Morgunblaðið - 11.05.2019, Side 40

Morgunblaðið - 11.05.2019, Side 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019 ✝ Ástríður K.Kristjáns- dóttir, eða Ásta eins og hún vildi láta kalla sig, fæddist á Akureyri 17. júní 1965. Hún lést 29. apríl 2019, á Sjúkrahúsi Akureyrar. Foreldrar henn- ar voru hjónin Kristján Buhl, f. 13. júní 1930, d. 7. október 2007, og Margrét Viktoría Magnúsdóttir, f. 20. desember 1929, d. 27. janúar 2015. Ásta var næstyngst fimm Birgi. Einkadóttir Ástu er Sunn- eva Dögg Ragnarsdóttir, f. 1990. Hennar maður er Bragi Austfjörð, f. 1978. Ásta ólst upp á Ytri- Reistará í Arnarneshreppi. Eftir grunnskóla flutti hún til Akureyrar, þar sem hún starf- aði meðal annars í kjörbúð, í Súkkulaðiverksmiðjunni Lindu, sem línumaður hjá Rar- ik og í byggingarvinnu. Haust- ið 1987 flutti Ásta til Reykja- víkur og vann hjá Plastos til ársins 1992. Þá flutti hún til Akureyrar og fór að vinna sem leiðbeinandi á Leikskól- anum Iðavöllum og vann þar til ársins 2014, en þurfti þá að hætta vegna veikinda. Útför Ástu fer fram frá Möðruvallakirkju í Hörgárdal í dag, 11. maí 2019, og hefst athöfnin klukkan 14. systkina. Systkini Ástu eru 1. Lovísa Signý Kristjáns- dóttir, f. 1960. Maður hennar er Björn Einarsson, f. 1958. Þau eiga þrjú börn: Mar- gréti Ósk Buhl, Einar Berg og Kristján Breka. 2. Magnús Krist- jánsson, f. 1961. 3. Hans Pétur Kristjánsson, f. 1962. 4. Hólmfríður B. Krist- jánsdóttir, f. 1970. Maður henn- ar er Eggert Rúnar Birgisson. Þau eiga einn son, Kristján Mig langar að minnast Ástríðar (Ástu) Kristjánsdóttur, eða Systu eins og hún var kölluð af fjölskyldunni, í nokkrum orð- um. Ég var svo lánsöm að kynn- ast henni og Ytri-Reistarár-fjöl- skyldunni allri í gegnum litla bróður minn og mágkonu. Við Systa hittumst iðulega í Móasíðunni í afmælisboðum og við önnur tækifæri þar sem stór- fjölskyldan kom saman. Í boðun- um hjá Lovísu og litla bróður var mikið borðað og margt skrafað. Þegar ég kynntist Systu var Sunneva komin í heiminn. Þær mæðgur tengdust sterkum bönd- um í sinni litlu fjölskyldu, rétt eins og við mamma í minni bernsku. Ég fann því til sam- kenndar með þeim mæðgum Sunnevu og Systu. Systa hafði notalega nærveru og var hógvær í framkomu. Eig- inleikar sem koma sér vel í starfi með börnum, en hún starfaði á leikskóla um árabil og á meðan starfsþrek hennar leyfði. Þessar línur úr ljóði Davíðs Stefánsson- ar frá Fagraskógi gætu verið lýs- andi fyrir framgöngu hennar: Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð barna þinna, þú vildir rækta þeirra ættarjörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa, og eykur þeirra afl og trú, en það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum – eins og þú. Elsku Sunneva, Bragi, Lovísa, litli bróðir, Margrét, Einar, Kristján Breki, Maggi, Hansi, Lilla, Eggert, Kristján Birgir og aðrir nákomnir. Hugur minn er hjá ykkur. Það er erfitt að sætta sig við að Systa sé horfin úr þess- um heimi svo allt, allt of fljótt, en minningar um elskulega konu lifa með okkur. Hulda Steingrímsdóttir. Nú hefur vinkona mín kvatt þetta líf. Um huga minn þjóta minningabrot frá ýmsum ævi- skeiðum, eins og perlur á lífsfest- inni. Ég sé fyrir mér tvær feimnar litlar stelpuskottur með langar fléttur, um margt ólíkar. Þarna í litla herberginu á Reistará með rósóttu gardínunum og blómstr- andi pottaplöntunum í gluggan- um var upphafið að ævilangri vináttu. Við tókum hvor annarri með kostum og göllum. Við vor- um vinkonur. Þú varst árinu eldri og þar með varstu aðeins á undan mér í lífinu. Þú fórst á undan mér í Hjalteyrarskóla, ég beið heima eftir að verða sjö ára svo ég gæti farið með vinkonu minni með Júllarútu í skólann. Þú fórst líka á undan mér á heimavistarskólann á Þelamörk þegar við vorum unglingar. Ég kom á eftir og að sjálfsögðu vor- um við herbergisfélagar, það kom ekkert annað til greina. Þú fluttir líka á undan mér í kaup- staðinn en ég kom á hæla þér og að sjálfsögðu leigðum við saman. Það kom ekkert annað til greina. Svo kom að því að hleypa heimdraganum og flytja til höfuðborgarinnar. Það kom ekk- ert annað til greina en flytja saman suður á Aragötuna. Eftir nám og störf í borginni fluttum við báðar norður aftur. Það kom ekkert annað til greina. Við vor- um vinkonur. Þú varst líka á undan mér að verða mamma. Eignaðist auga- steininn þinn hana Sunnevu og ég var viðstödd enda kom ekkert annað til greina. Við vorum vin- konur. Við eignuðumst fjölskyldur. Árin liðu og við þroskuðumst og það sama má segja um vináttu okkar. Hún varð dýpri, traustari og umburðarlyndari með árun- um. Við vorum vinkonur. Við lékum saman, við sungum saman, við glöddumst saman, við syrgðum saman, við reiddumst saman, við fyrirgáfum saman, við gengum saman, við ferðuðumst saman, við elduðum saman, við borðuðum saman, við dönsuðum saman, við hlógum saman, við grétum saman, við töluðum sam- an, við þögðum saman, en um- fram allt stóðum við saman, allt- af, alla tíð. Núna sit ég eftir með tár á hvarmi og djúpa sorg í hjarta en um leið fyllist ég þakklæti að hafa upplifað sanna fölskvalausa vináttu með þér. Þú varst mikil mannkostamanneskja, trygg- lynd, traust, hjartahlý og hrein- lynd. Ég þakka þér samfylgdina í lífinu. Það voru forréttindi að vera vinkona þín. Fyrir margt löngu gáfum við hvor annarri loforð – að passa upp á hvor aðra þar til yfir lyki. En yfir lyki átti bara ekki að koma svona fljótt. Eins og stund- um áður í lífinu ferðu á undan mér, í þetta skiptið yfir á annað tilverustig. Þegar minn tími kemur fylgi ég í kjölfarið. Það kemur ekkert annað til greina. Við erum vinkonur. Sjáumst aftur, Ásta mín. Vinkona mín sem brosir stór og falleg hjá sólinni í apríl Þú ert sú sem horfir í fegurðarátt meðan hlýjan læðist í augu þín og hár Vinkona mín á himninum á morgun springur sólin í maí út og gægist um endalaust hnappagatið á blússunni þinni. Vinkona mín (Steinunn Sigurðardóttir) Sunnevu, systkinum Ástu og fjölskyldum þeirra sendi ég mín- ar dýpstu samúðarkveðjur. Hanna Rósa. Í dag kveðjum við kæran vinnufélaga til margra ára. Ásta hóf störf í leikskólanum Iðavelli árið 1992 og starfaði með okkur til ársins 2017 þegar veikindi hennar ágerðust. Við erum því mörg sem nutum þeirrar gæfu að kynnast Ástu sem samstarfsfélaga og börnin sem hún sinnti á starfs- ævi sinni eru enn fleiri. Starfs- mannahópurinn á Iðavelli og gamlir vinnufélagar minnast Ástu með hlýju og votta dóttur hennar og öðrum aðstandendum samúð. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Anna Lilja Sævarsdóttir, leikskólastjóri Iðavallar. Ástríður K. Kristjánsdóttir ✝ Katrín Bjarn-ey Jónsdóttir fæddist á Ísafirði 23. apríl 1941. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsi Ísafjarðar 30. apr- íl 2019. Foreldrar henn- ar voru Jón Ás- björn Jóhannsson skattstjóri, f. 1906, d. 1992, og Oktavía Margrét Gísladóttir hjúkrunarkona, f. 1904, d. 1987. Systur Katrínar eru Jó- hanna, f. 1944, gift Guðjóni Jónssyni, f. 1946, og Margrét, f. 1945, d. 1996, gift Cyril Edward Walter Hoblyn, f. 1940, d. 2017. Oktavía og Jón Ásbjörn bjuggu á Ísafirði, lengst af í Fjarðastræti 15. átti Aron Gunnar, f. 1994, barnsmóðir Inga Vigdís Einarsdóttir, f. 1966, og Re- bekku Lind, f. 2003, barns- móðir Svandís Guðmunds- dóttir, f. 1969. Katrín lauk landsprófi frá Núpi í Dýrafirði 1958 og stundaði píanónám hjá Ragn- ari H. Ragnars á Ísafirði. Hún kenndi ungum nemendum á píanó framan af starfsævinni. Katrín vann sem skrifstofu- maður, fyrst hjá Landssíman- um og á Skattstofu Vestfjarða en lengst af hjá Ríkisskipum, Skipaafgreiðslu Gunnars Jóns- sonar og Skólaskrifstofu Vest- fjarða. Einnig starfaði hún við afgreiðslu og þjónustustörf hjá Gullauga, Sjóminjasafni Ísafjarðar og síðast á Hlíf. Hún var virk í félagsstarfi, um tíma í Sunnukórnum, í Tónlistarfélagi Ísafjarðar og var formaður Slysavarnadeild- ar kvenna á Ísafirði. Útför hennar fer fram frá Ísafjarðarkirkju í dag, 11. maí 2019, klukkan 14. Katrín giftist 31. desember 1960 Grétari Þórðar- syni, skipstjóra og forstöðumanni Hlífar. Foreldrar hans voru Þórður Bogason skrif- stofumaður, f. 1915, d. 1990, og Kristjana Hjartar- dóttir húsfreyja, f. 1918, d. 2013). Synir Katrínar og Grétars eru 1) Hjörtur rekstrarhagfræð- ingur, f. 1961, kvæntur Helgu Jóhannesdóttur hjúkr- unarfræðingi, f. 1961; þau eiga Jóhannes, f. 1988, Hildi, f. 1991, Grétar Örn, f. 1993, og Katrínu Viktoríu, f. 1999; 2) Jón Ásbjörn netagerðar- meistari, f. 1965, d. 2014, hann Það var búið að liggja í loftinu að þú værir að fara kveðja okkur, en allt í einu varstu bara farin. Hávaxin og grönn, oftast í millisíðri kápu þessi seinni ár, alltaf með varalit og neglurnar til fyrirmyndar, filterslaus Camel-sígaretta á milli fingr- anna. Þannig mun ég sennilega alltaf muna þig þó að minningarn- ar séu æði margar. Allt fram á unglingsár var Urðarvegurinn mitt annað heimili, alla páska og öll sumur fékk ég að vera hjá ykk- ur Grétari mér til mikillar gleði, borgarstelpan að sleppa út í nátt- úruna eins og er mér svo kært enn þann dag í dag. Alla páska var skíðað út í eitt. Svo farið heim og ostabrauð hitað í örbylgjuofn- inum, sem þá var nýjung sem ekki var á öllum heimilum og drukkið heitt kakó með, sem þú varst búin að búa til úr páska- eggjum. Þú kenndir mér líka að búa til sjóarasamloku sem er allt- af klassísk. Ein af mínum fyrstu minning- um er þegar við fórum hringinn um landið á bláa bílnum þegar ég var kannski fjögurra ára. Ég var hrikalega bílveik, sennilega út af þessum filterslausu Camel, en þú bættir það upp með því að gefa mér reglulega bílabrjóstsykur, sem var sérstakur brjóstsykur í járndós sem aðeins mátti borða í bílnum en ekki taka með inn í hús. Síðar var farið í Flatey um hverja helgi þegar þið Grétar voruð að gera upp Bogabúð og enn er jafn gaman að koma þang- að í heimsókn á sumrin. Þá er mér kært að hafa byrjað í ung- lingavinnunni á Ísafirði þó að ég hefði ekki stoppað lengi heldur fengið að fara í staðinn til Hol- lands til Hjartar og Helgu að passa Jóa og Hildi. Mér fannst ótrúlegt hvað þú gast spilað fallega á píanóið en aldrei mátti ég horfa á þig spila heldur þurfti ég að láta mér það nægja að sitja frammi í eldhúsi og hlusta á óminn úr herberginu. Þetta var nokkuð sem þú vildir bara hafa fyrir þig en ekki hafa mig hangandi yfir þér, talandi út í eitt. Innblásin langaði mig líka að geta spilað svona meistaralega en því miður hafði ég ekki mikla þol- inmæði í æfingarnar. Nú hefur þú kvatt okkur og fengið hvíldina. Ég finn strax fyr- ir söknuðinum, að geta ekki hringt í þig og sagt þér helsta slúðrið úr Reykjavík og fengið heyra allt það nýjasta frá þér, þú sagðir alltaf svo skemmtilega frá. Takk fyrir samfylgdina og vinátt- una, líf mitt er auðugra vegna þín. Blessuð sé minning þín, nafna mín. Þín, Katrín Bjarney. Það er mér bæði ljúft og skylt að minnast móðursystur minnar, hennar Ísó-Kötu eins og hún var alltaf kölluð innan fjölskyldunn- ar. Það er sorglegt til þess að hugsa að hún sé nú farin inn í ei- lífðina, þessi fallega kona sem hafði svo mikil áhrif á líf mitt þeg- ar ég var að alast upp. En það er varla hægt að minn- ast hennar án þess að nefna Grét- ar manninn hennar líka, því að ef ekki var talað um Ísó-Kötu heima þá var talað um Kötu og Grétar. Þau voru órjúfanleg heild og komu mér barninu fyrir sjónir sem miklir heimsborgarar. Ef Grétar var ekki úti á sjó þá voru þau Kata á ferð og flugi um heim- inn, eða bara að keyra milli Reykjavíkur og Ísafjarðar með viðkomu í Flatey. Við systur vorum ósjaldan sendar með flugi til Ísafjarðar á sumrin að heimsækja Oktavíu ömmu og Jón afa. Síðar breyttust sumarferðalög til afa og ömmu í skíðaferðir um páskana og var alltaf gist hjá Kötu og Grétari á Urðarveginum. Í mörg ár var þessi vika fyrir páska okkur systrum mikið tilhlökkunarefni. Það voru jú Kata og Grétar sem kenndu okkur á skíði uppi á Dal og stundum var húsið fullt af skyldmennum og vinum – alltaf höfðu þau pláss fyrir alla. Urðar- vegurinn var svolítið spennandi með öllum sínum skúmaskotum og herbergjum. Þar var hefð fyrir kvöldkaffi – prinspóló, mjólk og spjall við Kötu og Grétar um menn og málefni. Og svo var það Flatey, eyjan góða sem ég heimsótti svo oft með þeim á þessum árum. Sigl- ingar út í sker og eyjar, lunda- veiðar og sveitaböll voru bara hluti af ævintýrunum sem ég hefði ekki upplifað án Kötu og Grétars. Ég man langar bílferðir þar sem við systur sátum í aftursæt- inu hjá Kötu og Grétari. Við feng- um bílabrjóstsykur eins og Kata kallaði hann – keyptur í fríhöfn- inni og geymdur í hanskahólfinu. Svo átti Ísó-Kata alltaf tyggjó, annaðhvort appelsínugulan PK eða grænan Wrigley’s. Og af því að ég minntist á heimsborgarana Kötu og Grétar er ógleymanlegt þegar þau komu heim frá útlöndum með risastóra vatnsmelónu í handfarangri löngu áður en byrjað var að flytja inn slíkt góss til landsins. Það var ekki síður eftirminnilegt þegar þau sögðu frá því að þau hefðu séð sjálfan Clint Eastwood settan í embætti bæjarstjóra í Carmel í Kaliforníu. Á unglingsárum mínum dvaldi ég eitt ár í Suður-Þýskalandi. Kata og Grétar skruppu til Aust- urríkis og gerðu þau sér sérstaka ferð til að sækja mig og bjóða mér með sér á skíði í nokkra daga. Enn og aftur að bjóða mér í ævintýri sem ég hafði ekki upp- lifað áður. Ég er afar þakklát fyr- ir að mín börn hafi kynnst Kötu og Grétari og notið góðvildar þeirra og gestrisni og eigum við dýrmætar minningar með þeim úti í Flatey þar sem við vorum alltaf velkomin til þeirra í Boga- búð. En nú er Ísó-Kata farin í ann- an heim og vonandi hefur hún nú hitt elsku Möggu systur sína sem dó svo allt of ung og við söknum mikið. Ég sé þær fyrir mér saman sitjandi með kaffibollann eða jafnvel hvítvínsglas að tala hátt og hlæja dátt. Lífið virðist ein- hvern veginn fátækara án þeirra. En þetta eru góðar minningar sem ég geymi áfram með þakk- læti í huga. Sigríður Oddný Guðjónsdóttir (Sirra). Það vorar á Breiðafirði, sjó- fuglarnir eru sestir upp og far- fuglarnir flykkjast að. Í huga okkar ófiðruðu farfuglanna vakna myndir af spegilsléttum sjónum, angan af þangi og sjávarseltu og linnulausum fuglasöng sem end- ist jafnlengi og birtan, þá undur- samlegu sumardaga og nætur sem fram undan eru. Þetta sumarið verðum við ein- um færri. Katrín, mágkona og svilkona, er gengin á vit feðra sinna. Katrín var húsfreyja í Bogabúð, sumardvalarstað stór- fjölskyldunnar, allt frá upphafi, þegar hún og Grétar lögðust á eitt með Þórði og Lóu heitnum, ásamt Boga og Ollý að endur- byggja gömlu búðina hans afa Boga. Bogabúð hefur verið okkur öllum hamingjuauki öll þessi ár. Á hverju sumri hittumst við þar, sóttum sjóinn, ræktuðum garðinn og nutum lífsins. Bogabúð verður ekki söm án Kötu, Kötu stóru eins og hún var stundum kölluð, til aðgreiningar frá frænku sinni, Kötu í miðið, og Kötu litlu, Katrínu Ólöfu, dóttur okkar Bryndísar. Kata hélt sig gjarnan heima við í Bogabúð, ræktaði garðinn okkar í Beykis- húsgarðinum og stýrði því bráða- birgðaheimili okkar allra sem sett var upp í Bogabúð á hverju sumri. Við þökkum Kötu fyrir mót- tökur á Ísafirði á páskum og um annan tíma, þar sem við nutum Ísafjarðar með börnum okkar við leik og skíðakennslu sem Grétar veitti af færni og þolinmæði. Við munum sakna Kötu stóru, eins og við höfum saknað Jóns Ásbjörns, en munum halda minn- ingu þeirra á lofti, í Flatey sem annars staðar. Blessuð sé minn- ing Katrínar Bjarneyjar Jóns- dóttur. Einar og Bryndís, Bogi og Ollý, Katrín Ólöf, Stefán, Arnar og Anna Bryndís, Einar Þór og Þórður Birgir. Katrín Bjarney Jónsdóttir Sálm. 86.7 biblian.is Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig því að þú bænheyrir mig. HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.