Morgunblaðið - 04.05.2019, Side 9

Morgunblaðið - 04.05.2019, Side 9
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sturla Geirsson, framkvæmdastjóri fasteignafélagsins Rauðsvíkur, segir talsvert framboð nýrra íbúða í mið- borginni skapa kauptækifæri fyrir þá sem vilja búa í miðbænum. Jafn- framt sé fyrirséð að verðið muni hækka á næstu árum, ekki síst vegna hækkandi byggingarkostnaðar. „Með auknu framboði geta kaup- endur valið úr fjölbreyttum íbúða- gerðum og staðsetningum innan miðbæjarins. Fyrir seljendur táknar þetta væntanlega að sala íbúða mun taka heldur lengri tíma en ella. Við erum engu að síður bjartsýnir og teljum okkur vera með mjög góðar íbúðir á góðum stað og á hóflegu verði. Það eru margar hagkvæmar og smærri íbúðir í þessu húsi,“ segir Sturla og vísar til fjölbýlishússins Hverfisgata 85-93. Henta vel til fyrstu kaupa „Meðal annars eru litlar og skemmtilega hannaðar 2 herbergja íbúðir fyrir einstaklinga eða pör. Þetta eru íbúðir sem hefur ekki verið boðið upp á til þessa og henta vel til fyrstu kaupa,“ segir Sturla og bendir á að framboðið vari ekki lengi. „Þessi uppbygging í miðbænum er í samræmi við stefnu Reykjavíkur- borgar um þéttingu byggðar. Það sést að þéttingarreitum í miðborg- inni fer fækkandi og að mesta fram- boðið næstu misseri verður væntan- lega utan póstnúmers 101,“ segir Sturla sem telur aðspurður að fram- boð nýrra íbúða í miðborginni hafi áhrif á verðið til lækkunar. „Málið er að byggingarkostnaður hefur hækkað verulega síðustu miss- eri, bæði efni og vinna. Launahækk- anir og gengisþróun vega þar þyngst. Það hefur þannig myndast hækkunarþörf til að mæta þessum kostnaðarhækkunum. Ég tel að þetta mikla framboð í miðborginni hafi haldið aftur af hækkunum vegna þessa aukna kostnaðar. Ég held líka að verktakar geti á endanum ekki annað en hækkað verðið, þótt erfitt sé að átta sig á hvenær það gerist.“ Virða ekki hámarkshraðann Fram kom í Morgunblaðinu á mið- vikudaginn var að nýir íbúar við Hverfisgötu vildu lægri hámarks- hraða fyrir bílaumferð í götunni. Sturla bendir aðspurður á að 30 km hámarkshraði sé á Hverfisgötu milli Vitastígs og Barónsstígs. „Gallinn er að það fara fáir eftir því. Ég held að með aukinni íbúða- byggð verði gerð aukin krafa um ör- yggi og að farið sé eftir reglum um umferðarhraða. Við erum t.d. að skoða umferðarflæði út frá Hverfis- götu í kringum þau hús sem við erum að byggja, einkum við Vitastíg,“ segir Sturla og bendir á að íbúðaverð sé allsstaðar í heiminum hærra í miðborgum en í úthverfum. „Verðmunurinn á Íslandi er senni- lega með því minnsta sem gerist og það kæmi mér ekki á óvart ef þessi munur myndi aukast í framtíðinni.“ Morgunblaðið hefur síðustu ár birt verðþróun seldra eigna í fjölbýli í sex póstnúmerum í Reykjavík. Tölur fyrir 1. fjórðung í ár benda til að verðið sé að lækka í 101, 105 og 107 Reykjavík. Óvissa um framtíð WOW air og í efnahags- og kjara- málum litaði þá umræður. Frá fyrsta ársfjórðungi 2013 til fyrsta fjórðungs 2019 PÓSTNR. 101 PÓSTNR. 105 PÓSTNR. 107 PÓSTNR. 109 PÓSTNR. 111 PÓSTNR. 112 Meðalkaupverð á fermetra, þús. kr. Allar fjölbýlis- eignir Án ný- bygginga Allar fjölbýlis- eignir Án ný- bygginga Allar fjölbýlis- eignir Án ný- bygginga Allar fjölbýlis- eignir Án ný- bygginga Allar fjölbýlis- eignir Án ný- bygginga Allar fjölbýlis- eignir Án ný- bygginga 2013, 1. ársfj. 323 307 282 282 297 297 213 213 218 200 230 230 2014, 1. ársfj. 370 350 300 300 321 321 216 216 229 229 259 259 2015, 1. ársfj. 397 375 345 333 351 351 257 257 256 255 283 283 2016, 1. ársfj. 459 452 371 371 375 375 286 286 301 300 313 312 2017, 1. ársfj. 510 509 458 459 452 458 354 354 354 354 379 379 2018, 1. ársfj. 554 543 474 474 469 468 365 365 372 372 402 402 4. ársfj. 553 528 491 485 512 508 371 371 379 379 415 415 2019, 1. ársfj. 546 519 464 461 508 508 392 380 394 394 425 425 Breyting frá 1. ársfj. 2013 69,1% 69,0% 64,7% 63,7% 71,3% 71,3% 84,2% 78,4% 80,4% 96,6% 84,4% 84,4% Breyting frá 1. ársfj. 2018 -1,5% -4,5% -2,2% -2,8% 8,4% 8,6% 7,4% 4,1% 5,8% 5,8% 5,7% 5,7% Breyting frá 4. ársfj. 2018 -1,3% -1,6% -5,5% -5,0% -0,7% 0,0% 5,8% 2,5% 3,7% 3,7% 2,3% 2,3% Heimild: Þjóðskrá Íslands Verðþróun seldra fasteigna í fjölbýli í sex póstnúmerum í Reykjavík 550 450 350 250 150 þús. kr./m2 1. ársfj. 2013 1. ársfj. 2019 Póstnr. 109 550 450 350 250 150 þús. kr./m2 1. ársfj. 2013 1. ársfj. 2019 Póstnr. 111 550 450 350 250 150 þús. kr./m2 1. ársfj. 2013 1. ársfj. 2019 Póstnr. 112 550 450 350 250 150 þús. kr./m2 1. ársfj. 2013 1. ársfj. 2019 Póstnr. 101 550 450 350 250 150 þús. kr./m2 1. ársfj. 2013 1. ársfj. 2019 Póstnr. 105 550 450 350 250 150 þús. kr./m2 1. ársfj. 2013 1. ársfj. 2019 Póstnr. 107 323 546 213 392 282 464 218 394 297 508 230 425 Breyting frá 1. ársfj. ’18: -1,5% Breyting frá 1. ársfj. ’18: 7,4% Breyting frá 1. ársfj. ’18: -2,2% Breyting frá 1. ársfj. ’18: 5,8% Breyting frá 1. ársfj. ’18: 8,4% Breyting frá 1. ársfj. ’18: 5,7% Undanskilin kaup stórs fasteignafélags á fjölda eigna Hækkunarþörf í miðborginni  Framkvæmdastjóri Rauðsvíkur, sem byggir á Hverfisgötu, segir laun og innflutt efni að hækka  Mikið framboð nýrra íbúða haldi niðri verði  Íbúðaverð í þremur hverfum í borginni lækkar Útsýni Myndin er tekin af svölunum á íbúð 506 á 5. hæð. Framkvæmdastjóri Sturla Geirsson stýrir uppbyggingunni. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Borgarlíf Sýningaríbúð á 2. hæð á Hverfisgötu 85. FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019 Tjarnargata 4, 3. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is Fyrirtæki til sölu •Áhugaverð og arðsöm kvenfataverslun í Kringlunni, velta +100 mill. •Sérhæft innflutningsfyrirtæki með tækjabúnað fyrir verktaka og bændur, velta um 270 milljónir. •Sérhæft innflutningsfyrirtæki með hús og húshluti. •Áhugaverður veitingastaður í 101 Reykjavík. •Gistiheimili í einu glæsilegasta húsi 101 Rvk., rekstur og fasteign. •Þekktasti fish & chip staður Reykjavík, velta um 170 milljónir. •Ísbúð í austurbæ Reykjavíkur, góður rekstur. •Matvælaframleiðsluf., sem leggur áherslu á hollan mat, velta ~190 mill. •Gistiheimilli á Suðurlandi með góða afkomu og góðar fasteignir. •Verslun með innflutning á fæðubótaefnum. Ráðgjafar / eigendur Haukur Þór Hauksson, Rekstrarhagfræðingur, MBA Gsm. 8939855 Thomas Möller, Hagverkfræðingur, MBA Gsm. 8939370 Steingrímur J. Sigfússon, forseti Al- þingis, segir að að venju séu miklar annir á Alþingi framundan, en hann telur að Alþingi ætti að takast að af- greiða þau mál sem nauðsynlegt er að afgreiða áður en kemur til þing- hlés, snemma í júní. „Ég hygg að það geti orðið góð samstaða um að ljúka afgreiðslu þeirra mála sem nauðsynlegt er að afgreiða áður en Alþingi lýkur stðrfum. Þar nefni ég vitanlega afgreiðslu fjármálaáætlunar og orkupakkans, sem eru í raun fjögur þingmál,“ sagði Steingrímur í samtali við Morgunblaðið í gær, þegar hann var spurður hvort einhver mynd væri komin á hvernig þinghaldi verður háttað það sem eftir lifir þessa þings. Steingrímur bendir á að fjöldi mála liggi fyrir til umfjöllunar og af- greiðslu á Al- þingi. „Sum þess- ara mála eru dálítið viðamikil, en það er ekki endilega þar með sagt að þau þurfi að verða mjög umdeild. Það eru mik- ilvæg mál í vinnslu, eins og heilbrigð- isstefna. Svo reikna ég með að við reynum að afgreiða matvælamálið fyrir þinglok,“ sagði forseti Alþingis. Steingrímur segir að einhver mál séu þess eðlis að himinn og jörð far- ist ekki þó afgreiðsla þeirra bíði haustsins, einfaldlega vegna þess að þar sé eitthvað af málum sem ekki er ætlað að öðlast gildi fyrr en um næstu áramót. Aðspurður hvort hann ætti von á því að hann myndi setjast niður með fulltrúum allra flokka og semja um afgreiðslu þingmála og þinglok, sagði forseti Alþingis: „Já, það stytt- ist auðvitað í það að við förum að hefja slík samtöl. Það er nú stundum bara gert með því að forsætisráð- herra og forseti þingsins hitta for- menn allra flokka. Auðvitað er verið að funda reglulega með þingflokks- formönnum og formönnum nefnda.“ agnes@mbl.is Þinglok að skýrast  Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis telur að góð sam- staða geti tekist á þingi um afgreiðslu mikilvægustu þingmála Steingrímur J. Sigfússon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.