Skessuhorn - 13.12.2006, Qupperneq 24
Láttu ekki vandræðin
verða til vandræða íbúðalánasjóður
www.ils.is
FJÁRHAGSLEG GLITNIR^
VELGENGNI ÞÍN
ER 0KKAR VERKEFNI
Daglegar ferðir
Opnunartímarvirka daga 8-12 og 13-16.
Engjaás 2 • 310 Borgarnes • Sími: 458 8880
landflutningar@landflutningar.is • www.landflutningar.is
Landflutningar
SAMSKIP
Víða tjón í óveðrinu á laugardag
í suðaustan hvellinum sem gerði
á laugardagskvöldið síðasta varð
tjón á mannvirkjum á nokkrum
stöðum. Svo virðist sem veðurhæð-
in hafi verið hvað mest í uppsveit-
um Borgarfjarðar. Meðal annars
fauk þak af hluta íjárhúsa á Kópa-
reykjum í Reykholtsdal, þakplötur
af útihúsum í Flókadal og þak af
sumarbústað á Sturlu Reykjum. Þá
brotnaði talsvert af gleri í gróður-
húsum á Kleppjárnsreykjum og
plastbogagróðurhús þar jafnaðist
við jörðu.
I Borgarnesi fauk hálfreist hús
við Stöðulsholt og klæðning af húsi
í gamla hluta bæjarins. A Akranesi
fuku jólatré, vinnupallar og annað
smálegt dót. Þá björguðu Björgun-
arfélagsmenn því að varamanna-
skýli á IA vellinum fykju á haf út.
Veðrið var verst um miðnætti en
lægðin sem hvassviðrinu olli gekk
hratt yfir. Til marks um veðurhæð-
ina þá fór vindraði undir Hafnar-
fjalli í hviðum yfir 50 metra á sek-
úndu og hefur sjálfvirk veðurlýsing
ffá mæli Vegagerðarinnar þar ekki
virkað síðan.
MM
Unnið er við byggingu nýr 1000fermetra gróðurhúss í garðyrkju-
I garfyrlýiistöðinni Skrúðfuku á að giska 60 fm af gleri í gróður- stöðinni Reit á Kleppjámsreykjum. Þarfúku á annað hundrað
húsunum. Ljósm. BHS rúður og einnig nokkuð í eldri húsum þar. Ljósm. BHS
Horft út um þaklausa hluta fjárhúsanna á Kápareykjum. Ljósm. SH
Fyrir helgi var búið að reisa hluta útveggja húss við Stöðulsholt í Borg-
amesi enfítt var eftir á sunnudag sem minnti á hús. Ljósm. MM
Samningur um
ritun Sögu Akraness
framlengdur
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt að ffamlengja samning við
Gunnlaug Haraldsson um ritun
sögu Akraness ffá landnámi til árs-
ins 1941. Fyrir verkið samkvæmt
nýjum samningi fær Gunnlaugur
greiddar 10 milljónir króna. Aður
hefur Akraneskaupstaður greitt
Gunnlaugi rúmar 44 milljónir
króna fyrir störf sín við ritun sög-
unnar á undanförnum árum.
Heildarkostnaður við ritunina gæti
orðið rúmlega 65 milljónir króna
þegar verkið verður tilbúið til
prentunar.
Upphaflega samdi Akraneskaup-
staður við Jón Böðvarsson um ritun
sögu Akraness og var ætlað að hún
yrði gefin út í þremur bindum.
Kom fyrsta bindið út árið 1992 og
bar nafiiið Akranes - Frá landnámi
til 1885. Jón sagði sig frá verkinu
árið 1997 og hafði þá fengið
greiddar rúmar 9,2 milljónir króna
fyrir störf sín. Þegar Jón sagði sig
ffá verkinu var samið við Gunnlaug
um verkið og hefur hann unnið að
því síðan. Samningur við hann var
endurnýjaður árið 2002 og einnig
árið 2004 og er því nú endumýjað-
ur í þriðja sinn. Af útgáfu hefur
hins vegar ekki orðið ennþá þrátt
fyrir margra ára störf.
Samkvæmt nýjasta samningnum
er við það miðað að ritun fyrsta
bindis skuli lokið „í umsömdu
horfi“ 30. mars 2007 og að ritið
teljist tilbúið til prentvinnslu 15.
september 2007. Ritun annars
bindist hefjist 1. október 2007 og
það verði tdlbúið til prentvinnslu
30. júní 2008.
I niðurlagi nýgerðs samnings
segir að söguritari ábyrgist gæði
verk síns og verktíma, en Akranes-
kaupstaður greiðslu verklauna.
Takist ekki að ljúka verkinu innan
umsaminna tímamarka er sveitarfé-
laginu heimilt að rifta samningnum
og krefjast endurgreiðslu þess er
greitt hefur verið inn á verkið.
Haldist tímaákvæði samningsins
mun því seinna bindi sögunnar
koma út rúmum 20 árum eftir að
vinna við verkið hófst.
HJ
www.skessuhom.is
íslenskt símanúmer í útlöndum...
...hringdu heim
til íslands
fyrir 0 kr.
- símtalið*
Pantaðu áskrift!
Það eina sem þú þarft að gera er að
hringja í síma 582 2000 og panta
þjónustuna eða fá nánari upplýsingar.
smartsími.is
Atlassími ■ Ármúla 19 ■ 108 Reykjavík
Sími: 582 2000 ■ Fax: 534 6555 ■ www.atlassimi.is
\
*0 kr. í alla fastlínusíma á íslandi
*0 kr. innan kerfis
*0 kr. í smartsíma erlendis
14,90 kr. í GSM, sama verð í alla
70%-90% ódýrara til útlanda - alltaf
\
HoimasVnw aðe\ns
^1.360,
Fyrirtækjasími
Mánaðargjald aðeins
kr. 2.490,-