Skessuhorn - 13.12.2006, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006
Vilja samning við
Rauða krossinn
AKRANES: Félagsmálaráð
Akraneskaupstaðar hefur sam-
þykkt að mæla með því við
bæjarráð Akraness að bæjarfé-
lagið semji við Rauða kross Is-
lands - Akranesdeild til tveggja
ára um þjónustu við útlendinga
í bæjarfélaginu. Eins og fram
hefur komið í Skessuhorni
bauðst Rauði krossinn til þess
að gera slíkan samning í til-
raunaskyni í eitt til tvö ár.
Hugmyndin er sú að komið
verði á fót upplýsingamiðstöð
um málefni útlendinga þar sem
þeir geti leitað nauðsynlegra
upplýsinga á einum stað. Talið
er að allt að 200 manns af er-
lendum uppruna séu nú bú-
settir á Akranesi. Bæjarráð vís-
aði hugmyndinni til umsagnar
félagsmálaráðs.
-hj
Greiðslur til
heimavinnandi
foreldra
HVALFJÖRÐUR: Félags-
málanefnd Hvalfjarðarsveitar
hefur samþykkt að leggja til
við sveitarstjóm að um áramót
verði teknar upp greiðslur til
heimavinnandi foreldra eftir
að fæðingarorlofi lýkur. Einnig
leggur nefndin til að sveitarfé-
lagið greiði foreldrum kosmað
vegna dvalar barna hjá dagfor-
eldram enda komist þau ekki
inn á leikskóla þrátt fyrir að
hafa til þess rétt. Lagt er til að
þessi kostnaður verði greiddur
aftur í tímann eða frá 1. ágúst á
þessu ári. Sveitarstjórn Hval-
fjarðarsveitar mun fjalla um
málið á fundi sem hefst í dag
kl. 16. Eins og fram hefur
komið í fféttum hefur leikskóh
í Hvalfjarðarsveit verið gjald-
frjáls um nokkurt skeið.
-hj
Vilja ráða djákna til starfa á Höfða
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt fyrir sitt leyti að taka þátt í
greiðslu kostnaðar vegna ráðningu
djákna í 20% starf á Dvalarheimil-
inu Höfða á Akranesi. Málið var
rætt á fundi stjórnar heimilisins
fýrir skömmu þar sem fram kom að
Ragnheiður Guðmundsdóttir
sjúkraliði hafi lokið djáknanámi og
hafi áhuga á þessu starfi. Fram kom
á fundinum að djáknar séu í starfi á
nokkrum öldrunarstofnunum á
höfuðborgarsvæðinu og reynslan af
störfum þeirra sé mjög góð. Akvað
stjórnin því að fara þess á leit við
sveitarfélögin sem að dvalarheimil-
inu standa að þau greiði kostnað-
inn af þessu nýja starfi en talið er
að launakostnaður verði um 70
þúsund krónur á mánuði.
Eins og áður sagði samþykkti
bæjarráð beiðni stjórnar Höfða
með tveimur atkvæðum. Sveinn
Kristinsson bæjarráðsmaður Sam-
fylkingarinnar greiddi atkvæði
gegn málinu þar sem hann telur
það ekki hlutverk Akraneskaup-
staðar að greiða kostnað sem
þennan.
HJ
Borgarbyggð vill úr héraðsnefiid
Borga ríj arðarsýslu
Byggðaráð Borgarbyggðar hefur
látið í ljós áhuga á því að leggja nið-
ur héraðsnefnd Borgarfjarðarsýslu
eða að sveitarfélagið segi sig úr
henni og tilnefni því ekki fulltrúa í
nefndina. Landbúnaðarráðuneytið
er ekki hrifið af hugmyndinni.
Ráðuneytið hefur ritað bréf til
Borgarbyggðar þar sem tíundaðar
eru lagalegar skyldur héraðsnefnda,
en þær eru meðal annars fólgnar í
yfirstjórn allra afféttar- og fjall-
skilamála í þeirra umdæmi, óháð
sveitarfélögum. Þar á meðal að
hlutast til um leitir á öræfum sem
tengjast upprekstrarsvæðum þar
sem fjárvon kann að vera. Einnig er
samkvæmt lögum óheimilt, að mati
ráðuneytisins, að framselja ein-
hliða lögbundin verk héraðsnefnda
til þeirra sveitarfélaga sem rétt hafa
til að tilnefha fulltrúa í héraðs-
nefhd.
I bréfinu er einnig lýst furðu á
því Borgarbyggð hyggist ekki til-
nefha mann í héraðsnefhdina þrátt
fýrir þau mikilvægu verkefni sem
henni eru falin í afréttar og fjall-
skilamálum.
Byggðaráð Borgarbyggðar hefur
samþykkt að fela sveitarstjóra að
óska eftir áliti félagsmálaráðuneyt-
isins á með hvaða hætti Borgar-
byggð gemr uppfyllt skyldur sem
nú er sinnt innan héraðsnefndar.
BGK
Hætt við klæðningu Brekkubæjarskóla
Bæjaryfirvöld á Akranesi eru hætt
við að klæða Brekkubæjarskóla að
utan á næsta fjárhagsári eins og lof-
að hafði verið, að því er ffam kem-
ur á vef skólans. Þar segir að síðast-
liðið vor hafi klæðning hússins ver-
ið boðin út en ekkert tilboð hafi
borist í verkið „sem nú hefur verið
blásið af,“ eins og segir á vef skól-
ans. Meðfýlgjandi mynd er birt á
heimasíðunni
með eftirfarandi
kynningu: „Hér
má sjá mynd af
nokkrum af
þeim fjölmörgu
götum sem
prýða klæðningu
skólans í dag.“
HJ
Nýtt skipulag slökkviliðs
í Borgarbyggð til utnræðu
Vinnuhópur um slökkviliðsmál í
Borgarbyggð hefur lokið störfum.
Lagt er til í tillögum hópsins að
slökkviliðið heyri undir fram-
kvæmdasvið Borgarbyggðar.
Slökkviliðsstjóri verði undirmaður
forstöðumanns framkvæmdasviðs
og eldvarnaeftirlitsmaður gegni
starfi varaslökkviliðsstjóra. Hópirm
skipuðu Sigurður Páll Harðarson,
Bergþór Kristleifsson, Eiríkur
Olafsson, Kristján Ingi Pémrsson
og Sigurður Helgason.
Starf eldvarnareftirlitsmanns er
ekki til hjá sveitarfélaginu en starfs-
hópurinn leggur til að það verði
stofnað. I starfi hans verði megin
áhersla lögð á forvarnir ekki síst í
dreifbýli og því meiri forvarnir sem
byggð er lengra frá slökkvistöðvun-
um. Þar sem vegalengdir eru mikl-
ar innan Borgarbyggðar er þetta
mikilvægur þátmr í starfi slökkvi-
liðsins. Ef mál færu á þennan veg
yrðu tveir fastráðnir menn í fullu
starfi hjá slökkviliðinu og einn til
tveir slökkviliðsmenn tækju bak-
vaktir á móti fastráðnum mönnum.
Lagt er til að aðalslökkvistöð
verði í Borgamesi en aðrar slökkvi-
stöðvar verði staðsettar á efrirtöld-
um stöðum: Stærri útstöðvar verði
á Hvanneyri, Reykholti og á Bif-
röst. Minni útstöðvar verði í Bæ í
Bæjarsveit, Laugagerðisskóla og
Húsafelli. Ekki er aðstaða fýrir
hendi á Bifföst og Húsafelli en
nefhdin leggur til að stefnt verði að
því að koma þeim upp og laga hús-
næði, meðal annars á Hvanneyri og
í Borgarnesi.
Búið er að festa kaup á nýrri
Renault slökkvibifreið er verður til-
búin síðari hluta sumars. Sú verður
staðsett í Borgamesi. Auk þess ligg-
ur fýrir að Skorradalshreppur hefur
keypt nýja Ford biffeið sem verður
afhent slökkviliðinu til afhota með
þeim skilyrðum að slökkviliðið sjái
um reksmr hennar og bifreiðin
verði staðsett innan tíu kílómetra
ffá hreppnum.
Vinnuhópurinn leggur til að
gengið verði til samninga við
Skorradalshrepp á svipuðum nót-
um og gert var við Eyja- og Mikla-
holtshrepp. Einnig að unnið verði
að því að gera samninga bæði við
slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
um aðstoð við mengunarslys og við
slökkvilið Stykkishólms á sama
grunni og samningur við slökkvilið
Akraness. BGK
Talsverð hækkun þjónustugjalda
í Grundarfirði
Bæjarstjóm Gmndarfjarðar sam-
þykkti á fundi sínum á fimmmdag
nýja gjaldskrá er tekur gildi um ára-
mótin. Þjónusmgjöld hækka en
fasteignaskattar lækka í kjölfar mik-
illar hækkunar á fasteignamati fýrr
á árinu. Af einstökum gjöldum má
nefna að leikskólagjöld hækka um
10% og sömu sögu er að segja af
skólagjöldum í Tónlistarskólanum.
Sorphreinsunargjald heimila hækk-
ar úr 9.200 krónum á hverja tunnu
í 12.000 krónur eða um rúm 30%.
Sorpeyðingargjald heimila hækka á
hverja tunnu úr 7.800 krónum í
10.000 krónur eða um rúm 28%.
Jafnframt samþykkti bæjarstjórn
talsverða lækkun fasteignaskatta.
Má þar nefna að fasteignaskattur A-
flokks lækkar úr 0,45% í 0,34% eða
um rúm 24% og fasteignaskattur
C-flokks lækkar úr 1,55% í 1,5%
eða um rúm 3%. Þá lækkaði lóðar-
leiga einnig. Sem kunnugt er var
framkvæmt endurmat á fasteignum
í Gmndarfirði fýrr á þessu ári og
varð niðurstaðan sú að matið hækk-
aði um 37%.
Tillögur að gjaldskrárbreyting-
um voru samþykktar með fjómm
atkvæðum bæjarfulltrúa meirihluta
Sjálfstæðisflokks en þrír bæjarfull-
trúar Samstöðu sátu hjá. HJ
Fann sjálfur
stolna bifreið
AKRANES: Sl. föstudagskvöld
brá ungur maður sér inn á
bensínstöð á Akranesi. Bifreið
sína skildi hann eftir í gangi
fýrir utan. Einhver notfærði sér
það og tók bifreiðina. Hún
fannst þó aftur á sunnudags-
kvöldið og var það eigandinn
sjálfur sem fann hana í Mos-
fellsbæ. Eitthvað tjón mun hafa
orðið á henni. Lögreglan á
Akranesi telur fulla ástæða til
að brýna ökumenn á því að
skilja bifreiðar ekki eftír ólæstar
og allra síst í gangi þegar farið
er frá þeim.
-kh
Framkvæmdir
/
við Utnesveg
SNÆFELLSNES: Vegagerðin
hefur auglýst eftír tílboðum í
endurbyggingu Útnesvegar á
Snæfellsnesi frá Háahrauni að
Saxhóli. Um er að ræða 16,9
km kafla vegarins sem verður
6,5 metrar á breidd með klæðn-
ingu. Tilboðsfrestur rennur út
19. desember og verkinu skal
lokið 15. júlí 2009. -hj
Lítil samkeppni
STYKKISHÓLMUR: Þrjú
orkufýrirtæki gerðu tilboð í raf-
orkukaup Stykkishólmsbæjar
en þau vora boðin út á dögun-
um. Bæjaráð Stykkishólmsbæj-
ar hefur samþykkt að ganga til
samninga við Rarik um við-
skiptín en einnig bárust tílboð
frá Orkuveitu Húsavíkur og
Orkuveitu Reykjavíkur. Að
sögn Þórs Arnar Jónssonar bæj-
arritara í Stykkishólmi er áætl-
að að sparnaður sveitarfélagsins
af útboðinu verði á bilinu 150-
200 þúsund krónur á ári miðað
við raforkukaup liðinna ára. Að
auki mun raforka tíl sveitarfé-
lagsins ekki hækka um áramót-
in eins og boðað hafði verið.
Þór Örn segir ljóst af niður-
stöðu útboðsins að svigrúm raf-
orkufýrirtækja sé mjög lítíð og
því vakni sú spurning hvort
samkeppni sé í raun til staðar á
raforkumarkaði.
-hj
Glitnir styrkir
utanfara
BIFRÖST: Þegar Glitnir
banki opnaði skrifstofu í
Shanghai á dögunum afhenti
Einar Sveinsson stjórnarfor-
maður bankans Kristjáni Pétri
Kristjánssyni nemanda Háskól-
ans á Bifröst 50 þúsund norskar
krónur úr menningarsjóði
bankans. Nokkrir nemendur
Háskólans á Bifröst stunda nám
við Shanghai University og
voru þeir viðstaddir opnunina.
Styrkurinn var nýttur til farar
átta nema frá Bifröst sem héldu
tíl Xian Yang í liðinni viku til
þess að kynna sér nýja hitaveitu
sem bankinn kemur að ásamt
fleiri fyrirtækjum ffá Islandi.
-hj
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Sími: 433 5500
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200
sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950.
Verð í lausasölu er 400 kr.
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhom ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Birna G Konráðsdóttir 864-5404 birna@skessuhorn.is
Kolbrá Höskuldsdóttir 868-2203 kolla@skessuhorn.is
Augl. og dreifing:Hekla Gunnarsd. 821 5669 hekla@skessuhorn.is
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is