Skessuhorn - 13.12.2006, Blaðsíða 7
§HSSUH©BKI
MIÐVDCUDAGUR 13. DESEMBER 2006
7
Hverfi fyrir 50 ára og
✓
1
Ljósm. MM
Bæjarráð Akraness hefur heimil-
að Soffiu Magnúsdóttur og fyrir-
tæki hennar Þitt val ehf. að útfæra
skipulagningu á allt að 7 hektara
landi við Kalmansvík á Akranesi
„enda skili hún tillögum um skipu-
lag á svæðinu og framkvæmdaáætl-
rrn innan eins árs,“ eins og segir í
bókun ráðsins. Jafnframt ákvað
ráðið að úthluta ekki umræddu
landi til annarra á þeim tíma.
I minnisblaði ffá Soffíu sem lagt
var fyrir bæjarráð kemur fram að
hugmyndin sé að skipuleggja á
svæðinu allt að 450 íbúðir af ýms-
um stærðum og gerðum sem ætlað-
ar eru fólki 50 ára og eldri. Eru þar
nefnd 30-50 raðhús, parhús og ein-
býlishús, 220-240 þjónustuíbúðir í
fjölbýlishúsum, 80-100 svokallaðar
öryggisíbúðir í fjölbýli þar sem gert
er ráð fyrir umferð hjólastóla og
ýmissa annarra sérþarfa íbúa og 80-
100 íbúðir í hjúkrunarheimili, sem
gert er ráð fyrir að reisa í samvinnu
við hið opinbera. Fram kemur í
minnisblaðinu að eignarhald verði
afar mismunandi allt frá einkaeign
íbúa til leiguíbúða. Þá kemur fram
að áætlaður tími til uppbyggingar
hverfisins verði 10-12 ár með und-
irbúningsvinnu en erfitt verði að
tímasetja byggingu hjúkrunarheim-
ilis.
Gísli S. Einarsson bæjarstjóri
segir hugmynd Soffíu djarfa og
framsýna og bæjarráð hafi talið
sjálfsagt að veita henni frekari
Frá Kalmansvík á Akranesi.
gaum og því hafi verið ákveðið að
gefa Soffiu svigrúm til þess að út-
færa hana nánar. Fyrr á þessu ári
hafhaði bæjarráð beiðni Loftorku
um skipulagningu hverfis í Kalm-
ansvík þar sem rúmast myndu 200-
300 íbúðir. Þá sagði formaður bæj-
arráðs í samtali við Skessuhorn það
stefnu bæjarins að ljúka uppbygg-
ingu Skógarhverfisins áður en nýtt
hverfi yrði skipulagt. Aðspurður
hvort ákvörðunin nú orki ekki tví-
mælis í ljósi fyrri samþykkta segir
Gísli S. svo ekki vera. Núverandi
meirihluti bæjarstjórnar taki öllum
góðum hugmyndum um uppbygg-
ingu á Akranesi fagnandi og sé ekki
bundinn af ákvörðunum fyrri
meirihluta bæjarstjórnar.
Soffía Magnúsdóttir hefur und-
anfarin ár rekið Fasteignamiðlun
Vesturlands. Hún segir málið á al-
gjöru frumstigi. Hún segir ákvörð-
tm bæjarráðs afar ánægjulega og
gefi svigrúm til þess að útfæra hug-
myndirnar nánar. Soffía segist í
starfi sínu sem fasteignasali oft hafa
orðið vör við þörf á fleiri kostum
fyrir fólk þegar fjölskyldurnar taka
breytingum. Með skipulagningu
hverfis sem ætlað er fólki 50 ára og
eldra verði tekið mið af öðrum
þáttum en við skipulagningu hefð-
bundinna íbúðahverfa. Sem dæmi
nefnir hún að ekki verði gert ráð
fyrir leikskóla og grunnskóla í
hverfinu. Aðspurð segist hún ekki
vita til þess að hliðstætt hverfi hafi
verið skipulagt hér á landi og því sé
hér um afar spennandi kost að
ræða. Eins og fram kom er rætt um
að í hverfinu verði um 450 íbúðir
og Soffía óttast ekki að þar sé í of
mikið ráðist og bendir á að þarna sé
verið að hugsa rúman áratug ffam í
tímann. HJ
Skyndihjálp hlutí af lífsleikninámi
í Grundaskóla á Akranesi er kennt
fag sem heitdr Hreyfistund en þar er
komið til móts við aukna þörf fyrir
hreyfingu innan veggja skólans hjá
bömum í 1.-4. bekk. I Hreyfistund
er leitast við að samþætta náms-
greinar þar sem m.a.er unnið með
stærðfræði og íslensku tengt hreyf-
ingu. Einnig er farið í leiki, tjáningu,
lífsleikni og síðast en ekki síst
skyndihjálp. Blaðamaður brá sér í
heimsókn í skólann og tók hús á
Hinum meðvitundarlausu komiSjýrir í sjúkrabíl. Hildur
Karen og aSrir nemendur fylgjast meS.
kennaranum Hildi Karenu Aðal-
steinsdóttur og nemendum hennar,
fræddist örlítið um Hreyfistund,
skyndihjálparleikritin og hvernig
kennslan er að skila sér ríkulega.
Hildur Karen er menntuð úr
Kennaraháskóla Islands og hefur séð
um hreyfistundakennsluna í
Grundaskóla undanfarin ár þar sem
markvisst er unnið með helstu lík-
amsheiti og mikilvægi þess að beita
líkamanum rétt. Mikil áhersla er
lögð á að nemendur læri að slaka á
og læri æfingar til þess, en með slök-
uninni er m.a. leitast við að draga úr
spennu t.d. með snertingu og nuddi.
„Til að ná góðri stemningu og
trausti í hópnum er gott að setjast
niður með nemendum og ræða mál-
in en jafnframt er mikilvægt að
hlusta á þeirra frásögn, því böm hafa
oft mikla þörf fyrir að segja frá eigin
lífsreynslu og ræða hana,“ segir
Hildur Karen.
Leikgerðin færir námsefn-
ið nær raunveruleikanum
Krakkarnir, sem mættir vora í
skyndihjálpartíma, stigu á stokk og
voru í þann veginn að fara að flytja
leikrit um fyrstu viðbrögð í skyndi-
hjálp, er blaðamann bar að, en leik-
ritin sömdu þau að stórum hluta
sjálf. „I skyndihjálpar-
kennslunni er stuðst
við bókina Við hjálp-
um, sem Rauði kross-
inn gefur út en mikill
hluti kermslunnar fer
hinsvegar fram með
því að setja á svið leik-
rit og sýna en einnig
með umræðum og
sögugerð,“ útskýrir
Hildur Karen. Aður
en leikritin hófust
kynntu þau sig og út-
skýrðu hlutverk sitt
innan verksins, en
hópurinn, sem var skipt niður í þrjá
minni hópa, tók fyrir þrenns konar
slys. í fyrsta hópnum var tekið fyrir
óútskýrt meðvitundarleysi, þar sem
tveir drengir hnigu í öngvit og félag-
ar þeirra hlúðu að þeim, töluðu til
þeirra, lyftu upp fótum til að blóð-
flæði til heilans væri tryggt og
hringdu síðan 1-1-2 og báðu um að-
stoð. Til allrar lukku barst hjálpin
hratt og örugglega og hinir meðvit-
undarlausu voru fluttir hið snarasta
á spítala með sjúkrabíl.
Annað atriðið fjallaði um stúlku
sem hafði verið mönuð af félögum
sínum að hlaupa yfir götu, en varð
svo óheppin að lenda fyrir bíl. Sama
ferli hófst, félagar hennar sýndu hár-
rétt viðbrögð, athuguðu meðvitund-
arstig, hvort einhverjir áverkar væru
og töluðu til hennar. Hringt var á
Neyðarlínuna, skilmerkilega sagt frá
aðstæðum og hjálpin barst.
I þriðja leikritinu var fjallað um
eld þar sem áherslan var lögð á að
koma sér út út brennandi húsi hið
fyrsta og alls ekki að reyna að bjarga
dóti eða öðrum veraldlegum hlut-
um.
Krakkarnir stóðu sig allir með
mikilli prýði, leikurinn var afar
sannfærandi og greinilegt að þeim
þótti gaman að takast á við verkefh-
ið. Auk þess að búa til leikrit eru
bömin síðan látin skrifa sögu og
teikna myndir en þannig er haldið
áffarn með efnið. í síðasta tímanum
er síðan farið út á meðal fólks og það
krafið sagna um kunnáttu sína í
skyndihjálp.
Hefur komið að gagni
En blaðamanni lék forvitni á að
vita hvort skyndihjálparnámskeiðið
hefði komið að gagni í daglega lífinu
hjá krökkunum og sagði Hildur
Karen það vissulega hafa gerst. Til
dæmis hefði strákur slasast á skóla-
lóðinni, utan skólatíma, og þar
hefðu félagar hans leyst úr aðstæð-
um á hárréttan máta. Sýnt yfirveg-
un, róað þann sem slasaðist og kall-
að til hjálp. Einnig kom það nýlega
fyrir að nemandi skólans var með
móður sinni í bíl þar sem hún fékk
skyndilegt aðsvif og nánast meðvit-
undarleysi en drengurinn, sem sýndi
mikið æðruleysi, hringdi í Neyðar-
línuna og talaði til móður sinnar á
rólegu nótunum meðan hann beið
efrir hjálp.
Hildur Karen segir að lokum að
frábært sé að sjá árangurinn og
áhugann hjá krökkunum „en þessu
öfluga starfi má m.a. þakka góðum
stuðningi og hvatningu skólayfir-
valda í Grundaskóla en það skiptir
miklu máli að finna að maður hafi
stuðning við það sem maður er að
gera.“
KH
rf.ytI ingi tryggvason hdL
/ylt lt/ lögg. fasteigna- og skipasali
FASTEIGNIR í BORGARNESI
SKALLAGRÍMSGATA1
íbúð á 2. hæð 122 ferm. og
bílskúr 34,7 ferm. Forstofa, hol
og gangur flísalagt. Stofa
teppalögð. Þrjú svefnherbergi
dúklögð. Eldhús flísalagt, ljós
viðarinnrétting. Baðherbergi allt
flísalagt, ljós innrétting.
i Þvottaherbergi, búr og geymslur. Sér inngangur.
| Verð: 26.900.000
SKÚLAGATA19
Einbýlishús á 2 hæðum 118,8
ferm. Á efri hæð er parketlögð
forstofa. Saml. stofa og eldhús
með flísum og við á gólfum,
viðarinnr. í eldhúsi. Eitt herbergi
með viðargólfi. Lítil dúklögð
snyrting. Á neðri hæð er hol með
máluðu gólfi. Baðherbergi með flísum á gólfi en veggir
málaðir. Eitt herbergi dúklagt og geymsla.
Verð: 18.000.000
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu
Ingi Tryggvason hdl. löggiltur fasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61,310 Borgarnes,
s. 437 1700, 860 2181 - fax 437 1017,
^netfang: Iit@simnet.is - veffang: lit.is____^
HYRNUT0RGI - B0RGARNESI
Opnu nartín ii yfir
iól C ig ára mót:
J Laugardagur 16.12.2006 10:00-20:00
Sunnudagur 17.12.2006 12:00-19:00
Mánudagur 18.12.2006 09:00-19:00
Þriðjudagur 19.12.2006 09:00-19:00
Miðvikudagur 20.12.2006 09-00-19:00
Fimmtudagur 21.12.2006 09:00-19:00
Föstudagur 22.12.2006 09:00-22:00
Þorláksmessa - laugardagur 09:00-23:00
Aðfangadagur -sunnudagur 09.00-13.00
Jóladagur - mánudagur Lokað
Annar í Jólum - þriðjudagur Lokað
Miðvikudagur 27.12.2006 09-00-19:00
Fimmtudagur 28.12.2006 Vörutalning
Föstudagur 29.12.2006 09:00-19:00
Laugardagur 30.12.2006 09:00-20:00
Gamlársdagur -sunnudagur 09.00-13.00
Nýársdagur - mánudagur Lokað
Þriðjudagur 2.1.2007 Venjuleg opnun