Morgunblaðið - 11.05.2019, Blaðsíða 54
54 ÚTVARP | SJÓNVARP
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019
Það eru liðin allt of
mörg ár síðan Íslend-
ingar voru af alvöru
með í Eurovisionpartýi
á fögru laugardags-
vorkvöldi. Ég treysti
Hataraliðum full-
komlega til að bæta úr
þessu á þriðjudag og
syngja sig inn í hjörtu
fólks um alla Evrópu,
eins og þeir hafa heill-
að jafnt leikskólabörn
sem gamalmenni um allt land.
Síðustu ár hefur eini fulltrúi Íslands á aðal-
kvöldi keppninnar verið sá aðili sem sér um að
lesa upp stigin sem við gefum. Ég veit ekki hver
fær þetta hlutverk í ár en ég veit að RÚV á innan
sinna raða fullkominn kandídat í verkið. Ég er að
sjálfsögðu að tala um Andra Frey Hilmarsson,
stjörnusjónvarpsmann úr Með okkar augum,
gangandi alfræðiorðabók um Eurovision og mik-
inn aðdáanda keppninnar, annálaðan húmorista
og mann sem nýtur sín vel í sviðsljósinu.
Ég skora á Magnús Geir Þórðarson útvarps-
stjóra að sýna Andra þann heiður að velja hann, ef
ekki nú, þá á næsta ári. Ég er þess handviss að
Andri væri rétt val. Ég þekki hann og hef fengið
að kynnast þekkingu hans og ástríðu fyrir Euro-
vision frá fyrstu hendi. Ef ég vil til dæmis vita
hvaða þjóðir gáfu Íslandi 12 stig í keppninni árið
1990 þá get ég bara spurt Andra. Ef ég vil hins
vegar vita hvaða land hann telur að vinni keppn-
ina í ár þá fæ ég eflaust sama svar og öll önnur ár;
Ísland. Hver veit nema Andri hafi að þessu sinni
rétt fyrir sér hvað þetta varðar?
Ljósvakinn Sindri Sverrisson
Magnús Geir er með
réttan mann í verkið
Verðlaunahafar Andri
Freyr og Helgi Seljan.
Morgunblaðið/Kristinn
Heimildarþáttur þar sem hópur vísindamanna kryfur eftirlíkingu af grameðlu í
fullri stærð. Með krufningunni vonast vísindamennirnir til þess að komast nær
sannleikanum um hvernig grameðlan þróaðist, hvernig hún lifði og hvort þær
kenningar sem uppi eru í dag halda vatni.
RÚV kl. 12.55 Grameðlan krufin
Síðumúli 13 - 108 Reykjavík - S. 577 5500 - atvinnueign.is
Skrifstofurrýmin sem eru laus eru, 640 fm á 4. hæð og 410 fm á 2. hæð. Möguleiki er að leiga 320 fm á 4. hæð.
Húsnæðið er innréttað í samráði við leigutaka. Lyftuhús og næg bílastæði. Vsk húsnæði. Mikill og góður
þjónustukjarni er aðVallakór 4, þar er meðal annars, Krónan, apótek, sálfræðiþjónusta, hárgreiðslustofa,
tannlæknastofa og fl.
Allar nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir: HalldórMár Sverrisson, lögg. fasteignasali og
leigumiðlari í síma 898 5599 eða í tölvupósti á halldor@atvinnueign.is
Fasteignamiðlun
VALLAKÓR 4
Halldór Már Sverrisson
Viðskiptafræðingur
Löggiltur fasteignasali
Löggiltur leigumiðlari
898 5599
halldor@atvinnueign.is
TIL LEIGU SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
.
410 fm á 2. hæð
Atvinnueignir eru okkar fag
Á sunnudag Fremur hæg breytileg
átt fyrir hádegi og víða bjart veður,
en vestan 8-13 m/s og él með norð-
urströndinni. Vaxandi suðaustan-
og austanátt síðdegis, 13-18 og
rigning á sunnanverðu landinu um kvöldið. Á mánudag Sunnan 8-15 og víða rigning,
talsverð um sunnanvert landið. Lægir og styttir upp um kvöldið. Hiti 7 til 14 stig.
RÚV
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Hinrik hittir
07.21 Úmísúmí
07.44 Rán og Sævar
07.56 Letibjörn og læmingjarnir
08.03 Hrúturinn Hreinn
08.10 Eysteinn og Salóme
08.22 Millý spyr
08.29 Með afa í vasanum
08.41 Flugskólinn
09.04 Minnsti maður í heimi
09.05 Stundin okkar
09.30 Óargardýr
10.00 Verksmiðjan
10.30 Skólahreysti
11.55 Hafið, bláa hafið
12.45 Hafið, bláa hafið: Á töku-
stað
12.55 Grameðlan krufin
13.40 Hemsley-systur elda hollt
og gott
14.05 Í helgan stein
14.35 Kiljan
15.10 Sætt og gott
15.20 Villt náttúra Indlands
16.10 Ég vil fá konuna aftur
16.40 Bítlarnir að eilífu – When
I’m Sixty Four
16.50 Bannorðið
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Bílskúrsbras
18.05 Sebastian og villtustu
dýr Afríku
18.15 Landakort
18.25 HM kvenna í fótbolta:
Leiðin til Frakklands
18.53 Lottó
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Alla leið
21.00 Bíóást: Steel Magnolias
23.00 Baader Meinhof-gengið
01.20 Útvarpsfréttir í
dagskrárlok
Sjónvarp Símans
13.05 Madam Secretary
13.50 Speechless
14.15 The Bachelorette
16.00 Malcolm in the Middle
16.20 Everybody Loves Ray-
mond
16.45 The King of Queens
17.05 How I Met Your Mother
17.30 Futurama
17.55 Family Guy
18.20 Our Cartoon President
18.45 Glee
19.30 The Voice US
20.15 Hateship Loveship
21.55 Killer Joe
23.35 Get Him to the Greek
Stöð 2
Hringbraut
Omega
N4
Rás 1 92,4 93,5
07.00 Strumparnir
07.25 Kormákur
07.35 Billi Blikk
07.45 Kalli á þakinu
08.05 Lína langsokkur
08.30 Skoppa og Skrítla út
um hvippinn og hvapp-
inn
08.40 Dagur Diðrik
09.05 Dóra og vinir
09.30 Tindur
09.45 Víkingurinn Viggó
09.55 Stóri og Litli
10.05 K3
10.15 Latibær
10.40 Ninja-skjaldbökurnar
11.00 Friends
11.20 Ellen
12.00 Bold and the Beautiful
12.20 Bold and the Beautiful
12.40 Bold and the Beautiful
13.00 Bold and the Beautiful
13.20 Bold and the Beautiful
13.45 Splitting Up Together
14.05 Friends
14.30 Grey’s Anatomy
15.15 Seinfeld
15.35 Seinfeld
16.00 Britain’s Got Talent
16.55 Næturgestir
17.25 Atvinnumennirnir okkar
18.00 Sjáðu
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.55 Sportpakkinn
19.10 Lottó
19.15 Top 20 Funniest
20.00 Ocean’s Twelve
22.05 Life of the Party
23.55 Game Night
20.00 Súrefni (e)
20.00 21 – Úrval á laugardegi
20.30 Bókahornið (e)
endurt. allan sólarhr.
17.00 Omega
18.00 Joni og vinir
18.30 The Way of the Master
19.00 Country Gospel Time
19.30 Joyce Meyer
21.30 Föstudagsþátturinn
22.00 Nágrannar á norð-
urslóðum (e)
22.30 Eitt og annað af lista-
lífinu (e)
23.00 Samgönguáætlun vest-
urlands (e)
23.30 Taktíkin – Sigþór Gunn-
ar og Katrín Mist
24.00 Að Norðan
06.55 Morgunbæn og orð
dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Til allra átta.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 „Ég er ekki skúrkur“.
09.00 Fréttir.
09.03 Á reki með KK.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Blóði drifin bygging-
arlist.
11.00 Fréttir.
11.02 Vikulokin.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Gestaboð.
14.00 Sjöunda nóttin.
15.00 Flakk.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Orð um bækur.
17.00 Tónlist frá A til Ö.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Í ljósi sögunnar.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Sveifludansar.
20.45 Rölt milli grafa.
21.15 Bók vikunnar.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Brot af eilífðinni.
23.00 Vikulokin.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
11. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:26 22:23
ÍSAFJÖRÐUR 4:09 22:50
SIGLUFJÖRÐUR 3:52 22:33
DJÚPIVOGUR 3:50 21:58
Veðrið kl. 12 í dag
Norðvestan 3-8, en 8-13 norðaustantil. Áfram dálítil él norðanlands, en þurrt og bjart
syðra. Hiti frá frostmarki í innsveitum fyrir norðan, upp í 8 stig á Suðurlandi.
10 til 14 100%
helgi á K100
Stefán Val-
mundar rifjar
upp það besta
úr dagskrá
K100 frá liðinni
viku, spilar
góða tónlist og
spjallar við hlustendur.
14 til 18 Algjört skronster Partí-
þáttur þjóðarinnar í umsjá Ásgeirs
Páls. Hann dregur fram DJ græj-
urnar klukkan 17 og býður hlust-
endum upp á klukkutíma partí-mix.
18 til 22 100% helgi á K100
Besta tónlistin á laugardagskvöldi.
22 til 2 Bekkjarpartí Besta tónlist-
in í partíið á K100.
Tónlistarmaðurinn Ritchie Valens
var heiðraður með stjörnu á
frægðargangstéttinni þekktu í
Hollywood á þessum degi árið
1990. Varð hann þar með fyrsti
latin-tónlistarmaðurinn til að
hljóta þann heiður. Söngvarinn
naut gríðarlegra vinsælda á sjötta
áratugnum en lést á hátindi
frægðarinnar í flugslysi þann 3.
febrúar 1959. Oft er vísað í þann
dag sem „daginn sem tónlistin
dó“ en ásamt Valens létust Buddy
Holly og J. P. „The Big Bopper“ í
sama slysi. Einn af stórsmellum
Valens var „La Bamba“ en sam-
nefnd kvikmynd var gerð um líf
tónlistarmannsins.
Fyrsti latin tón-
listarmaðurinn
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 6 léttskýjað Lúxemborg 14 heiðskírt Algarve 23 léttskýjað
Akureyri 1 skýjað Dublin 9 skúrir Barcelona 20 léttskýjað
Egilsstaðir 0 alskýjað Vatnsskarðshólar 4 skýjað Glasgow 11 léttskýjað
Mallorca 23 heiðskírt London 14 rigning
Róm 19 heiðskírt Nuuk 0 þoka París 13 rigning
Aþena 20 léttskýjað Þórshöfn 2 rigning Amsterdam 13 léttskýjað
Winnipeg 0 heiðskírt Ósló 9 skúrir Hamborg 11 léttskýjað
Montreal 9 rigning Kaupmannahöfn 11 rigning Berlín 16 léttskýjað
New York 19 alskýjað Stokkhólmur 12 heiðskírt Vín 17 léttskýjað
Chicago 11 léttskýjað Helsinki 8 súld Moskva 23 skúrir