Morgunblaðið - 04.05.2019, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 04.05.2019, Qupperneq 39
SÖGUSTUND Kristján Jónsson kris@mbl.is Flestir knattspyrnuáhugamenn hafa heyrt minnst á flugslysið mann- skæða í München árið 1958. Um borð var lið Manchester United. Einnig kannast margir við þegar flugvél hrapaði í Andes-fjöllunum árið 1972 með knattspyrnulið frá Argentínu um borð. Ekki síst vegna þeirra ráða sem þeir sem lifðu þurftu að grípa til á meðan beðið var eftir björgun. Í dag eru sjötíu ár liðin frá hræðilegu flugslysi í Tórínó þar sem leikmenn besta knattspyrnuliðs Ítalíu á þeim tíma fórust. Slysið er ekki eins um- talað einhverra hluta vegna en verð- ur hér rifjað lauslega upp. Flugvél af gerðinni Fiat G 211 CP var á heimleið með karlalið Tórínó í knattspyrnu en alls voru þrjátíu og einn um borð. Tuttugu og sjö farþeg- ar og fjórir í áhöfn. Vélin var að koma frá Lissabon í Portúgal en þar hafði Tórínó leikið vináttuleik gegn Benfica. Eitt mannslíf er ekki merkilegra en annað en dauðsföll geta verið mis- mikið fréttaefni fyrir fjölmiðla. Lið Tórínó þess tíma var sambærilegt við lið Juventus í dag en nú vill svo til að þessi lið eru frá sömu borginni. Tórínó var ítalskur meistari þegar slysið varð og var í efsta sæti í deildakeppninni sem var langt komin snemma sumars 1949. Vann liðið raunar fimm sinnum í röð á fimmta áratugnum og jafnaði þar met Ju- ventus. Flaug utan í kirkju Flugvélin var nánast komin heim til Tórínó þegar slysið varð. Skyggni var afar slæmt og í hlíðunum fyrir of- an byggðina varð óhapp sem leiddi til slyssins. Samkvæmt heimildum virðist vélin hafa rekið vænginn í kirkjuna Basilica di Superga sem stendur í útjaðri Tórínó-borgar í að- fluginu. Rakst raunar í vegg fyrir aftan kirkjuna. Framkvæmdir við að stækka kirkjuna höfðu verið settar í gang en hætt var við þær. Verkinu er í það minnsta ekki lokið og slysið hörmulega hefur ekki með það að gera. Rigning var og mjög lágskýjað auk suðvestan vindur. Kirkjan mun vera í liðlega 670 metra hæð. Ekki liggur fyrir hvað olli slysinu en ein kenningin er sú að búnaður í vélinni hafi bilað með þeim afleið- ingum að flugmennirnir hafi talið að vélin væri í meiri hæð en hún raun- verulega var. Önnur kenning er á þá leið að vindurinn hafi haft áhrif. Í það minnsta er talið að flugstjórinn hafi ekki séð vegginn fyrr en vélin var í fjörutíu metra fjarlægð og hafi ekki getað brugðist við þar sem vélin var á 180 km hraða. Eftir að vélin rakst á vegginn gat væntanlega ekkert bjargað fólkinu um borð í vélinni. Enginn lifði slysið af. Fimm manna áhöfn, nítján leik- menn, tveir þjálfarar, fjórir starfs- menn Tórínó-félagsins og loks þrír blaðamenn frá Tuttosport, La Stampa og Gazzetta del Popolo. Lið Tórínó var uppistaðan í ítalska landsliðinu um þetta leyti og margir sem fórust hefðu leikið fyrir Ítalíu á HM í Brasilíu árið eftir hefðu örlög þeirra orðið önnur. Albert hitti þá í hádeginu Glöggir knattspyrnuunnendur hafa ef til vill áttað sig á því að um- rætt keppnistímabil, 1948-1949, er tímabilið sem Albert Guðmundsson lék með AC Mílanó. Albert var ekki bara leikmaður í Seríu A á þessu tímabili heldur var hann með síðustu mönnum til að ræða við leikmenn Tórínó sem fórust. Þannig var mál með vexti að þeg- ar Tórínó hélt til Lissabon til að spila góðgerðarleik fyrir leikmann Benfica þá var AC Mílanó einnig að heiman. Mílanóliðið fór til Madríd og lék þar vináttuleik gegn Real Madrid. Var Albert þá aftur orðinn leikfær eftir slæmt fótbrot sem hélt honum lengi frá um veturinn. Leiðir leikmanna Tórínó og leikmanna AC Mílnó lágu saman á flugvellinum í Barcelona. Þangað flugu bæði liðin að morgni dagsins örlagaríka 4. maí 1949. Þaðan hélt Mílóanó-hópurinn áfram til Madrídar en Tórínó- hópurinn til Lissabon. Í erlendum heimildum kemur fram að hóparnir hafi náð að snæða hádegisverð sam- an í Barcelona áður en lengra var haldið. „Þessi leikur á Santiago Berna- beu (heimavöllur Real Madrid sem tekinn var í notkun 1947, innsk. Mbl.) líður mér aldrei úr minni. Leikurinn varð nefnilega ekki eft- irminnilegur vegna þeirrar knatt- spyrnu sem leikin var, heldur hins, að þegar við komum út af leikvang- inum í hálfleik, voru okkur færð þau tíðindi, að Torínó-liðið hefði farist í flugslysi á meðan vorum að leika fyrri hálfleikinn,“ segir Albert í ævi- sögu sinni ritaðri af Gunnari Gunn- arssyni. Reglulegar minningarathafnir Slysið olli þjóðarsorg á Ítalíu en knattspyrnan var þá eins og nú fyr- irferðamikil í þjóðarsál Ítala. Þegar jarðarfarirnar fóru fram tveimur dögum síðar er áætlað að um hálf milljón manna hafi verið á götum og torgum borgarinnar til að votta knattspyrnumönnunum virðingu sína. Önnur lið í ítölsku Seríu A fóru fram á að Tórínó yrði ítalskur meist- ari hvernig sem færi í síðustu fjór- um umferðunum sem eftir voru. Var það niðurstaðan og var það fimmti titill liðsins í röð. Tórínó tefldi þá fram unglingaliði sínu. Á næsta keppnistímabili voru önnur lið skikkuð til að lána Tórínó leikmenn til að auðvelda þeim að tefla fram samkeppnisfæru liði. AC Mílanó lán- aði Tórínó til að mynda Paddy Sloan sem Albert lýsti jafnan sem miklum vini sínum en þeir voru samherjar hjá Arsenal og AC Mílanó. Ýmislegt hefur verið gert til að minnast þeirra sem létust. Minning- arreit var komið fyrir á hæðinni þar sem slysið varð. Þangað koma ár- lega þúsundir manna og knatt- spyrnuunnendur skilja gjarnan eftir trefla, sem merktir eru liðum sem þeir styðja, héðan og þaðan í heim- inum, eða annað knattspyrnutengt. Minningarathöfn er haldin á tíu ára fresti og í dag ætlar hinn áttræði Bill Lievesley að vera viðstaddur. Hann er sonur Leslie Lievesley, sem var þjálfari Tórínó og fyrrverandi leik- maður Manchester United, en hann fórst í flugslysinu. Bill mætti í fyrsta sinn á slíka minningarathöfn fyrir tíu árum síðan. Ítölsku meistararnir sem fórust í hlíðum Tórínó  Örlögin gripu snögglega í taumana hjá sigursælum knattspyrnuköppum Ítalíumeistarar Lið Tórínó þegar velgengnin var sem mest en liðið varð meistari fimm ár í röð. Sögustund » Dagskrárliður sem birtist af og til á íþróttasíðum Morgunblaðsins en þar er rykið dustað af einstaklingum eða atvikum í íþróttasögunni. » Í þessum dagskrárlið hefur áður verið fjallað um John Daly, Wayne Gretzky, Mike Powell, Mark Spitz, Nadiu Comaneci, Hermann Maier, Önu Fideliu Quirot, Ben Johnson, Charles Austin, Alberto Juantorena, Helmuth Duckadam, Matti Nykänen, Jack Nicklaus, Haysel-harmleik- inn, Ben Crenshaw, David Beckham, Milfred „Babe“ Didrikson, knatt- spyrnulandslið N-Kóreu 1966 og Alsírs 1982, Eddie Eagan, Roberto Cle- mente og Larisu Latininu. ÍÞRÓTTIR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar SANGSIN gæðavara frá Kóreu BREMSU VÖRUR í flestar gerðir bíla Í haust heimilaði HSÍ, að sett- um nokkrum skilyrðum, að dóm- arar mættu nýta sjónvarps- upptöku við dómgæslu á kapp- leikjum, þ.e. á þeim leikjum sem teknir eru upp með fleiri en einni myndavél, og tiltekinn búnaður settur til þess að dómarar gætu í snarhasti lítið yfir atvik í leikjum sem vafi léki á í þeirra huga. Tæknin hefur verið nefnd varsjá. Margt vitlausara. Ljóst var frá upphafi að ekki gætu dómarar nýtt varsjána nema í nokkrum leikjum Íslands- mótsins og þá helst í efstu deild karla. Ástæðan er sú að ekki er nema hluti leikja Íslandsmótsins tekinn upp þannig að mætt sé kröfum sem gerðar eru til notk- unar varsjárinnar. Það að fara af stað með var- sjána á sumum leikjum en öðrum ekki var gagnrýnt af fáum. Á það var bent m.a. að ekki sætu allir við sama borð í sömu deildar- keppni. Það er óboðlegt. Þrátt fyrir annmarkana var handknattleikshreyfingin tilbúin til að taka varsjána í notkun. Vonir stóðu til að a.m.k. yrði hægt að nýta tæknina í öllum leikjum úrslitakeppninnar. Annað hefur komið á daginn eins og í annarri viðureign ÍBV og Hauka í undanúrslitum Íslandsmóts karla í fyrrakvöld. Þar sauð á keipum og m.a. fóru fjögur spjöld á loft. Dómurum hefur vissulega orðið hált á svellinu fyrir framan varsjána á tímabilinu. Margir muna eftir mistökum dómara í undanúrslitaleik Vals og Fjölnis í bikarkeppni karla. Burtséð frá röngum ákvörð- unum dómara með eða án var- sjárinnar er óviðunandi að ekki sé boðið upp á sama vinnu- umhverfi fyrir dómara í öllum leikjum úrslitakeppninnar í hand- knattleik. BAKVÖRÐUR Ívar Benediktsson iben@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.