Morgunblaðið - 11.05.2019, Side 38

Morgunblaðið - 11.05.2019, Side 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019 ✝ Guðríður Krist-jánsdóttir fæddist í Skógar- nesi 16. október 1933. Hún var einka- barn hjónanna Kristjáns Kristjáns- sonar, f. 1897, d. 1981, og Kristínar Sigrúnar Sigurð- ardóttur, f. 1893, d. 1981. Eiginmaður hennar var Jakob Trausti Skúla- son f. 23. mars 1933, d. 11. júlí 2015. Þau giftust 28. nóvember 1954. Foreldrar Trausta voru Skúli Sveinsson, f. 1895, og Hall- fríður Ásgeirsdóttir, f. 1896. Þau eignuðust fjögur börn, níu barnabörn og 18 barnabarna- börn: 1) Kristín Sigurbjörg, f. 1954. Eiginmaður: Hallgrímur Sigurðsson. Börn þeirra: a) Þór- hildur Heba. Eiginmaður: Per Ole Larsen, börn þeirra eru Jón- as Valbjörn og Kristín Katla. b) Norma Valdís, sonur hennar er Eiginmaður Eyrúnar er Jón Grétar. Maki: Georg Óskarsson. Dóttir þeirra er b) Elísabet Alda. Guðríður ólst upp í Skógarnesi í Miklaholtshreppi. Þar gekk hún í farskóla. Hún lauk gagnfræða- prófi frá Reykholtsskóla 1951. Í Reykholti kynntist hún Trausta, eiginmanni sínum. Enn fremur lauk hún námi frá Húsmæðra- skólanum Hverabökkum. Trausti og Guðríður hófu búskap í Skógarnesi árið 1954. Framan af bjuggu þau félagsbúi með for- eldrum Guðríðar. Trausti og Guðríður stunduðu hefðbundinn búskap í Skógarnesi. Guðríður var formaður Kven- félagsins Liljunnar um skeið, sat í sóknarnefnd og var í sveitar- stjórn Eyja- og Miklaholtshrepps í nokkur ár. Fyrir nokkrum ár- um festu þau hjón kaup á íbúð í Borgarnesi. Þar dvöldu þau á veturna en í Skógarnesi á sumrin meðan heilsan leyfði. Guðríður var einnig virk í félagsstarfi þar, sinnti m.a. formennsku í Félagi eldri borgara og tók þátt í starfi Kvenfélags Borgarness. Í vetur dvaldi hún á Dvalarheimilinu Brákarhlíð. Útför Guðríðar fer fram frá Borgarneskirkju í dag, 11. maí 2019, klukkan 13. Hallgrímur Hrafn; eiginmaður: Sigur- jón Jónasson. Börn þeirra: Kári Steinn, Jónas Jökull og Þór- ey Sif. 2) Gísli Krist- ján, f. 1955, d. 2014. Ekkja hans er Sig- ríður G. Ólafsdóttir. Börn þeirra: a) Svanhildur Heiða, sonur hennar er Sigurður Stefán. Eiginmaður: Michael Weaver. Börn þeirra: Óðinn Kristjón og Ísak Logi. b) Trausti, eiginkona hans er Kristín. Börn þeirra: Ar- on Fannar, Gísli Kristján og Kar- en Júlía. c) Bergrós. 3) Hall- fríður, f. 1959. Eiginmaður: Sigurþór Ólafsson. Börn þeirra eru a) Ólafur Unnar. Eiginkona hans er Ásdís. Börn þeirra: Alex- ander Máni, Sigurþór Nökkvi og Unnar Orri. b) Kristín Ósk. Börn hennar eru Sölvi Snær, Adrían Elí og Indía Lind. 4) Elva, f. 1968. Dóttir hennar er a) Eyrún Gyða. Nú er elsku besta amma mín komin í faðm afa. En tómarúmið í Skógarnesi og hjarta mínu er sem endalaust. Það sem yljar mér er allar þessar dásamlegu minningar sem ég hef átt með þeim í gegnum árin, hlýjan, hugulsemin, góðmennskan, hnyttnin, þessi opni faðmur og allt sem þau hafa kennt mér. Amma mín var ekkert venju- leg kona og vissulega ekki gerð úr því sama og við hin, þvílíkur klettur. Það er mikið af ömmu í okkur öllum í ættinni, enda ein- tómir kvenskörungar þar á ferð, fullir af þrótti og röggsemi. Ég veit það líka að hún amma var alla tíð alveg óskaplega stolt af okkur öllum og þótti óendanlega vænt um okkur, talaði alltaf um hjartagullin sín. Hún kallaði okkur líka hjartadrottningar og hjartakónga. Við héldum flest að hún kallaði engan annan en okkur sjálf þessum nöfnum, en vorum öll hjartakóngarnir og hjartadrottningarnar hennar. Hvað ég er þakklát fyrir árið sem við mamma bjuggum í Skógarnesi þegar ég var lítil stelpa. Ég fann nokkrar myndir frá þeim tíma og var ég skæl- brosandi á hverri einustu þeirra, hjálpandi afa að raka á sér skeggið og sitjandi uppi á eld- húsborði að hjálpa ömmu við bakstur. Á þessum tíma tók ég því sem sjálfsögðum hlut að eiga ömmu og afa í sveitinni, en það er held ég það dýrmætasta sem ég hef nokkurn tímann átt. Hvíldu í friði, amma mín, minning þín lifir í okkur öllum. Eyrún Gyða. Samfélagið í Miklaholtshreppi æsku minnar var dæmalaust gott, andi hjálpsemi og góðra samskipta sveif yfir mýrunum og mótaði okkur á yngri árum. Þegar fólk varð fyrir áföllum eða átti erfitt var lagt í púkk, hjálparhöndin rétt fram og lítið um það talað. Á þessum tíma var búið á flestum bæjum, upp- bygging á mörgum sviðum og samvinna milli sveitarfélaga m.a. í skólamálum til fyrir- myndar. Gott samfélag mótast af fólki og afstöðu þess til annarra og lífsins, fólkið í Miklaholtshreppi sýndi mikla samfélagslega ábyrgð og allir höfðu eitthvað fram að færa. Meðal þeirra sem voru fremstir í hópi jafningja var Guðríður í Skógarnesi, höfð- ingskona sem lét til sín taka og gott af sér leiða. Guðríður var besta vinkona móður minnar Maríu í Hrísdal, reyndist henni útlendingnum stoð og stytta, hvatti hana til þátttöku í sam- félaginu og studdi þegar ágjöf lífsins var mikil. Móðir Guðríð- ar, Kristín í Skógarnesi og amma Margrét í Hrísdal voru líka aldavinkonur, ég og Sig- urbjörg dóttir Guðríðar erum vinkonur og Guðmunda og Þór- hildur dætur okkar Sibbu eru það líka, sem sagt fjórar kyn- slóðir vinkvenna. Núna við andlát Guðríðar í Skógarnesi er margs að minn- ast. Hún, eins og við öll, var sér- stök, reykti pípu og engan hef ég hitt sem hafði jafn smitandi hlátur. Þau hjón Guðríður og Trausti voru fyndin og skemmti- leg ekki síst þegar þau sögðu sögur af sjálfum sér og hvort öðru. Trausti sagði mér frá því að í einni af mörgum Vegamóta- ferðum hefði hann farið til Ein- ars í Holti og Guðríður í versl- unina. Eftir að samtali þeirra á verkstæðinu lauk keyrði Trausti af stað heim og skildi Guðríði eftir á Vegamótum. Þegar hann uppgötvaði að hann hefði skilið Guðríði eftir snéri hann við og hafði sína konu með heim frekar en að verða einn í kotinu. Fjar- an í Skógarnesi var undraland fullt af gersemum og fegurð og í gönguferð með móður minni veiddi Guðríður lax í fjöruborð- inu í innkaupanetið sem hún hafði með ef ske kynni að eitt- hvað ræki á hennar fjörur. Á saumanámskeiðinu sem ég hélt fyrir konur í Miklaholtshreppi sagði Guðríður mér að hún ætl- aði að sauma sér pils sem gerði hana „høj og slank“ og hló dátt. Það er skarð fyrir skildi með- al okkar Miklhreppinga við and- lát Guðríðar í Skógarnesi, odd- vita í sinni sveit, fyrirmyndar kvenna og annarra sem áttu samleið með henni. Ég minnist hennar með hlýju og virðingu og votta börnum hennar og fjöl- skyldum þeirra mína innilegustu samúð. Hinn glaði hlátur Guðríðar Kristjánsdóttur í Skógarnesi er endanlega þagnaður. Unnur G. Kristjánsdóttir. Ævintýraheimur æsku minn- ar var Skógarnes. Það réði ríkj- um Guðríður frænka mín sem við nú kveðjum. Stutt var úr Söðulsholti að Skógarnesi þar sem Guðríður hafði tekið við ættaróðalinu ásamt Trausta, ættuðum af Suðurnesjum. Gömlu hjónin Stína Sigrún og Kristján, foreldrar Guðríðar, bjuggu áfram í skjóli þeirra við mikið ástríki. Ekkert kynslóða- bil þekktist á þeim bænum. Amma Anna, Stína á Þverá og Guðríður voru systkinadætur. Þetta þótti mér sérstakt því ald- ursmunur var allnokkur, eða rúm 30 ár hjá ömmu og Guðríði. Í Skógarnesi er ótrúlegt dýralíf og fjölbreytni náttúrunn- ar mikil. Ekkert fannst okkur bræðrunum skemmtilegra en að fá að fara í Skógarnes og leika okkur með Sibbu, Gilla og Hall- fríði. Stundum var fyllt í bíl með strákunum frá Þverá. Systkinin sýndu okkur fjöruna og búin sín, fylgst var með selveiðinni, tínd voru svartbaksegg og kríuegg. Sérstakt ritúal var þeg- ar eggin voru skyggnd; amma og afi settu ekki fyrir sig að borða stropuð, jafnvel gráunguð egg, ekkert fór til spillis. Sel- kjötið var óspart nýtt, þó að veiðarnar hafi verið stundaðar vegna skinnanna sem í þá daga var góð búbót. Áfram hélt síðar selkjöt að berast frá Skógarnesi suður og frægar voru veislurnar þegar Stóra-Hraunssystkinin „átu með hljóðum“. Frelsið var mikið í Skógar- nesi. Frændsystkini okkar fengu í arf og var kennt það áræði, samhliða gætni sem þurfa að fara saman á sjávar- jörð. Að baða sig í sjónum var öruggt því þau kunnu á sjáv- arföllin. Þau þekktu líka bestu staðina til eggjaleitar. Í minn- ingunni var eilíft sólskin og sumar. Heimsóknir Skógarness- fólksins til okkar í Söðulsholt eru hins vegar vetrarminning. Þá var spiluð vist fram á rauða nótt og við Hlynur bróðir spil- uðum bítlamúsík af segulbandi á loftinu fyrir systkinin. Yngri systkini mín, Anna Katrín og Árni Páll voru nær yngstu syst- urinni Elvu í aldri. Hlátursrokur Guðríðar eru sem gleðihljómur í minningunni. Trausti hægari með lúmskan húmor. Sorg þeirra Guðríðar og Trausta var mikil er Gilli féll frá í blóma lífsins. Það tók mjög á. Gestagangur var alla tíð mik- ill í Skógarnesi. Allt fram á miðja síðustu öld voru sam- göngur á þessum slóðum á hest- um, annaðhvort með fjöllum eða á fjörum. Flóar og mýrar voru ófærur. Kristján gamli þekkti svæðið eins og lófa sinn og veitti ferðafólki leiðsögn. Trausti lærði af honum og margir nutu ósérhlífni hans. Vinsældir hesta- mennsku á síðustu áratugum juku síðan aftur á gestagang og umstang á heimilinu. Það var líka alla tíð mikið rennerí af skyldmennum í Skógarnesi. Stóra-Hraunssystkinin og af- komendur þeirra og afkomend- ur Magnúsar í Miklaholti voru nánast eins og heimilisfólk löngum stundum. Öllu þessu stýrði Guðríður af myndugleik og allir voru velkomnir. Við systkinin og foreldrar okkar nutum slíkrar gestrisni ætíð og þökkum við fyrir það, um leið og Guðríður er nú kvödd að leið- arlokum. Blessuð sé minning frænku minnar Guðríðar Kristjánsdótt- ur frá Syðra-Skógarnesi. Þórólfur Árnason. Við sem vorum svo lánsöm að dvelja á sumrin hjá Guðríði í Skógarnesi og Trausta, manni hennar, fáum seint fullþakkað hve vel þau reyndust okkur. Með lífríki sjávarins til suðurs, hvítan sand og kletta, en mófugl og mýrlendi til norðurs, var Syðra-Skógarnes ævintýraland hverju barni sem þar fékk að dvelja. Um þetta ævintýraland var ómetanlegt að njóta leið- sagnar Guðríðar og Trausta, sem létu sér annt um líðan okk- ar, svöruðu hverri spurningu og hlustuðu af áhuga á kappsfullar frásagnir okkar úr fjöruferðum, fuglaskoðun og umstangi kring- um stórgripi og fiðurfé. Ekki fannst þeim öllu skipta hvort sögurnar væru í fullu samræmi við lögmál náttúrunnar. Mestu skipti hvernig við hefðum upp- lifað þau undur og stórmerki sem við höfðum frá að segja. Með aldraða foreldra, fjögur börn og krakkagrislinga af möl- inni mæddi oft meira á Guðríði en lítill frændi áttaði sig á, að ekki sé að auki minnst á alla þá gesti sem mín félagslynda frænka tók opnum örmum og gerði vel við. Gilti þá einu hvort þeir hefðu komið í eigin boði, sérstaklega ef þar var á ferð fjörmikið sagnafólk eins og nóg virtist af í okkar málglöðu Skóg- arnesætt. Skarpgreind og mannglögg lét Guðríður þó ekki segja sér hvað sem var. Og þar varð hennar hægláti bóndi gjarnan fyrri til, því sjaldnast mátti hann heyra orði hallað á nokkurn mann, alltaf sannfærð- ur um að hver maður hlyti að eiga sér eitthvað til málsbóta ef grannt væri skoðað. Guðríður og Trausti litu svo á að þeim hefði verið treyst fyrir Skógarnesi, landið væri hluti af þeim, og þau hluti af landinu. Fyrir bragðið varð margur spekúlantinn frá að hverfa með þá einu lexíu að enn var til fólk á Íslandi sem tók átthagana fram yfir allt annað. Fólk sem heldur kaus að fá frið til að lifa áfram við þá nægjusemi sem það hafði tamið sér frá fyrstu tíð. Slíku hugarfari var dýrmætt að kynnast. Garðar Sverrisson. Guðríður Kristjánsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, INGEBURG GUÐMUNDSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður til heimilis að Austurvegi 16, Grindavík, lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Hafnarfirði, sunnudaginn 28. apríl. Útför hennar fer fram frá Grindavíkurkirkju mánudaginn 13. maí klukkan 14. Guðmundur Karl Tómasson Kristrún Bragadóttir Haraldur Tómasson Guðný Birna Sæmundsdóttir Róbert Tómasson Linda B. Guðjónsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Ástkær eiginkona mín, móðir og stjúpmóðir okkar, INGVELDUR GEIRSDÓTTIR blaðamaður, lést á krabbameinsdeild Landspítalans föstudaginn 26. apríl. Útför hennar fer fram í Grafarvogskirkju þriðjudaginn 14. maí klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Kristinn Þór Sigurjónsson Ásgeir Skarphéðinn Andrason Sigurjón Þór Kristinsson Kristín Þórunn Kristinsdóttir Gerður Freyja Kristinsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HREINN BJARNASON kaupmaður, Laugarnesvegi 87, Reykjavík, lést á Landakoti miðvikudaginn 1. maí Útför hans fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 15. maí klukkan 13. Blóm vinsamlega afþökkuð. Anna B. Agnarsdóttir Lilja Hreinsdóttir Guðlaugur Þór Þórarinsson Björk Hreinsdóttir Björn G. Aðalsteinsson Þóranna Hrönn, Gunnar Már, Elín Margrét, Anna María og Bjarki Valdimar Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURJÓN GUÐMUNDSSON pípulagningarmeistari, Reynimel 84, lést miðvikudaginn 8. maí. Útförin fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 16. maí klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað, þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktarsjóð krabbameinssjúkra barna Svanfríður Jónasdóttir Sverrir Örn Sigurjónsson Guðmundur Kristinn Sigurjónsson Hafsteinn Sigurjónsson Marta Kristín Sigurjónsdóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGRÍÐUR VILHELMÍNA ELÍASDÓTTIR, áður til heimilis á Þiljuvöllum 25 í Neskaupstað, lést á hjúkrunardeild Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað þriðjudaginn 7. maí. Jarðarförin fer fram frá Norðfjarðarkirkju fimmtudaginn 16. maí og hefst athöfnin klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á að leyfa Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað að njóta þess. Kristinn Ívarsson Steinunn Lilja Aðalsteinsdóttir Klara Ívarsdóttir Erla Ívarsdóttir Hermann Ö. Steingrímsson og fjölskyldur Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, TÓMASAR ÞÓRIS GARÐARSSONAR, Heiðargerði 20, Akranesi, sem lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi, 2. apríl. Lára Valgerður Jóhannesdóttir Róbert Steinar Tómasson Ragna Björg Guðmundsdóttir Jóhannes Ásgeir Eiríksson Garðar Örn Tómasson Berglind Erla Engilbertsdóttir Guðjón Birgir Tómasson Margrét Egilsdóttir Elín Guðrún Tómasdóttir Fannar Þór Eyþórsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.