Morgunblaðið - 11.05.2019, Blaðsíða 49
HK þarf að læra að spila betur á úti-
völlum í sumar ef ekki á illa að fara.
Emil Atlason var einmana í framlín-
unni og ekki bætti úr skák að Arnþór
Ari Atlason og Bjarni Gunnarsson
fóru meiddir af velli í fyrri hálfleik.
Sigur Stjörnunnar hefði getað orð-
ið stærri, þar sem Guðmundur
Steinn Hafsteinsson fékk nokkur
mjög góð færi. Minna fór fyrir Guð-
jóni Baldvinssyni en oft áður og voru
það ungir leikmenn á miðjunni sem
heilluðu helst hjá Stjörnunni. Þar
réðu þeir Þorri Geir Rúnarsson og
Alex Þór Hauksson ríkjum en
reynsluboltarnir Baldur Sigurðsson
og Eyjólfur Héðinsson byrjuðu á
bekknum. Það verður spennandi að
sjá hvort þeir ungu haldi þeim gömlu
á bekknum í sumar.
Kolbeinn með skýr skilaboð
Breiðablik vann sannfærandi 3:1-
sigur gegn Víkingi á Würth-vellinum
í Árbæ. Blikar léku í heimaleik sinn í
Árbænum í gær þar sem verið er að
leggja gervigras á Kópavogsvöll og
var völlurinn ekki tilbúinn í gær.
Kolbeinn Þórðarson kom Blikum
yfir strax á 11. mínútu en Nikolaj
Hansen jafnaði metin fyrir Víkinga
mínútu síðar. Kolbeinn var aftur á
ferðinni á 42. mínútu áður en Hösk-
uldur Gunnlaugsson innsiglaði sigur
Breiðabliks með skalla á 65. mínútu.
Leikmenn Breiðabliks mættu svo
sannarlega tilbúnir til leiks. Þeir
pressuðu Víkinga stíft út um allan
völl og gáfu þeim engan tíma með
boltann. Blikar lögðu allt í leikinn og
þetta var fyrst og fremst vinnusigur
hjá afar sprækum Kópavogsbúum.
Kolbeinn var frábær í liði Blika en
hann sendi Ágústi Gylfasyni svo
sannarlega skýr skilaboð með
frammistöðu sinni í gær en Kolbeinn
hafði byrjað fyrstu tvo leiki Blika í
deildinni í sumar á bekknum.
Það gekk fátt upp hjá gestunum úr
Víkinni. Þeim gekk afar illa að spila
sig út úr pressu Blika og miðjuspil
liðsins var heillum horfið. Pressa
Blika varð til þess að Víkingar þurftu
mikið að reyna langa bolta fram völl-
inn á Nikolaj Hansen sem hefur ein-
faldlega ekki hraðann til þess að
stinga sér inn fyrir varnir andstæð-
inganna. Víkingar áttu engin svör við
leikstíl Breiðabliks í gær og það var
ekkert sem benti til þess, allan leik-
inn, að þeir myndu sækja sér stig úr
leiknum.
Blikar svöruðu svo sannarlega
dapurri frammistöðu gegn HK í 2.
umferð með sigrinum í gær en Vík-
ingar þurfa plan B ef þeir ætla sér að
fá eitthvað út úr leikjum þar sem þeir
eru stífpressaðir.
Morgunblaðið/Ómar Morgunblaðið/Ómar
Einbeiting Þórarinn
Ingi Valdimarsson
með boltann en Kári
Pétursson, sem kom
snemma inn á hjá HK
vegna meiðsla, verst.
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019
Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is
Rússland
Dinamo Moskva – Rostov ....................... 0:0
Ragnar Sigurðsson og Björn Bergmann
Sigurðarson léku allan leikinn með Rostov.
Svíþjóð
Hammarby – Sirius ................................. 2:0
Viðar Örn Kjartansson lagði upp síðara
mark Hammarby og lék allan leikinn.
2. deild karla
Þróttur V. – Kári ..................................... 1:1
Pape Mamadou Faye 59. (víti) – Andri Júl-
íusson 74. Rautt spjald: Hrólfur Sveinsson
(Þrótti) 90.
Staða efstu liða:
Kári 2 1 1 0 5:1 4
Fjarðabyggð 1 1 0 0 3:0 3
Vestri 1 1 0 0 2:1 3
Víðir 1 1 0 0 2:1 3
Þróttur V. 2 0 2 0 3:3 2
Dalvík/Reynir 1 0 1 0 2:2 1
3. deild karla
KH – Kórdrengir...................................... 1:4
Staðan:
Kórdrengir 2 2 0 0 6:2 6
KV 2 2 0 0 4:2 6
Álftanes 2 1 1 0 6:2 4
Reynir S. 2 1 0 1 4:3 3
Skallagrímur 2 1 0 1 3:6 3
Augnablik 1 0 1 0 3:3 1
KF 1 0 1 0 1:1 1
KH 2 0 1 1 4:7 1
Einherji 1 0 0 1 1:2 0
Höttur/Huginn 1 0 0 1 1:2 0
Vængir Júpiters 1 0 0 1 1:2 0
Sindri 1 0 0 1 1:3 0
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Hásteinsvöllur: ÍBV – Grindavík .......... L14
Origo-völlur: Valur – ÍA......................... L20
Meistaravellir: KR – Fylkir .............. S19.15
1. deild karla, Inkasso-deildin:
Ásvellir: Haukar – Víkingur Ó .............. L14
Njarðtaksvöllur: Njarðvík – Þór........... L16
Boginn: Magni – Keflavík ...................... L17
2. deild karla:
Jáverkvöllur: Selfoss – Fjarðabyggð.... L14
Fjarðab.höll: Leiknir F. – Víðir ............ L14
Húsavíkurv.: Völsungur – Vestri .......... L14
Sauðákróksv.: Tindastóll – ÍR............... L16
Samsungv.: KFG – Dalvík/Reynir ........ L16
3. deild karla:
Fellav.: Höttur/Huginn – Vængir J ...... L14
Fagrilundur: Augnablik – KF ............... L16
Sindravellir: Sindri – Einherji ............... S16
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Hásteinsvöllur: ÍBV – Þór/KA .............. L14
2. deild kvenna:
Leiknisv.: Leiknir R. – Völsungur ... L16.15
Boginn: Hamrarnir – FHL............... L19.30
HANDKNATTLEIKUR
Undanúrslit karla, oddaleikur:
Schenker-höll: Haukar – ÍBV (2:2) .. L16.30
UM HELGINA!
1:0 Kolbeinn Þórðarson 11.
1:1 Nikolaj Hansen 12.
2:1 Kolbeinn Þórðarson 43.
3:1 Höskuldur Gunnlaugsson 66.
I Gul spjöldKolbeinn Þórðarson og Arnar
Sveinn Geirsson (Breiðabliki).
MM
Kolbeinn Þórðarson (Breiðabl.)
BREIÐABLIK – VÍKINGUR R. 3:1
M
Höskuldur Gunnlaugsson (Brei.)
Arnar Sveinn Geirsson (Breiðabl.)
Guðjón Pétur Lýðsson (Breiðabl.)
Elfar Freyr Helgason (Breiðabliki)
Jonathan Hendrickx (Breiðabliki)
Alexander H. Sigurðarson (Brei.)
Sölvi Geir Ottesen (Víkingi)
Rick ten Voorde (Víkingi)
Nikolaj Hansen (Víkingi)
Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi)
Dómari: Þorvaldur Árnason, 7.
Áhorfendur: 1.057.
1:0 Hilmar Árni Halldórsson 54.
I Gul spjöldÞorri Geir Rúnarsson, Þór-
arinn Ingi Valdimarsson (Stjörnunni),
Ólafur Örn Eyjólfsson, Atli Arnarson,
Aron Kári Aðalsteinsson (HK).
STJARNAN – HK 1:0
M
Þorri Geir Rúnarsson (Stjörnunni)
Hilmar Árni Halldórsson (Stjör.)
Heiðar Ægisson (Stjörnunni)
Alex Þór Hauksson (Stjörnunni)
Arnar Freyr Ólafsson (HK)
Leifur Andri Leifsson (HK)
Kári Pétursson (HK)
Dómari: Guðmundur Ársæll Guð-
mundsson, 8.
Áhorfendur: 768.