Skessuhorn


Skessuhorn - 13.12.2006, Síða 9

Skessuhorn - 13.12.2006, Síða 9
^Btssunuk. < MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006 9 Sveitarstjóri Dala- byggðar gerir athuga- semd við svör Sivjar Gunnólfur Lárusson sveitarstjóri Dalabyggðar gerir alvarlegar at- hugasemdir við svör Sivjar Frið- leifsdóttur heilbrigðisráðherra á Alþingi við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar um fjölda hjúkrunar- rýma á landinu skipt efrir sveitarfé- lögum. Eins og frarn kom í frétt Skessuhorns er landinu skipt upp í þjónustuhópa og eru þeir 43 á landinu. I svari ráðherra kom fram að flest væru hjúkrunarrýmin í þjónustuhópi Dalabyggðar sem nær yfir Dalabyggð og Reykhóla- hrepp. Þar eru rýmin 48 talsins eða 49,5 á hverja þúsund íbúa. A land- inu öllu eru rýmin hins vegar 2.554 eða 8,5 á hverja þúsund íbúa. Gunnólfur segir að framsetning ráðherra sé afar villandi. I Dala- byggð séu starfandi tvö hjúkrunar- heimili með algjörlega aðskylda markhópa. Annars vegar sé það Dvalarheimilið Silfurtún með 7 hjúkrunarrými ætluð til öldrunar- þjónustu og hins vegar sé það Hjúkrunarheimilið Fellsendi með 28 hjúkrunarrýmiun sem séu sér- hæfð fyrir miðaldra og aldraða geð- sjúklinga sem koma frá landinu öllu. Þau rými séu ekki á nokkurn hátt ætluð íbúum Dalabyggðar og þjónustuhópur aldraðra í Dala- byggð og Reykhólahreppi hafi ekk- ert með innlagnir þar að gera. Að auki nefnir Gunnólfur að á Fells- enda séu ekki nema 18 rými nýtt því glæsileg viðbygging hafi ekki að fullu verið tekin í notkun. Þá er Hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð starfrækt í Reykhóla- hreppi með 13 hjúkrunarrýmum. Því séu samtals 48 rými í þessum tveimur sveitarfélögum en aðeins 7 þeirra nýtist íbúum í Dalabyggð. Því séu rýmin í Dalabyggð rúmlega 10 á hverja þúsund íbúa en ekki 49,5 eins og skilja mátti á svari ráð- herra. „Svona er auðvelt að leika sér með staðreyndir til að fela raun- veruleikann án þess að segja á nokkurn hátt frá þörfinni eins og hún er sannleikanum samkvæmt" segir Gunnólfur. Þá segir hann að Dvalarheimilið Silfurtún í Búðar- dal hafi sótt um að fá 8 dvalarrým- um þar breytt í hjúkrunarrými vegna brýnnar þarfar í sveitarfélag- inu og því geti staðreyndir sem settar eru fram á Alþingi á verulega villandi hátt spillt fyrir framgangi þeirrar umsóknar. HJ Fjölbrautaskóli Snæfellinga QruratersjMu 44 - 350 Ound«<)öf Mr • Sfc* «30 6400 FRAMHALDS- SKÓLAKENNARAR Laus er til umsóknar heil staða þroskaþjálfa eða sérkennara við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Um afleysingu er að ræða frá 1. janúar 2007 til 31. maí 2007. Starfið felst í kennslu á starfsbraut og umsjón með nemendum brautarinnar. Einnig er laus til umsóknar staða frönskukennara í hlutastarf (u.þ.b. 25% starfshlutfall). Samkvæmt 17. gr. laga nr. 86/1998 um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra þurfa umsækjendur að hafa kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi Kennarasambands Islands og fjármálaráðherra. Fjölbrautaskóli Snæfellinga tók til starfa í ágúst 2004. Skólinn er leiðandi í breyttum kennsluháttum og skipulagi skólastarfs á framhaldsskólastigi, m.a. með hagnýtingu upplýsingatækni í staðbundnu námi, dreifnámi og fjarnámi. Hugmyndafræði skólans gerir ráð fyrir einstaklingsmiðuðu námi í opnum rýmum með áherslu á hópa- og verkefnavinnu. Leitað er að starfsfólki sem hefur áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og í nýtingu upplýsingatækni í skólastarfi. Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Guðbjörgu Aðalbergsdóttur skólameistara, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði eða á netfangið gudbjorg@fsn.is í síðasta lagi 27. desember 2006. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar má finna á vef skólans www.fsn.is eða hjá skólameistara (sími: 864-9729 netfang: gudbjorg@fsn.is). Skólameistari Jólatré ■ fílbúnar leiðisgreinar verða til sölu í húsi Björgunarfélags Akraness, að Kalmansvöllum 2 w w w

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.