Skessuhorn - 16.05.2007, Blaðsíða 5
Tækni- og verkfræðideild
Tækni- og verkfræðideild HR er ein af
stærstu háskóladeildum landsins. Þar
er lögð áhersla á að veita tæknifólki
og stjórnendum framtíðarinnar
afburða háskólamenntun. Ennfremur
er mikið lagt upp úr því að nemendur
geti, sjálfstætt eða í samstarfi við
fræðimenn í fremstu röð, stundað
öflugar rannsóknir og sinnt ný-
sköpunar- og þróunarstörfum í
tæknifræði, tölvunarfræði og verk-
fræði. Þeir sem mennta sig í þessum
greinum eiga stóran þátt í velgengni
margra íslenskra fyrirtækja á alþjóða-
markaði.
Viðskiptadeíld
Viðskiptafræðinámið í Háskólanum
í Reykjavík er góður undirbúningur
fyrir mikla ábyrgð í atvinnulífinu.
Það gefur duglegum námsmönnum
tækifæri til að ná langt í starfi og er
um leið góður undirbúningur fyrir
framhaldsnám í viðskiptafræði.
Framtíðarsýn viðskiptadeildar er:
Að vera fyrsta vaj fólks sem vill læra
viðskiptafræði á íslandi.
Að vera fyrsta val fyrirtækja
og stofnana sem vilja ráða
afburðafólk til starfa sem hefur
viðskiptamenntun.
Lagadeild
Við lagadeild Háskólans í Reykjavík
er í boði metnaðarfullt og nútíma-
legt laganám sem miðar að því
að útskrifaðir nemendur verði
framúrskarandi lögfræðingar og í
fremstu röð á sínu sviði. Lagadeild
HR er brautryðjandi í nútímavæðingu
laganáms hér á landi, hvort sem
litið er til skipulags námsins eða
kennsluaðferða. Vorið 2007 útskrifar
lagadeild fyrstu laganemana með
fullnaðarpróf í lögfræði eftir fimm
ára grunn- og meistaranám.
Kennslufræði- og lýðheilsudeild
Kennslufræði- og lýðheilsudeild býður
nýtt og spennandi nám fyrir fagfólk,
sem vinnur að því að mennta börn og
ungmenni, efla þroska þeirra, heilsu
og velferð. Námið er ætlað þeim sem
vilja vinna að velferð einstaklinga
í samfélaginu, svo sem í félags- og
heilþrigðisþjónustu og þeim sem vilja
afla sér kennsluréttinda og vinna
innan skólakerfisins. Meginmarkmið
deildarinnar er að hafa áhrif á
menntun og heilsu þjóðarinnar. Við
deildina er boðið upp á nám á fjórum
sviðum: Lýðheilsufræði, stærðfræði,
íþróttafræði og kennslufræði.
Kynntu þér nám í HR á www.hr.is
Umsóknarfrestur er til 31. maí.
❖
HÁSKÓLINN I REYKJAVÍK
REYKJAVÍ K UN IVERSITY
OFANLEITI 2 • HÖFÐABAKKI 9 • KRINGLAN 1
SÍMI: 599 6200 • www.hr.is
HÁSKÓLI 21. ALDARINNAR
Nám við Háskólann í Reykjavík er dýrmætt veqanesti fyrir þá sem
vilja öðlast góða menntun oq starfa í fremstu víglínu atvinnulífsins.
Háskólinn í Reykjavík er eftirsóttur. Þeir sem útskrifast úr skólanum hafa öðlast
skilning á íslensku atvinnulífi og samfélagi. Þeir hafa kynnst alþjóðlegu samstarfi
og fengið innsýn í framtíðina í gegnum brautryðjandi rannsóknir.
Háskólinn í Reykjavík er í forystu hvað varðar þjónustu við nemendur og öll
aðstaða til náms er framúrskarandi.
Nemendur HR geta sótt námskeið í u.þ.b. 100 skólum í rúmlega 20 löndum.
Ef þú vilt undirbúa þig fyrir framtíðina, læra og þroskast í skemmtifegu,
skapandi og krefjandi umhverfi þá er Háskólinn í Reykjavík fyrir þig.
Öfiug menntun og skýr framtíðarsýn leggur grunninn að bjartri framtfð.