Skessuhorn


Skessuhorn - 13.12.2006, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 13.12.2006, Blaðsíða 18
18 MIÐVTKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 't- 4 -4 * Tvær sýningar á Bókasafiii Akraness Skátastarf á Akranesi í 80 ár Á „Vökudögum“ menningar- dögum á Akranesi í nóvember var opnuð sýning í anddyri bókasafhsins á skjölum og myndum í varðveislu Héraðs- skjalasafes Akraness í tilefni af 80 ára afmæli skátastarfs á Akra- nesi. Þar má sjá m.a. reglugerð Skátafélagsins á Akranesi ffá 8. maí 1928, félagaskrá, lista yfir nauðsynlegan búnað og dagskrá Landsmóts skáta í Kalmans- tungu 1932, vinnubækur og fréttablöð. Margar skemmtileg- ar myndir eru á sýningunni. Það vantar að nafngreina þónokkra og eru gestir vinsamlega beðnir um að að láta vita ef þeir þekkja fólkið á myndunum. Sýningin er opin á opnunartíma safnsins og mun standa út janúar 2007. Safharasýning: Jólakerti Guðrún Erla Guðlaugsdóttir leikskólakennari á Vallarseli er safiiari desembermánaðar. Hún hefur safnað ýmsu um ævina og eru jólakerti eitt af því. Fyrstu kertin eignaðist hún sem smá- stelpa og síðan hefur bæst við safrúð á hverju ári og nú í dag er safrúð orðið mjög umfangsmik- ið. Það er aðeins brot af jóla- kertasafni hennar sem er tdl sýn- is í glerskáp á bókasafninu. Sögufélag Borgarfjarðar óskar efrir útgáfustyrk Byggðaráð Borgarbyggðar hefur vísað til menningarsjóðs Borgar- byggðar ósk Sögufélags Borgar- fjarðar um að sveitarfélagið styrki útgáfu þrettánda bindis af Borg- firskum æviskrám. Farið er fram á eitthundrað krónur á hvern íbúa sveitarfélagsins. Sögufélag Borg- arfjarðar hefur gefið út Borgfirskar æviskrár síðan árið 1969 og geym- ir ritröðin æviskrár allra þeirra er hafa átt búsetu í héraðinu frá því um 1700. Snemma árs 2007 er þess von að þrettánda bindið komi út og er þá lokið þeirri starfrófsröð er byrjað var á með fyrsta bindinu. Þá er eftir útgáfa viðbótarbindis með æviskrám þeirra er ekki var getið í þeim bókum sem komnar eru út svo og leiðréttingum og við- bótum við fyrri bindi. Einnig er í undirbúningi að setja upplýsingar æviskránna í gagnagrunn á tölvu- tæku formi. Það verður verkefni félagsins næstu árin. BGK Meðaleinkunn samræmdra prófa í lægri kantmum í NV-kjördæmi Árangur nemenda sem tóku samræmd próf í grunnskólum árið 2004 var lægstur í tveimur náms- greinum í Norðvesturkjördæmi. Þetta kemur fram í skýrslu menntamálaráðherra um fram- kvæmd skólahalds í grunnskólum sem lögð hefur verið fyrir Alþingi. Þá kemur einnig fram í skýrslunni að árangri í kjördæminu hefur heldur hrakað árunum 2002-2004. Á sama tíma hefur hlutfall þeirra er tekið hafa samræmd próf hækk- að. Á árinu 2004 var meðaleinkunn nemenda í Norðvesturkjördæmi 27,9 í íslensku og var það lakasti árangur á landinu. Bestur var ár- angurinn í Reykjavík 31,2.1 stærð- fræði var árangurinn 27,9 og að- eins í Suðurkjördæmi var hann lakari eða 27,5. Bestu var árangur- inn í Reykjavík 31,3. I ensku var meðaleinkunin 26,9 og var hann hvergi lakari. Bestur var hann í Reykjavík eða 31,9. I dönsku var meðaleinkunin 27,6 og aðeins í Suðurkjördæmi var árangurinn lakari eða 27,2 og bestur var ár- angurinn í Reykjavík 32,1. I náttúrufræði var einkunin 26,6 og aðeins í Suðurkjördæmi var hann lakari eða 25,7 og bestur var árangurinn í Reykjavík 33,3. I samfélagsfræði var útkoman 27,5 og sem áður var hann aðeins lakari í Suðurkjördæmi eða 27,3. I skýrslu menntamálaráðherra eru birtar meðaleinkunnir þriggja skólaára, 2002-2004, og þar kem- ur fram að meðaleinkunn nem- enda í Norðvesturkjördæmi hefur farið lækkandi í öllum áðurnefnd- um námsgreinum á þessum þrem- ur skólaárum. Hins vegar hefur hlutfall þeirra er þreyta samræmd próf heldur farið hækkandi í kjör- dæminu og má dæmi nefna að árið 2004 tóku 96,6% nema í Norð- vesturkjördæmi samræmt próf í ís- lensku. HJ Skógarbók Grænni skóga Ut er komin bókin Skógarbók Grænni skóga. Efni hennar er byggt á námsefni námskeiða Grænni skóga, sem er nám fyrir skógarbændur. Námið hófst árið 2001 fyrst á vegum Garðyrkjuskól- ans og síðar Landbúnaðarháskóla Islands í samstarfi við Skógrækt ríkisins, Landgræðsltma og lands- hlutabundnu skógræktarverkefnin. Bókin er hugsuð bæði sem kennslubók og almenn handbók um fjölmarga þætti skógræktar á Islandi og er ætlað að bæta úr brýnni þörf fyrir slíkt námsefni. Skógarbók Grænni skóga fæst í bókabúðum Penninn Eymundsson og á skrifstofu Landabúnaðarhá- skóla Islands á Reykjum. Einnig getur fólk pantað bókina á vefnum r.lbhi.is ('fréttatilkynning) Jólaiort „ Vetrarjiiglar " Mpdftí tft» Jólakort Samhjálpar komin út andi kort eru í hverjum pakka og er verð hvers pakka með umslögum 690 krónur. Einnig er hægt að kaupa pakka á 990 krónur og fylgir þá annað hvort með geisladiskur- inn Greater Than Anything eða bókin Koss götunnar. Þannig er hægt að eignast hvor tveggja jóla- kort og jólagjöf fyrir afar lága upp- hæð. Allur ágóði af sölu kortanna rennur til hjálparstarfs Samhjálpar. Kortin eru til sölu á skrifstofu Sam- hjálpar að Stangarhyl 3a í Ártúns- holti í Reykjavík. Einnig er hægt að panta kort á milli kl. 9 og 15 alla virka daga í síma 561-1000. (fréttatilkynning) tlllnr «(jieinm éífíii >ii9H mm iil ftiiirn um mntiti megn >fn Sala er hafin á jólakortum Sam- hjálpar. Heiti kortanna er Vetrar- fuglar, myndröð eftir listmálarann Sigurþór Jakobsson. 6 mismvm- Þegar gamall grammófónn - giftist harmóniku l/ÍUtAh^Uli(í Allt frá upphafi hef- ur Ríkisútvarpið verið æði ríkur þáttur í hversdagslífi okkar og flestir hafa haft ein- hverja skoðun á bæði dagskrá þess og stjórnun. Yfirleitt aðra skoðun en stjórn- endumir sjálfir. Fyrir allmörgum áram þeg- ar Andrés Bjömsson var útvarpsstjóri var skipt um menn í útvarpsráði og komu inn ungir og ferskir menn og vildu breyta bæði miklu og fljótt. Ekki mun Andrés hafa verið að fullu sáttur þegar hann kvað: Leiðist mér og líka ei að lifa meðal varga. Aftur geng ég er ég dey, -cetla að drepa marga. Sá ágæti útvarpsmaður, Svavar Gests sá lengi um ýmsa útvarpsþætti og undir einum slíkum orti Sveinbjörn heitinn Beinteinsson: Veina hundar, vcela fress, vondir bolar öskra. Svo er líka Svavar Cests. -Sumum fer að blöskra. Eitt af því efni sem margir vora hrifnir af voru vísnaþættir sem vora nokkuð regluleg- ir á tímabili. Minnist ég nokkurra vunsjónar- manna slíkra þátta svo sem Sigurðar frá Haukagili, Sigurbjörns Stefánssonar og mér finnst endilega að Guðmundur Sigurðsson hafi einnig séð um þessa þætti á tímabili. Ekki get ég í fljótu bragði séð annan sem hefði verið líklegri til að fá þessa góðu kveðju frá þakklátum hlustanda: Ævinlega ylja mér útvarps kvceðavökur. Cuðmundur ég þakka þér þínar góðu stökur. Eftir Ólaf Jónsson er þessi ágæta sjálfslýs- ing og virðist mér hún bera það með sér að höfundurinn hafi ekki verið fyllilega ánægð- ur með þau spil sem skaparinn útdeildi hon- um: Að geti ég ort er aðeins gort, andans sport þó stunda. Öll mín kort eru af einni sort - ekki skortir hunda! Tónlistinni hefur löngum verið allvel sinnt af Ríkisútvarpinu þó menn hafi reynd- ar sjaldnast orðið sammála um tónlistarval- ið. Isleifur Gíslason orti einhvemtíman: Hljóðfæranna sœtur sónn sjatnaði ekki í viku. Þegar gamall grammófónn giftist harmóniku. Því miður man ég ekki hver orti svo um söng einhverrar ágætrar söngkonu en greinilega hefur flutningurinn ekki fallið fullkomlega að hans smekk: Lítt hefur gildi göfgandi gól af þessu tagi, líkt og kattarkvikindi kveini í hærra lagi. Á fyrstu árum Ríkisúrvarpsins voru veður- fréttir eitt af því sem mönnum þótti mikil- vægast og Jón Eyþórsson veðurfræðingur nánast í heilagra manna tölu enda frábær út- varpsmaður á öðrum vettvangi jafnframt þó spárnar stæðust ekki alltaf. Eg held endilega að það hafi verið hann sem orti í óþurrkatíð: Stór að lýsa veðri er vandi, vantar öll hin réttu skil. En það er ekki óhugsandi að einhverntíma létti til. Ekki þótti öllum það gáfuleg ráðstöfun þegar Theresía Guðmundsson var gerð að veðurstofustjóra og þótti fráleitt að norsk kona hefði nokkurt vit á íslensku veðri. Auk heldur hafði tíðin náttúrlega aldrei verið eins bölvuð eins og eftir að byrjað var á þess- ari spádómavitleysu. Egill Jónasson orti um veðurútlitið: Syrtir að til fjöru og fjalls, finnst ei rof á milli skýja. Sýnist vera vís til alls veðurgyðjan Theresía. í kuldatíð og jarðbönnum glumdu á fólki auglýsingar um að gefa smáfuglunum og Egill kvað: Tökin herðir tíðarfar, Theresía spáir byl. Hver sem tittlings verður var veiti honum skjól og yl. Bjartsýni er mönnum lífsnauðsynleg og ekki síst í leiðindatíð. Guðmundur V. Sig- urðsson nefnir eftirfarandi kvæði Sjóðsrent- ur og virðist hafa sent það einhverjum rit- stjóra í von um birtingu: Mundirðu birta í blaðinu Ijóð, (bjartsýnisþanka, - sem yljað þér getur) - mannsins em átti frá sumrinu sjóð - og söng út á renturnar - langt fram á vetur. Menn segja að vetur sé genginn í garð og grasið sé hætt að spretta og helvítis ári ég hissa varð (en hætti samt við að detta.) Og þó var ég engum efa í að inni í mér tregi bærðist en auðvitað var ekkert vit í því að velta - þó hjartað særðist. já þessvegna yrki ég ennþá mitt Ijóð, með andlitið fullt af brosi. Og var ekki fregnin um veðrið góð? -Vestlægur élja rosi! Nei almanakið fær engu breytt, - minn andi er frjáls og svífur. Ég heilsa þér vetur og hirði ekki neitt um hóstann sem brjóst mitt rífur. Það er nú óneitanlega svo að veðrið hefur alltaf áhrif á vinnulag okkar og verkhætti og kannske ekki að furða þó höfundi eftirfar- andi erinda litist ekki meira en svo á blikuna: Barometið bölvanlega stendur. Af Stalinisma þögull því þvæ ég mínar hendur. Veðurofsinn voru starfi háir, vindstigunum tíu, takk, Theresía spáir. Kristján Guðjónsson Scram eða Stjáni í Gasstöðinni var þekktur hagyrðingur á sinni tíð en lítill auðsöfnunarmaður og nokkuð hallur undir veldi Bakkusar konungs. Ekki kveið hann þó sinni síðustu för enda sýndist honum ekki þörf mikils farteskis: Ævi mín er einskisverð, eintómt grjót og klaki. Allt sem þurfti í þessa ferð, það var skófla og haki. Ég sorgum hef saman þjappað, syndanna þvegið gólf. Nú er allt klárt og klappað og klukkan að verða tólf. Við andlát Kristjáns orti Ingþór Sigur- björnsson og er óvíst að ýmsir þeir sem töldu sig honum meiri í lifanda lífi hafi feng- ið betri eftirmæli: Crínið eins og gróðrarskúr græddi sár og hressti veika. Cullkorn sem hann gróf upp úr grjóti hversdagsörðugleika. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 311 Borgarnes S 849 2715 - dd@simnet.is *

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.