Morgunblaðið - 11.05.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019
Nokkurrar óþreyju er farið að gæta
í kjaraviðræðum Samtaka starfs-
manna fjármálafyrirtækja (SSF) við
Samtök atvinnulífsins fyrir hönd
Samtaka fjármálafyrirtækja. ,,Ef
samkomulag verður ekki í augsýn í
næstu eða þarnæstu viku á samn-
inganefnd SSF þann eina kost að
vísa ágreiningi til Ríkissáttasemj-
ara,“ segir í umfjöllun um stöðuna á
vefsíðu SSF.
Samninganefndir viðsemjenda
hafa fundað reglulega undanfarnar
vikur um kjarasamninga félags-
manna SSF og kemur fram að við-
ræðurnar byggjast á svipuðum
grunni og samningar félaga verka-
manna, verslunarmanna og iðn-
aðarmanna við Samtök atvinnulífs-
ins.
„Samninganefnd SSF vill að sjálf-
sögðu fara eigin leiðir varðandi
launahækkanir félagsmanna (innan
og utan launatöflu) og framkvæmd á
styttingu vinnutíma á ársgrundvelli.
Að auki eru nokkur önnur sérmál fé-
lagsmanna sem samninganefnd SSF
leggur áherslu á. Vinnuhópar hvor í
sínu lagi munu vinna núna fram yfir
helgi að nánari tillögum og útfærslu.
Næsti fundur samningsaðila verður
strax í næstu viku,“ segir í umfjöll-
uninni um gang kjaraviðræðnanna.
Við seinustu samningsgerð SSF
tók rúmlega sex mánuði að ná kjara-
samningum á árinu 2015 en að lok-
um náðust samningar til rúmlega
þriggja ára en þeir runnu út um
seinustu áramót.
Óþreyjufullir að ná samningum
Þó kominn sé 11. maí er vetur enn ekki úti. Í gær
snjóaði víða á Norður- og Austurlandi. Því olli
hæð yfir Grænlandi sem dregur kalt heim-
skautaloft úr norðri fyrirstöðulítið að Íslands-
ströndum. Yfir helgina má búast við að eitthvað
snjói nyrðra yfir nóttina, það er upp til fjalla og í
einhverjum mæli niðri á láglendi. Segja má að
náttúran ruglist aðeins í ríminu í svona vorhreti,
því víða hafa mótfuglar verpt og hætta er á að
þeir leggi á flótta verði veður vont um lengri
tíma.
Tjaldur sem sást á vappi á Siglufirði sat þó
sem fastast á eggjum sínum og lét sér ekki
bregða í glímunni við kuldabola. Ástand þetta
varir þó ekki lengi því strax á mánudag verða
suðlægar áttir ríkjandi á landinu og verður hlýtt
loft, að sögn veðurfræðings, fljótt að berast
norður yfir landið. Hitinn þar verður þá um tíu
gráður og enn meiri þegar líða fer á næstu viku,
gangi spár eftir. – Á sunnanverðu landinu verð-
ur sól og blíða í dag, laugardag, en rigning á
sunnudag og mánudag. sbs@mbl.is
Tjaldurinn á eggjum í snjónum
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Árskógar 6
109 REYKJAVÍK
Björt og rúmgóð útsýnisíbúð á 12. hæð í vinsælu
lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri að Árskógum 6 í Reykjavík.
Húsvörður er starfandi í húsinu og fjölbreytt félagsstarf
er í boði og ýmis þjónusta m.a. er hægt að kaupa máltíðir
í mötuneyti á 1 hæð.
STÆRÐ: 95,7 fm FJÖLBÝLI HERB: 3
52.900.000 OPIÐ HÚS 12. MAÍ 17:15 – 17:45
Heyrumst
Stefán Jarl Martin
Löggiltur leigumiðlari
Sölufulltrúi
892 9966
stefan@fastlind.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Verktakafyrirtækið Ístak hefur á
skömmum tíma fengið tvo stór verk-
efni. Því hefur fyrirtækið að stærst-
um hluta dregið til baka uppsagnir
56 manns, sem tilkynnt var um í
febrúar sl. Þetta staðfestir Karl
Andreassen, framkvæmdastjóri Ís-
taks, í samtali við Morgunblaðið.
Ístak tilkynnti í lok febrúar að
fyrirtækið hefði sagt upp alls 56
manns, 31 fastráðnum starfsmanni
svo og þjónustu 25 starfsmanna sem
sinntu verkefnum á vettvangi fyrir-
tækisins fyrir tilstuðlan starfs-
mannaleigu.
„Við vonumst að sjálfsögðu til að
geta dregið megnið af þessum upp-
sögnum til baka þegar og ef verkefni
sem við höfum verið lægstbjóðendur
í, verða samþykkt og sett í gang,“
sagði Karl Andreassen við Morgun-
blaðið í febrúar.
Þetta gekk eftir. Í byrjun maí
skrifuðu Vegagerðin og Ístak undir
samning um tvöföldun Reykjanes-
brautar í Hafnarfirði, frá Kaldár-
selsvegi vestur fyrir Krýsuvíkur-
gatnamót. Samningsupphæðin við
Ístak er 2.106.193.937 kr.
Og í þessari viku tilkynnti
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið um þá ákvörðun að ganga að
tilboði Ístaks um byggingu Húss ís-
lenskunnar, sem rísa mun við Arn-
grímsgötu í Reykjavík. Upphæð til-
boðsins var 4.519.907.033 krónur.
Í tilkynningu ráðuneytisins nú í
vikunni segir hins vegar að í kjölfar
útboðs vegna framkvæmdanna hafi
verið gerð heildarkostnaðaráætlun
fyrir verkefnið og nemi hún um 6,2
milljörðum króna.
„Það er búið að tilkynna að það
eigi að ganga til samninga við okkur
um byggingu Húss íslenskunnar, en
samkvæmt lögum um opinber inn-
kaup geta liðið 2-3 vikur þar til
samningur er undirritaður,“ segir
Karl Andreassen. Hann segir að Ís-
tak sé klárt að hefja framkvæmdir
strax við undirritun samnings. Í
byrjun munu um 20-30 manns starfa
við verkið en á seinni stigum mun sá
fjöldi sennilega fara í 70 til 90 manns.
„Við erum virkilega ánægð með þá
ákvörðun stjórnvalda um að setja
þetta verðuga verkefni í gang og er-
um full tilhlökkunar að byrja að
byggja utan um handritin okkar
allra,“ segir Karl. Verklok eru áætl-
uð í febrúar 2022.
Starfsmenn eru 350
Hvað tvöföldun Reykjanesbrautar
varðar verður maímánuður notaður
til undirbúnings og aðstöðusköpunar
en framkvæmdirnar sjálfar ættu að
vera komnar á skrið í lok maí. Starfs-
mannafjöldi við verkið verður breyti-
legur en reiknað er með að allt að 50
manns munu starfa þar á háanna-
tíma.
Hjá Ístaki starfa nú um 350 manns
og þar af eru erlendir starfsmenn
tæp 40%. „Margir þeirra hafa verið
hjá okkur í langan og farsælan tíma
og það er mikil og góð reynsla sem
að býr í starfsmönnum okkar hvort
sem um innlenda eða erlenda starfs-
menn er að ræða,“ segir Karl Andr-
eassen.
Uppsagnir dregnar til baka
Verktakafyrirtækið Ístak hefur fengið tvö stór verkefni á skömmum tíma Uppsagnir 56 manns
dregnar til baka að stórum hluta Maí notaður til undirbúnings fyrir tvöföldun Reykjanesbrautar
Mynd/Hornsteinar arkitekta
Allt frá því kynnt voru áform um
nýbyggingu fyrir Stofnun Árna
Magnússonar við Arngrímsgötu
hefur vinnuheiti verkefnisins verið
„Hús íslenskra fræða“.
Það vakti því athygli að í frétt
mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins í vikunni var komið nýtt
vinnuheiti, „Hús íslenskunnar“.
Að margra mati var fyrra heitið
þröng lýsing á því starfi sem fram
mun fara í húsinu og því þótti
nýja nafnið lýsa starfseminni bet-
ur og þeirri fjölbreyttu miðlun
sem þar mun fara fram. Óvíst er
að þetta verði endanlegt nafn á
húsinu þegar það er risið. Tölvu-
myndin sýnir hina nýju byggingu
eins og hún mun líta út, séð frá
Suðurgötu.
Byggingin fékk nýtt vinnuheiti