Morgunblaðið - 11.05.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.05.2019, Blaðsíða 32
Loksins fáanlegir aftur á Íslandi www.velaborg.is | Járnhálsi 2-4 | 110 Reykjavík | Sími 414-8600 LYFTARARNIR Til á lager 32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019 Dæmi um slík félög sem sinna nauðsyn- legum verkefnum á fjölmörgum sviðum í okkar samfélagi eru Krabbameinsfélagið, Öryrkjabandalagið, Landsbjörg, UMFÍ, Blindrafélagið, Barna- heill og Heimili og skóli. Þar sinna ein- staklingar gjarnan sjálfboðastörfum og leggja jafnvel starfinu til fé. Mörg þessara félaga leysa af hendi verk- efni sem annars myndu lenda á hinu opinbera. Augljóst er að félög- in þurfa að starfa af fagmennsku svo þau séu traustsins verð. Til þess þurfa þau skýra lagaumgjörð. Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp til laga um félög til almannaheilla. Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköp- unarráðherra hefur átt samráð um frumvarpið við Almannaheill – sam- tök þriðja geirans – sem hafa innan sinna vébanda mörg af stærstu al- mannaheillasamtökum landsins með tugþúsundir félagsmanna. Efnislega fjallar frumvarpið um skilyrði þess að félag geti valið að skrá sig sérstaklega sem félag til al- mannaheilla og fá þá endinguna .fta í fyrirtækjaskrá. Sú skráning hent- ar vel félögum sem eru með umtals- verða starfsemi og/eða þiggja fjár- magn til starfsemi sinnar. Í frum- varpinu felast hagnýtar leið- beiningar um stofnun og rekstur almannaheillafélaga þar sem vand- aðir stjórnarhættir og fjármál eru höfð að leiðarljósi. Fyrir lítil félaga- samtök, sem ekki höndla með fjár- muni, er skráningin valkvæð og fyr- ir þau mun þessi lagasetning ekki hafa önnur áhrif en að verða fyrir- mynd um góða stjórnarhætti og vandaða meðferð fjármuna. Heildarlög um félagsamtök til almannaheilla löngu tímabær Við, sem styðjum félagasamtök til góðra verka, viljum geta treyst þeim. Við viljum að fólkið eða mál- efnin sem félagasam- tökin starfa fyrir njóti faglegrar hjálpar. Við viljum að félagasam- tökin taki vandaðar ákvarðanir, fari vel með fjármagn og komi í veg fyrir hagsmuna- árekstra. Við viljum ekki að fjármálaóreiða eða hagsmunapot í fé- lagasamtökunum skaði málstaðinn sem við styðjum. Því miður er alltaf hætta á að það geti gerst, eins og annars staðar þar sem peningar og hagsmunir eru í húfi. Almannaheill hafa allt frá árinu 2008 kallað eftir því að starfsum- hverfi almannaheillasamtaka verði styrkt og þau fái ívilnanir í sam- ræmi við þann ávinning sem þau skapa samfélaginu og yfirvöldum. Lögleiðing frumvarps ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um félög til almannaheilla er mik- ilvægt skref til að efla traust á starfsemi almannaheillasamtaka í landinu, stuðla að góðum starfs- háttum innan slíkra samtaka og skilgreina betur eftirlit og gagnsæi í starfi þeirra. Stjórn Almannaheilla hvetur þingmenn allra flokka til að veita frumvarpinu brautargengi og renna þannig enn styrkari stoðum undir starfsemi félaga til almannaheilla í landinu. Öflug félög til almannaheilla Eftir Ketil Berg Magnússon Ketill Berg Magnússon » Lögleiðing frum- varps ferðamála-, iðnaðar- og nýsköp- unarráðherra um félög til almannaheilla er mikilvægt skref til að efla traust á starfsemi almannaheillsamtaka í landinu. Höfundur er formaður Almannaheilla. Vilhjálmur Bjarna- son, fyrrverandi þing- maður, sendi Moggan- um áhugaverða grein um ríkisskuldir og skuldahlutföll sem birt- ist í blaðinu 26. apríl sl. þar sem hann slær botninn í boðskap sinn með þeim orðum: „Ef til vill verða engir menn frjálsir nema þeir sem eru skírlífir í skuldamálum.“ Vilhjálmur kemur víða við í grein sinni og ljóst að hann þekkir málaflokkinn vel. Hann fjallar lítillega um synd og sannleika þar sem fram kemur að íbúar í Hafn- arfirði og Garðabæ taki vel á móti sannleikanum en ekkert kemur þar fram um okkur íbúa Kópavogs, en hann spyr sig hver sé kostnaður og ábati af innviðaframkvæmdum sem nauðsynlegar eru til að hægt sé að lifa menningarlífi á Íslandi. Ég læt bæjarfulltrúa í Kópavogi um að koma íbúum skuldugs bæjar- félags til varnar en velti því þó fyrir mér hvernig á að borga allar hinar miklu skuldir bæjarins. Kannski er einfaldlega gott að skulda og búa við skerðingu á frelsi samanber orð Vil- hjálms hér að framan. Skírlífi í skuldamálum er alla vega ekki í aug- sýn í Kópavogi en á móti eru innviða- framkvæmdir töluverðar og íbúar lifa fjölbreyttu menningarlífi. Svo eru þeir sem sækja sér menningu til Reykjavíkur í boði íbúa þar. Augljós- lega munu komandi kynslóðir Kópa- vogsbúa bera skuldaklafa ofan á alla sóun og mengun okkar kynslóðar eins og það væri ekki nóg eitt og sér. Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2018 var birtur á heimasíðu bæjarins 17. apríl sl. Jákvæð niður- staða varð á rekstri bæjarins um 1,3 milljarða króna samanborið við 2,2 milljarða króna 2017. Aldrei hafa fleiri búið í Kópavogi og lagt sitt af mörkum til samfélagsins í formi út- vars og annarra gjalda. Heildar- tekjur bæjarins voru meiri en nokkru sinni eða 32,1 milljarður króna. Skuldir og skuldbindingar í árslok 2018 voru 44,8 millj- arðar króna saman- borið við 43,2 í árslok 2017. Skuldahlutfall, þ.e. skuldir og skuld- bindingar á móti rekstrartekjum, var því um 139% í árslok 2018 samanborið við 143% í árslok 2017. Á heima- síðu Kópavogsbæjar segir hins vegar í fréttatilkynningu um ársreikning 2018: ,,Skuldahlutfall bæjarins var 108% í árslok 2018 og lækkar úr 133% frá árslokum 2017.“ Hvernig getur 139% = 108%? Kannski eru skuldirnar sem vantar fyrir ofan strik hjá Kópa- vogsbæ í þessari jöfnu góðar skuldir og því sleppt. Nú bregður svo við að sennilega er bærinn ekki að meina skuldahlutfall eins og það er skilgreint heldur skuldaviðmið skv. reglugerð ríkisins til að fegra skuldastöðu sveitarfé- laga. Þá verður það einfaldlega að koma þannig fram í tilkynningu bæj- arins en ekki með fegrunaraðgerð í boði ódýrrar pólitíkur með þeim til- gangi að blekkja grunlausa íbúa bæj- arins. Sennilega vilja bæjarfulltrúar meirihlutans ekki láta íbúana vita hið raunverulega háa skuldahlutfall en skuldir Kópavogsbæjar jukust á milli ára þrátt fyrir að rekstrartekjurnar væru meiri en nokkru sinni fyrr. Áhyggjur bæjarbúa hljóta að snúa að því að góðæri síðustu ára hefur ekki nýst sem skyldi til að greiða nógu mikið niður skuldir Kópavogs- bæjar. Góð fjármálastjórn? Nú býr Kópavogsbær ekki svo vel að eiga eignir (fyrirtæki) af þeirri gerð sem skila munu bænum stórauknum tekjum á komandi árum og verð- mætt land til uppbyggingar hefur verið skert verulega sl. ár með lóða- úthlutun. Það má þó alltaf hækka út- svarið í hámark en mikið hefur bæj- arstjórinn gert úr því að bærinn innheimti einungis 14,48% í útsvar í stað hámarksins sem ríkið leyfir eða 15,52%. Úr einu í annað. Það er með öllu óásættanlegt með þau tól og tæki sem boðið er upp á að ársreikningar sveitarfélaga séu birtir eftir dúk og disk, sérstaklega vitanlega á kosn- ingaári eins og í fyrra. Þetta hamlar eðlilegri umfjöllun um fjármál sveit- arfélaga og hyglir þeim sem valdið hefur. Alþingi þarf að setja í lög að ársreikningar sveitarfélaga skuli birtir eigi síðar en í lok febrúar árið eftir. Það er full þörf á meiri aga og betri vinnubrögðum á þessum vett- vangi. Alþingi verndar með því lýð- ræðið og jafnar möguleika þeirra sem vilja bjóða sig fram til starf í þágu síns sveitarfélags. Launakostnaður Kópavogsbæjar er stærsti útgjaldaliður sveitarfé- lagsins. Laun og launatengd gjöld voru 17,5 milljarðar króna árið 2018 í samanburði við 16,6 milljarða króna 2017. Þetta er um 55% af rekstrar- tekjum bæjarins árið 2018. Þetta hlutfall er hátt og yfirbygging hefur vaxið jafnt og þétt. Það þarf að gæta meiri aðhalds í rekstri Kópavogs- bæjar og ekki tókst bæjarfulltrúum og bæjarstjóra vel upp þegar til- kynnt var um 15% launlækkun kjör- inna fulltrúa eftir kosningar á sl. ári í kjölfar mikillar gagnrýni almennings á 75% launahækkun til þessa hóps á síðasta kjörtímabili. Tölurnar tala sínu máli. Laun bæjarfulltrúa og bæjarstjóra árið 2018 voru 132 millj- ónir króna í samanburði við 133 millj- ónir króna árið 2017. Launakostn- aður skattgreiðenda í Kópavogi vegna bæjarfulltrúa og bæjarstjóra lækkaði því um 1 milljón króna milli ára – það voru öll þessi 15%. Senni- lega bara leikur að tölum. Rétt væri að birta í ársreikningi laun allra bæj- arfulltrúa og bæjarstjóra til að auka gagnsæi og stuðla að góðum stjórn- háttum. Hér hefur löggjafinn verk að vinna. Að lokum í framhaldi af fyrr- nefndri grein Vilhjálms Bjarnasonar. Hóflegar skuldir geta greinilega ver- ið góðar þegar fjárfestingar eru gerðar til góðra verka almenningi til heilla sem lifir menningarlífi. Skuld- irnar skapa þannig gott samfélag. En miklar skuldir Kópavogsbæjar hljóta þrátt fyrir það að vera áhyggjuefni. Sumir segja væntan- lega að hluti skuldanna séu slæmar með tilheyrandi fjármagnskostnaði sem heftir bæjarfélagið í þjónustu við bæjarbúa. Það þýðir einfaldlega færri krónur til góðra og nauðsyn- legra verka með tilheyrandi óham- ingju fyrir þá bæjarbúa sem mest þurfa á stuðningi bæjarfélagsins að halda. Fjármálastjórn bæjarins þarf að bæta og skuldirnar þarf að lækka með markvissari hætti en gert hefur verið með þeim sársauka sem slíku fylgir. Ábyrgðin er í höndum kjör- inna fulltrúa. Það er ekki sannfærandi hjá minnihlutanum í Kópavogi að gagn- rýna fjármálastjórn meirihlutans eft- ir að hafa samþykkt fjárhagsáætlun bæjarins, allir sem einn og það ár eft- ir ár. Skuldaaukning bæjarins er byggð á fjárhagsáætlun og er því á ábyrgð allra bæjarfulltrúa. Í Kópa- vogi hefur ekki verið ein eða nein stjórnarandstaða síðastliðin mörg ár nema á tyllidögum og rétt fyrir kosn- ingar. Kannski er bara ein stefna í Kópavogi sem byggist á því að halda öllum glöðum (líka bæjarfulltrúum) með tilheyrandi skuldaaukningu og fjármagnskostnaði. Það getur ekki verið mottóið hjá bæjarfulltrúum að Kópavogsbær safni skuldum og að þeim sé vísað til komandi kynslóða. Skírlífi í skuldamálum er því vonandi á dagskrá í Kópavogi næstu miss- erin. Skírlífi í skuldamálum – um bæjarskuldir og skuldahlutföll Eftir Geir Þorsteinsson »Kannski er bara ein stefna í Kópavogi sem byggist á því að halda öllum glöðum (líka bæjarfulltrúum) með til- heyrandi skuldaaukn- ingu og fjármagns- kostnaði. Geir Þorsteinsson Höfundur skipaði 1. sæti á framboðs- lista Miðflokksins í Kópavogi í kosn- ingum til sveitarstjórna 2018. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.