allir á völlinn! ujCjJ Ve^rhorfw Það eru búnir að vera góðir dagar í veðrinu að undanförnu að und- anskildu rokinu sl. laugardag. Horf- ur eru á þokkalegu veðri á næst- unni en þó er hætta á lítilsháttar snjókomu. Á fimmtudaginn er bú- ist við norðaustlægri átt norðantil en austlægri sunnantil, 8-13 m/s. Víða snjókoma eða él, síst þó á Vesturlandi. Frost 0 til 4 stig, minnst við suðurströndina. Á föstudag verður fremur hæg suð- austlæg átt og víða snjókoma eða él. Hiti um og yfir frostmarki, hlýj- ast sunnantil. Á laugardag snýst í norðlæga átt og léttir til sunnan- lands, en él verður fyrir norðan. Frystir um allt land. Á sunnudag og mánudag verður hæg breytileg átt, úrkomulítið og vfða talsvert frost, einkum inn til landsins. SpMrniruj viKi^nnar í síðustu viku spurðum við á Skessuhornsvefnum: „Hvað telur þú að jólin í ár muni kosta á þínu heimili?" Gefnir voru upp 8 svar- möguleikar með mismunandi verðbili. Niðurstaðan var þessi: Kr. Hlutfall: 0-25 þúsund: 7,6% 26-50 þús: 10,7% 51-75 þús: 15,6% 76-100 þús: 17,8% 101-150 þús: 18,4% 151-200 þús: 14,5% 201-300 þús: 4,9% Yfir 300 þús: 10,5% í næstu viku er spurt: : „Borðar þú skötu á Þorláksmessu?" Svaraðu án undanbragða á www.skessuhorn.is Vestlendiwjwr viKi^nnar Er ungur og efnilegur tón- listarmaður og bóndi; Viðar Guð- mundsson á Kaðalstöðum í Borgarfirði. Ástæðan: Það má lesa um viku í lífi hans hér aftar í blaðinu og sannfærast um að hér er kjarnorku- maður á ferðinni. Jólatilboð Mikið af eiturlyfjum fannst í Borgarfirði og á Akranesi Tvö óskyld fíkniefhamál komu upp á sama tíma hjá lögreglunni í Borgarnesi síðdegis á fimmtudag. I öðru málinu var um að ræða ein- stakling sem búsettur er í Borgar- firði en í hinu tilvikinu var um par á Akranesi að ræða. Þrír aðilar voru handteknir og yfirheyrðir auk þess sem lagt var hald á um 150 grömm af hassi, um 100 grömm af efhi sem talið er vera amfetamín auk meintra stera og ýmissa annarra lyfja. Þá var lagt hald á töluvert magn af skot- færum, mest haglaskotum. Fólkið hefur áður komið við sögu lögregl- imnar vegna fíkniefiiamisferlis. Að yfirheyrslum loknum aðfararnótt föstudags var fólkinu sleppt. Kalla þurfti út lögreglumenn á bakvakt og lögreglumenn úr firíum, vegna málsins. Auk þess voru kall- aðir út tveir héraðslögreglumenn. Alls voru 10 lögreglumenn frá Borgarnesi að störfum vegna þess- Efnin sem haldlögð voru t málunum tveimur. ara mála. Þá naut lögreglan í Borg- arnesi aðstoðar lögreglunnar á Akranesi við húsleitina sem frarn fór þar. Lögreglumenn frá Snæ- fellsnesi komu einnig að rannsókn málsins. Annað málið kom upp eftir ábendingu en hitt í hefðbtmdnu eftirliti. í báðum tilvikum kom til húsleitar í framhaldi af leit í bif- reiðum viðkomandi. Tekið skal fram að fíkniefnaleitarhundurinn Tíri og umsjónarmaður hans, áttu stóran þátt í því hversu vel tókst til við húsleitirnar. BGK Hvalfj arðarstrandarhreppur með hæstar tekjur á íbúa Hvalfjarðarstrandarhreppur, sem nú tilheyrir Hvalfjarðarsveit, hafði mestar tekjur sveitarfélaga á Vest- urlandi á hvem íbúa á síðasta ári ef marka má samantekt í árbók sveit- arfélaga sem kom út fyrir skömmu. Helgafellssveit hefur hins vegar minnstar tekjur á hvern íbúa. Tekj- ur þess sveitarfélags em aðeins rúm 40% af tekjum Hvalfjarðarstrand- arhrepps. Hér til hliðar má sjá lista yfir skattekjur á íbúa hjá sveitarfé- lögum á Vesturlandi. Ekki lágu fyrir upplýsingar frá Leirár- og Melahreppi og Saurbæj- arhreppi. HJ Sveitarfélag Ibúafjöldi Skatttekjur á íbúa Hvalfjarðarstrandarhreppur... 147 489.476 Skilmannahreppur 214 454.168 Hvítársíðuhreppur 83 448.514 Skorradalshreppur 64 405.891 Kolbeinsstaðahreppur 102 403.422 Innri-Akraneshreppur 113 400.442 Dalabyggð 638 395.119 Borgarfjarðarsveit 732 365.259 Grundarfjörður 974 356.299 Stykkishólmur 1.165 337.579 Eyja- og Miklaholtshreppur... 137 334.606 Borgarbyggð 2.708 327.892 Akranes 5.782 298.750 Helgafellssveit 55 197.071 Sigurður Rúnar tekur við Norðurmjólk Sigurður Rúnar Friðjónsson, mjólkurbússtjóri MS í Búðardal hefur verið ráðinn mjólkurbússtjóri hjá Norðurmjólk á Akureyri og tekur við því nýja starfi 1. janúar. Sævar Hjaltason ffamleiðslustjóri hjá MS í Búðardal tekur við starfi Sigurðar Rúnars. Sigurður Rúnar hefur starfað hjá mjólkurbúinu í Búðardal frá 15. apríl 1977 og sat í 28 ár í sveitarstjóm í Búðardal. Sigurður Rúnar segir ráðningu sína til Norðurmjólkur hafa átt sér skamman aðdraganda og tengist þeim breytingum sem verða á skipulagi mjólkuriðnaðarins um áramótin en þá verður til rekstrar- félag sem sjá mun um framleiðslu, sölu og dreifingu mjólkurvara á langstærstum hluta landsins. Mark- miðið með þeim breytingum er að auka hagræðingu í greininni. Að- spurðtn hvort líta megi svo á að með brotthvarfi hans úr Búðardal fari vegur mjólkurbúsins þar minnkandi segir hann svo alls ekki vera og vísar til fréttar Skessuhorns frá 31. október en þar sagði Guð- brandur Sigurðsson forstjóri MS að rekstur fýrirtækisins í Búðardal verði áffarn ein af meginstoðum í rekstri fýrirtækisins. HJ Tölvuþjónusta Vesturlands nýr umboðsaðili Vodafone í Borgamesi ur. Um er að ræða sama hraða og verð og er almennt í boði á þjónustu- svæði Vodafone. Þá hefur Vodafone einnig unnið að því að efla GSM kerfi sitt bæði í Borgarnesi og ná- grenni á þessu ári. Borgarnes er ört vaxandi bæjarfélag og Vodafone legg- ur mikla áherslu á Eggert Herbertsson hjá TV og Vilhjálmur Sturla Eiríksson hjá Vodafone handsala samkomulagið. I baksýn er gamli Vodafone Tölvuþjónusta Vesturlands (TV) er nýr umboðsaðili Vodafone í Borgarnesi. Samstarf Vodafone og Tölvuþjónustunnar mtm efla þjón- ustu við viðskiptavini Vodafone í bænum og nágrenni verulega, eins og segir í fréttatilkynningu ffá fýr- irtækjunum. Tölvuþjónusta Vestur- lands mim bjóða sömu þjónustu og vöruúrval og í verslunum Vodafo- ne, svo sem úrval GSM símtækja, ADSL endabúnað og ýmis konar aukahluti. Þá veita starfsmenn Tölvuþjónustunnar viðskiptavinum góð ráð varðandi þann búnað og tæki sem eru í sölu hjá Vodafone. „Vodafone hefur lagt mikla áherslu á að efla dreifikerfi sitt og þjónustu í Borgamesi og nágrenni. Fyrirtækið hefur meðal annars komið upp öflugu ADSL kerfi í bænum og býður nú ADSL plús og ADSL extra, sem felur í sér allt að því 14 Mb/s hraða fýrir netnotend- að veita þessum leigubíllinn. byggðarkjarna bestu þjónustu sem völ er á, Vodafone hefur fjölgað GSM sendum og boðið hraðari ADSL þjónustu sem tryggir Borg- nesingum fullkomnustu síma- og netþjónustu sem völ er á,“ segir Vilhjálmur Sturla Eiríksson, deild- arstjóri umboðssölu Vodafone. Tölvuþjónusta Vesturlands er með starfsemi í Borgarnesi og á Akranesi. Fyrirtækið bíður lausnir í tölvu- tækni og fjarskiptamálum fýrir fýrirtæki á einstaklinga. Hjá fýrirtækinu starfa nú 7 manns. MM Ungur maður lést STYKK3SHÓLMUR: Banaslys varð á Stykkishólmsvegi við af- leggjarann að Stykkishólmsflug- velli aðfararnótt sl. föstudags. Okumaðurinn, sem var rúmlega tvímgur, var einn í bílnum þegar slysið varð. Mikil hálka og ísing hafði myndast á veginum og lík- legt tahð að biffeiðin hafi runnið til og hafnað á ljósastaur. Vegfar- andi sem kom að slysinu skömmu síðar hafði samband við lögreglu en tahð er að maðurinn hafi látist samstundis. Maðurinn hét Valtýr Guðmimdsson, til heimihs að Amatúni 5 í Stykkis- hólmi. Hann var fæddur 21. júh' árið 1984. Valtýr var ókvæntur og bamlaus. -mm Vmnuslys á leikskóla BORGARNES: Vinnuslys varð sl. föstudag á leikskóla Borgar- byggðar við Skallagrímsgötu í Borgamesi þegar kona, sem jafn- framt er leikskólastjórinn, féh af stól og hlaut höfuðhögg. Slysið bar að með þeim hætti að konan var að skipta um pera í ljósi. Stóllinn sem hún stóð á rann til með þeim afleiðingum að hún féll og skall með höfuðið í ofhi. I fyrstu var talið að um alvarlegt slys væri að ræða þar sem hún missti sjón í fyrstu. Betur fór en á horfðist og er hún útskrifuð af spítala og á góðum batavegi. -mm Skráning verslunarsögu BORGARNES: Menningar- nefhd Borgarbyggðar hefur lagt til við byggðaráð að veitt verði fjármunum til þess að afla, skrá- setja og flokka heimildir er varða verslunar- og byggðarsögu Borg- arness. Tilefnið er að á næsta ári verður 140 ára verslunarafrnæli í Borgamesi. Nefhdin vill að ekki síst verði lögð áhersla á að taka viðtöl við íbúa sem era vel kunn- ugir sögunni. Heimildimar verði síðan varðveittar í því augnamiði að gefið verði út veglegt rit um sögu Borgarness að 10 áram hðnum. Þá vill nefndin að staðið verði fýrir „einhvers konar uppá- komu í tdlefhi afmæhsins á af- mælisárinu," eins og segir í bók- im nefhdarinnar. -hj TM lægst tryggingar STYKKISHOLMUR: Bæjar- ráð Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt að taka tilboði Trygg- ingamiðstöðvarinnar í tryggingar sveitarfélagsins en ákveðið var fýrir skömmu að leita tilboða í tryggingamar. Tilboð TM var að upphæð rúmar 2,9 milljónir króna auk ágóðahlutdeildar. Sjó- vá bauð tæpar 3,7 mihjónir króna ogVIS bauð rúmar 3,7 milljónir króna. Að sögn Þórs Amar Jóns- sonar, bæjarritara í Stykkishólmi var kostnaður við tryggingar sveitarfélagsins á síðasta ári um 3,2 mihjónir króna þannig að um nokkum spamað er að ræða fýrir sveitarfélagið. Sá spamaður eykst ef ágóðahlutur verður greiddur. Stykkishólmsbær var með trygg- ingar sínar hjá TM samkvæmt samningi frá 1. janúar 2004 en honum var sagt upp í september. -hj

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.