Morgunblaðið - 11.05.2019, Side 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019
✝ Hjalti RagnarÁsmundsson
fæddist 26. apríl
1939 í Hólakoti í
Hrunamanna-
hreppi. Hann lést
3. maí 2019.
Hann var sonur
hjónanna Ás-
mundar Brynjólfs-
sonar og Pálínu
Margrétar Guð-
jónsdóttur. Systk-
ini hans eru: Unnur, f. 31. maí
1933 ,hún er gift Einari
Valdimarssyni, Guðjón, f. 4.
október 1934, hann er kvænt-
ur Ínu Sigurborgu Stefáns-
dóttur, Halldóra, f. 25. októ-
ber 1940, hún er gift Einari
Jónssyni, og Elín-
borg, f. 7. júlí
1944, hún var gift
Hjálmtý Ragnari
Júlíussyni, hann
er látinn.
Eftirlifandi
eiginkona Hjalta
er Jónína Gísla-
dóttir, f. 13. des-
ember 1950, þau
gengu í hjóna-
band 1. desember
1978. Foreldrar hennar voru
Gísli Jóhannsson og Gyða
Antoníusardóttir. Börn þeirra
eru: Gísli, f. 13. október 1972,
unnusta hans er Anne Me-
rethe Vennesland, börn hans
eru: Jóhann Hjalti og Emilía
Ósk Sælid. Ásmundur Páll, f.
27. desember 1975, eiginkona
hans er Guðrún Egilsdóttir,
börn þeirra eru: Rúnar Már,
unnusta hans er Dagbjört
Nótt, og dóttir þeirra er Guð-
rún Hulda, Gabríel Ágúst og
Sunna Dalrós, unnusti hennar
er Arnar Breiðfjörð, þau eiga
einn dreng. Hlynur, f. 17.
júní 1979, unnusta hans er
Anna Kristín Valdimars-
dóttir, dætur þeirra eru:
Sara María og Elísabet
Helga.
Hann og Jónína voru með
búskapinn í Hólakoti 1971-
1978 þá fluttu þau á Seljaveg
9 á Selfossi. Hjalti var til sjós
í Vestmannaeyjum, Ólafsvík
og Þorlákshöfn. Hann vann
sem verkamaður, lengst af í
Höfn, hjá Sláturfélaginu og
Grísabæ. Áttu þau hjónin
land og hús í Hólakoti.
Útför hans fór fram frá
Selfosskirkju 10. maí 2019.
„Hann Hjalti getur áreiðan-
lega gert við þetta.“ Þessi setn-
ing hljómaði ansi oft þegar ég
var að alast upp í Hólakoti. Ann-
ars vegar vegna þess að það var
ótal margt sem bilaði eða brotn-
aði og að öðrum þræði vegna
þess að þetta reyndist oftar en
ekki rétt. Hjalti gat í langflest-
um tilfellum gert við þessa hluti.
Hvort heldur það var að bindi-
vélin bilaði, það hafði sprungið
dekk á traktornum eða vatns-
hrúturinn dældi ekki heim vatni.
Hann hafði einstakt lag á hlut-
unum og mikla þolinmæði við að
gera við þá. Hann var sjálflærð-
ur í þessum fræðum og hlutirnir
léku í höndunum á honum.
Hjalti frændi var bróðir
mömmu, hann var miðbróðirinn
í fimm systkina hópi, hún ári
yngri en hann. Hann hafði á
undan henni verið bóndi í Hóla-
koti og var þar öllum hnútum
kunnugur. Mamma og Hjalti
voru einstaklega góðir vinir og
mikill samhljómur á milli þeirra.
Hann var alltaf fús að koma í
sveitina og hjálpa til við hvað
sem var. Gjarnan með strákana
sína þrjá sem honum fannst afar
gaman að hafa í kringum sig.
Hjalti var mikið náttúrubarn.
Honum fannst gaman að rækta
garðinn sinn á Seljaveginum og
síðar í kringum sumarbústaðinn
sinn í Hólakoti. Setti niður kart-
öflur, ræktaði rófur, gulrætur
og annað grænmeti, að
ógleymdum jarðarberjunum
sem uxu vel í garðinum hans
Hjalta. Það var alltaf gaman að
koma til Hjalta og Jónínu og
smakka jarðarberin þegar líða
fór á sumarið. Fleiri kíló af
gómsætum jarðarberjum.
Ef ég myndi loka augunum
gæti ég vel séð hann frænda
minn fyrir mér á þessum árs-
tíma gangandi um eyrarnar í
Hólakoti. Hann búinn að finna
nokkur hreiður og slatti af börn-
um á eftir honum í náttúru-
skoðun. Hér áður fyrr strák-
arnir hans og við frænd-
systkinin, í seinni tíð
barnabörnin. Hann hafði alltaf
tíma fyrir alla. Að kenna krökk-
unum að „fleyta kerlingar“ á
pollunum, veiða hornsíli og
skoða eggin. Alltaf var gengið
um með fullri virðingu fyrir
náttúrunni og skilið við allt eins
og komið var að því.
Takk, Hjalti frændi, fyrir
samfylgdina í lífinu.
Ég sendi Jónínu, Gísla, Ása,
Hlyni og fjölskyldum þeirra
mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Ása Margrét Einarsdóttir.
Hjalti Ragnar
Ásmundsson
✝ Súsanna Jóns-dóttir fæddist í
Reykjavík 27. júlí
1962. Hún lést á
gjörgæslu Land-
spítalans við Hring-
braut 20. apríl
2019.
Foreldrar henn-
ar, sem báðir lifa
hana, eru hjónin
María Helena Ólafs-
dóttir frá Melum á
Skarðsströnd í Dalasýslu, og Jón
Þórðarson úr Reykjavík, sem í
móðurætt á rætur að rekja að
Holtsmúla í Holtum í Rangár-
vallasýslu.
Súsanna var elst fjögurra
barna þeirra, en eftirlifandi
bræður hennar eru Ólafur,
Gunnar og Jón Elínmundur.
Eftirlifandi lífsförunautur
Súsönnu er Haraldur Einarsson
húsasmiður af Seltjarnarnesi,
sem alinn var upp þar og í Kópa-
vogi. Hann er sonur hjónanna
Nönnu Haraldsdóttur, sem er
látin, og Einars Sigurðssonar.
Súsanna og Har-
aldur stofnuðu
heimili vestur á Sel-
tjarnarnesi, en
fluttust 1996 austur
að Gunnarsholti á
Rangárvöllum,
fyrst að Akurhóli
en árið eftir í
Heklugerði og áttu
þar heima síðan.
Börn þeirra eru
fjögur. Elstur er
Þorvarður Helgi, húsasmíða-
meistari, fæddur 1983. Sambýlis-
kona hans er Agnieszka Olejarz
og dóttir þeirra er Gabríella
Guðlaug. Næstelst er Ásta Sæ-
rós, fædd 1984, viðskiptafræð-
ingur. Sonur hennar er Kristófer
Freyr. Næstyngstur er Halldór
Haukur, fæddur 1988, flutn-
ingabílstjóri. Sambýliskona hans
er Ásrún Dís Jóhannsdóttir.
Yngstur er Hákon Hjörtur,
fæddur 1989, verkamaður.
Útför Súsönnu fór fram frá
Garðakirkju á Álftanesi 10. maí
2019.
Það var á laugardaginn fyrir
páska að Halli bróðir hringdi
og sagðist hafa misst hana Sú-
sönnu sína. Sársaukinn í rödd-
inni var svo augljós og skal
engan undra því samrýndara
par þekktist varla og með
brotthvarfi hennar skapaðist
stórt skarð og mun hennar
verða sárt saknað af öllum
þeim sem til hennar þekktu.
Ég þekkti Súsönnu mestan
part ævinnar og minnist henn-
ar aldrei öðru vísi en brosandi
og hlæjandi. Hún hafði beittan
húmor og gat látið mann roðna
án mikillar áreynslu. Hún var
trygg og góð sínum og hjá
henni var ávallt hægt að leita
skjóls.
Af henni skein lífsgleðin og
ferðalög um heiminn með Halla
sínum var hennar líf og yndi.
Þau fóru vítt og breitt og t.d.
heimsóttu þau okkur Berglindi
hingað til Noregs fyrir tæpum
tveimur árum.
Það þótti okkur afar vænt
um og það var svo gaman að
sýna þeim um svæðið þar sem
við höfum sest að og búið okkur
heimili. Það var í síðasta sinn
sem ég hitti mágkonu mína.
Sússa og Halli eignuðust
fjögur yndisleg börn sem gam-
an var að fylgjast með vaxa úr
grasi. Helgi, Ásta, Hákon og
Haukur. En þar er ekki ríki-
dæmið upp talið því þegar eru
barnabörnin orðin tvö, þau
Kristófer og Gabríella. Glæsi-
legur hópur og það get ég vott-
að að þau hafa erft glettnina og
húmorinn frá móður sinni og
ömmu, henni Súsönnu.
Súsönnu var margt til lista
lagt og hægt að segja að allt
hafi leikið í höndunum á henni.
Einn af hennar mörgu hæfi-
leikum og þeim bragðbestu
voru töfrabrögðin sem framin
voru í eldhúsinu. Hnallþórur og
rjómabollur, brauðtertur og
kransakökur, bakstur af bestu
gerð er eitthvað sem varla þarf
að nefna við neinn þann sem
einhvern tímann var boðinn í
heimsókn til Halla og Sússu
eða í veislu á þeirra vegum.
Reyndar voru allar heimsóknir
til þeirra veislur og maður svo
hjartanlega velkominn í alla
staði, hvort sem það var í eld-
húsið eða hesthúsið.
Kæra Súsanna, ástarþakkir
fyrir allt hið liðna. Ég veit að
þér verður vel tekið í sumar-
landinu góða.
Elsku Halli bróðir og fjöl-
skylda, mínar dýpstu samúðar-
kveðjur. Megi guð og allir engl-
arnir gefa ykkur styrk.
Kristján Einarsson
og fjölskylda.
Súsanna Jónsdóttir
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar móður minnar,
ömmu og systur,
BJARGAR ÞORSTEINSDÓTTUR
myndlistarkonu,
sem lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi 22. apríl.
Guðný Ragnarsdóttir
Ragnar Árni Ólafsson
Davíð Þorsteinsson
Halldóra Þorsteinsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÞURÍÐUR R. H. SIGFÚSDÓTTIR
HALLDÓRS,
lést miðvikudaginn 8. maí á hjúkrunar- og
dvalarheimilinu Hjallatúni, Vík í Mýrdal.
Jóhannes St. Brandsson
Sigfús Jóhannesson Theresa A. O'Brien
Guðrún Jóhannesdóttir Þ. Daði Halldórsson
Stefán H. Jóhannesson Árný Lúthersdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar ástkærs föður
okkar, stjúpföður, tengdaföður, afa, langafa
og langalangafa,
KRISTJÁNS ÁRNASONAR
frá Bræðraminni, Bíldudal,
Bláskógum 11, Hveragerði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á dvalarheimilinu Ási og
Heilbrigðisstofnun Suðurlands fyrir góða umönnun.
Aðstandendur
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞÓRU S. GUNNARSDÓTTUR,
Baugholti 3, Keflavík,
sem lést föstudaginn 22. mars.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins
Hlévangs og starfsfólki á Selinu, fyrir einstaka umönnun
og hlýju.
Gunnar Ólafur Schram Ellisif Tinna Víðisdóttir
Stefanía Helga Schram Birgir Guðnason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær bróðir okkar og frændi,
SIGURÐUR ÓLAFSSON,
Aðalgötu 20, Stykkishólmi,
lést föstudaginn 3. maí. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ólöf Ólafsdóttir
Okkar ástkæra,
PETREA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Peta á Sigurðsstöðum, Akranesi,
lést á dvalarheimilinu Höfða þriðjudaginn
7. maí. Jarðarförin auglýst síðar.
K. Guðmundur Skarphéðinsson, Ósk Axelsdóttir
Alda B. Skarphéðinsdóttir Guðlaugur Sigurðsson
Sigrún B. Skarphéðinsdóttir Ingi Þór Yngvason
Hugrún P. Skarphéðinsdóttir Hörður Björgvinsson
Skarphéðinn E. Skarphéðinsson, Áslaug I. Kristjánsdóttir
Hulda B. Skarphéðinsdóttir Þorsteinn Finnbogason
barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn
Ástkær móðir okkar,
SIGRÍÐUR KONRÁÐSDÓTTIR,
fyrrverandi húsfreyja á Stórhóli í
Víðidal,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
Hvammstanga, föstudaginn 3. maí.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Birna Torfadóttir
Konráð Ingi Torfason
Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
REIMAR CHARLESSON
framkvæmdastjóri,
lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í
Hafnarfirði, föstudaginn 10. maí.
Björg Hjálmarsdóttir
Heiða Reimarsdóttir Magnús Karlsson
Kristín Helga Reimarsdóttir
Linda Reimarsdóttir
Sigurlína Halldórsdóttir
Sigrún Bergsdóttir Tony Arcone
Óskar Bergsson Jóhanna Björnsdóttir
Lára Gyða Bergsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku faðir minn, tengdafaðir og afi,
KRISTINN JÓN SÖLVASON,
lést laugardaginn 4. maí á Hrafnistu
í Reykjavík.
Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju
föstudaginn 17. maí klukkan 13.
Björg Kristinsdóttir Baldur Guðgeirsson
Abigail, Mikael Geir og Adam Geir