Skessuhorn - 13.12.2006, Side 14
14
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006
^sunuiL i
Oska skýrra svara samgönguráð-
herra um uppbyggingu ökugerðis
Afstöðumynd af hugmynd ad aksturs-
kennslusvæði á Akranesi.
Bæjarráð Akraness samþykkti í
síðustu viku að óska skýrra svara
Sturlu Böðvarssonar samgönguráð-
herra um fyrirhugaða uppbyggingu
ökugerðis á Akranesi og hvort stað-
ið verði við viljayfirlýsingu sem bæj-
arfélagið stóð að ásamt ráðuneytinu
um uppbygginguna. Forseti bæjar-
stjómar segir skýringar starfsmanna
ráðuneytisins ekki fulbiægjandi og
því sé óskað skýrra svara ráðherra.
Forsaga málsins er sú að 24. apríl
í vor tmdirrituðu Okukennarafélag
Islands og Akraneskaupstaður vilja-
yfirlýsingu um stofiiun og rekstur
aksturskennslusvæðis á Akranesi.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra undirritaði einnig yfirlýsing-
una og staðfesti aðkomu ráðuneytis-
ins að málinu. Atti hönnun svæðisins
og starfsemi taka mið af væntanlegri
reglugerð samgönguráðuneytisins
um slfk kennslusvæði. Var áætlað að
Akraneskaupstaður legði til 5-6
hektara lands undir starfsemina og
var því líst að með uppbyggingu
svæðisins rættist áratuga gamall
draumur ökukennara.
Eins og fram kom í fféttum
Skessuhoms í september ákvað sam-
gönguráðuneytið að efna til forvals
vegna hugsanlegs reksturs ökugerð-
is. Þá kom frarn í samtali við Berg-
þór Olason þáverandi aðstoðar-
mann samgönguráðherra að sam-
kvæmt samkeppnislögum sé ekki
leyfilegt að veita einkaleyfi eða sér-
leyfi nema að undangengnu slíku
forvali. Hann efaðist samt ekki um
að Okukennarafélag Islands og
Akraneskaupstaður hefðu ákveðið
forskot vegna þess undirbúnings-
starfs sem þar hefði verið unnið.
Unnið hefur verið að undirbún-
ingi málsins um langt skeið á Akra-
nesi og hefur Olöf Guðný Valdi-
marsdóttir arkitekt unnið að skipu-
lagshugmyndum vegna uppbygg-
ingarinnar.
Gunnar Sigurðsson forseti bæjar-
stjómar Akraness segir að þar sem
skipulagsvinna sé langt komin sé
komið að því að verja þurfi talsverð-
um fjármunum til verksins. Því hafi
þótt eðlilegt að leita eftir efndum
ráðuneytisins á þeirri viljayfirlýsingu
sem undirrituð var í vor. Því hafi
tveir fulltrúar ráðuneytisins mætt til
fundar við bæjarráð í síðustu viku,
þau Karl Alvarsson skrifstofustjóri
og Kristrún Birgisdóttir aðstoðar-
maður ráðherra, og þau hafi skýrt
sjónarmið ráðuneytisins. „Þær skýr-
ingar vom að okkar mati ekki full-
nægjandi og því höfum við nú óskað
eftir skýmm svömm ráðherra um
stöðu þessa verkefnis,“ segir Gunn-
ar.HJ
Landsbankinn
með lægsta boð í
bankaviðskipti
Starfshópur sem fór yfir tilboð
þau er bárust í bankaviðskipti
Akraneskaupstaðar fyrir skömmu
hefur komist að þeirri samhljóða
niðurstöðu að tilboð Landsbank-
ans á Akranesi sé lægst og leggur
hópurinn til að teknar verði upp
viðræður við bankann um við-
skiptin. Tilboðin voru metin á
gmndvelli talna sem gengið var út
frá í einstaka þátmm tilboðsins,
ávöxtunar á innlán út frá 80 millj-
ónum króna meðalinneign á
bankareikningi svo og að ekki
þurfi að koma til skammtímafjár-
mögnunar á samningstímanum
heldur verði sú fjármögnun leyst
með langtímalánum.
Alit starfshópsins var kynnt á
fundi bæjarráðs Akraness og var
bæjarritara, fjármálastjóra og end-
urskoðenda falið að gera tilboðs-
gjöfum grein fyrir niðurstöðu til-
boðsins. Sveinn Kristinsson bæj-
arfulltrúi Samfylkingarinnar lagði
ffam tillögu um að gengið yrði til
samninga við Landsbankann. Sú
tillaga var felld. Gísli S. Einarsson
bæjarstjóri segir að þrátt fyrir að
tillaga Sveins hafi verið felld verði
án efa gengið til samninga við
Landsbankann. Meirihluta bæjar-
ráðs hafi hins vegar þótt eðlilegt
að kynna niðurstöðu starfshópsins
fyrir þeim bankastofnunum sem
gerðu bænum tilboð áður en
formleg ákvörðun yrði tekin um
framhaldið.
Auk Landsbankans sendu Glitn-
ir og KB banki inn tilboð í við-
skiptin.
HJ
„Reyni að knúsa konuna inn á milliu
Vika í lífi Viðars Guðmundssonar á Kaðalsstöðum
Viðar að œfa kórinn í Stafholtskirlqu
„Er nálgast jólin, lifiiar yfir öll-
um, það er svo margt sem þarf að
gera þá,“ segir í texta sem oft er
sunginn á þessum árstíma. Það eru
ekki bara húsmæður sem eru upp-
teknar við allt sem á að gera fyrir
jólin. Tónlistarfólk sem færir okkur
ljúfa tóna á aðventunni er einnig
önnum kafið. Blaðamaður Skessu-
horns fylgdist með Viðari Guð-
mundssyni á Kaðalsstöðum í Borg-
arbyggð í eina viku. Viðar er org-
anisti, undirleikari, kennari í Tón-
listarskóla Borgarfjarðar og ekki síst
bóndi. Vikurnar fram að jólum eru
nokkuð þéttskipaðar svo minni tími
gefst til að knúsa konuna og börnin
tvö, Guðbjart og Unni Ernu sem
eru í fyrsta sæti í lífi Viðars, en tím-
inn í fjárhúsunum bjargar því.
„Ég er í barneignafríi svo ég
kenni bara þrjá daga í viku,“ byrjar
Viðar spjalfið. „Eg geri þetta svona
til að treina fæðingarorlofið. Þá get
ég verið í minni kennslu út
kennsluárið. Það er misjafnt hversu
snemma ég vakna, eftir því hvað
liggur fyrir, en fótaferð hjá mér er
svona ffá klukkan 7-9 á morgnana.
Og þegar mikið er í gangi, eins og
núna, myndi ég ekkert muna frá því
í gær ef mín elskulega sambýliskona
Barbara Guðbjartsdóttir héldi ekki
dagbók,“ segir Viðar og hlær.
1. desember
„Föstudagurinn var bara róleg-
ur,“ heldur Viðar áffam. „Eg er ekki
að kenna á föstudögum svo dagur-
inn byrjaði á ferð í fjárhúsin. Það er
)
I
ómetanlegt að hafa þessar stundir í
húsunum inn á milli. Við förum
saman fjölskyldan og njótum þess
að vinna saman og vera innan um
skepnurnar. Eftir hádegið var æfing
á Mið-Fossum fyrir mikla opnun á
stórri reiðhöll, daginn eftir. Þegar
því var lokið fór ég á Byggðasafnið
í Borgamesi til að spila á stein-
hörpuna fyrir Pál á Húsafelli. Þar
voru nokkrir vinir mættir sem
ákváðu að heiðra hann. Frábær
stund. Þegar ég kom heim fóram
við að leita að nokkrum kindum
sem voru að beiða, því Barbara ætl-
aði að sæða þær. Þá var þessum degi
lokið og ég gat meira að segja knús-
að konuna aðeins.“
2. desember
„Laugardagurinn var jafnvel enn
betri en föstudagurinn. Það var
óvenjulega lítill flækingur á mér
þennan dag. Við fórum í fjárhúsin
fyrir hádegi, notalegt eins og alltaf.
Svo var að drífa sig í sturtu og
bruna að Mið-Fossum til að spila
við opnun á reiðhöllinni. Það var
mjög gaman. Um kvöldið gerði ég
nokkuð sem lengi hefur staðið til en
það var að mæta á tónleika hjá
Kammerkórnum í Reykholtskirkju.
Þetta var ljómandi gott og ágætt að
breyta til að vera stundum áheyr-
andi en ekki flytjandi."
3. desember
„Sunnudaginn byrjaði ég á því að
fara upp að Skarðshömrum með
hundinn til að smala fyrir ábúendur
þar til klukkan fjögur. Við feðgarn-
ir, pabbi og ég, erum oft fengnir í
svona vinnu. Þetta heldur manni í
formi. Eftir smalamennskuna fór ég
út á Akranes til að spila tmdir hjá
stúlknakór. Kvöldið fór svo í rollu-
stúss.“
4. desember
„Mánudagurinn var þokkalegur,
hvað varðar verkefni. Ég fór í fjár-
húsin um morguninn. Svo fór ég að
keyra fé sem hafði heimst daginn
áður, til þeirra sem það áttu. Seinni
partinn kíkti ég upp að Fróðastöð-
um til að æfa með Unni og Astu
Þorsteinsdætrum á steinhörpuna
hans Páls á Húsafelli. Þær áttu að
spila á hana með Freykjukórnum
næsta föstudag [síðasta föstudag].
Þetta var skemmtilegt verkefrii. Um
kvöldið var æfing í Reykholtskirkju.
Þar er sameiginlegur kór að æfa fyr-
ir tónleika Sparisjóðs Mýrasýslu
sem verða 14. desember. Eg er und-
irleikari hjá þeim.“
5. desem-
ber
„Um morgun-
inn fór ég að láta
draga naglana úr
hendinni á mér.
Eg handar-
brotnaði í haust
og hef verið með
nagla þar til í
dag. Núna er ég
að verða helv...
góður. Svo fór
ég að kenna og
var við það til að
verða þrjú.
Skaust svo og
keyrði eina
heimkeyrslu á
skólabörnum
fyrir Jón Krist-
leifsson á Sturlu
Reykjum. Eftir það var mál að hitta
Snorra á Fossum og hafa æfingu
með honum. Eftir kvöldmatinn fór-
um við síðan báðir á kóræfingu í
Stafholti, þar sem ég er organisti og
hann söngmaður.“
6. desember
„Byrjað á því að kenna í Tónlist-
arskólanum í Borgarnesi. Svo þurfti
ég aðeins að æfa mig fyrir jarðarför
úti á Akranesi, en klukkan fimm átti
ég að vera kominn upp í Bifföst til
að spila í kveðjuhófi til heiðurs
Runólfi Agústssyni ffáfarandi rekt-
or. Það var tveggja tíma dinner spil.
Venjulega er kóræfing með karla-
kómum Söngbræðrum á miðviku-
dögum, hún var færð til, svo ég gat
farið út á Hvalfjarðarströnd til að
ganga ffá ráðningu minni sem org-
anisti í þremur kirkjum í prestakalli
sr. Kristins Sigurþórssonar. Eg kem
einnig til með að sjá um kórinn.
Þetta verður nú bara eitthvað ffam
á næsta sumar.
7. desember
„Byrjaði á því að mæta í Tónlist-
arskólann og kenna þar. Effir að
heim var komið, gafst tími til að
sinna búverkunum ögn. Eg fór og
keyrði skít á tún og gaf svo kindun-
um mínum. Við vorum saman í
þessu fjölskyldan. Um kvöldið var
æfing með systrunum á Fróðastöð-
um og einnig Önnu Sólrúnu Kol-
beinsdóttur á Stóra-Asi. Þær ætla
allar að spila á steinhörpuna.“
8. desember
„Við tókum eiginlega vitlausa
viku,“ segir Viðar skellihlægjandi,
„þessi sem er að líða hefur verið
óvenjulega róleg. En dagurinn í dag
er kannski nokkuð dæmigerður,
sérstaklega fyrir þennan árstíma.
Eg var kominn út á Akranes klukk-
an tíu í morgun til að æfa mig fyrir
jarðarför sem þar var í dag. Klukk-
an 12 var æfing þar með Jóhanni
Friðgeir Valdimarssyni stórtenór,
Raggi Bjarna kom klukkan 12:45.
Við vorum skotfljótir, hann er pí-
anisti sjálfur svo það var ekkert mál.
Upp úr eitt mætti svo sönghópur-
inn Vocal Mascularis og við æfðum
þar til ég byrjaði að spila kl. 13:30.
Eftir útförina fór ég upp í Borgar-
nes þar sem ég mætti í söngtíma kl.
16. Eg er í söngtímum einu sinni í
viku. Maður getur alltaf á sig blóm-
um bætt. Svo þegar við erum búin
hér, þarf ég að æfa mig og fer síðan
á æfingu með karlakórnum Söng-
bræðrum, sem er eins og ég sagði
áðan, er venjulega á miðvikudög-
um. Eg er undirleikari hjá þeim.“
Blaðamanni er hollast að hypja
sig. Búinn að stela nóg af tíma Við-
ars sem á effir að kíkja á einhverjar
útsetningar og æfa sig, áður en far-
ið verður á æfingu með Söngbræðr-
um. Vika í lífi Viðars er sannarlega
erilsöm, þrátt fyrir að hann segi að
hún hafi verið ein af þeim rólegu.
Skessuhorn óskar þessum mús-
íkalska bónda, smala, skólabílstjóra,
söngstjóra, organista, tónlistar-
nema, kórstjóra og fjölskylduföður
alls hins besta.
BGK
Viðar Guómundsson og Barbara Guðbjartsdóttir skima eftir fé í Þverárrétt í haust. I baksýn má m.a. sjá ritstjóra
Skessuhoms.