Morgunblaðið - 11.05.2019, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 11.05.2019, Qupperneq 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019 Um daginn fór ég með þjóðfræðinema á fund um menningararf íEvrópu á dögum fjölmenningarinnar. Fundurinn var haldinn íSantiago de Compostela í Galisíu á Spáni og þar komu samanfulltrúar ferðamannastaða sem byggja á menningararfi, auk fræðinga og stúdenta í skyldum fræðum frá fimm löndum. Allt fór vel fram og engin nefndu þriðja orkupakkann. Einn af hápunktum fundarins var heimsókn í borgina Pontevedra sem er orðin heimsfræg fyrir að banna alla óþarfa bílaumferð í miðbænum, íbúum og ferðamönnum til gleði. Stúdentarnir frá Hollandi voru áberandi frambærilegir fyrir það hvað þeim veittist létt að taka þátt í umræðum og skýra hugmyndir sínar á enska málinu. Aðspurð sögðu þau að sitt menningartengda háskólanám færi allt fram á ensku: fyrirlestrar, próf og ritgerðir. Hollenskukunnáttu þeirra hefði því hrakað og þau gætu ekki talað um fræði sín á því máli; bara skrafað um slúður og hversdagslegt grín við félaga og fjölskyldu. Áhugi á hol- lensku færi almennt þverr- andi og til marks um það hefði hollenskudeildinni í há- skólanum þeirra, Vrije Universiteit Amsterdam (sem er einn af hundrað bestu háskólum heims og á í ýmsu samstarfi við HÍ), verið lokað nú í vetur. Aðeins fimm stúdentar hefðu skráð sig til náms, aðsókn hefði minnkað jafnt og þétt og skólayfirvöld bentu nú þeim sem hefðu áhuga á þessu fagi – sem væri ennþá kennt í grunn- og framhaldsskólum og því þyrfti kennara til starfa á þeim skólastigum – að þau gætu farið í aðra háskóla í Hollandi. Eins og vænta mátti gaus upp umræða í Hollandi, þverpólitískir kjörnir fulltrúar og álitsgjafar töldu þetta óheillaþróun og kölluðu eftir aðgerðum; sum kenndu um reiknilíkaninu við fjármögnun háskóla og önnur sögðu enga ástæðu til að örvænta. Utanfrá blasir við að áhugaleysi stúdenta er erfitt við- fangs. Fólk verður ekki þvingað til að læra það sem það hefur engan áhuga á. En stjórnvöld, fjölmiðlar og álitsgjafar stýra fjármunum og umræðunni og hafa þannig áhrif á launastefnu, áhugasvið ungmenna, gildismat – og mál- notkun. Hér á landi heyrast nú raddir um að kjörin yfirvöld eigi í samráði við „at- vinnulífið“ að ákveða hvers konar menntun samfélagið þurfi á að halda – og síðan eigi að beina stúdentum á þær ákveðnu brautir en þrengja að og loka hinum (lesist: greinum sem þjálfa sjálfstætt hugsandi og gagnrýna borgara). Með slíkri stefnu gæti „þörfin“ fyrir íslenskunám miðast við kennarastörf í skólakerfinu; líkt og þegar ég var að hefja nám í háskóla og þau sem töldu sig þekkja best til þarfa atvinnulífsins á þeim löngu liðnu tímum ráðlögðu öll- um frá því að fara í líffræði, enda væru nú ungir kennarar í öllum líffræði- kennarastöðum í landinu og því ekki þörf á fleiri líffræðingum í bráð. Það dæmi ætti að nægja til að beina ráðamönnum frá þeirri óheillahugmynd að beita ríkisvaldinu við að þrengja námsleiðir ungs fólks. Hvenær verður komið nóg af íslenskufræðingum? Tungutak Gísli Sigurðsson gislisi@hi.is Þær upplýsingar, sem fram komu á ársfundi Sam-áls, samtaka álfyrirtækja, í fyrradag um stöðuáliðnaðarins hér og áhrif hans á efnahagslega af-komu þjóðarbúsins voru í raun staðfesting á því, að þeir sem fyrir hálfri öld börðust fyrir uppbyggingu ál- iðnaðar hér í krafti raforku frá stórvirkjunum höfðu rétt fyrir sér og þeir, sem lögðust gegn því rangt fyrir sér. Einn af pólitískum arftökum hinna síðarnefndu, Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, vék að þeirri fortíð í skemmtilegri ræðu á ársfundinum, sem um leið var undir- strikun á því, að nú eiga hinir grænu samleið með áliðnað- inum í loftslagsmálum, en sá málaflokkur var eins konar þema þessa ársfundar. Það fer ekki á milli mála, hvort sem við lítum til um- ræðna út í heimi um loftslagsmál eða hér heima, að sá málaflokkur mun yfirgnæfa öll önnur mál í þjóðfélags- umræðum, ekki bara næstu ár heldur næstu áratugi. Og jafnframt er smátt að smátt að skýrast um hvað þær umræður munu snúast. Kjarni þess boðskapar, sem heyrist úr öllum áttum er, að mannfólkið verði að draga úr neyzlu sinni í víðtækum skilningi þess orðs. Það sé stöðugt vaxandi neyzla, sem sé undirrót vandans og þar á með- al ástæðan fyrir því að jöklarnir á Ís- landi eru ýmist að minnka eða hverfa. Og það er rétt hjá forsætisráðherra, að við hér á höfuðborgarsvæðinu erum minnt á það í hvert sinn, sem við horfum til Snæfellsjökuls. En hvað felst í því að minnka neyzlu? Það er augljóst að í því felst að við munum vega að því, sem í raun er undirstaða hagkerfa samtímans, hvort sem þau eru byggð upp á einkaframtaki og einkaeign eða kap- ítalismi undir alræðisstjórnum eins og í Kína og Rúss- landi. Og hvaða áhrif mun það hafa á daglegt líf okkar og þau samfélög, sem hafa verið byggð upp, þegar neyzlan á öllum sviðum dregst stórlega saman? Sennilega felst í því meiri bylting á samfélögum og lífs- háttum en við höfum ímyndunarafl til að átta okkur á. En þess breyting verður, þótt eldri kynslóðir muni ekki upplifa hana nema rétt á byrjunarstigi. Og sú breyting mun hafa ýmislegt fleira í för með sér. Hverjir munu leiða þá breytingu á hinum pólitíska vett- vangi? Taka græningjar yfir? Þeir hafa verið að styrkja stöðu sína verulega í sumum Evrópulöndum og hér á Ís- landi heyrast jafnvel raddir um að til geti orðið ný pólitísk hreyfing græningja vegna þess að VG sé líka að sumra mati á góðri leið með að missa tengslin við þann uppruna sinn ekki síður en tengslin við baráttu alþýðunnar á síð- ustu öld fyrir bættum kjörum. Svo getur auðvitað verið að hinir hefðbundnu flokkar, sem sinnt hafa umhverfismálum minna en efni hafa staðið til, vakni upp við vondan draum og lagi sig að breyttum að- stæðum. En þetta snýst ekki bara um flokkapólitík. Loftslagsmálin munu verða okkur hér á þessari eyju hvatning til að verða sjálfum okkur nóg í ríkara mæli en fram að þessu vegna þess að einn þáttur í að bregðast við loftslagsbreytingum er einfaldlega að það verður betri kostur að framleiða margvíslegan varning og neyzluvörur hér heima fyrir en flytja þær til Íslands með þeim kostn- aði, sem því fylgir m.a. vegna loftslagsbreytinga af þeim sökum. Undanfarnar vikur hefur verið deilt mikið um orku- pakka 3 en minna um hvernig við getum bezt nýtt þá orku, sem er að finna í fallvötnum landsins. Fyrir mörgum ára- tugum sá Eyjólfur Konráð Jónsson, þá ritstjóri þessa blaðs og síðar alþingismaður, fyrir sér risavaxna gróður- húsastarfsemi þar sem grænmeti og ávextir yrðu ræktuð í stað þess að flytja þær matvörur inn. Eyjólfur Konráð var framsýnni en aðrir menn og líklegt að þær hug- myndir hans og hugsjónir verði að veruleika á næstu árum. Á aðalfundi Samáls í fyrradag komu fram upplýsingar, sem gátu bent til þess að áliðnaður á Vestur- löndum og þar á meðal á Íslandi gæti átt undir högg að sækja m.a. vegna stóraukinnar álframleiðslu í Kína. En umræður á sama fundi vöktu spurningar um, hvort þróun- in gæti orðið þveröfug, að vegna aðgerða til að hamla gegn loftslagsbreytingum yrði dregið úr framleiðslu í þeim heimshlutum, þar sem orkan til framleiðslunnar er drifin áfram af kolum. Allt vekur þetta svo upp þá spurningu, hvort kapítal- isminn, eins og við þekkjum hann, standi frammi fyrir áskorunum af nýju tagi, sem hann hefur aldrei áður þurft að fást við. Loftslagsbreytingar eru veruleiki, sem við komumst ekki hjá að horfast í augu við. Þeir sem á síðustu áratugum hafa reynt að gera lítið úr þeim vandamálum, munu enda sem hjáróma raddir. Þær stjórnmálahreyfingar, sem taka ekki eftir því, sem er að gerast í kringum okkur og bregðast þess vegna ekki við, munu hverfa af sjónarsviðinu. Framtíðin verður í höndum Gretu Thunberg okkar tíma. Katrín Jakobsdóttir, sagði á fundi Samáls að hvar sem hún hitti fólk að máli undir tvítugu vildi það unga fólk tala um loftslagsmál og spurningin sem hún fengi væri þessi: Hvað ætlið þið að gera? Það má búast við að þessi málaflokkur verði stóra málið í næstu alþingiskosningum hér á landi, eins og víða annars staðar. Það verður fróðlegt að sjá, hvort þessi málefni skipa veglegan sess í afmælishátíðahöldum Sjálfstæðisflokksins á 90 ára afmæli flokksins. Og það verður líka fróðlegt að sjá, hvort VG nær að stökkva upp í þann strætisvagn, sem er að leggja af stað eða missir af honum. Hvaða áhrif hefur krafan um minnkandi neyzlu á samfélög okkar? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Loftslagsmálin verða stóru mál næstu ára og áratuga Franski hagfræðingurinn TómasPiketty, sem sendi ári 2014 frá sér bókina Fjármagn á 21. öld, er átrúnaðargoð vinstrimanna. Hann vill leggja ofurskatta á stóreigna- fólk, enda sé velmegun miklu meira áhyggjuefni en fátækt. Telur hann auð í höndum einkaaðila hafa til- hneigingu til þess við óheftan kap- ítalisma að hlaðast upp: hann vaxi oftast hraðar en atvinnulífið í heild. Er þetta rétt? Bandaríska tíma- ritið Forbes birtir árlega lista um ríkustu milljarðamæringa heims. Árið 1987 voru sex af tíu efstu jap- anskir, aðallega eigendur fasteigna. Auður þeirra er nær allur horfinn. Hinir sænsku Rausing-bræður, sem voru í sjötta sæti, ávöxtuðu fé sitt betur, en þó aðeins um 2,7% á ári. Reichmann-bræður, sem voru í sjö- unda sæti, urðu síðar gjaldþrota, þótt einn þeirra ætti eftir að efnast aftur. Kanadíski kaupsýslumaður- inn Kenneth Ray Thomson náði besta árangri á meðal hinna tíu rík- ustu í heimi. Hann ávaxtaði fé sitt þó ekki nema um 2,9%. Hagvöxtur er oft meiri. Síðasti listi Forbes er frá 2018. Nú eru sjö af tíu efstu bandarískir, og sköpuðu flestir þeirra auð sinn sjálfur, þar á meðal Jeff Bezos í Amazon, Bill Gates í Microsoft, Mark Zuckerberg í Facebook og fjárfestirinn Warren Buffet. Nú er um tveir þriðju hlutar allra millj- arðamæringanna á listanum menn, sem hafa skapað auð sinn sjálfir. Þessi þróun er enn skýrari, þeg- ar árlegur listi Lundúnablaðsins Sunday Times um þúsund ríkustu menn Bretlands er skoðaður. Árið 2018 höfðu hvorki meira né minna en 94% þeirra orðið auðugir af eig- in rammleik. Þegar sá listi var fyrst birtur 1989, átti það aðeins við um 43% þeirra. Þá voru dæmi- gerðir auðmenn landeigendur, sem skörtuðu aðalstitli. Nú er öldin önn- ur. Piketty kann að hafa rétt fyrir sér um, að hlutur auðmanna í heild- artekjum sé nú stærri en áður, þótt kjör hinna fátækustu hafi vissulega um leið stórbatnað. En það er vegna þess að heimskapítalisminn hefur gert þeim kleift að skapa auð, sem ekki var til áður. Þetta eru framkvæmdamenn og frum- kvöðlar, skapendur auðs, ekki erf- ingjar. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Piketty, auður og erfðir Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 5-8 manneskjur 19.500 kr. 1-4 manneskjur 15.500 kr. Verð aðra leið:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.