Morgunblaðið - 04.05.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019
8 nýlegar einingar, 27 fm með WC, sturtu
og eldhúskrók, fluttar inn nýjar 2016
og voru notaðar í ca 14 mánuði.
Rúm og dýnur ásamt lausamunum fylgja.
2 einingar úr timbri, 15 fm með WC, sturtu
og eldhúskrók.
Rúm og dýnur ásamt lausamunum fylgja.
Skrifstofueining, úr timbri, 115 fm.
Samanstendur af 4 einingum, lítið eldhús
og baðherbergi með sturtu innifalið.
Stakar einingar úr
VINNUBÚÐUM til sölu
Nánari upplýsingar má finna á www.isol.is
eða hægt að hafa samband hjortur@isol.is
Landsmenn eru þegar farnir að
bóka aðventuferðir fyrir næstu jól
og áramót og hófust bókanir hjá
nokkrum ferðaskrifstofum í apríl.
„Það er dásamlegt að koma til Berl-
ínar þegar jólaljósin ljóma og borgin
skartar sínum fegurstu jólaskreyt-
ingum,“ segir í nýbirtri auglýsingu
um aðventuferð hjá ferðaskrifstof-
unni Úrval-Útsýn.
Bókanir í aðventuferðir hefjast al-
mennt hjá ferðaskrifstofum í apríl
og jafnvel í mars en eldra fólk og
stærri fjölskyldur bóka ferðir al-
mennt í fyrra fallinu. Ferðir til
áfangastaða á borð við Berlín, Hels-
inki, Búdapest, Brussel og Vínar-
borg eru komnar í sölu hjá ferða-
skrifstofum landsins en Elísabet
Hagalín, eigandi ferðaskrifstofunnar
Tripical, segir að landsmenn hugi
fyrr að aðventu- og vetrarferðum nú
en áður fyrr.
„Íslendingar eru farnir að hugsa
meira fram í tímann en þeir gerðu
áður, fólk er jafnvel byrjað að bóka
skíðaferðir í febrúar á þessum tíma,“
segir Elísabet. Hún bætir við að
fleiri aðventuferðir bókist á haustin,
þegar búið sé að skipuleggja sum-
arfríið taki það við að skipuleggja
næstu ferð.
Heimsferðir opnuðu fyrir bókanir
í aðventuferðir í byrjun apríl og seg-
ir markaðsstjóri Heimsferða, Haf-
steinn Másson, að í flestum tilfellum
sé það eldra fólk og stærri fjöl-
skyldur sem bóki ferðir almennt
með löngum fyrirvara, en þó sé allur
gangur á því hverjir bóki aðventu-
ferðirnar.
Þá mun ferðaskrifstofan VITA
hefja að taka við bókunum í aðventu-
ferð í næstu viku. veronika@mbl.is
Byrjað að bóka jólaferðir
Landsmenn bóka núna aðventu- og vetrarferðir fyrr
en áður, segir eigandi ferðaskrifstofunnar Tripical
Getty Images/Thinkstock
Jólin Einhverjir Íslendingar eru
farnir að huga að jólaferðinni í ár.
Unnið var að því að steypa grunn
nýja Icelandair-hótelsins við Thor-
valdsensstræti og Kirkjustræti þeg-
ar tíðindamaður Morgunblaðsins
var á ferð í miðbænum í gærdag.
Verður hótelið starfrækt undir
merkjum Curio by Hilton. Að sögn
Samúels Guðmundssonar, verkefn-
isstjóra framkvæmdanna, er stefnt
að því að hæðirnar verði steyptar
hver af annarri á næstu mánuðum.
Jafnframt er unnið að fram-
kvæmdum innandyra í gamla
Landssímahúsinu sem verður hluti
af nýja hótelinu. Við það er miðað
að verkinu verði að fullu lokið í árs-
lok 2020 og þá verði hægt að hefja
rekstur hótelsins. Samtímis er unn-
ið að öðrum framkvæmdum á
Landssímareitnum, m.a. endurgerð
Nasa-salarins.
Framkvæmdirnar hafa sem
kunnugt er verið mjög umdeildar
þar sem undir steypuplötunni var
fyrr á tíð hluti hins forna Víkur-
kirkjugarðs. Allar jarðneskar leifar
í garðinum hafa hins vegar verið
fjarlægðar, síðast við fornleifaupp-
gröft árið 2016.
Steypuvinna í fullum gangi á Landssímareitnum í miðbænum
Hótelið
opnað í
árslok 2020
Morgunblaðið/sisi
Hótel rís Steypt plata yfir svæðið þar sem áður var viðbygging og bílastæði Landssímans og þar áður hluti hins forna Víkurkirkjugarðs.
Andri Yrkill Valsson
Arnar Þór Ingólfsson
Isavia kærði í gær til Landsréttar
úrskurð Héraðsdóms Reykjaness í
máli bandaríska flugvélaleigufyrir-
tækisins ALC þar sem þess var
krafist að kyrrsetning þotu sem var
á leigu hjá WOW air yrði aflétt.
Í úrskurði héraðsdóms sagði að
Isavia væri heimilt að halda vélinni
vegna þeirra gjalda sem henni
tengjast, en ekki vegna annarra
skulda WOW air við Isavia.
Isavia hafnaði þar með boði ALC
um að bandaríska fyrirtækið greiði
skuldir vegna farþegaþotunnar, sem
hefur verið kyrrsett á Keflavíkur-
flugvelli frá gjaldþroti WOW air
þann 28. mars.
ALC vildi borga 87 milljónir
Samkvæmt útreikningum ALC
nam skuld vegna vélarinnar um 87
milljónum króna, en WOW air
skuldaði Isavia um tvo milljarða.
ALC gaf Isavia frest til klukkan 16 í
gær, annars teldi fyrirtækið vélina
leysta með greiðslu 87 milljóna.
Isavia hafnaði því hins vegar og
áfrýjaði til Landsréttar.
Í tilkynningu Isavia ítrekar fyrir-
tækið að úrskurður héraðsdóms
staðfesti að fyrirtækinu hafi verið
heimilt að stöðva flugvél ALC vegna
ógreiddra notendagjalda WOW air.
„Að mati Isavia er aftur á móti að
finna misvísandi umfjöllun í forsend-
um úrskurðarins um túlkun á efn-
islegri heimild til beitingar á því
ákvæði loftferðalaga sem heimilar
stöðvun flugvélar,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Háar óbeinar tekjur af WOW
Bjarni Benediktsson fjármála- og
efnahagsráðherra segir að sér þyki
stjórn Isavia hafa fært ágætisrök
fyrir því hvernig hún hélt á málum
er varða ógreidd lendingargjöld
WOW air á Keflavíkurflugvelli og
benti á það, í samtali eftir ríkis-
stjórnarfund í gær, að óbeinar
tekjur af rekstri WOW air frá því
flugfélagið lenti í vanskilum við
Isavia hefðu numið „gríðarlega
háum fjárhæðum“.
Bjarni segir að það sé „sjálfsagt
að taka það með í reikninginn, vilji
menn komast að niðurstöðu með það
hvaða áhrif ákvarðanataka stjórnar
Isavia hefur haft heilt yfir“.
Bjarni kvaðst í gær ekki vera
kominn með fulla yfirsýn yfir það
hvaða afleiðingar úrskurður Héraðs-
dóms Reykjaness mundi hafa.
„Það virðist vera að það sé ein-
hverri túlkun háð, hver verða næstu
skref. Báðir aðilar virðast vera að
velta því fyrir sér fyrir sitt leyti hvað
gerist næst, þannig að ég held að við
verðum aðeins að bíða og sjá hvernig
úr þessu spilast, til þess að komast
að niðurstöðu um það hvernig maður
á að meta stöðuna,“ segir Bjarni.
Isavia hefur kært til Landsréttar
Isavia hafnaði boði flugvélaeigandans ALC um að borga skuld vegna kyrrsettrar flugvélar upp á
87 milljónir Óbeinar tekjur af WOW air, eftir að félagið lenti í vanskilum, námu háum fjárhæðum
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Kyrrsett Þota í eigu ALC var kyrrsett vegna skulda WOW air við Isavia.
Kyrrsetta þotan
» Héraðsdómur Reykjaness
kvað upp úrskurð í fyrradag í
máli flugvélaleigufyrirtækisins
ALC gegn Isavia.
» WOW air skuldar Isavia not-
endagjöld upp á um tvo millj-
arða króna. Isavia kyrrsetti
þotu í eigu ALC til tryggingar
skuldinni.
» Héraðsdómur sagði að kyrr-
setja mætti þotuna vegna þess
hluta skuldarinnar sem henni
tengdist beinlínis.