Morgunblaðið - 04.05.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.05.2019, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 4. M A Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  104. tölublað  107. árgangur  SANNLEIKURINN EINS OG ÉG UPPLIFI HANN DÚFUR HAFA BJARGAÐ MANNSLÍFUM DÚFNAREGISTUR 12 Ljósmynd/Ólafur Már Björnsson Aðgerðir Augnlæknar á einkastofum bíða svara um framhald samninga. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Hjá Sjónlagi og Lasersjón, einka- reknum augnlæknastofum, hafa ver- ið grunnsamningar um augasteina- aðgerðir. Samningar runnu út 1. maí og hefur þessum stofum reynst óger- legt að fá svör frá Sjúkratryggingum Íslands. Fjallað er um málið í Sunnu- dagsMogganum í dag. Þegar klukkuna vantaði þrjár mín- útur í fjögur hinn 30. apríl sendu SÍ tölvupóst þess efnis að hefja ætti við- ræður um framhaldið. Ef samið verð- ur aftur gæti samningaferlið tekið langan tíma og á meðan er óvissa um afdrif sex hundruð sjúklinga sem bíða á lista hjá Sjónlagi og á annað hundrað hjá Lasersjón en um 1.500 eru á biðlistum í heildina á öllu land- inu. Eiríkur Þorgeirsson, augnlæknir hjá Lasersjón, segist ekki vita hver næstu skref verði. „Það er ekki hægt að ganga á bak orða sinna. Þetta fólk er búið að bíða og er í brýnni þörf. Mín skoðun er að þessir sjúklingar eigi rétt á endur- greiðslu kostnaðar þótt stjórnvöld hafi ekki leitað samninga um þessa þjónustu á réttum tíma. Slæmt er að vita ekki hvað stjórnvöld ætlast fyrir og hvort það gæti hugsanlega tekið marga mánuði uns þau hafa leiðrétt þessi mistök gagnvart sjúklingum,“ segir hann. Læknirinn Kristján Guð- mundsson, sem fer fyrir samn- inganefnd lækna, segir verst að skilja sjúklinga og lækna eftir í óvissu. „Það er vitað mál að það er þörf á þessari þjónustu og ef ríkið ætlar ekki að kaupa hana þá ber því a.m.k. að tilkynna það. Mér finnst þetta skelfileg umgengni við almenning; að halda öllum í óvissu eins og það sé ekki búið að taka ákvörðun. Hvar stendur sjúklingurinn þá?“ Brynja D. Runólfsdóttir er ein þeirra sem bíða eftir augasteinum. „Vonbrigðin eru svo mikil! Það var búið að samþykkja allt. Ég hef ekki hugmynd um hvað verður. Á ég að fara á biðlista hjá Landspítalanum og fer ég þá aftast á hann?“ spyr hún. „Mér finnst gengið á minn rétt sem einstaklings með skerta sjón. Ég skil ekki þessi vinnubrögð.“ Engir nýir samningar um augasteinaaðgerðir  Samningar á einkareknum stofum runnu út 1. maí Útsýnisferðir með þyrlum Norðurflugs sem heita „Essential Iceland“ njóta mikilla vinsælda meðal erlendra ferðamanna, að sögn Birgis Haraldssonar, framkvæmdastjóra. Flestir farþeganna eru erlendir og koma þeir víða að úr heiminum, frá Bandaríkjunum, Evrópu, Asíu og nokkrir hafa komið alla leið frá Ástralíu til að skoða Ísland úr þyrlu. Myndin var tekin nýlega í slíku útsýnisflugi yfir Land- mannalaugar. Ferðin tekur um tvær og hálfa klukkustund og er lent bæði í Landmannalaugum og Þórsmörk. Gaumgæfa margar helstu gersemar íslenskrar náttúru úr lofti Morgunblaðið/Árni Sæberg  Tuttugu og fimm þúsund Nes- presso-kaffihylki seljast dag hvern hér á landi, að sögn Jónasar Hagan Guðmundssonar, eins eigenda um- boðs Nespresso á Íslandi. Sú sala samsvarar rúmlega níu milljónum hylkja á ársgrundvelli. Nespresso opnar í dag nýja versl- un í Smáralind, en á næsta einu til tveimur árum hyggst fyrirtækið setja upp sjálfsala með kaffihylkj- um úti á landi. »20 Selja 25 þúsund kaffihylki á dag  Fimmti hver hjúkrunarfræðingur er hættur að starfa við hjúkrun fimm árum eftir útskrift. Þetta sýna gögn sem ná aftur til ársins 2012. Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir í umfjöll- un um málið í Morgunblaðinu í dag að eitt helsta baráttumálið í kjara- viðræðum hjúkrunarfræðinga sem nú eru hafnar sé að bæta launakjör og minnka álag svo hjúkrunarfræð- ingar sem hætt hafa störfum geti hugsað sér að snúa aftur. »22 Morgunblaðið/Ómar Landspítalinn Margir hjúkrunarfræðingar hafa horfið til annarra starfa síðustu ár. Bætt launakjör og minna álag nauðsyn Verð íbúða í fjölbýli lækkaði í mið- borginni, Vesturbænum og Hlíð- unum í Reykjavík á fyrsta fjórðungi í ár. Það hækkaði hins vegar í Selja- hverfinu, Breiðholti og Grafarvogi. Fermetraverð í Breiðholti er nú um 400 þúsund krónur og kostar 100 fermetra íbúð þar því 40 milljónir. Framboð nýrra íbúða í miðborg- inni er nú sennilega án fordæma. Hærri byggingarkostnaður Sturla Geirsson, framkvæmda- stjóri fasteignafélagsins Rauðs- víkur, sem byggir á annað hundrað íbúðir við Hverfisgötu, segir fyrirséð að verð nýrra íbúða í miðborginni muni hækka á næstu árum. Þá ekki síst vegna hækkandi byggingar- kostnaðar. „Málið er að byggingar- kostnaður hefur hækkað verulega síðustu misseri, bæði efni og vinna,“ segir Sturla. baldura@mbl.is »9 Íbúðaverð á hreyfingu  Verðlækkanir í miðborg og Hlíðum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Nýtt Horft frá Hverfisgötu 85-93. MYNDIR ÚR ÁRNESHREPPI 43

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.