Morgunblaðið - 04.05.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.05.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2019 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við höfum haldið sambandi við ætt- ingja okkar í Hollandi og gerum enn sem og vini sem við eigum þar,“ segir Bernhard Þór Bernhardsson, sviðsstjóri á viðskiptabankasviði Ar- ion banka, sem skipaður hefur verið aðalræðismaður Hollands á Íslandi. Bernhard er 46 ára gamall og stýrir vöruþróun og stafrænum við- skiptum á sviði sínu í bankanum. Hann kveðst stoltur af því að hafa verið beðinn um að taka að sér þetta heiðursembætti fyrir Holland þar sem hann á rætur. Bjarni Finnsson, fyrrverandi kaupmaður í Blómavali, var aðal- ræðismaður Hollendinga í um 20 ár. Þegar hann ákvað að hætta benti hann á Bernhard Þór sem hugsan- legan eftirmann. „Það er verið að horfa til tengsla við Holland, teng- ingar inn í viðskipta- og menningar- lífið á Íslandi og áhuga á að rækta samband þjóðanna. Bjarni vissi að ég er ættaður frá Hollandi og nefndi mitt nafn,“ segir Bernhard. Tilnefning hans var kynnt 30. apríl þegar haldið var upp á hol- lenska konungsdaginn hérlendis. Konungsdagurinn er raunverulega 27. apríl og er afmælisdagur Wil- lems-Alexanders, konungs Hol- lands. Hollenska sendiráðið í Osló var raunar með opið sendiráð hér alla vikuna til að sinna erindum Hol- lendinga hér. Við þetta tækifæri var Bjarni Finnsson sæmdur hollenskri orðu í þakklætisskyni fyrir starf hans sem aðalræðismanns. Afinn frá Hollandi Bernhard segir að starf aðalræð- ismanns fari mikið eftir áhuga við- komandi og dugnaði. Það snúist að- allega um að reyna að efla tengsl landanna. Dagleg störf við að þjóna Hollendingum hér fara fram á ræð- ismannsskrifstofu sem rekin er í Reykjavík. Afi Bernhards, Jóhannes Jónsson [Jan Jansen], var hollenskur garð- yrkjumaður sem flutti hingað til lands árið 1939 til að miðla af þekk- ingu sinni við uppbyggingu garð- yrkjustöðva hér. Hann var verk- stjóri á Syðri-Reykjum í Biskupstungum en var á stríðs- árunum kallaður í herinn og gegndi herþjónustu í útlagahernum í Bret- landi þar sem konungurinn og ríkis- stjórnin sátu en landið var hernum- ið af Þjóðverjum. Að styrjöldinni lokinni kom Jan aftur til Íslands og var lengi garðyrkjustjóri á Lauga- landi í Borgarfirði eða þar til hann og íslensk kona hans, Þuríður Jóns- dóttir, stofnuðu eigin garðyrkjustöð, Dalbæ á Kleppjárnsreykjum. Tungumálið hjálpar Bernhard segist hafa lært hol- lensku sem barn og unglingur. For- eldrar hans leyfðu honum og bróður hans að dvelja hjá hollenskum vin- um þeirra nokkrar vikur eitt sum- arið og tóku í staðinn á móti börnum þeirra. „Á árinu 1994 var ég eitt sumar hjá þessari fjölskyldu til að læra hollenskuna betur og undirbúa mig fyrir háskólanám ytra.“ Ekki varð úr námsdvölinni því hann kom heim og fór í viðskiptafræði við há- skólana á Bifröst og í Edinborg en býr að hollenskukunnáttunni. „Það hefur auðveldað tengslin við ættingja og vini að tala málið. Svo er það skemmtilegt og hefur veitt mér innsýn í líf afa míns að geta les- ið bréfin sem hann fékk frá fjöl- skyldu sinni og sendi henni. Afa- systir mín fann til dæmis mikið til með honum út af þessum löngu og erfiðu vetrum á Íslandi á sama tíma og hún gladdist yfir því hversu virk- ur hann var í félagslífinu en félags- og menningarlíf var mun meira í sveitum hér en hún átti að venjast úti,“ segir Bernhard. Heldur sambandi við ætt- ingja og vini í Hollandi  Bernhard Þór skipaður aðalræðismaður Hollands Á konungsdaginn Bjarni Finnsson, Bernhard Þór Bernhardsson og Tom J.M. van Oorschot, sendiherra Hollands á Íslandi, á góðri stundu. Afgangur af rekstri A- og B-hluta bæjarsjóðs Hafnarfjarðarbæjar á síðasta ári var 1.129 milljónir króna þrátt fyrir fjár- festingar og óhjá- kvæmilegar lán- tökur á árinu. Skuldaviðmið sveitarfélagsins er komið niður í 112% og hefur ekki verið lægra í 25 ár. Ársreikn- ingur bæjarins fyrir síðasta ár var samþykktur á fundi bæjarstjórnar sl. fimmtudag. Ársreikningurinn sýnir sterka fjárhagsstöðu, segir í frétt frá Hafn- arfjarðarbæ. Heildartekjur voru 3,6% yfir áætlun eða 926 millj. kr. Veltufé frá rekstri var 3.863 millj. kr. eða 14,4% af heildartekjum. Fjárhagsáætlun 2018 gerði ráð fyrir 799 millj. kr. rekstrarafgangi sem er verulega betri niðurstaða en vænst var. Niðurstaða fyrir A-hluta var já- kvæð um 490 millj. kr. meðan áætlun gerði ráð fyrir 213 millj. kr. afgangi. Betri niðurstaða skýrist meðal ann- ars af hærri skatttekjum. Yfir áætlunum „Skuldaviðmiðið heldur áfram að lækka og rekstrarniðurstöður eru heilt yfir jákvæðar og yfir áætl- unum. Ábyrg fjármálastýring und- anfarin ár hefur styrkt undirstöður rekstrar í sveitarfélaginu og gert það betur í stakk búið til að takast á við efnahagslegar áskoranir og þau verkefni sem framundan eru,“ er haft eftir Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra. Rekstur málaflokka var í takt við fjárhagsáætlun en helstu frávik má rekja til hækkunar vistunargjalda, aukins kostnaðar í málefnum fatlaðs fólks og aðkeyptrar kennsluþjón- ustu. Fjárfest var á árinu fyrir 5,3 milljarða kr. í innviðum og þjónustu. Stærstu framkvæmdirnar voru bygging nýs skóla í Skarðshlíð fyrir liðlega tvo milljarða króna og hjúkr- unarheimilis fyrir 850 millj. kr. Framkvæmdir vegna íþróttamann- virkja á Ásvöllum, Kaplakrika og við Keili námu alls um 696 millj. kr. Lán tekin og önnur greidd Keyptar voru félgslegar íbúðir fyrir 457 millj. kr. og endurbætur á St. Jósefsspítala kostuðu um 113 millj. kr. Um einn milljarður króna fór í framkvæmdir við gatnagerð, m.a. við Reykjanesbrautina. Sam- hliða hefur auknu fjármagni verið varið til fræðslu- og frístundamála og fjölskylduþjónustu sveitarfé- lagsins. Slegin voru lán vegna ým- issa verkefna og mála fyrir tæpa fjóra milljarða króna. Greiðslur langtímaskulda námu alls 1,6 millj- örðum kr. eða um 200 millj. kr. um- fram afborganir skv. lánasamn- ingum. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hafnarfjörður Horft eftir Reykjanesbraut. Íbúar í bænum eru nú 29.799. Staðan er sterk og skuldirnar lækka  Rekstur Hafnarfjarðarbæjar í jafnvægi Rósa Guðbjartsdóttir Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Lilja Dögg Al- freðsdóttir, mennta- og menningar- málaráðherra, kynnti frumvarp til laga um breyt- ingu á fjölmiðla- lögum nr. 38/ 2011 á ríkis- stjórnarfundi í gær. Það snýr að stuðningi við einkarekna fjölmiðla. Hjá mennta- og menningarmála- ráðuneytinu fengust þær upplýs- ingar að fjölmiðlafrumvarpið hefði verið samþykkt á fundi ríkisstjórn- arinnar. Nú mun það ganga til þingflokka stjórnarflokkanna. „Að baki frumvarpinu er viðamikil vinna sem unnin hefur verið í góðu samráði milli flokkanna,“ sagði í svari ráðuneytisins. Ekki fengust upplýsingar um hvaða breytingar hefðu verið gerð- ar á frumvarpinu frá þeim drögum sem lögð voru fram til kynningar. Fjölmiðla- frumvarp afgreitt í ríkisstjórn Lilja Alfreðsdóttir  Kynnt þingmönn- um stjórnarflokka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.