Morgunblaðið - 04.05.2019, Blaðsíða 39
SÖGUSTUND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Flestir knattspyrnuáhugamenn hafa
heyrt minnst á flugslysið mann-
skæða í München árið 1958. Um borð
var lið Manchester United. Einnig
kannast margir við þegar flugvél
hrapaði í Andes-fjöllunum árið 1972
með knattspyrnulið frá Argentínu
um borð. Ekki síst vegna þeirra ráða
sem þeir sem lifðu þurftu að grípa til
á meðan beðið var eftir björgun. Í
dag eru sjötíu ár liðin frá hræðilegu
flugslysi í Tórínó þar sem leikmenn
besta knattspyrnuliðs Ítalíu á þeim
tíma fórust. Slysið er ekki eins um-
talað einhverra hluta vegna en verð-
ur hér rifjað lauslega upp.
Flugvél af gerðinni Fiat G 211 CP
var á heimleið með karlalið Tórínó í
knattspyrnu en alls voru þrjátíu og
einn um borð. Tuttugu og sjö farþeg-
ar og fjórir í áhöfn. Vélin var að
koma frá Lissabon í Portúgal en þar
hafði Tórínó leikið vináttuleik gegn
Benfica.
Eitt mannslíf er ekki merkilegra
en annað en dauðsföll geta verið mis-
mikið fréttaefni fyrir fjölmiðla. Lið
Tórínó þess tíma var sambærilegt
við lið Juventus í dag en nú vill svo til
að þessi lið eru frá sömu borginni.
Tórínó var ítalskur meistari þegar
slysið varð og var í efsta sæti í
deildakeppninni sem var langt komin
snemma sumars 1949. Vann liðið
raunar fimm sinnum í röð á fimmta
áratugnum og jafnaði þar met Ju-
ventus.
Flaug utan í kirkju
Flugvélin var nánast komin heim
til Tórínó þegar slysið varð. Skyggni
var afar slæmt og í hlíðunum fyrir of-
an byggðina varð óhapp sem leiddi
til slyssins. Samkvæmt heimildum
virðist vélin hafa rekið vænginn í
kirkjuna Basilica di Superga sem
stendur í útjaðri Tórínó-borgar í að-
fluginu. Rakst raunar í vegg fyrir
aftan kirkjuna. Framkvæmdir við að
stækka kirkjuna höfðu verið settar í
gang en hætt var við þær. Verkinu er
í það minnsta ekki lokið og slysið
hörmulega hefur ekki með það að
gera. Rigning var og mjög lágskýjað
auk suðvestan vindur. Kirkjan mun
vera í liðlega 670 metra hæð.
Ekki liggur fyrir hvað olli slysinu
en ein kenningin er sú að búnaður í
vélinni hafi bilað með þeim afleið-
ingum að flugmennirnir hafi talið að
vélin væri í meiri hæð en hún raun-
verulega var. Önnur kenning er á þá
leið að vindurinn hafi haft áhrif. Í
það minnsta er talið að flugstjórinn
hafi ekki séð vegginn fyrr en vélin
var í fjörutíu metra fjarlægð og hafi
ekki getað brugðist við þar sem vélin
var á 180 km hraða.
Eftir að vélin rakst á vegginn gat
væntanlega ekkert bjargað fólkinu
um borð í vélinni. Enginn lifði slysið
af. Fimm manna áhöfn, nítján leik-
menn, tveir þjálfarar, fjórir starfs-
menn Tórínó-félagsins og loks þrír
blaðamenn frá Tuttosport, La
Stampa og Gazzetta del Popolo. Lið
Tórínó var uppistaðan í ítalska
landsliðinu um þetta leyti og margir
sem fórust hefðu leikið fyrir Ítalíu á
HM í Brasilíu árið eftir hefðu örlög
þeirra orðið önnur.
Albert hitti þá í hádeginu
Glöggir knattspyrnuunnendur
hafa ef til vill áttað sig á því að um-
rætt keppnistímabil, 1948-1949, er
tímabilið sem Albert Guðmundsson
lék með AC Mílanó. Albert var ekki
bara leikmaður í Seríu A á þessu
tímabili heldur var hann með síðustu
mönnum til að ræða við leikmenn
Tórínó sem fórust.
Þannig var mál með vexti að þeg-
ar Tórínó hélt til Lissabon til að
spila góðgerðarleik fyrir leikmann
Benfica þá var AC Mílanó einnig að
heiman. Mílanóliðið fór til Madríd
og lék þar vináttuleik gegn Real
Madrid. Var Albert þá aftur orðinn
leikfær eftir slæmt fótbrot sem hélt
honum lengi frá um veturinn. Leiðir
leikmanna Tórínó og leikmanna AC
Mílnó lágu saman á flugvellinum í
Barcelona. Þangað flugu bæði liðin
að morgni dagsins örlagaríka 4. maí
1949. Þaðan hélt Mílóanó-hópurinn
áfram til Madrídar en Tórínó-
hópurinn til Lissabon. Í erlendum
heimildum kemur fram að hóparnir
hafi náð að snæða hádegisverð sam-
an í Barcelona áður en lengra var
haldið.
„Þessi leikur á Santiago Berna-
beu (heimavöllur Real Madrid sem
tekinn var í notkun 1947, innsk.
Mbl.) líður mér aldrei úr minni.
Leikurinn varð nefnilega ekki eft-
irminnilegur vegna þeirrar knatt-
spyrnu sem leikin var, heldur hins,
að þegar við komum út af leikvang-
inum í hálfleik, voru okkur færð þau
tíðindi, að Torínó-liðið hefði farist í
flugslysi á meðan vorum að leika
fyrri hálfleikinn,“ segir Albert í ævi-
sögu sinni ritaðri af Gunnari Gunn-
arssyni.
Reglulegar minningarathafnir
Slysið olli þjóðarsorg á Ítalíu en
knattspyrnan var þá eins og nú fyr-
irferðamikil í þjóðarsál Ítala. Þegar
jarðarfarirnar fóru fram tveimur
dögum síðar er áætlað að um hálf
milljón manna hafi verið á götum og
torgum borgarinnar til að votta
knattspyrnumönnunum virðingu
sína. Önnur lið í ítölsku Seríu A fóru
fram á að Tórínó yrði ítalskur meist-
ari hvernig sem færi í síðustu fjór-
um umferðunum sem eftir voru. Var
það niðurstaðan og var það fimmti
titill liðsins í röð. Tórínó tefldi þá
fram unglingaliði sínu. Á næsta
keppnistímabili voru önnur lið
skikkuð til að lána Tórínó leikmenn
til að auðvelda þeim að tefla fram
samkeppnisfæru liði. AC Mílanó lán-
aði Tórínó til að mynda Paddy Sloan
sem Albert lýsti jafnan sem miklum
vini sínum en þeir voru samherjar
hjá Arsenal og AC Mílanó.
Ýmislegt hefur verið gert til að
minnast þeirra sem létust. Minning-
arreit var komið fyrir á hæðinni þar
sem slysið varð. Þangað koma ár-
lega þúsundir manna og knatt-
spyrnuunnendur skilja gjarnan eftir
trefla, sem merktir eru liðum sem
þeir styðja, héðan og þaðan í heim-
inum, eða annað knattspyrnutengt.
Minningarathöfn er haldin á tíu ára
fresti og í dag ætlar hinn áttræði Bill
Lievesley að vera viðstaddur. Hann
er sonur Leslie Lievesley, sem var
þjálfari Tórínó og fyrrverandi leik-
maður Manchester United, en hann
fórst í flugslysinu. Bill mætti í fyrsta
sinn á slíka minningarathöfn fyrir
tíu árum síðan.
Ítölsku meistararnir sem
fórust í hlíðum Tórínó
Örlögin gripu snögglega í taumana hjá sigursælum knattspyrnuköppum
Ítalíumeistarar Lið Tórínó þegar velgengnin var sem mest en liðið varð meistari fimm ár í röð.
Sögustund
» Dagskrárliður sem birtist af og til á íþróttasíðum Morgunblaðsins en
þar er rykið dustað af einstaklingum eða atvikum í íþróttasögunni.
» Í þessum dagskrárlið hefur áður verið fjallað um John Daly, Wayne
Gretzky, Mike Powell, Mark Spitz, Nadiu Comaneci, Hermann Maier,
Önu Fideliu Quirot, Ben Johnson, Charles Austin, Alberto Juantorena,
Helmuth Duckadam, Matti Nykänen, Jack Nicklaus, Haysel-harmleik-
inn, Ben Crenshaw, David Beckham, Milfred „Babe“ Didrikson, knatt-
spyrnulandslið N-Kóreu 1966 og Alsírs 1982, Eddie Eagan, Roberto Cle-
mente og Larisu Latininu.
ÍÞRÓTTIR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
SANGSIN gæðavara frá Kóreu
BREMSU
VÖRUR
í flestar gerðir bíla
Í haust heimilaði HSÍ, að sett-
um nokkrum skilyrðum, að dóm-
arar mættu nýta sjónvarps-
upptöku við dómgæslu á kapp-
leikjum, þ.e. á þeim leikjum sem
teknir eru upp með fleiri en einni
myndavél, og tiltekinn búnaður
settur til þess að dómarar gætu í
snarhasti lítið yfir atvik í leikjum
sem vafi léki á í þeirra huga.
Tæknin hefur verið nefnd varsjá.
Margt vitlausara.
Ljóst var frá upphafi að ekki
gætu dómarar nýtt varsjána
nema í nokkrum leikjum Íslands-
mótsins og þá helst í efstu deild
karla. Ástæðan er sú að ekki er
nema hluti leikja Íslandsmótsins
tekinn upp þannig að mætt sé
kröfum sem gerðar eru til notk-
unar varsjárinnar.
Það að fara af stað með var-
sjána á sumum leikjum en öðrum
ekki var gagnrýnt af fáum. Á það
var bent m.a. að ekki sætu allir
við sama borð í sömu deildar-
keppni. Það er óboðlegt.
Þrátt fyrir annmarkana var
handknattleikshreyfingin tilbúin
til að taka varsjána í notkun.
Vonir stóðu til að a.m.k. yrði
hægt að nýta tæknina í öllum
leikjum úrslitakeppninnar. Annað
hefur komið á daginn eins og í
annarri viðureign ÍBV og Hauka í
undanúrslitum Íslandsmóts karla
í fyrrakvöld. Þar sauð á keipum
og m.a. fóru fjögur spjöld á loft.
Dómurum hefur vissulega
orðið hált á svellinu fyrir framan
varsjána á tímabilinu. Margir
muna eftir mistökum dómara í
undanúrslitaleik Vals og Fjölnis í
bikarkeppni karla.
Burtséð frá röngum ákvörð-
unum dómara með eða án var-
sjárinnar er óviðunandi að ekki
sé boðið upp á sama vinnu-
umhverfi fyrir dómara í öllum
leikjum úrslitakeppninnar í hand-
knattleik.
BAKVÖRÐUR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is