Morgunblaðið - 11.05.2019, Side 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2019
WWW.S IGN . I S
Fornubúðum 12 · Hafnar f i rð i · s ign@s ign . i s · S : 555 0800
G
U
LL
O
G
D
EM
A
N
TA
R
Marta Magnúsdóttir, f. 30.3. 1900, d.
7.2. 1990, húsmóðir.
Börn Jóhannesar og Dóru: 1) Bera
Nordal, f. 25.9. 1954, fyrrv. safnstjóri
Listasafns Íslands og nú forstöðu-
maður Norræna vatnslitasafnsins í
Svíþjóð. Börn hennar eru Sigurður
Ármann og Ásdís (faðir þeirra:
Sigurður Ármann Snævarr), börn
Ásdísar og Gunnars Sigurðssonar
eru Bera og Gunnar Ármann; 2)
Sigurður Nordal, f. 19.2. 1956, rekstr-
arfræðingur í Kanada. Eiginkona
hans er Snæbjörg Jónsdóttir. Börn
hans eru Jóhannes (móðir: Ragnheið-
ur Ásta Þórisdóttir), Dóra, Anna og
Guðjón Ólafur; 3) Guðrún Nordal, f.
27.9. 1960, prófessor við Háskóla Ís-
lands og forstöðumaður Stofnunar
Árna Magnússonar í íslenskum fræð-
um, búsett í Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Ögmundur Skarphéðins-
son arkitekt. Dóttir þeirra er Kristín;
4) Salvör Nordal, f. 21.11. 1962, um-
boðsmaður barna, búsett í Reykja-
vík. Synir hennar eru Páll og Jóhann-
es (faðir þeirra: Eggert Pálsson); 5)
Ólöf Nordal, f. 3.12. 1966, d. 8.2. 2017,
ráðherra og varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins. Eiginmaður hennar:
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri hjá
Alcoa. Börn þeirra eru Sigurður, Jó-
hannes, Herdís og Dóra. 6) Marta
Nordal, f. 12.3. 1970, leikhússtjóri
Leikfélags Akureyrar, búsett á
Akureyri. Maður hennar er Kristján
Garðarsson arkitekt. Börn þeirra eru
Hjördís og Sigurður.
Systkini Jóhannesar: Jón Nordal,
f. 6.3. 1926, tónskáld og fyrrverandi
skólastjóri, og Bera Nordal, f. 15.3.
1923, d. 10.10. 1927.
Foreldrar Jóhannesar voru hjónin
Sigurður Nordal, f. 14.6. 1886, d. 21.9.
1974, prófessor, og Ólöf Jónsdóttir
Nordal, f. 20.12. 1896, d. 18.3. 1973,
húsmóðir. Þau voru búsett í Reykja-
vík.
Jóhannes Nordal
Guðmundur Ólafsson
bóndi á Kirkjubæ
Margrét Jónsdóttir
húsmóðir á Kirkjubæ
í Norðurárdal, A-Hún.
Jóhannes Nordal
íshússtjóri í Reykjavík
Sigurður Nordal
prófessor í Reykjavík
Björg Jósefína Sigurðardóttir
húsmóðir á Hamri á Ásum,
A-Hún.
Sigurður Helgason
smiður og bóndi á Auðólfsstöðum
Guðrún Jónsdóttir
húsmóðir á Auðólfsstöðum í
Langadal, A-Hún.
Jón Sigurðsson forseti
Jens Sigurðsson
rektor Lærða skólans
Ólöf Björnsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Jón Jensson
háyfirdómari í Reykjavík
Sigríður Hjaltadóttir Thorberg
húsmóðir í Reykjavík
Hjalti Ólafsson Thorberg
bóndi á Ytri-Ey
Guðrún Jóhannesdóttir
húsmóðir á Ytri-Ey á Skagaströnd, fór til Vesturheims
Úr frændgarði Jóhannesar Nordal
Ólöf Jónsdóttir Nordal
húsmóðir í Reykjavík
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fá kaldan drykk
að launum fyrir
garðsláttinn.
HVERNIG HELDUR ODDI
HUGA SÍNUM HÁRBEITTUM?
KJAMS
KJAMS
KJAMS
MEÐ ÞVÍ AÐ MAULA KROSS-
GÁTUR Á HVERJUM DEGI
ÉG ER EKKI HRIFIN … HVERNIG VÆRI
EITTHVAÐ DROTTNINGARLEGT EN
LÉTTÚÐUGT?
ÉG VEIT
UM
EINN!
ÞESSI ER KALLAÐUR
BÝKÚPUDROTTNINGIN!
„ÉG GÆTI RÉTT EINS HAKKAÐ MIG INN
Í BANKAREIKNINGINN HANS, EN ÉG
KANN BETUR VIÐ ÞETTA HANDBRAGÐ.”
„HÉR ER ÞETTA, SEBRA-VÍRUS!”
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Á hestum kennt við konung er.
Á kletti líkt og trjóna.
Einstaklingur er einn hér.
Oft með víða slóna.
Sigmar Ingason svarar:
Klárinn minn óð kelduna í konungsnef.
Karlugla á Hraunsnefi fékk nasakvef.
Kappi forn varð kenndur af nefi sínu.
Tóbakskorn í slóna taldist bót við pínu.
Eysteinn Pétursson leysir gátuna
þannig:
Kjúka á hesti er konungsnef.
Kletti fram úr skagar nef.
Á fundi töldust fjórtán nef.
Feikna sló hefur voldugt nef.
Helgi Seljan á þessa lausn:
Konungsnef hylli knapans vann,
klettasnös má oft nefi flíka.
Nefskattur mörgum nýtast kann,
neftóbaksslóin fyllist líka.
Guðrún Bjarnadóttir leysir gát-
una þannig:
Hnakka kóngsnef hefja.
Hugrökk stefn’á klettsnef
í hópi 19 nefja.
Nös því víða ég hef.
Helgi R. Einarsson er kominn
heim frá Berlín og hér er lausnin:
Þó í mér sé lítið lið
og löngum bresti vitið
ég nef í kvæði kannast við
og konungsnef á hesti.
Þessi er skýring Guðmundar:
Konungsnef á hesti hækill er.
Á hamri nefið skagar eins og trjóna.
Á nef hvert lagður tollur tíðum hér.
Á tóbaksmanni er nef með víða slóna.
Þá er limra:
Hann Loftur, sem langt hafði nef
sagði: „Lagsmaður, heyrðu mig, ef
mitt nef er sagt langt,
er það lygi og rangt“,
svo kvað Loftur, sem langt hafði nef.
Síðan kemur ný gáta eftir Guð-
mund:
Sól á himni brosir blíð,
blessun veitir ár og síð,
glaðvaknaður gríp ég blað,
gátuvísu sem á það:
Nú um tíma talað er.
Tíðum kvenna verkur.
Bardagi þín bíður hér.
Bylur firna sterkur.
Sigurður Bjarnason Katadal orti:
Siglutrafið sérlundar
súgur vafa skekur
út á hafið eilífðar
önd þá kafa tekur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Náið er nef augum