Morgunblaðið - 11.05.2019, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við viljum vera fólki hvatn-ing svo fleiri fari að ræktasitt eigið grænmeti. Þettaer ekkert mál, fólk getur
ræktað heilmargt fyrir sjálft sig þó
það hafi ekki garða, á svölum er til
dæmis hægt að rækta kartöflur, kál,
salöt, gulrætur, kryddjurtir og
fleira. Ég mæli með að fólk rækti
frekar grænmeti en gras þar sem
eru litlar lóðir við íbúðarhús. Fólk
þarf ekki að fara á námskeið til að
rækta matjurtir, það á bara að vaða í
verkið. Þetta eru ekki geimvísindi og
maður lærir mest á því að gera sjálf-
ur. Auk þess er auðvelt að sækja sér
upplýsingar á netinu. Aðalmálið er
að vera ekki hræddur, jurtir vaxa ef
passað er upp á birtu, vökvun og
næringu moldar,“ segir Björk
Bjarnadóttir sem býr ásamt manni
sínum Tómasi Atla Ponzi í Brenn-
holti í Mosfellsdal, en þar rækta þau
lífrænt ræktað grænmeti og tómata
fyrir almenning, veitingahús og eigið
heimili.
„Kokkarnir eru brjálaðir í
þetta, við önnum ekki eftirspurn. En
við ræktum líka fyrir okkur sjálf og
eigum grænmeti allt árið. Við kaup-
um kjöt fyrir heimilið beint frá
bónda og fáum fisk frá bróður mín-
um sem er sjómaður. Við fáum
kindaskít frá nágranna okkar sem
við notum sem áburð í jurtaræktun-
inni, en við notum engan tilbúinn
áburð og ekkert skordýra- eða
illgresiseitur. Það sem skaðar um-
hverfið skaðar okkur líka. Það sem
fer í jarðveginn hverfur ekki heldur
fer í vistkerfið og hefur áhrif á okkur
öll og berst út í grunnvatnið.“
Betra bragð ef ræktað hægt
Þau Björk og Tómas hafa búið
undanfarin átta ár í Brennholti en
þau fluttu þangað þremur árum eftir
að faðir Tómasar féll frá.
„Foreldrar Tómasar, Guðrún
Tómasdóttir og Frank Ponzi, kynnt-
ust í Bandaríkjunum þegar hún var
þar að læra söng. Þau fluttu hingað
um 1970 og byggðu upp Brennholt
þar sem þau hófu sjálfsþurftar-
búskap og voru sjálfstætt starfandi.
Eftir að við Tómas fluttum hingað
fórum við strax að spá í tómata-
ræktun, við vildum arfhrein fræ og
lífrænt ræktuð og hófum að rækta
mjög sérstaka tómata, annars vegar
svokölluð ættardjásn sem eru í upp-
hitaða gróðurhúsinu okkar, og hins-
vegar síberíska kuldaþolna tómata
sem eru í köldu gróðurhúsunum. Við
viljum bjóða upp á hágæða bragð-
góðar vörur og ræktun okkar snýst
því ekki um magn heldur gæði. Allt
sem er ræktað í rólegheitum og leyft
að vaxa á sínum hraða og hefur líf-
ræna ræktun á bakvið sig, það er
miklu bragðbetra. Salatið okkar vex
úti í vindi og sól og fyrir vikið verða
blöðin sterk og stökk og bragðið
gott.“
Gróðurhús með dverganöfn
Björk segir að Tómas búi vel að
þeirri reynslu að hafa alist upp við
ylrækt foreldra sinna.
„Sjálf ólst ég upp á Blönduósi í
nánum tengslum við náttúruna og ég
kann rosalega vel við mig hér í
sveitasælunni í Brennholti. Ég vil
helst vera úti allan daginn, og ef ég
þarf að fara í bæinn í útréttingar
milli stofnana þá finnst mér dagur-
inn ónýtur,“ segir Björk og bætir við
að sjálfbærnibúskapurinn sé bæði
hugsjón og ánægja hjá þeim Tómasi.
„Okkur finnst báðum rosalega
gaman að rækta. Að rækta er lífið
sjálft. Nú er törn í vorverkunum, við
þurfum að koma tómatplöntunum í
jörðina, en við ræktum líka gulræt-
ur, aspas, hvítlauk, rauðlauk, rófur,
rauðrófur, brokkólí, blómkál, græn-
kál og oregano. Köldu gróðurhúsin
okkar heita eftir tveimur af fjórum
dvergum úr norrænni goðafræði
sem halda uppi himinhvelfingunni
sjálfri, Norðri og Suðri, sem einnig
standa fyrir höfuðáttirnar fjórar.
Ný afbrigði sem Tómas hefur
búið til með krossfrjóvgun virkuðu
best í köldu húsunum í fyrra. Á
þessu sumri fáum við okkur humlur
til að hjálpa til með frjóvgun þeirra,“
segir Björk sem er þjóðfræðingur og
notar þjóðfræðina mikið þegar hún
hefur verið að kenna í afleysingum.
„Ég segi fornar sögur úr nátt-
úrunni, segi frá nytjum jurta og sög-
ur af plöntum. En krakkar vilja helst
heyra draugasögur,“ segir hún og
hlær.
Afslappandi að kveikja upp
Björk og Tómas eru með sex
landnámshænur í Brennholti sem
sjá þeim fyrir eggjum og einn hani
er meðal þeirra, til skrauts.
„Ég kalla þær púdds og þetta
eru miklar dekurhænur. Þær hlaupa
frjálsar hér um allt þegar ég hleypi
þeim út yfir daginn. Þær hafa allar
nafn og búa yfir ólíkum persónu-
leika. Haninn heitir Rauður og sér
um að halda hópnum saman og reyn-
ir að grípa inn í erjur milli hænsn-
anna. Hænurnar heita Brussa, Rósa,
Dama, Gýpa, Pönký sem er gæfust
og klárust og svo Brúska sem er að-
alfrekjan,“ segir Björk sem eldar
hafragraut á hlóðum fyrir sínar dek-
urhænur einu sinni í viku.
„Þær eru sérlega sólgnar í hann
og vilja hafa hann heitan. En ég gef
þeim líka korn og þær fá matar-
afganga okkar Tómasar sem og
grænmetisafganga frá veitingastað.
Súkkulaðikökur og rjómi er það
besta sem þær fá.“
Björk býður blaðamanni í garði
sínum upp á unaðslega jurtaveig
sem hún lætur malla yfir opnum
eldi.
„Ég klippi greinar af birki eða
greni og læt út í vatn og leyfi því að
sjóða í svolitla stund. Birkið er að
blómstra núna svo það er kraftmikið
á þessum árstíma. Svona jurtaveig
er mögnuð, af því hún hitnar á sínum
tíma yfir lifandi eldi en ekki við raf-
magn á skotstund,“ segir Björk og
bætir við að hún mæli með að fólk
búi til sín eigin grill, rétt eins og hún
hefur gert.
„Það er sáraeinfalt, hlaða stein-
um og setja grind yfir. Mér finnst
rosalega gaman að kveikja eld, en ég
bjó í Kanada í fimm ár og vann þar
með frumbyggjum þar sem ég var
að læra um þjóðhætti og þjóðlíf
þeirra. Á meðal margs sem ég lærði
af þeim var að höggva í eldinn og
kveikja eld án þess að nota bensín,
nota heldur uppkveikiefni eins og
smáar greinar. Mér finnst afslapp-
andi og gefandi að kveikja upp. Ís-
lendingar eru allt of hræddir við eld,
þeir þurfa að láta af þeim ótta.“
Hlýðið nú Björk siðar hópinn sinn til við matargjöf dagsins. Haninn Rauður Ásamt vinkonum sínum að borða hafragraut. Saman Tómas og Björk í köldu gróðurhúsi með tómatplöntum.
Eldar hafragraut í sínar hænur
Að rækta er lífið, segir
Björk Bjarnadóttir sem
býr í Brennholti ásamt
Tómasi manni sínum en
þar stunda þau lífræna
ræktun. Björk vill helst
vera úti allan daginn.
Morgunblaðið/Hallur Már
Sælan í Brennholti Björk sýður hér hafragraut og jurtaveig með birki yfir opnum eldi á heimagerðu eldstæði.
Myndskeið frá Brennholti er að
finna á mbl.is
mbl.is
Brokkkórinn, kór hestamanna af höfuðborgar-
svæðinu, stendur fyrir söngveislu í Aratungu í
Reykholti í Biskupstungum í kvöld laugar-
dagskvöld 11. maí. Sérstakur gestur verður
Karlakór Selfoss og má búast við góðri
stemningu. Stjórnandi Brokkkórsins, Magnús
Kjartansson, leiðir samsönginn eftir að kór-
arnir starta kvöldinu með því að syngja nokk-
ur lög. Í framhaldinu fá allir tækifæri til að
þenja raddböndin og skemmta sér og öðrum
og munu Tungnamenn væntanlega standa sig
í gleðinni. Húsið verður opnað kl. 19:30 og
stuðið hefst upp úr kl. 20. Miðar verða seldir
við inngang og söngvatn mun fást á barnum.
Brokkkórinn og Karlakór Selfoss bjóða til söngveislu og syngja með gestum sínum
Allir syngja saman
í Aratungu í kvöld
Glaðir Sigurður Brokkkórsformaður og Sigmundur tenór í hesthúsinu.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla